Morgunblaðið - 06.09.2022, Page 10

Morgunblaðið - 06.09.2022, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Malbikstöðin ehf • 516 0500 • tilbod@malbikstodin.is • malbikstodin.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sumarið hefur verið kalt, sér í lagi þegar sumur þessarar aldar eru skoðuð. Mjög hlýir dagar hafa ver- ið fáir. Þetta kemur fram í tíðar- farsyfirliti Veðurstofunnar þegar skoðaðir eru sumarmánuðirnir þrír, júní, júlí og ágúst. September telst til veðurstofusumarsins og hann hefur verið mildur það sem af er. Meðalhiti í Reykjavík var 10,1 stig sumarmánuðina þrjá, sem er 0,7 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020, en 0,8 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Sumarið (júní til ágúst) í Reykjavík var það næstkaldasta á þessari öld. Kald- ara var sumarið 2018. En á langa listanum er meðalhiti sumarmán- aðanna þriggja í 84. til 85. sæti á lista 152 ára. Hæsti hiti sumarsins í Reykjavík er aðeins 17,9 stig. Á Akureyri var meðalhitinn 10,3 stig. Það er 0,2 stigum undir með- allagi áranna 1991 til 2020 en 0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Meðalhitinn þar raðast í 60. sæti á lista 142 ára. Meðalhiti sumarsins (júní til ágúst) á Akur- eyri er 2,5 stigum lægri en meðal- hiti sumarsins í fyrra en það sum- ar var það hlýjasta á Akureyri frá upphafi mælinga. Úrkoma í Reykjavík mældist 193,4 millimetrar sem er 23% um- fram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist úrkoma sumarmánaðanna þriggja 96,0 millimetrar sem er jafnt meðallagi áranna 1991 til 2020. Sólskinsstundir mældust 537,8 í Reykjavík sem er jafnt meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 478,2 sem eru tveimur færri en að með- altali áranna 1991 til 2020. Fram kemur í tíðarfarsyfirlitinu að nýliðinn ágústmánuður var að tiltölu kaldur um allt land. Þó voru hlýindi um norðaustanvert landið undir lok mánaðar og hæsti hiti sumarsins mældist á Mánárbakka þann 30. ágúst. Fremur sjaldgæft er að hæsti hiti ársins mælist svo síðla árs. Meðalhiti í ágúst var lægri en meðalhiti ágústmánaðar undanfarinn áratug á nánast öllum veðurstöðvum landsins. Ágúst var þurr og sólríkur Mánuðurinn var almennt þurr- ari og sólríkari en í meðalári, bæði í Reykjavík og á Akureyri. Í ágúst var meðalhiti í Reykja- vík 10,2 stig sem er 0,9 stigum undir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020 og 1,1 stigi undir meðal- lagi undanfarins áratugar. Á Ak- ureyri var meðalhitinn 10,0 stig eða 0,7 stigum undir meðallagi ár- anna 1991 til 2020 og 0,9 stigum undir meðallagi undanfarinna tíu ára. Í Reykjavík mældust sólskins- stundir mánaðarins 189,2 en það er 24,4 stundum yfir meðallagi ár- anna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust 164,8 sólskinsstundir í ágúst sem er 26,8 stundum yfir meðallagi tímabilsins 1991 til 2020. Næstkaldasta sumarið á öldinni - Kaldara var sumarið 2018 - Mjög hlýir dagar hafa verið fáir í sumar - September telst sumar- mánuður og hann hefur verið mildur til þessa - Nýliðinn ágústmánuður var kaldur um allt land Morgunblaðið/Eggert Á Sæbraut Úrkomusamt hefur verið í höfuðborginni í sumar. Ferðamenn hafa oft þurft að klæðast regngöllum. Byggingu nýrrar Miðgarðakirkju í Grímsey miðar vel. Hilmar Páll Jó- hannesson, hjá Loftkastalanum ehf., sem sér um byggingu kirkj- unnar, var í gær ásamt fleirum að ganga frá kirkjuturninum. Í dag er von á steinskífum úr íslensku stuðlabergi sem klæða munu þakið. Stefnt er að því að klára ytra byrði kirkjunnar í þessum mánuði. Hallgrímssöfnuður hefur hafið söfnun fyrir nýjum kirkjuklukkum handa Grímseyingum. Báðar klukk- ur Miðgarðakirkju bráðnuðu þegar kirkjan brann í september í fyrra. Sú minni var með mikilli áletrun og skrauti, steypt í Kaupmannahöfn 1799. Sú stærri var frá 1862. Klukk- urnar komu frá Siglufjarðarkirkju fyrir miðja 20. öld, samkvæmt til- kynningu frá Hallgrímssöfnuði. Nýju klukkurnar verða steyptar hjá Royal Eijsbouts, konunglegri klukkusteypu í Hollandi, og er gert ráð fyrir að þær komi til landsins í vor. Kostnaður er 2,5-3 milljónir króna. Styrktarreikningur fyrir al- menning er 513-26-6901, kt: 590169-1969. Skýring: Grímsey. Stefnt er að því að Hallgrímssöfn- uður afhendi klukkurnar í safn- aðarferð til Grímseyjar næsta sum- ar. Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju, hafði frumkvæði að söfnuninni. Hann segir að þeim hafi runnið blóðið til skyldunnar því ein af 29 klukkum í klukkuspili Hallgríms- kirkju var gefin í nafni Gríms- eyinga. Þá er Grétar Einarsson, yf- irkirkjuvörður Hallgrímskirkju, sonur Einars Einarssonar lista- smiðs sem var djákni í Grímsey í sex ár og setti mikinn svip á Mið- garðakirkju með verkum sínum, að sögn Einars Karls. Söfnunartónleikar haldnir Söfnunartónleikar verða í Hall- grímskirkju sunnudaginn 25. sept- ember undir heitinu Hljómar frá heimskautsbaugi. Þar koma fram Eyþór Ingi Jónsson organisti og söngvararnir Ívar Helgason, Jónas Þór Jónasson, Kristjana Arngríms- dóttir, Óskar Pétursson og Ösp Eld- járn. Auk þeirra taka þátt Björn Steinar Sólbergsson organisti, Steinar Logi Helgason kórstjóri og Kór Hallgrímskirkju. Aðgöngu- miðar fást á tix.is og í Hallgríms- kirkju. Eftir messu þennan sama dag, kl. 12.20, flytur Hjörleifur Stefánsson, arkitekt nýrrar Miðgarðakirkju, erindi í Hallgrímskirkju um kirkju- smíðina í Grímsey. Ljósmynd/Inga Lóa Guðjónsdóttir Endurreisn Þakskífur úr íslensku stuðlabergi koma til Grímseyjar í dag. Safna fyrir nýjum kirkjuklukkum - Kirkjubyggingu í Grímsey miðar vel Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. skrifuðu í gær undir samkomulag um einka- viðræður og helstu skilmála samn- inga sem lúta annars vegar að sölu á stofnneti Sýnar hf. til Ljósleiðarans ehf. og hins vegar að þjónustusamn- ingi milli fyrirtækjanna til tíu ára. Fram kemur í tilkynningu að kaupverðið sé þrír milljarðar króna og sé samkomulagið með fyrirvara um fjármögnun, niðurstöðu áreiðan- leikakönnunar og að Samkeppniseft- irlitið samþykki endanlega kaup- og þjónustusamninga. Miðað er við að endanlegir samningar liggi fyrir eigi síðar en 15. desember nk. Mikilvægt púsl Haft er eftir Erling Frey Guð- mundssyni, framkvæmdastjóra Ljósleiðarans, í tilkynningunni, að Sýn hafi alla tíð verið einn mikilvæg- asti viðskiptavinur Ljósleiðarans. Með þessu samkomulagi bætist mik- ilvægt púsl í þá framtíðarsýn sem Ljósleiðarinn hafi unnið að um nokk- urra ára skeið, að byggja upp nýjan landshring og að treysta tekjurnar af þeirri fjárfestingu. Í tengslum við þau áform hafi félagið þegar kynnt þjónustusamninga við Nova og Fa- rice og samning við utanríkisráðu- neytið um afnot af hluta hins svokall- aða NATO-strengs umhverfis landið. Ljósleiðarinn ehf. er fjarskipta- félag í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og stofnað sem Gagnaveita Reykja- víkur árið 2007. Sýn hf. á m.a. og rekur vörumerk- in Vodafone, Stöð 2, Bylgjuna og Vísi. Kaupir stofnnet Sýnar - Verðið 3 milljarðar - Þjónustusamningur til 10 ára

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.