Morgunblaðið - 30.08.2022, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.08.2022, Qupperneq 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Félagsheimilið hefur reynst íbúun- um vel. Það er grundvöllur fyrir starfsemi félaganna í sveitunum, ungmennafélags, kvenfélags, leik- deildar og björgunarsveitar,“ segir Brynjólfur Guðmundsson í Hlöðu- túni, formaður hússtjórnar félags- heimilisins Þinghamars á Varma- landi í Borgarfirði. Húsið var lengi í byggingu vegna þess að aðeins var unnið fyrir fjár- magn sem var til og oft urðu tafir á að það fengist. Það var þó smám saman tekið í notkun frá árinu 1982. Þess vegna fannst aldrei tími til að vígja bygginguna eða taka hana formlega í notkun. Vinsæll húsvörður, Guðmundur Finnsson, er nú að láta af störfum eftir 40 ára starf. Liðin eru 40 ár frá því starfsemi hófst í félagsheim- ilinu og 50 ár frá því bygging þess hófst. Af þessu tilefni var haldið samsæti í Þinghamri sem fjöldi íbúa sveitanna og gestir sóttu. Hússtjórnin og menningarfélögin sem mest nota félagsheimilið heiðr- uðu Guðmund og þá menn sem mest stóðu fyrir byggingunni, þá Jón Þór Jónasson sem var formað- ur byggingarnefndar allan tímann og Pétur Oddsson yfirsmið. Einnig var höfundi að heiti hússins, Þor- valdi Jónssyni, veitt viðurkenning þótt langt sé liðið frá því nafnið var ákveðið. Þá var drifið í því að merkja húsið. Var þessi athöfn því eins konar síðbúin vígsluathöfn. Þörf á stórum sal Áður en kom að byggingu Þing- hamars höfðu umræður staðið lengi um byggingu félagsheimilis á Varmalandi fyrir Stafholtstungur eða stærra svæði. Samkomulag náðist um að íþróttahús fyrir nem- endur barnaskólans og húsmæðra- skólans yrði hluti af félagsheim- ilisbyggingu fjögurra hreppa, Norðurárdals, Þverárhlíðar, Hvít- ársíðu og Stafholtstungna. Hófust framkvæmdir á árinu 1972. Brynj- ólfur segir það ekki að ástæðulausu að lengi hafi verið búið að ræða byggingu félagsheimilis. Þörfin hafi verið fyrir hendi. Þinghamar tók við af litlum samkomustöðum sveit- anna. „Ég dáist að því að þeir menn sem stóðu fyrir þessari framkvæmd skyldu koma upp þessari miklu byggingu, “ segir Brynjólfur. Hann segir að húsið taki stærri viðburði og sé það eina á þessum slóðum sem það geri, fyrir utan Reykholts- kirkju. Það komi sér vel þegar haldin eru þorrablót og aðrar stærri samkomur. Einnig nýti grunnskólinn salinn fyrir skólaslit og skólasetningu, auk íþrótta- kennslu. Baðhús fyrir sundlaugina á Varmalandi er hluti af bygging- unni sem og slökkvistöð sem björg- unarsveitin Heiðar nýtir nú sem tækjageymslu. Húsið „vígt“ 40 árum eftir byggingu Heiðrun Pétur Oddsson yfirsmiður, Jón Þór Jónasson formaður byggingarnefndar og Þorvaldur Jónsson höfundur nafnsins voru heiðraðir á samkomu sem efnt var til í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því framkvæmdir hófust. Þakkir Guðmundur Finnsson tók við blómvendi úr hendi Brynjólfs Guð- mundssonar í þakklætisskyni fyrir gott starf sem húsvörður í 40 ár. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Undir Hnúknum Félagsheimilið Þinghamar og sundlaugin á Varmalandi standa undir Hverahnúk. - Frumherjar í byggingu og rekstri fé- lagsheimilisins Þinghamars heiðraðir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vesturbyggð er að skipuleggja nýja íbúðarbyggð í landi Hóls í Bíldudal, skammt frá innkomunni í þorpið. Þar verður hægt að byggja 56 íbúð- ir í einbýlis-, par- og raðhúsum og einu fjölbýlishúsi. Mikill uppgangur hefur verið í at- vinnulífinu á Bíldudal með upp- byggingu kalkþörungaverksmiðju og laxeldis. Hefur staðan gjörbreyst frá því sem var þegar atvinnulífið barðist í bökkum og íbúar fluttu í burtu. Lítið úrval af lóðum Óskar Örn Gunnarsson skipulags- fulltrúi Vesturbyggðar segir að skortur sé á húsnæði á Bíldudal og raunar Vesturbyggð allri. Lítið úr- val hafi verið af íbúðarhúsalóðum. Á Bíldudal hafa verið erfiðleikar með að skipuleggja íbúðalóðir vegna þess að stór svæði hafa verið skil- greind sem hættusvæði vegna ofan- flóða. Þá eru svæði í jaðri þorpsins í einkaeigu. Hverfið sem nú er verið að skipu- leggja er aðeins utan þorpsins en þó nálægt aðkomunni að því. Vestur- byggð á landið en hverfið mun liggja að golfvelli Bíldudals og íþróttavellinum Völuvelli. Lóðir auglýstar í vetur Skipulagssvæðið er níu hektarar að stærð og er áformað að byggja hverfið upp í þremur áföngum. Gert er ráð fyrir blágrænum ofanvatns- lausnum þannig að yfirborðsvatn verði hreinsað áður en það fer út í ána. Skipulagið hefur verið auglýst en sveitarstjórn á eftir að fara yfir um- sagnir og athugasemdir. Búast má við því að hægt verði að auglýsa lóð- ir til umsóknar fyrrihluta vetrar. Nýtt íbúðar- hverfi á Bíldudal - Þörf er á nýjum lóðum í Vesturbyggð Morgunblaðið/ÞÖK Bíldudalur Nýja hverfið verður við aðkomuna að þorpinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.