Morgunblaðið - 06.09.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.09.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum H eimur versnandi fer hef- ur heyrst í áratugi en er það svo? Alhæfingar eru innihaldslausar án raka en þær geta líka verið hættulegar eins og viðfangsefnið horfir við sænsku rithöf- undunum Mich- ael Hjorth og Hans Rosenfeldt í glæpasögunni Hin óhæfu. Sumir telja sig standa öðrum framar, vera betri og hæfari. Margir komast til áhrifa án þess að eiga innistæðu fyrir því, en sennilega eru þeir fleiri sem ýtt er út í kuldann þrátt fyrir að hafa mun meira til brunns að bera en þeir sem hnossið hljóta. Kató gamli þeirra Hjorths og Rosenfeldts beinir spjótum sínum að fjölmiðlum og sakar þá um að valda hnignun í samfélaginu vegna áherslu þeirra á yfirborðsmennsku og heimsku, sem sjáist best í svo- kölluðum raunveruleikaþáttum og í gegndarlausri umfjöllun um „gervi- fræga“ fólkið, ekki síst á netinu, þar sem smellir skipti öllu. Nær væri að beina athygli að unga og menntaða fólkinu sem hafi markað sér stefnu og hafi góð áhrif á um- hverfið. Morðrannsóknardeild Torkels virðist vera skipuð hæfu fólki, en þar, eins og annars staðar, er maðkur í mysunni. Sálfræðingurinn Sebastian Bergman veit sínu viti þegar kemur að lausn glæpamála, en hann er kynlífsfíkill og veldur meiri vandræðum í einkalífinu en lögreglan þolir. Þegar betur er að gáð eru ýmsir aðrir í teyminu ekki barnanna bestir og þótt Sebastian virðist ekki eiga sér viðreisnar von þurfa sumir heldur betur að hugsa sinn gang. Hin óhæfu er spennandi og veltir mörgum steinum. Þótt langur veg- ur virðist vera á milli kindabyssu og háþróaðrar sprengju er ekki allt sem sýnist. Tvöfeldnin og tvískinn- ungurinn ráða víðar ríkjum en margur heldur og það er boðskap- urinn, hvað sem öllum viðbjóðnum líður. Vandræði „Hin óhæfu er spennandi og veltir mörgum steinum,“ segir gagn- rýnandinn um þessa nýjustu sögu Hjorth og Rosenfeldt sem þýdd er. Reynt að rétt- læta illræði Glæpasaga Hin óhæfu bbbbn Eftir Michael Hjorth & Hans Rosenfeldt. Snæbjörn Arngrímsson þýddi. Bjartur 2022. Kilja, 496 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON GLÆPASAGA Breska tónlistarkonan Adele var sigursæl á fyrri Emmy-verðlauna- hátíð haustsins í Los Angeles um helgina, svokallaðri Creative Emmy Awards, sem er upptakturinn að aðalhátíðinni um næstu helgi þar sem besta sjónvarpsefni vestanhafs er verðlaunað. Upptaka af tón- leikum Adele, One Night Only, var valin besta tónlistarefnið á liðnu ári. Þar með hefur Adele hreppt þrenn helstu verðlaun af fernum sem tón- listarmenn geta unnið, fyrir tónlist- ina, kvikmyndir og leikhús – svokall- að EGOT; hún hefur hreppt Emmy, 15 Grammy-verðlaun og Óskar fyrir lagið við Bond-myndina Skyfall. Hana vantar aðeins Tony-verðlaun. One Night Only hreppti fern önn- ur verðlaun á Emmy-hátíðinni en fimm þáttaraðir eða dagskrárliðir hrepptu svo mörg verðlaun. Það voru einnig Stranger Things, Euph- oria, The White Lotus og Get Back, heimildaþáttaröð Peters Jacksons í fjórum hlutum um Bítlana. Þar með eru Bítlarnir Paul McCartney og Ringo Starr einnig komnir með EGO-verðlaunaþrennu og vantar bara Tony-verðlaunin til að full- komna fernuna. Meðal annarra verðlauna má nefna að dragdrottningin RuPaul hreppti sjöunda árið í röð verðlaun fyrir RuPaul’s Drag Race. Á vef BBC kemur fram að þar með hafi þættirnir hreppt 12 Emmy-verðlaun og hefur enginn hörundsdökkur listamaður hlotið jafn mörg. Suðurkóreska leikkonan Lee You-mi, sem sló í gegn í spennutrylli Netflix, Squid Game, hlaut verðlaun sem besta leikkona í dramatískri þáttaröð. Þá hlaut leikarinn Nathan Lane verðlaun fyrir leik sinn í gam- anþáttunum Only Murders In The Building. Hann hafði áður verið til- nefndur sjö sinnum til verðlaunanna án þess að hljóta þau, sem er met. Chadwick heitinn Boseman hlaut verðlaun fyrir tilfærslu á persón- unni T’Challa úr kvikmyndinni Black Panther yfir í teiknimynd Disney What If…? Ekkja hans veitti verðlaunagripnum viðtöku. Seinni hluti Emmy-hátíðarinnar fer fram um næstu helgi og hlutu þætt- irnir Succession flestar tilnefningar, 25 alls. Upptaka af tónleikum með Adele valin best - Bítlaþættir Peters Jacksons hlutu fimm Emmy-verðlaun AFP/Amy Sussman Áskrifandi RuPaul hlaut Emmy-verðlaun sjöunda árið í röð fyrir RuPaul’s Drag Race, sem besti stjórnandinn í veruleika- eða keppnisþætti. Rúmenskt ljóðskáld, Eduard Tara, hlaut fyrstu verðlaun í ljóða- samkeppninni Ljósberanum sem Menningarfélagið Bryggjuskáldin í Reykjanesbæ stóð nú fyrir í annað sinn. Tara heppti verðlaunin fyrir hækurnar „Ljós á Suðurnesjum“. Í öðru sæti varð Harpa Rún Krist- jánsdóttir með ljóðið „Öldulög“ og í þriðja sæti Sveinn Ólafur Jóhann- esson með „Brimsorfin“. Í dómnefnd voru Anton Helgi Jónsson, Guð- mundur Magnússon, Eyrún Ósk Jónsdóttir og Helga Soffía Einars- dóttir. Eduard Tara er 53 ára stærð- fræðikennari í Rúmeníu. Hann hefur aldrei til Íslands komið eða lært ís- lensku en segir að hann hafi fengið yfir 250 verðlaun í ljóðasam- keppnum víða um lönd, sem hann sendir inn í ljóð í hinum klassísku japönsku ljóðformum, hækur og tönkur. Hann segir Ísland 36. landið þar sem hann hreppi verðlaun fyrir ljóð en hann hafi samið ljóð á 23 ólík- um tungumálum. Þá hafi hann átt hækur í ljóðasöfnum víða og gefið út tvær ljóðabækur. Áður en Tara sendi hækur sínar inn í keppnina hér lagðist hann í rannsókn á íslensku og staðháttum hér og skrifaði síðan hækurnar. Tara segir í texta sem aðstandendur Ljósberans hafa sent frá sér, að eftir að hafa rekist á auglýsingu um keppnina á netinu hafi hann orðið spenntur fyrir því að yrkja á ís- lensku. „Ég fann á netinu orðabók og upplýsingar um íslenska mál- fræði. Ég lærði og skrifaði án þess að vita hvort ljóðin mín væru á réttu máli.“ Í færstu á Facebook skrifar skáld- ið og dómnefndarmaðurinn Anton Helgi að óvænt úrslit séu alltaf hressandi og skemmtileg. Skáldið sem hreppti verðlaunin „hefur aldrei hingað komið en fékk að eigin sögn innblástur fyrir verðlaunaskáld- skapinn úr margvíslegu kynningar- efni um Suðurnesin. Hann stefnir á að koma til landsins og njóta verð- launanna en þau eru einmitt dvöl í skáldasetri sunnanlands. Ljóðið sem við verðlaunuðum er í raun syrpa af tólf hækum, einni fyrir hvern mánuð ársins. Sumar eru ein- staklega fallegar,“ segir Anton Helgi. Hæka Tara fyrir marsmánuð: túnfíflar – stjörnurnar umkringja gamla vitann Rúmenskt skáld hreppti Ljósbera - Lagðist í rannsókn á íslensku Dómari í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli sem 31 árs gamall maður, Spencer Elden, höfðaði gegn með- limum hljómsveitarinnar Nirvana, erfingjum Kurts Cobains söngvara sveitarinnar og öðrum aðstandend- um plötu sveitarinnar, Nevermind. Elden birtist nokkurra mánaða gam- all nakinn framan á umslaginu og kærði aðstandendur útgáfunnar fyrir kynferðislega misnotkun. Fór hann fram á að alls 15 manns greiddu honum hver 150 þúsund dali í bætur. Dómarinn sagði málið höfðað of seint, Elden hefði þurft að kæra innan 10 ára eftir að hann varð lögráða. Máli gegn Nirvana vísað frá Umrædd ljósmynd á Nevermind. Belgíski myndlistarmaðurinn Franc- is Alys hlýtur hin virtu Wolfang Hahn-myndlistarverðlaun í ár en verðlaunaupphæðin nemur 100 þús- und dölum, rúmlega 14 milljónum króna, og er einhver sú hæsta sem um getur. Hluti af verðlaununum er stór sýning í Museum Ludwig í Köln sem veitir verðlaunin. Alys býr og starfar í Mexíkóborg. Hann vinnur í ýmsa miðla mynd- listarinnar og er fulltrúi Belga á Feneyjatvíæringnum í ár. Gagnrýnendur eru sammála um að skáli hans sé einn sá allra besti og áhrifamesti. Alys hlýtur Hahn-verðlaunin Francis Alys

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.