Morgunblaðið - 06.09.2022, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022
Veiðivefur
í samstarfi við
Málefni leikskólans
hafa verið í sviðsljós-
inu. Stjórnmálamenn
lofa að leysa málin en
sitja nú uppi með
vandann: Það vantar
húsnæði og það vant-
ar starfsfólk. Líkleg-
ast er mönnunarvand-
inn stærsta
vandamálið. Fyrir
leikskólastjórnendur
eru þetta engar fréttir. Þeir vaða
eldinn endalaust við að fá til sín
menntað fólk til starfa. Takist ekki
að fá fólk, þá er deild lokað. Leik-
skólalögin krefjast þess að að lág-
marki 2/3 starfsmanna á deildum
séu með kennaramenntun. Enn er
langt í land að hægt sé að uppfylla
þær menntunarkröfur. Vegna
mönnunarvandans eru flestir skól-
anna reknir á undanþágum frá
þessum lagabókstaf. Starfið er
mjög gefandi, en um leið mjög
krefjandi. Vinnutíminn er langur og
kröfur um skóla fyrir alla óháð and-
legum eða líkamlegum þroska auka
enn á álagið. Það er líklegast
hvergi jafn ódýrt að hafa barn í
leikskóla eins og hérlendis. Í dag
greiða foreldrar sem nemur um
11% af raunverulegum kostnaði við
hvert leikskólapláss. Mismuninn
borgum við skattgreiðendur í land-
inu.
Til umhugsunar
Hafa foreldrar velt fyrir sér
hverjir hagsmunir ómálga barns
þeirra séu í raun? Vita foreldrar
eitthvað hvað gerist í dagvistinni
yfir daginn? Ómálga 12 mánaða
barn segir engar fréttir. Það er á
fullu við að læra að skilja orð, æfa
sig í að bera fram alls konar hljóð
og skilur nokkur orð. Þegar best
lætur talar það kannski 2-3 orð í
setningu, en setningarnar eru nú
ekki ýkja margar, ekki þegar við
erum að tala um 12-16 mánaða
börn. Svo eru sum börn fljótari til
máls en önnur. Þegar smábarnið er
tekið úr faðmi fjölskyldunnar til
vistunar í leikskóla eða annarri
dagvist upplifir það líklegast höfn-
un. Er oftast mjög ósátt og lætur
vita af því. Nýr umönnunaraðili
þarf því að byrja á að
öðlast traust þess og
virðingu svo barnið
taki gleði sína á ný. Og
þegar við bætist stöð-
ug endurnýjun starfs-
manna á deildinni er
tilfinningalegt öryggi
ekki mikið. Yngstu
börnin í leikskólanum
eru mjög pestnæm og
oft meira eða minna
frá fyrstu 12 mánuði í
leikskólanum/
daggæslunni.
Réttur barna
Réttur barna á að vera tryggður
í barnalögum, en þar segir m.a.:
„Barn á rétt á að lifa, þroskast og
njóta verndar, umönnunar og ann-
arra réttinda í samræmi við aldur
sinn og þroska…“ Þegar til þess er
hugsað að barn undir 24 mánaða
aldri er yfirleitt ekki farið að tala
eða tjá sig að neinu marki þá má
velta því fyrir sér hvaða skoðun
barnið kunni að hafa á því að vera
sent að heiman til vandalausra og
ókunnugra. Við þurfum ekkert að
velkjast í neinum vafa um það.
Barnið kýs öryggið í faðmi
fjölskyldunnar. Um leið og barnið
fer í umönnun annarra en fjölskyld-
unnar framselja þeir rétt sinn til að
annast um barnið, þroska þess og
velferð. Auðvitað gera umannendur
sitt besta til að mæta þörfum þess,
bæði líkamlegum og andlegum. En
þeir eru ekki foreldrarnir, þeir eru
bara umönnunaraðilar. Skyldur for-
eldra eru tíundaðar t.d. í Barna-
sáttmálanum sem við Íslendingar
erum aðilar að. Þar er kveðið á um
að „barn eigi að alast upp innan
fjölskyldu, við hamingju, ást og
skilning, til þess að persónuleiki
þess geti mótast á heilsteyptan og
jákvæðan hátt…“ auk fleiri atriða
sem eru börnum heimsins í hag.
Börn eru virkir aðilar í umhverfi
sínu og þroskast í samræmi við
það.
Rannsóknir á málþroska
leikskólabarna
Þróun málsins hefst þegar í
móðurkviði. Fóstrið heyrir í gegn-
um kvið og leg móðurinnar. Þannig
má segja að barnið fæðist með vísi
að móðurmáli sínu. Frá fyrsta degi
er mikilvægt að tala við barnið,
syngja fyrir það og segja sögur.
„Baða barnið í flóknum orðaforða,“
sagði ágætur kennimaður í gamla
KHÍ. Stundum er sagt að mál-
þroskinn sé í stöðugri framför allt
til elliáranna. En svo góðir sem
leikskólarnir okkar eru, þá fjölgar
mjög þeim börnum sem þurfa á tal-
kennslu og málörvun að halda. Og
nýleg rannsókn sýndi mun á mál-
þroska barna eftir leikskólum í
hverfum.
Félagsþroskinn
Barnið er virkur aðili að þroska
sínum. Fyrst eftir fæðinguna er
barnið algerlega háð foreldrum sín-
um eða þeim sem annast um það.
Svo heldur þroskinn áfram, það fer
að skríða um í umhverfi sínu. Það
vill festa hönd á öllu sem augað
eygir, og kannar heiminn fyrst og
fremst með munninum. Þegar
barnið byrjar að ganga er það óviti
sem þarfnast stöðugrar aðgæslu.
Þetta krefst þess að umönnunar-
aðilinn sé stöðugt á verði. Það er
ekki fyrr en á fimmta aldursári að
barnið fer að geta fylgt félagslegum
og samþykktum reglum í leik.
Félagsþroskinn þróast í gagn-
virkum samskiptum við umhverfið.
Það ku hvergi í hinum vestræna
heimi vera meira jafnrétti í heim-
inum en hér. Má vel satt vera. En
enginn í þessum sama heimi eft-
irlætur ókunnugum og vandalaus-
um að annast um smábarnið sitt áð-
ur en það getur hjálpað sér sjálft
og tjáð sig um sína líðan. Til að
gera foreldrum kleift að annast
barnið sitt sjálfir gæti sveitarfélag-
ið greitt þeim jafnvirði þess að reka
eitt leikskólapláss.
Eftir Jóhönnu
Thorsteinson
Jóhanna Thorsteinson
»Krafa foreldra um
leikskólapláss fyrir
12-24 mánaða smábörn
er auðvitað skiljanleg,
stjórnvöld hafa jú lofað
þessum plássum. Að
ýmsu þarf að hyggja.
Höfundur er M.Ed. uppeldis- og
menntunarfræðingur.
johanna@virgin.is
Mannréttindi fyrir lítil börn
„Hvað myndirðu
gera ef þú kæmist að
því að dóttir þín væri
lesbía?“ spurði ung
georgísk kona föður
sinn? „Ég myndi
drepa hana“ var svar-
ið. Frá þessum orða-
skiptum er sagt í
skýrslu Alþjóðabank-
ans um kynbundið of-
beldi í Georgíu,
Evrópuríki sem sækist eftir inn-
göngu í Atlantshafsbandalagið og
Evrópusambandið.
Svar föðurins endurspeglar því
miður viðhorf meirihluta almenn-
ings í Georgíu gagnvart hinsegin
fólki. Þótt hatur og fordómar séu á
undanhaldi samkvæmt könnunum
og yngra fólk sé orðið jákvæðara
gagnvart fjölbreyttu samfélagi, tel-
ur meirihluti Georgíubúa enn að
hinsegin fólk sé haldið óeðli og til-
vist þess sé ógn við hefðbundin
gildi þjóðarinnar. Þótt réttindi hin-
segin fólks séu í orði kveðnu betur
tryggð í lögum en í mörgum öðr-
um ríkjum heims, gera stjórnvöld
lítið til að hindra ofbeldi gegn því.
Þannig er það nánast regla að
hægriöfgahópar og bókstafstrúar-
menn standi fyrir grimmilegum
árásum á gleðigöngur hinsegin
fólks í Georgíu og að lögreglan
grípi ekki inn í. Hinsegin fólk
verður fyrir margvíslegum for-
dómum og mismunun, til dæmis í
heilbrigðis- og skólakerfinu. Prest-
ar georgísku kirkjunnar hvetja í
mörgum tilvikum til ofbeldis og
mismununar gagnvart hinsegin
fólki. Fyrir átta árum lýsti rétt-
trúnaðarkirkjan 17. maí, alþjóð-
legan dag gegn hómó- og transfó-
bíu, „dag fjölskyldugilda“.
UN Women er sú stofnun Sam-
einuðu þjóðanna sem berst fyrir
réttindum og málefnum hinsegin
fólks um allan heim. Landsnefnd
UN Women á Íslandi hrinti í síð-
ustu viku af stað átt-
undu herferð sinni
undir slagorðinu Fokk
ofbeldi. Í ár er her-
ferðin helguð baráttu
fyrir mannréttindum
hinsegin fólks. Védís
Jónsdóttir hönnuður
hefur hannað FO-
vettlinga, sem seldir
eru til stuðnings hin-
segin verkefnum UN
Women um allan heim.
Eitt þeirra verkefna
er fjölþætt verkefni í Georgíu sem
miðar að því að uppræta ofbeldi
gegn hinsegin fólki. UN Women
hefur tekið virkan þátt í þeirri bar-
áttu með ýmsum leiðum, m.a. með
því að styðja við grasrótarsamtök
og vinna með stjórnvöldum að laga-
breytingum. UN Women hefur
staðið að fræðslu til lögfræðinga,
lögreglu og stjórnvalda um þá
margþættu mismunun og ofbeldi
sem hinsegin fólk býr við í
Georgíu. 189 sérfræðingar hafa
hlotið slíka þjálfun og geta nú bet-
ur brugðizt við kynbundnu ofbeldi
og hatursglæpum í garð hinsegin
fólks.
Hinsegin verkefni UN Women
hafa verið fjárvana síðan í maí á
þessu ári. Því er fjárstuðningurinn
sem hlýst af sölu vettlinganna gríð-
arlega mikilvægur.
Leggðu þitt af mörkum – styddu
baráttuna gegn mannréttinda-
brotum og kauptu FO-vettlinga á
fjölskylduna. Hér duga engin vett-
lingatök!
Engin vettlinga-
tök í mann-
réttindabaráttu
Eftir Ólaf
Stephensen
Ólafur Stephensen
» Styddu baráttuna
gegn mannréttinda-
brotum og kauptu
FO-vettlinga á
fjölskylduna.
Höfundur situr í stjórn Landsnefndar
UN Women á Íslandi.
Fljótt skipast veður
í lofti. Fyrr í sumar
stóðu menn í bið-
röðum eftir húsnæði
og borguðu glaðir
yfirverð og allt seld-
ist samdægurs, en
allt í einu var and-
rúmsloftið orðið
annað. Það byrjaði
með að sölutími
lengdist.
Svo koma slæmar
fréttir af markaði.
Vextir hafa verið
hækkaðir kerfis-
bundið til að slá á þenslu en bygg-
ingavörur og olía lækka svo óvænt
eftir miklar hækkanir og hagfræð-
ingar fara að ýja að allt að 20%
lækkun húsnæðisverðs á næst-
unni.
Hvað gera menn eftir þvílíkar
dómsdagsspár? Fjármálakerfi
heimsins virðist á hraðri leið inn í
skuggalega kreppu eftir glanna-
lega þeysireið alþjóðavæðingar
sem nú virðist leysast upp í ósam-
lyndi og jafnvel stríðum sem menn
héldu að heyrðu sögunni til.
Vonbrigðin eru mikil og lærdóm-
ar heimsstyrjaldanna og áratuga
viðleitni til siðvæðingar eftir þær
hörmungar að engu orðnar. Skyldu
verkföll svo bætast við þennan
hörmungalista í haust?
Því verður seint trúað en vit er
ekki alltaf með þegar ofurkapp rík-
ir öðru hærra.
Sunnlendingur.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Með fjallasýn og sundlaug
AFP
Fjármál Stefnir allt niður á við?
Atvinna