Morgunblaðið - 06.09.2022, Blaðsíða 32
ELDRI BORGARAR:
Aðventurferðir til
Kaupmannahafnar 2022
Innifalið eru flug með Icelandair, skattar, gisting,
m/morgunverði á Hotel Skt. Petri 5*, rútuferðir,
kvöldverðir og annað samkvæmt dagskrá.
Fagþegar fá vildarpunkta fyrir ferðina, einnig er
hægt að greiða hluta ferðar með punktum
! ! ! ! !
1. ferð: 20.-23. nóvember
2. ferð: 27.-30. nóvember
3. ferð: 4.-7. desember – UPPSELT
Verð: 179.000 kr. á mann í tvíbýli.
Aukagjald v/gistingar í einbýli er 34.900 kr.
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Gist er á hinu glæsilega Hotel Skt. Petri 5* sem er staðsett í miðborg
Kaupmannahafnar.
Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá
Sunnudagur: Flogið með Icelandair snemma morguns og lent í
Kaupmannahöfn á hádegi. Gisting á hinu glæsilega Hotel Skt.
Petri í miðborg Kaupmannahafnar. Um kvöldið er snæddur ekta
danskur matur á veitingastaðnum Karla sem er í göngufæri frá
hótelinu.
Mánudagur: Skoðunarferð um gamla bæinn með Ástu Stefáns-
dóttur leiðsögumanni sem gengur um slóðir Fjölnismanna og
fræðir farþega um sögu Kaupmannahafnar.
Þriðjudagur: Heimsókn í Jónshús, þar sem staðarhaldarinn Halla
Benediktsdóttir tekur á móti hópnum og fræðir um sögu hússins.
Um kvöldið er snæddur „Julefrokost“ í Tivoli á veitingastaðnum
Grøften. Eftir kvöldverðinn er hægt að skoða sig um í Tivoli sem
hefur verið breytt í „Juleland“ á Aðventunni.
Miðvikudagur: Sigling um síkin og Christianshavn meðan
hljómsveit Michael Bøving og félaga leikur jazztónlist og vana-
lega ríkir mikil stemning í þessum ferðum. Brottför frá hóteli á
Kastrup flugvöll síðdegis og flug til Íslands um kvöldið.
Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson
Þóra Einarsdóttir sópran kemur fram á hádegistón-
leikum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í Kirkjulundi á
morgun, miðvikudag, og hefjast þeir kl. 12.15. Með Þóru
leikur sænski konsertpíanistinn Katarina Ström-Harg
og munu þær flytja sönglög eftir Pál Ísólfsson og kenn-
ara hans Max Reger. Þetta eru fyrstu tónleikar hausts-
ins í tónleikaröðinni Tónlistarnæring. Listrænn stjórn-
andi hennar er Ólöf Breiðfjörð en tónleikarnir eru á
vegum menningar- og safnanefndar í samstarfi við
Tónlistarskóla Garðabæjar. Aðgangur er ókeypis.
Þóra Einarsdóttir syngur lög eftir
Pál Ísólfsson á hádegistónleikum
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 249. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Breiðablik náði í gærkvöld ellefu stiga forystu í Bestu
deild karla í fótbolta með því að sigra Valsmenn, 1:0, á
Kópavogsvelli þar sem Ísak Snær Þorvaldsson skoraði
sigurmarkið. Þá hefur Breiðablik þegar náð sínum
besta árangri í sögunni hvað stigafjölda varðar. »26
Breiðablik með ellefu stiga forystu
ÍÞRÓTTIR MENNING
því að hjálpa fólki og hef aldrei sóst
eftir peningum. Við hjónin skuldum
engum neitt, höfum ekkert við lúx-
usbíl að gera, eigum það sem við eig-
um og þurfum ekki mikið til þess að
framfleyta okkur. Ég á góðan mann
og eftirlaunin nægja okkur. Ef ein-
hver biður um aðstoð mæti ég kát og
glöð. Ég er ánægð með það sem ég á
en veit ekki hvað ég geri þegar ég
verð gömul.“
Cathy segir að fyrirspurnum hafi
fjölgað mikið eftir að netið kom til
sögunnar. Áður hafi hún notað
dauðu stundirnar til þess að slá inn
ættir Austfirðinga í skjal, sem sé að-
gengilegt í tölvunni, og upplýsing-
arnar komi að góðum notum fyrir
sig persónulega.
Kynning á Egilsstöðum
Þegar Cathy bjó í Minneota safn-
aði hún saman upplýsingum um
íbúana þar, lífs og liðna, sem áttu
ættir að rekja til Vopnafjarðar. „Ég
tók gögnin með mér hingað og sá að
þetta var mitt fólk. Púslin hafa fallið
saman hérna.“
Cathy er í samstarfi við Icelandic
Roots í Bandaríkjunum og stjórnar
teymi sjálfseignarstofnunarinnar á
Íslandi. Þeir sem búa á stórhöfuð-
borgarsvæðinu komu saman í Hafn-
arfirði 29. ágúst, kynning á vef og
ættfræðigrunni Icelandic Roots fór
fram á Akureyri 1. september og
kynningarfundur verður í Hlyms-
dölum á Egilsstöðum klukkan 16 til
18 í dag. Allir sem áhuga hafa á
starfinu eru velkomnir, að sögn
Cathyar, sem leggur áherslu á að
samvinna sé lykilorðið.
Eitt sinn, þegar Cathy var að
setja saman ættartré fyrir einstak-
ling, komst hún að því að hún á ættir
að rekja til Refsstaða, þar sem hún
býr ásamt Sverri Ásgrímssyni,
manni sínum. „Langalangafi minn
fæddist hérna og ólst hér upp svo ég
hef lokað hringnum.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ættfræðingurinn Cathy Ann Jo-
sephson á Refsstað 2 í Vopnafirði er
alltaf á vaktinni og til þjónustu
reiðubúin án þess að taka krónu fyr-
ir. Hún hefur verið í stjórn áhuga-
mannafélagsins Vesturfarans frá
stofnun 2002 og formaður undanfar-
inn áratug en félagið rekur Vestur-
faramiðstöð Austurlands á Vopna-
firði. „Það er aldrei dauð stund, því
alltaf kemur eitthvað upp; ýmist
þarf að svara pósti og veita skrif-
legar upplýsingar um tengsl og ann-
að slíkt eða liðsinna fólki á staðnum,
ýmist ferðafólki eða heimamönn-
um.“
Cathy er frá Minneota í Minne-
sota í Bandaríkjunum. Hún fór í
hópferð til Íslands 1994 og fann ræt-
urnar í Vopnafirði. „Sex mánuðum
síðar var ég búin að selja, henda eða
gefa allt sem ég vildi ekki eiga og var
komin aftur hingað til frambúðar.
Afi og amma voru héðan svo ég var
komin heim.“
Brúar bilið
Vopnafjarðarhreppur stofnaði
Vesturfaramiðstöðina og ráðamenn
sögðu Cathy að hún yrði að vera í
stjórn. „Við í félaginu ákváðum að
kalla þetta alltaf Vesturfarann og
forráðamennirnir vildu að ég brúaði
bilið milli svæðisins hérna og Vest-
ur-Íslendinga. Héðan fluttu um 300
manns, auk annarra, til Minneota.“
Íslendingar voru ekki einir um að
flytja til Vesturheims frá um 1850
fram að fyrri heimsstyrjöld, því
margir frá Bretlandi og meginlandi
Evrópu fóru sömu leið. „Ég fæ fyrir-
spurnir víðs vegar að og ekki síst frá
fólki á Norðurlöndum,“ segir Cathy.
Hún leggur áherslu á að margir
sjálfboðaliðar vinni saman og þannig
gangi starf Vesturfarans upp. „„Get-
urðu búið til kaffi,“ spyr ég ein-
hvern, sem ég hringi í, þegar von er
á gestum, en í byrjun lofaði ég að sjá
um ættfræðina og geri það enn.“
Cathy segist sinna ættfræðinni
áhugans vegna, en hafi unnið fyrir
sér með ýmsum hætti og sé nú kom-
in á eftirlaun. „Ég fæ ánægju út úr
Cathy Josephson lokar
hringnum á Refsstað
- Ættfræðingurinn í Vopnafirði er alltaf á vaktinni
Í Vopnafirði Ættfræðingurinn Cathy Ann Josephson á Refsstað.