Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 0. S E P T E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 212. tölublað . 110. árgangur .
Búnaður bifreiða til sölu getur verið ólíkur þeirri sem sýnd er á mynd.
Laugavegi 172, 105 Rvk. www.hekla.is/audisalur
Fjórhóladrifinn, fæst einnig sem Sportback
Rafmagnaður
GLÓDÍS ÆTLAR
AÐ KOMAST
Á HM
EINN AF
ÞEIM ALLRA
BESTU
DANIIL TRIFONOV 34ÍÞRÓTTIR 33
„Sérfræðingarnir sem áttu að hjálpa
mér virtust ekki hafa áhuga á að
leita að orsök vandans. Þau trúðu
mér ekki og það var sagt beint við
mig. Ekki var reynt að fela það,“
segir Alice Viktoria Kent í viðtali við
Sunnudagsblað Morgunblaðsins.
Alice veiktist þegar hún var 17 ára
gömul og hefur í tæp þrjú ár glímt
við æðaþrengingar í kviðarholi. Get-
ur það til að mynda takmarkað blóð-
flæði til meltingarfæranna. Þegar
ekki tókst að greina vandann segja
foreldrar Alice að hún hafi mætt úr-
ræðaleysi og skilningsleysi í íslenska
heilbrigðiskerfinu þótt hjálplegir
læknar utan Landspítalans hafi
reynt að aðstoða. Alice og foreldrar
leituðu sjálf að lausnum og fengu
ábendingu sem skilaði greiningu. Á
spítalanum virðast getgátur um lyst-
arstol og fleiri geðræn vandamál
hafa ráðið ferðinni að sögn þeirra.
Alice fór í umfangsmikla aðgerð
til Þýskalands í fyrra og aðra nú í
vor en hún var orðin 44 kíló og mjög
kvalin. Alice er nú á batavegi en seg-
ist vera virkilega sár yfir þeirri
framkomu sem hún mætti hér
heima.
Sjúkratryggingar Íslands greiddu
kostnaðinn við fyrri aðgerðina en
ekki þá síðari. Fyrir vikið er fjöl-
skyldan verulega skuldsett. Thomas
Scholbach, læknir og prófessor í
Leipzig, greindi Alice og harmar
ákvörðun Sjúkratrygginga. Hann
segist tilbúinn til að miðla af þekk-
ingu sinni hér. kris@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á batavegi Alice Viktoria getur nú
borðað á ný eftir aðgerðirnar.
Virkilega sár yfir framkomunni
- Ung íslensk kona var orðin 44 kíló þegar foreldrarnir drifu hana í aðgerð til
Þýskalands - Þýski sérfræðingurinn harmar ákvörðun Sjúkratrygginga
_ Tékkneski læknirinn Jaroslav
Michálek segir engan vafa leika á
því að stofnfrumumeðferð geti
bætt heilsu fólks, ekki síst þeirra
sem þjást af liðverkjum. Undanfar-
inn áratug hefur hann framkvæmt
3.500 stofnfrumuaðgerðir á stofu
sinni í Brno og segir árangurinn
mjög góðan. „Möguleikarnir eru
miklir á þessu sviði og vonandi eru
menn í auknum mæli farnir að
gera sér grein fyrir því,“ segir
hann í samtali við Sunnudags-
blaðið.
„Það er kannski ekki beinlínis
hægt að kalla þetta yngingarlyf en
maður verður á allan hátt sterkari
á svellinu eftir svona meðferð og
núna get ég gert hluti sem ég hef
ekki getað gert í tíu ár eða meira,“
segir Eggert Jóhannsson, sem fór í
meðferð af þessu tagi fyrr á árinu.
Mikill árangur af
stofnfrumumeðferð
Ragnar Árnason, prófessor emer-
itus í hagfræði við Háskóla Íslands,
segir að útgáfa skuldabréfa væri
skilvirkari leið til að ná niður verð-
bólgu en vaxtahækkanir Seðlabanka
Íslands. En bilið milli vaxtanna og
verðbólgu hefur aukist.
„Skuldabréfaútgáfa er miklu
beinni og skilvirkari leið. Við þurfum
að horfast í augu við það að Seðla-
bankinn, einn síns liðs, getur ekki
unnið bug á þessari verðbólgu nema
keyra landið niður í efnahagssam-
drátt með verulega háum vöxtum
um einhvern tíma, þannig að skortur
verði á atvinnu. Þá dregur sjálfkrafa
úr verðbólgunni.“ »20
Munur á vöxtum og
verðbólgu
1
0
-1
-2
-3
-4
febrúar 2020 24. ágúst 2022
-4,2
-3,4
0,35
-2,8
Heimildir: Seðla-
bankinn, Hagstofan
Vextir voru 4,2 pró-
sentustigum lægri en
verðbólga í lok ágúst
Betra vopn
gegn verð-
bólgunni
- Hærri vextir gætu
leitt til samdráttar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Elísabetar minnst um allan heim
Elísabetar II. Bretadrottningar, sem féll frá á fimmtudag, var minnst víða um heim í gær.
Minningabók um Elísabetu lá frammi í breska sendiráðinu í gær. Forsetahjónin, Guðni Th. Jó-
hannesson og Eliza Reid, lögðu leið sína í sendiráðið, vottuðu samúð sína og skrifuðu kveðju í
bókina. Í samúðarkveðjunni vísuðu þau í Hávamál eins og má sjá hér á myndinni til hliðar.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis-
ráðherra lögðu einnig leið sína í sendiráðið og vottuðu samúð sína. Hægt verður að skrifa í
minningabókina fram á miðvikudag í næstu viku. »21