Morgunblaðið - 30.08.2022, Side 16

Morgunblaðið - 30.08.2022, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. ÁGÚST 2022 ... stærsti uppskriftarvefur landsins! AÐALRÉTTIR BAKSTUR DRYKKIR MORGUNMATUR EFTIRRÉTTIR SMÁRÉTTIR HOLLT MEÐLÆTI VEGAN Eins og vitað er er Guðlaugur Þór Þórð- arson umhverfis- ráðherra veiðimaður. Hann hefur jafnvel birt mynd af sér yfir dauðu hreindýri á net- inu, glaðbeittur á svip og stoltur að sjá yfir því að hafa drepið sak- laust og varnarlaust dýrið. Getur veiðimaður verið umhverfisráðherra? Það er hálfkaldhæðnislegt að veiðimaður skuli vera skipaður um- hverfisráðherra, en Bjarni Bene- diktsson, sem að því stóð, fer vænt- anlega ekki í sögubækurnar fyrir að bera sérstaka virðingu fyrir náttúru og lífríki landsins. Flestir skilja að láð, loft og lögur, fána og flóra mynda eina samverkandi og órjúfanlega heild, sem öll – og þá sérstaklega vernd hennar og við- hald – á að vera á verk- og ábyrgð- arsviði umhverfisráðherra. Villt dýr auðvitað meðtalin. Hvað með hreindýrin? Villtar dýrategundir eru hér fáar. Fyrir alla sem vilja viðhalda því dýraríki sem er eru hreindýrin því mikilvæg, enda falleg dýr og tign- arleg og auðga náttúru og um- hverfi. Hreindýrin skipta líka máli fyrir ferðaþjónustuna, en víða um heim eru hreindýrin og ímynd þeirra nátengd jólahaldi og jóla- gleði. Hafa því margir ferðamenn, ekki síst fjölskyldufólk, af því gleði að fara austur og leita þar hreindýra. Er þörf á að drepa þau? Alls eru hreindýrin 5-6.000, en fé á fjalli 700-800.000 og hestar, mest í útigangi, 70- 80.000. Þannig eru minnst 800.000 grasbít- ar í landinu og fjöldi hreindýra því sáralítið hlutfall. Í Svíþjóð eru 400.000 elgir, sem eru miklu stærri og þurfta- meiri dýr en hreindýr. Mín vegna mætti því leyfa hreindýrum að breiða úr sér um landið og er lík- legt að náttúran sjálf myndi stýra fjölda skv. umhverfi og lífs- skilyrðum. Eru hreindýraveiðar mannúðlegar? Varla! Af þeim hreindýrum sem voru skotin sumarið 2018 voru 33 dýr með gömul skotsár, áverka sem þau höfðu lifað af, kannski með miklu kvalræði. Veiðimenn og leiðsögu- menn hafa þó skuldbundið sig til að elta uppi særð dýr og aflífa. Hversu mörg dýr skyldu hafa verið skotin, meidd og limlest án þess að drepast strax en svo dáið drottni sínum eftir lengri eða skemmri píslargöngu? Það er önnur spurning. Enn verri hlið! 1. ágúst sl. máttu veiðimenn byrja að skjóta hreinkýr, sem eru allflestar með kálfa, en þeir fæðast seinni hluta maí, jafnvel fram í júní, og eru þeir yngstu rétt átta vikna þegar farið er að drepa mæðurnar frá þeim. Öllum sem eitthvað vilja vita er auðvitað ljóst að ekkert átta vikna spendýr, hvorki hvolpar, lömb, kálf- ar né folöld, hefur náttúrulega burði til að standa á eigin fótum, enda drekka hreinkálfar móður- mjólkina minnst til fimm mánaða aldurs. Er þetta hreinkúadráp frá 1. ágúst því misþyrming á kálf- unum og fyrir undirrituðum ljótt dýraníð. Tilmæli UST um að geldar kýr skuli mest veiddar fyrstu tvær vik- urnar standast ekki í reynd. Veturinn 2018-2019 fórust 600 kálfar Skv. gögnum frá Náttúrustofu Austurlands frá 2019 var meðaldán- artíðni hreinkálfa þann vetur 21%; frá 9% upp í 45% eftir svæðum. Talan 45% er auðvitað yfirþyrm- andi; annar hver kálfur fórst úr hungri og vosbúð! Skv. öðrum upp- lýsingum taldist undirrituðum til að 600 kálfar hefðu farist þennan vet- ur, sem þó var mildur. Flestir hafa þessir kálfar verið móðurlausir ræflar. Ósannindi leiðsögumanna og Náttúrustofu Austurlands Í blaðaviðtali sagði formaður fé- lags leiðsögumanna hreindýraveiði- manna, sem líka verður að teljast talsmaður NA: „Í rauninni höfum við ekkert í höndunum um að það (lengdur griðatími kálfa) breyti ein- hverju fyrir kálfana, því sú rann- sókn er ekki til.“ Þetta sýnir auðvitað lágkúruna sem að baki þessum veiðum býr, rangfærslurnar, því það eru til margvíslegar heimildir, vísinda- greinar, sem sanna hversu erfitt uppdráttar ungviði sem misst hefur móður sína á. Hér eru nokkrar slíkar: „Kálfur sem missir móður sína hefur minni lífslíkur að vetri þar sem hann nýtur ekki mjólkur né leiðsagnar hennar við beitina.“ (Sjennberg og Slagsvold“ (1968).) „Það hefur afgerandi þýðingu fyrir afkomumöguleika afkvæma stórra spendýra á norðurhveli jarð- ar og möguleika þeirra til að lifa af hversu lengi og í hve miklum mæli þau njóta umhyggju og umönnunar foreldra.“ (Stearns (1992).) „Niðurstaðan var að færri móð- urlausir kálfar lifðu af en hinir. (Joly (2000).) „Kostir náins sambands móður og afkvæmis umfram mjólkurgjöf felast í umönnun, vernd og kennslu móður á grunnvenjum, nýtingu beitilands og leiðum til að lifa af og leita sér skjóls.“ (Lent (1974).) Fagráð um velferð dýra er skip- að yfirdýralækni, Sigurborgu Daða- dóttur, og fulltrúum fernra sam- taka sem tengjast dýravelferð. Á það að vera Matvælastofnun, Um- hverfisstofnun og umhverfis- ráðherra „… til ráðuneytis um stefnumótum og einstök álitaefni er varða málefni á sviði velferðar dýra“ skv. lögum. Á fundi þessara stofnana og umhverfisráðuneytisins í janúar 2020 beindi fagráðið þeim tilmælum til forráðamanna þeirra að hreinkýr yrðu ekki drepnar frá kálfum sínum svo lengi sem þær væru mjólkandi, sem var auðvitað málefnaleg og mannúðleg hugsun og tillaga. Skv. henni hefði fyrst mátt veiða hreinkýr 1. nóvember, þegar kálfar væru fimm mánaða. Hefði staða þeirra gagnvart vetri og lífsbaráttunni þá auðvitað stór- batnað. Þessar stofnanir og þáverandi umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, gerðu hins veg- ar ekkert með þetta. Völd veiði- manna og hagsmunaaðila eru mikil. Hvað gerir nýr ráðherra? Veiðimál Guðlaugs Þórs voru nefnd hér í upphafi. Verður spenn- andi að sjá hvort hann fer nú aftur austur til hreindýraveiða eða ekki og hvað hann gerir svo með tilmæli fagráðs um aukna vernd og velferð fyrir burðarlitla og varnarlausa hreinkálfa, grið þeim til handa með- an móðir er mjólkandi. Innri maður ráðherra kemur þá í ljós. Skyldi umhverfisráðherra vera á leiðinni austur? Vonandi ekki! Eftir Ole Anton Bieltvedt » Víða um heim eru hreindýrin og ímynd þeirra nátengd jólahaldi og jólagleði. Hafa því margir ferðamenn af því gleði að fara austur og leita hreindýra. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.