Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.08.2022, Blaðsíða 12
auk þess sem greiddur var einn milljarður í arð árið 2016. Eign- arhaldsfélagið Hof er eigandi Miklatorgs, en eigendur Hofs eru bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir í gegnum eignarhalds- félög sín. Stefán Rúnar Dagsson, fram- kvæmdastjóri IKEA á Íslandi, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fyrirtækið hefði tekið á sig stóran hluta aukins kostnaðar síðustu tvö árin í stað þess að setja hann allan í verðlagið. Spurður hvort IKEA hygðist fara að fordæmi annarra verslana og frysta vöruverð sagði hann að IKEA frysti vöruverð sitt á hverju ári með útgáfu bæklings fyrir árið í heild sinni. Hagnaður Miklatorgs ehf., sem rekur IKEA á Íslandi, nam í fyrra tæpum 824 milljónum króna, samanborið við hagnað upp á tæp- ar 500 milljónir króna árið áður. Tekjur félagsins námu tæpum 14 milljörðum króna, jukust um rúma 1,4 milljarða króna á milli ára, og hafa aldrei verið meiri. Eigið fé fé- lagsins nam í árslok síðasta árs um 1,3 milljörðum króna. Miklatorg hefur verið rekið með hagnaði á liðnum árum en hagn- aður síðastliðinna fimm ára nemur um þremur milljörðum króna. Fé- lagið greiddi 500 milljónir króna í arð til eigenda sinna á síðasta ári, en arðgreiðslur síðastliðinna fimm ára nema 2,2 milljörðum króna, Rekstur IKEA skilar miklum hagnaði - Rúmlega 820 milljóna króna hagn- aður í fyrra og tekjurnar aldrei meiri Morgunblaðið/Árni Sæberg Verslun IKEA í Kauptúni hefur skilað góðri afkomu á liðnum árum. 12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 Sími 555 2992 / 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“ BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Nýtt miðasölufyrirtæki, MiðiX, er byrjað að ryðja sér til rúms á íslenska viðburðamarkaðnum. Ómar Már Jónsson framkvæmdastjóri segir fé- lagið sérhæfa sig í netsölu miða á við- burði s.s. á tónleika, leiksýningar, íþróttaviðburði og í raun hvar þar sem þörf er á sölu aðgöngumiða. Eng- inn viðburður er of lítill eða of stór að sögn Ómars. Þekkir áhrif fákeppni Hann segir í samtali við Morgun- blaðið að fyrirtækið sé stofnað til höf- uðs fákeppni á markaðnum. Áður var Tix.is eina miðafyrirtækið sem við- burðahaldarar gátu snúið sér til. „Ég veit hvaða áhrif fákeppni hefur á markaði. Hún er ekki góð, hvorki fyrir fyrirtæki né markaðinn í heild né heldur viðburðahaldara,“ segir Ómar. Hann segir að fákeppni hafi alltaf þau áhrif að þjónustustig lækki og verð hækki. „Við byrjuðum að skoða þessa hug- mynd rétt fyrir veirufaraldurinn. Ég fann flott samstarfsfyrirtæki í Þýska- landi sem þróar vandaðan og þraut- reyndan búnað. Við notuðum svo tím- ann í faraldrinum til að laga kerfið að íslensku umhverfi,“ segir Ómar. Þýska hugbúnaðarfyrirtækið er jafnframt hluthafi í MiðaX. „Við ætlum ekki í útrás heldur ein- beita okkur að því að veita góða þjón- ustu hér á landi og bjóða viðburða- höldurum sanngjarnt verð.“ Fjöldi miða þegar seldur MiðiX hefur nú þegar selt fjölda miða á ýmsa viðburði, stóra og smáa. Allt hefur gengið smurt að sögn Óm- ars. „Ég hef reynslu af því að stofna fyrirtæki og byggja þau upp. Ég þekki réttu ferlana.“ Hann segist hafa fengið góð við- brögð við nýja kerfinu enda leggi hann áherslu á vönduð vinnubrögð og áframhaldandi þróun kerfisins í sam- ræmi við óskir viðskiptavina. „Það er þolinmótt fjármagn í félaginu. Við viljum koma til móts við viðskiptavini með lægri þjónustugjöldum.“ Á meðal þeirrar þjónustu sem kerf- ið býður upp á er beinn aðgangur fyr- ir viðburðahaldara. Þar geta þeir fylgst með umferðinni á vefnum og gengi miðasölunnar. Einnig er bún- aðurinn tengdur við Google Analyt- ics-vefgreiningartólið sem gefur við- skiptavinum ýmsar notadrjúgar upplýsingar eins og um kyn og aldur miðakaupenda. Efitt að spá um hlutdeild Spurður um væntingar til mark- aðshlutdeildar MiðaX segir Ómar að erfitt sé að segja fyrir um það. „Ég kom á sínum tíma inn á sýningar- kerfamarkaðinn þar sem aðeins eitt fyrirtæki var á markaðnum fyrir. Ég náði 50% markaðshlutdeild á einu ári,“ segir Ómar að lokum. Til höfuðs fákeppni á markaði Morgunblaðið/Hákon Viðburðir Ómar Már Jónsson hefur reynslu af viðburðamarkaðnum. - Enginn viðburður of lítill eða of stór fyrir MiðaX - Samstarf við þýskt hug- búnaðarfyrirtæki - Góð viðbrögð - Þolinmótt fjármagn - Beinn aðgangur Miðasala » MiðiX sérhæfir sig í netsölu miða á viðburði, s.s. á tónleika, leiksýningar, íþróttaviðburði og í raun hvar þar sem þörf er á sölu aðgöngumiða. » Tengsl við Google Analytics gefa viðskiptavinum nota- drjúgar upplýsingar. 30. ágúst 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 140.2 Sterlingspund 165.86 Kanadadalur 108.39 Dönsk króna 18.863 Norsk króna 14.513 Sænsk króna 13.273 Svissn. franki 145.51 Japanskt jen 1.0239 SDR 183.15 Evra 140.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.9492 « Ný Boeing 747-8-júmbóþota er nú í smíðum í verksmiðju banda- ríska flugvélafram- leiðandans, sem væri ekki í frásögur færandi nema hvað þar er á ferðinni síðasta Boeing 747-vélin sem framleidd verður. Vélin, sem er fraktvél, verður afhent Atlas Air innan tíðar. Framleiðsla á drottningu háloftanna, eins og hún er stundum kölluð í flug- heiminum, hófst um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar en fyrsta vélin flaug í febrúar 1969. Innkoma hennar á markað var bylting á sínum tíma, þar sem hægt var að tvöfalda fjölda farþega í einu flugi á við það sem Boeing 707- vélar þess tíma gátu borið. Bandaríska risaflugfélagið Pan American (Pan Am) var það flugfélag sem helst hafði kallað eftir framleiðslu á slíkri vél og átti stór- an þátt í því að framleiðslu hennar var komið á fót. Hún varð fljótlega vinsæl meðal annarra flugfélaga sem byggðu leiðakerfi sín á því að fljúga með mikinn fjölda lengri flugleiðir. Þar má nefna fé- lög á borð við British Airways, Japan Airlines, KLM og Lufthansa og Qantas. Þá varð fraktútgáfa vélarinnar einnig eftirsótt meðal félaga á borð við Cargo- lux, Cathy Pacific og síðar UPS, Atlas Air og fleiri félaga. Eins og aðrar fjögurra hreyfla vélar hefur drottningin þó þurft að lúta í lægra haldi fyrir hækkandi eldsneyt- isverði. Framleiðslu hinnar tveggja hæða Airbus A380 var hætt í fyrra og flest flugfélög, hvort sem er í farþega- flugi eða fraktflugi, hafa kosið að fjár- festa í tveggja hreyfla vélum á liðnum árum. Hún hefur þó nýst vel í fraktflugi á liðnum árum, þar sem mikil eftirspurn hefur verið eftir flugfrakt á tímum heimsfaraldurs. Fraktflugfélögin horfa þó einnig til tveggja hreyfla véla til lengra tíma litið en þar kunna Boeing 777 og Boeing 787 Dreamliner að vera álitlegar ásamt Airbus A330. Síðasta Beoing 747- flugvélin í framleiðslu Boeing 747-8-vél í litum Lufthansa. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.