Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 25

Morgunblaðið - 06.09.2022, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2022 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Ennþá meira úrval af listavörum Listverslun.is Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16 „VARST ÞAÐ EKKI ÞÚ SEM VILDIR AÐ ÉG BÓKAÐI AIRBNB?“ „SEX MÁNAÐA NÁM VIÐ LISTAHÁSKÓLANN OG HVAÐ SEGIRÐU AÐ ÞETTA SÉ?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita bæði hvert leyniinnihaldsefnið er. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SNÖRL… HVAÐ BRAUSTU? GETUR VERIÐ AÐ ÞETTA SÉ HRÓLFUR? SÓPI SÓPI SÓPI 1982, er Eva Sigríður, f. 5.6. 2004, nemi, búsett á Selfossi. Maki hennar er Jakub Zielke, öryggisvörður hjá Öryggismiðstöðinni. Börn Jakobs og Soffíu eru Jakob Elí, f. 31.8. 2016, Guðmundur Breki, f. 27.2. 2019, og Móeiður Dröfn, f. 11.4. 2022. Systkini Jakobs, sammæðra, eru Bæring Jón Breiðfjörð Guðmunds- son, f. 25.12. 1988, kennari og at- hafnastjóri, búsettur á Laugalandi í Holtum; Lárus Jóhann Guðmunds- son, f. 3.1. 1990, tamningamaður og húsasmiður, búsettur á Stekkhólum í Holtum; Ólafur Logi Guðmunds- son, f. 3.12. 1996, húsasmiður, bú- settur á Selfossi. Bróðir Jakobs sam- feðra er Aron Hansen Jakobsson, f. 15.9. 1997, verkamaður, búsettur í Reykjanesbæ. Stjúpsystir Jakobs er Hólmfríður Hansen Ingólfsdóttir, f. 28.3. 1996, aðstoðarmaður dýralækn- is, búsett í Reykjanesbæ. Foreldrar Jakobs eru Sigríður Dröfn Björgvinsdóttir, f. 3.7. 1964, verkakona og síðar höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili, bú- sett í Árbæ í Holtum ásamt eigin- manni sínum, Guðmundi Ólafi Bær- ingssyni, og Jakob Ingi Jakobsson, f. 12.9. 1962, lögmaður, búsettur í Stykkishólmi. Var í sambúð með Sig- ríði Dröfn til 1985. Stjúpfaðir Jakobs frá fimm ára aldri er Guðmundur Ólafur Bæringsson, f. 17.1. 1967, tamningamaður og bústjóri í Árbæ. Foreldrar Guðmundar eru hjónin Bæring Jón Breiðfjörð Guðmunds- son og Jóna Gréta Magnúsdóttir, bú- sett í Stykkishólmi. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson Árilíus Gestur Sólbjartsson útvegsbóndi í Bjarneyjum og Hrappsey, síðast bús. í Stykkishólmi Jakobína Helga Jakobsdóttir húsfreyja í Bjarneyjum, Hrappsey og Stykkishólmi Jakob Kristinn Gestsson sjómaður í Hrappsey á Breiðafirði og verkamaður í Hafnarfirði og Stykkishólmi Kristín Hinriksdóttir Hansen verkakona í Hafnarfirði og Stykkishólmi, nú búsett í Hafnarfirði Jakob Ingi Jakobsson lögfræðingur í Stykkishólmi Gíslína Guðrún Egilsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Hinrik Andrésson Hansen bóndi og sjómaður í Mýrarhúsum á Vatnsleysuströnd, á Jófríðarstöðum í Hafnarfirði og víðar Þorvarður Kristjánsson sjómaður í Flatey Sigríður Kjartansdóttir saumakona og húsfreyja í Flatey á Breiðafirði og Stykkishólmi Björgvin Kristján Þorvarðarson húsasmíðameistari í Stykkishólmi Sigrún Elín Lárusdóttir verkakona og húsmóðir í Stykkishólmi Lárus Jóhann Guðmundsson útgerðarmaður á Drangsnesi, síðar bóndi í Ögri, síðast bús. í Stykkishólmi Elín Elísabet Bjarnadóttir húsfreyja á Drangsnesi, í Ögri í Helgafellssveit og í Stykkishólmi Ætt Jakobs Björgvins Jakobssonar Sigríður Dröfn Björgvinsdóttir verkakona og meðferðaraðili í Rangárþingi ytra Helgi R. Einarsson skrifaði mér á laugardag: „Enginn er ég stórbóndi, en ég á mér á. Sú ær, sem ber nafnið Gjöf, er nú væntan- lega á leið til byggða í Vopnafirði með lömbin sín.“ Gjöf Upp til heiða hugur er, hlátur, jarmur, söngur, Freistandi mjög finnst því mér að fara’ austur í göngur. Þar ég á mér eina kind í umsjón vina minna og vonir mínar við það bind þeir vilji henni sinna. Reynslu og getu þeirra þigg, (það er ekki bannað,) meðan ég í leti ligg og lítið geri annað. Um helgina gaukaði Pétur Stef- ánsson að mér þessari sem varð til yfir fyrsta kaffibolla dagsins: Alveg þar til ég upp af hrekk með eymslum þar til gerðum; kaffi að morgni drjúgur drekk af dugnaði töluverðum. Vísir skýrði frá því að ólga væri meðal aðventista vegna sölu á heilu fjalli. Anton Helgi Jónsson kvað: Óheft út um víðan völl vitleysan fær hlaupið öll þegar loksins trukkatröll taka burtu landsins fjöll. Jóhann Gunnarsson bætti við: Að menn burtu flytji fjöll finnst mér lítið gera til. Þau munu rísa aftur öll eftir þúsöld hér um bil. Kristján H. Theodórsson um atkvæðaöflun þingmanna: Þau flest voru fengin með lygum, við fláráðir strax eftir migum á fólkið sem kaus, fullan með haus, af fávisku og féll því á stigum. Helga Harðardóttir um „Til- gangsleysið“: Það lögmál er lagt á alla og lítið utan það eitt að fæðast, þroskast og falla í fold og verða ekki neitt Ármann Þorgrímsson orti á „Fjórða september“: Sólin skín í suðri hátt sendir geisla yfir jörð ég veit það fer að vora brátt vefja blómin Eyjafjörð. Þetta er falleg sýn hjá Ástu Sverrisdóttur: Sumar bjó til ber í mó, blóm í haga, lauf í skóg, mýkt og gró í mosató, marga nýja víðikló! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Góðar eru gjafirnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.