Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Lausar lóðir til úthlutunar í Rangárþingi eystra Rangárþing eystra auglýsir hér með eftirfarandi lóðir á Hvolsvelli og Ytri-Skógum, lausar til úthlutunar. Íbúðarhúsnæði: Hallgerðartún 14, 860 Hvolsvöllur Vistarvegur 2-4, 861 Hvolsvöllur Vistarvegur 3, 861 Hvolsvöllur Fjölbýlishúsnæði: Nýbýlavegur 46, 860 Hvolsvöllur Iðnaðarhúsnæði: Ormsvöllur 11, 860 Hvolsvöllur Hesthús: Við Miðkrika, 860 Hvolsvöllur Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is, hjá skipulags- og byggingarembættinu, að Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli eða í gegnum netfangið bygg@hvolsvollur.is. Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Rangárþingi eystra. Umsóknarfrestur er til 23.september 2022. Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum heima síðu sveitarfélagsins. F.h. Rangárþings eystra Þóra Björg Ragnarsdóttir Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa Rangárþings eystra Þjóðarsorg í Bretlandi eftir fráfall Elísabetar II. drottningar Þjóðarsorg er í Bretlandi, krúnu- lendum þess og fleiri löndum Sam- veldisins og Elísabetar II. drottn- ingar er víða minnst með ýmsum hætti. Karl konungur III. ávarpaði þjóð- ina í sjónvarpi í fyrsta sinn eftir að hann hlaut konungstign. Þar talaði hann á mun innlegri nótum en fólk hefur átt að venjast úr höllinni. Þar fór hann með sama heit og hún um að þjóna þjóðum sínum til hinsta dags. Hann sagði að hún hefði veitt börnum sínum og þjóðum ást, leiðsögn og fyr- irmynd. Hann ræddi fleira um kon- ungsfjölskylduna og minntist meðal annars á elsku sína gagnvart Harry syni sínum og Meghan konu hans, sem fjarlægst hafa fjölskylduna í eig- inlegri og óeiginlegri merkingu. Í þinginu fór Boris Johnson fremstur í flokki stjórnmálaleiðtoga sem minntust drottningar. Hann var óspar á lofið en rökstuddi það og var góður rómur gerður að máli hans, ekki síst þegar hann veitti henni nafnbót með því að kalla hina látnu drottningu Elísabetu miklu. ELÍSABET II 21. apríl 1926 Elizabeth AlexandraMary fædd í Lundúnum 20. nóvember 1947 Giftist Filippusi prins af Grikklandi og Danmörku 14. nóvember 1948 Karl fæðist Hjónin eignst þrjú börn að auki: Önnu, Andrés og Játvarð 6. febrúar 1952 Verður drottning eftir andlát GeorgsVI föður hennar 29. júlí 1981 Karl kvænist Díönu Spencer í Pálskirkju í Lundúnum 21 júní 1982 Viljhjálmur prins, fyrsta barnabarn Elísabetar, fæðist 1992 Annus horribilis Þrjú af fjórumbörnum drottningar skilja viðmaka sína Eldur íWindsor-kastala 31. ágúst 1997 Gagnrýnd fyrir að neita fyrst í stað að halda til Lundúna eftir að Díana prinsessa lést í bílslysi 6. febrúar 2012 Hefur setið í 60 ár á valdastóli 8. september 2022 9. apríl 2021 Filippus prins andast 99 ára að aldri 5. apríl 2020 Flytur sjónvarpsávarp til að hughreysta þjóðina meðan á covid-19 faraldrinum stóð 9. september 2015 Hefur setið lengst allra breskra þjóðhöfðingja 2. júní 1953 Krýnd í Westminster Abbey, í Lundúnum Heimild: royal.uk Andast 96 ára að aldri AFP/Paul Childs Kyrrðarstund Stöðugur straumur fólks lá í St. Paul‘s dómkirkjuna til þess að eiga saman stund bæna og íhugunar um Elísabetu drottningu II., öld hennar; arfleifð og ókomna tíma án hennar. AFP/Alain Jocard Lundúnir Um allt Bretland blöstu hvarvetna við myndir af hinni látnu drottningu: í búðargluggum, veitingahúsum, strætisvagnaskýlum og auglýsingaskiltum, eins og á hinu kunna bogahorni við torgið fornfræga, Piccadilly Circus. AFP/Stéphane de Sakutin Höllin Mikill mannfjöldi var við Buckingham-höll í London í gær. Þar lagði fólk blóm, myndir og minningarkort vegna andláts Elísabetar við hallargarðinn. Allir hljóðir en sumir grétu. Elísabetar miklu minnst AFP/Yui Mok Konungur Karl III. átti fund með Liz Truss forsætisráðherra. AFP/Drew Angerer/Getty Images Washington Víða um heim blöktu breskir fánar í virðingarskyni. - Þjóðarsorg í Bret- landi og Samveldinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.