Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 Besta deild karla Valur – Fram ............................................ 1:1 Staðan: Breiðablik 19 14 3 2 50:21 45 KA 19 11 3 5 40:23 36 Víkingur R. 18 10 5 3 42:28 35 Valur 19 9 5 5 38:29 32 Stjarnan 19 7 7 5 37:36 28 KR 19 6 8 5 28:27 26 Fram 19 5 8 6 36:39 23 Keflavík 19 6 4 9 29:33 22 ÍBV 19 4 6 9 29:37 18 FH 19 3 6 10 20:32 15 ÍA 19 3 5 11 18:41 14 Leiknir R. 18 3 4 11 18:39 13 2. deild karla Ægir – Haukar ......................................... 2:0 Staðan: Njarðvík 19 16 1 2 55:17 49 Þróttur R. 19 13 3 3 43:25 42 Ægir 19 10 3 6 33:31 33 Völsungur 19 9 5 5 38:29 32 Höttur/Huginn 19 7 6 6 33:26 27 ÍR 19 7 5 7 29:29 26 Haukar 19 6 6 7 26:25 24 KF 19 4 8 7 35:42 20 Víkingur Ó. 19 4 7 8 36:40 19 KFA 19 5 3 11 31:49 18 Reynir S. 19 3 5 11 18:37 14 Magni 19 2 4 13 19:46 10 Grikkland Asteras Tripolis – Olympiacos............... 0:0 _ Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Danmörk Bröndby – Midtjylland............................ 0:2 _ Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyl- land. Staðan: Nordsjælland 7 5 1 1 11:5 16 Randers 7 4 3 0 9:4 15 Silkeborg 7 4 1 2 13:8 13 AGF 7 4 1 2 9:5 13 Viborg 7 4 0 3 11:9 12 Horsens 7 3 2 2 7:6 11 Midtjylland 7 2 3 2 15:13 9 København 7 3 0 4 14:13 9 OB 7 2 1 4 7:14 7 Brøndby 7 2 0 5 6:13 6 AaB 7 1 2 4 5:10 5 Lyngby 7 0 2 5 7:14 2 Svíþjóð Djurgården – Elfsborg ........................... 2:1 _ Hákon Rafn Valdimarsson varði mark Elfsborg og Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á 71. mínútu. Staða efstu liða: Häcken 20 13 5 2 48:26 44 Djurgården 20 12 5 3 42:16 41 Hammarby 20 12 4 4 42:16 40 AIK 20 10 6 4 32:26 36 Malmö FF 20 10 4 6 27:18 34 Gautaborg 20 10 3 7 26:17 33 Kalmar 20 10 3 7 23:17 33 Mjällby 20 8 7 5 20:17 31 Sirius 20 7 4 9 20:28 25 Elfsborg 20 5 9 6 34:28 24 Noregur B-deild: Start – Grorud ......................................... 5:0 _ Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik- mannahópi Start. Spánn Cádiz – Athletic Bilbao ............................ 0:4 Valencia – Atlético Madrid...................... 0:1 Staðan: Real Madrid 3 3 0 0 9:3 9 Real Betis 3 3 0 0 6:1 9 Barcelona 3 2 1 0 8:1 7 Athletic Bilbao 3 2 1 0 5:0 7 Villarreal 3 2 1 0 5:0 7 Atlético Madrid 3 2 0 1 4:2 6 Osasuna 3 2 0 1 4:2 6 Real Sociedad 3 2 0 1 3:4 6 Mallorca 3 1 1 1 3:2 4 Almería 3 1 1 1 4:4 4 Rayo Vallecano 3 1 1 1 2:2 4 Celta de Vigo 3 1 1 1 4:6 4 Girona 3 1 0 2 3:3 3 Valencia 3 1 0 2 1:2 3 Sevilla 3 0 1 2 3:5 1 Espanyol 3 0 1 2 3:7 1 Elche 3 0 1 2 1:5 1 Getafe 3 0 1 2 1:6 1 Real Valladolid 3 0 1 2 1:8 1 Cádiz 3 0 0 3 0:7 0 >;(//24)3;( Danmörk Bikarinn, 16-liða úrslit: Skive – Fredericia ............................... 30:29 _ Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá Fredericia. Guðmundur Guð- mundsson þjálfar liðið. Holstebro – Mors ................................. 24:27 _ Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar- þjálfari Holstebro. E(;R&:=/D Knattspyrna 3. deild karla: Hvamms.: Korm./Hvöt – Dalv./Rey. .. 17.30 Í KVÖLD! VALUR – FRAM 1:1 1:0 Haukur Páll Sigurðsson 44. 1:1 Jannik Pohl 87. MM Frederik Schram (Val) M Hólmar Örn Eyjólfsson (Val) Jesper Juelsgård (Val) Haukur Páll Sigurðsson (Val) Aron Jóhannsson (Val) Tryggvi Hrafn Haraldsson (Val) Alex Freyr Elísson (Fram) Delphin Tshiembe (Fram) Tiago Fernandes (Fram) Indriði Áki Þorláksson (Fram) Jannik Pohl (Fram) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: 832. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og nánari umfjöllun um leikinn – sjá mbl.is/ sport/fotbolti. FÓTBOLTINN Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Knattspyrnumaðurinn Emil Ás- mundsson hefur þurft að glíma við langvarandi og þrálát meiðsli mörg undanfarin ár. Fyrir yfirstandandi tímabil tókst honum aðeins að spila tíu deildarleiki á þremur tímabilum á undan; átta fyrir Fylki sumarið 2019, engan fyrir KR sumarið 2020 eftir að hann sleit krossband í hné snemma á því ári, og svo tvo leiki fyrir KR á síðasta tímabili. Á þessu tímabili tókst Emil ekki að spila fyr- ir KR en eftir að hann fór að láni frá Vesturbæjarfélaginu til Fylkis um mitt sumar er hann kominn langt með að jafna leikjafjölda sinn undan- farin þrjú ár á aðeins sjö vikum hjá uppeldisfélagi sínu í Árbænum. Þar er Emil búinn að spila átta leiki í 1. deild karla, Lengjudeildinni, þar sem hann hefur skorað fjögur mörk. Allir átta leikirnir hafa unnist og er Fylkir raunar búinn að vinna tíu deildarleiki í röð. Fylkir er á toppi Lengjudeildarinnar með fimm stiga forskot á HK í öðru sæti þegar þrjár umferðir eru eftir og tryggðu Árbæingar sætið í Bestu deild karla um liðna helgi. Dvaldi Fylkir því ekki lengi í næstefstu deild eftir fall úr þeirri efstu á síðasta tímabili. „Þetta er geggjað, þetta er tvö- faldur sigur. Bæði fyrir mig per- sónulega að geta raunverulega spil- að fótbolta aftur, að spila í hverri viku, að fá að taka þátt í upplifuninni sem fylgir leikdegi aftur, og svo náttúrlega að gengið hafi verið svona gott. Við höfum verið á tap- lausu skriði þar sem við höfum unnið tíu leiki í röð. Þetta er algjör snilld,“ sagði Emil í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði það hafa komið sér á óvart hversu vel líkaminn hefði hald- ið síðsumars þar sem meiðsli af ýmsu tagi hefðu reglulega gert vart við sig í kjölfar þess að Emil jafnaði sig á krossbandsslitunum. „Ég bjóst nú ekki við því að skrokkurinn myndi halda sér svona og að ég gæti spilað eins mikið og ég er búinn að gera. Það er framar vonum hvernig hnéð hefur verið og haldist. Skrokk- urinn er góður og ég finn fyrir því að með hverri vikunni sem líður fær maður meira sjálfstraust og treystir einhvern veginn meira á líkamann. Maður var svona aðeins passífari til að byrja með en núna getur maður farið að láta reyna aðeins á líkamann og reyna að nota hann.“ Þakklátur Rúnari Páli Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Fylkis hefur gætt þess að Emil ætli sér ekki um of og gjarna tekið hann af velli eftir rúmlega klukkutíma leik þegar hann hefur verið í byrjunar- liði. Emil telur það hafa verið líkama sínum til heilla. „Já ég held það. Við töluðum akk- úrat um það þegar ég kom hérna fyrst að hann myndi fara varlega með þetta, að fara ekki of geyst af stað með mig. Það er kannski ein- mitt betra fyrir framtíðina að maður sé ekki búinn að henda sér tvisvar í 30 mínútur og svo beint í 90 mínútur. Hann vildi passa vel upp á þetta og ég er honum þakklátur fyrir það því þetta virðist hafa hjálpað mér.“ Þarf ekki miklar styrkingar Þar sem sæti í Bestu deildinni er í höfn lék blaðamanni forvitni á að vita hvernig Emil telur að Fylkir muni spjara sig í henni á næsta tíma- bili. „Ég myndi ekki segja að það þyrfti mikið að styrkja liðið. Við er- um með virkilega góðan hóp og með vel mannaðar stöður, hverja og eina. Svo er líka það að þetta eru yfirleitt uppaldir leikmenn í hverri stöðu og það hafa orðið smá kynslóðaskipti. Allavega síðan ég fór þaðan 2019, en það hefur verið að koma upp fullt af ungum leikmönnum. Það hefur einkennt Fylkisstarfið undanfarin ár hvað þeir eru duglegir að koma sín- um mönnum upp og að þeir séu með lykilhlutverk í liðinu. Ég trúi því og vona að það komi fleiri leikmenn sem stíga upp á næsta ári og það verði styrkingin sem þarf. Ég held að það þurfi ekkert mikið að leita í kringum sig að styrkingum.“ Samningslaus eftir tímabilið Emil verður samingslaus að tíma- bilinu loknu en kvaðst ekki vita hvað framtíðin bæri í skauti sér. „Nei ég er svo sem ekki búinn að pæla mikið í því. Planið var að nýta restina af þessu tímabili og sjá hvort maður myndi geta spilað eitthvað eða hvort þetta væri bara alveg búið hjá manni. Ég horfi voðalega lítið lengra en til næstu viku. Ég er fyrst núna eitt- hvað aðeins farinn að pæla í þessu en voða lítið samt. Ég veit ekki alveg hvernig staðan er úti í Vesturbæ, hvernig þau mál verða, en þegar tímabilið klárast verður maður að setjast niður og taka einhverja ákvörðun og sjá hvað verður.“ Engin formleg tilboð borist Hann sagðist hafa rætt við Rúnar Kristinsson þjálfara KR en þó ekk- ert formlega um hvort Emil verði áfram í Vesturbænum. „Ég er ennþá að þjálfa þarna úti í KR þannig að ég spjallaði aðeins við hann. Hann var bara ánægður með að maður væri kominn aftur og byrjaður að spila og það væri góður sigur fyrir mig prívat og persónulega, hann var rosalega glaður að sjá það. En við höfum ekk- ert rætt neitt varðandi einhverja framtíð þar.“ Spurður hvort honum liði sem hann ætti óklárað verkefni hjá KR eftir að hafa aðeins leikið tvo deild- arleiki á tveimur og hálfu tímabili kvaðst Emil ekki farinn að hugsa svo langt. Þá væru forsvarsmenn Fylkis ekki formlega búnir að bjóða honum samning. „Nei það hefur ekkert formlegt komið frá Fylki. Ég ræddi við Rúnar Pál og við vorum ekkert byrjaðir að ræða það en hann sagði allavega að þetta væri búið að vera gott. Ég er alveg opinn fyrir því að vera þarna áfram því mér líður mjög vel og á meðan gengið er svona er nátt- úrlega ekki hægt annað en að vilja vera hérna. Svo heyrir maður í þessu fólki eftir tímabilið og tekur ákvörð- un af því að maður er nú samnings- laus og þarf að fara að horfa til fram- tíðar hvað það varðar, maður getur ekki beðið endalaust,“ sagði Emil að lokum í samtali við Morgunblaðið. Loksins kom- inn á gott ról eftir erfið ár Ljósmynd/Kristinn Steinn Fagnar Emil Ásmundsson fagnar marki með uppeldisfélaginu Fylki í sum- ar. Hann á sinn þátt í að liðið nældi sér í sæti í efstu deild á nýjan leik. - Tvöfaldur sigur Emils hjá Fylki - Fáir spilaðir leikir undanfarin þrjú ár - Samningslaus eftir tímabilið Valur og Fram skildu jöfn, 1:1, þeg- ar þau mættust í 19. umferð Bestu deildarinnar í knattspyrnu karla á Hlíðarenda í gærkvöldi. Leikurinn fór afskaplega fjörlega af stað þar sem gestirnir í Fram fengu þrjú fyrirtaksfæri og Valur tvö fín skotfæri áður en tíu mínútur voru liðnar. Undir lok fyrri hálfleiks tóku Valsmenn betur við sér og náðu for- ystunni skömmu áður en flautað var til hálfleiks. Þá gaf Tryggvi Hrafn Haraldsson fyrir af vinstri kanti í kjölfar hornspyrnu, fann þar Hauk Pál Sigurðsson, fyrirliða Vals, sem ýtti boltanum yfir línuna af mark- teig. Staðan því 1:0 fyrir Val í leik- hléi. Í líflegum síðari hálfleik fengu bæði lið nokkur afar góð færi til þess að bæta við mörkum og var það með nokkrum ólíkindum að það skyldi ekki hafast fyrr en seint og um síðir. Snemma í síðari hálfleik fékk Framarinn Guðmundur Magnússon sannkallað dauðafæri en Frederik varði skot hans af örstuttu færi á ótrúlegan hátt. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka uppskáru Fram- arar loks jöfnunarmark. Þá skoraði varamaðurinn Jannik Pohl með góðum skalla eftir aukaspyrnu Tia- gos Fernandes af vinstri kanti. Mark Pohls var annað deildarmark hans fyrir Fram á tímabilinu. Það fyrra kom einnig gegn Val; sigur- markið í 3:2-sigri Fram í fyrri leik liðanna. Jafntefli var því niðurstaðan, sem þýðir að Valur heldur kyrru fyrir í 4. sæti deildarinnar og Fram er áfram í 7. sæti. gunnaregill@mbl.is Pohl tryggði Frömurum stig - Skoraði sigurmarkið í fyrri leiknum Morgunblaðið/Hákon Mark Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, kemur boltanum og sjálfum sér í netið í 1:1-jafnteflinu gegn Fram í Bestu deild karla í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.