Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 35
Aftur í ræturnar
tók upp. Hún ber að mörgu leyti
sterk höfundareinkenni frá Andr-
ési, stíl sem hann hefur verið að
hefla til allt frá byrjun í raun.
Opnunarlagið, samnefnt plötunni,
hefst á gítarklingi en svo eru þeir
Magnús og Nicolas kynntir til
leiks mætti segja, bassinn fær
gott rými í blábyrjun og Magnús
fyllir og vel upp (það tekur ekki
margar millisekúndur að þekkja
þann ótrúlega trommara og hans
magnaða stíl). Lagið er „upp-
tekið“, margt í gangi og mikið
rennerí upp og niður skala en um
leið … eru hlutirnir stóískir, ró-
legir, passlegir, áferð sem einatt
hefur fylgt sólóplötum Andrésar.
Hæglætislegu tempói er þannig
séð haldið út plötuna, hlemmi-
skeið eru fá, og gítartónar Andr-
ésar leika um alla framvindu.
Þekkilegur hljómur að vanda og
öll spilamennska þjónar lagasmíð-
unum, engir stælar eða sýndar-
mennska. Eitt lag brýtur þetta þó
allhressilega upp. „Gagarin“ hefst
temmilega eðlilega reyndar en
fljótlega fer maður að finna fyrir
einhverri ókennilegri spennu.
Eins og eitthvað sé að fara að
gjósa. Síðasta mínútan enda
skruðningar og óhljóð, svona
nokkurn veginn. Athyglisvert
uppbrot á heildarflæðinu sem er í
senn mjúkt og strítt mætti segja.
Lagið „Spor“ er t.d. ágætis dæmi
um hvernig platan hagar sér í
heild. Hart og áleitið lag – en um
leið eitthvað svo notalegt! Sama
má segja um „Summer Night“.
Bassinn leiðir okkur inn, þung-
lamalegur (í lagi um sumarið!) og
svo kemur gítarinn og rækilega
er rifið í strengina. Magnús lætur
burstana vinna yfirvinnu og út-
koman undurfurðuleg í raun.
Draugaleg smíð um sumarið?
Þannig að, eins og þið sjáið les-
endur góðir, heildarramminn er
sannarlega aðlaðandi en ekkert
er þó eins og það sýnist.
Andrés er sæmilega þekktur
alþjóðlega og reytingi af dómum
farið að skola upp á land. Joshua
Lee frá PrestoMusic er sáttur,
lýsir tónlistinni sem „methen-
ískri“ (með vísun í Pat Metheny)
og hrósar meðleikurum Andrésar
í hástert. Segir plötuna svala
nautnum allra þeirra sem eru að
leita að nýrri, norrænni gítartríó-
tónlist af djasskyni. SimplyJazz-
Talk er þá í hæstu hæðum einnig,
bendir réttilega á hvernig
heildarmyndin er jafnan meðvitað
„til baka“ og næsta hógvær. Plat-
an snúist fyrst og síðast um
stemningu og áferð frekar en
stök lög og vel hægt að taka undir
það. En eins og fram hefur komið,
Andrés kryddar rækilega þegar
svo ber undir (sjá „Whisper“ sem
ég er að hlusta á akkúrat núna,
lag sem er nett sturlað. Bílskúrs-
áhrif?).
Annars er ég búinn að vera
dulítið sósaður í íslenskum djassi
að undanförnu; söngdansaplötum,
framsæknum „án söngs“-plötum
og ég veit ekki hvað og hvað.
Íslenskur djass er í fullu fjöri nú
um stundir. Hann svingar!
»
Heildarramminn
er sannarlega aðlað-
andi en ekkert er þó
eins og það sýnist.
Djassgítarleikarinn
Andrés Þór á að baki
gifturíkan feril og á
nýjasta hljómdiski
sínum leitar hann aftur
til baka, til áranna er
hann var að byrja þetta
brölt.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þ
að var gaman að hitta á
Andrés Þór vegna þessarar
plötu en hann renndi með
gripinn niður í HÍ þar sem ég vinn
alla jafna. Við föttuðum þá (erum
jafnaldrar) að ég hef aldrei rætt
við hann formlega um tónlist hans
og í raun yfirleitt! Samt var eins
og við þekktumst. Ég hef náttúr-
lega fylgst með honum frá upp-
hafi vega en aldrei snert á honum
beint fyrr en nú.
Einu sinni verð-
ur allt fyrst.
Platan
Hereby, sem út
kemur á vegum
norsku útgáf-
unnar Losen Re-
cords, var tekin upp í júní 2021 í
Sundlauginni af Birgi Jóni Birg-
issyni í miðju kófi. Andrés leikur
á gítar nema hvað, eigin tón-
smíðar, en með honum þeir Nicol-
as Moreaux (kontrabassi) og
Magnús Trygvason Elíassen
(trommur), nafn sem mér finnst
eins og ég eigi að þekkja. Andrés
hljóðblandaði svo sjálfur en Haf-
þór „Tempó“ hljómjafnaði.
Andrés sagði höfundi að
vinnulagið við plötuna hefði minnt
sig á það er hann var að byrja
sem hljómlistarmaður, þegar
hann eins og aðrir kúldraðist í bíl-
skúrum og kjöllurum. Heimsfar-
aldurinn setti fólk gjarnan í þessa
stöðu og hann ákvað að gera eitt-
hvað úr því, samdi þessa plötu og
Heimkominn Andrés
Þór rifjaði upp gömul og
gegn vinnubrögð fyrir
nýju plötuna.
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022
Sýning myndlistarkonunnar Önnu
Hallin, „Komur og brottfarir“,
verður opnuð í Höggmyndagarð-
inum við Nýlendugötu 17a í dag,
laugardag, klukkan 17.
Höggmyndagarðurinn er óvenju-
legt sýningarrými á mörkum al-
manna- og einkarýmis, eins konar
millirými. Í tilkynningu segir að í
þessu verkefni gegni hann því hlut-
verki að tengja saman ólík tilveru-
svið. Anna Hallin vinnur innsetn-
ingu úr leir á staðnum og er ferlið
við gerð verksins mikilvægur hluti
þess.
„Komur og brottfarir“ fjallar um
heimsókn veru úr annarri vídd sem
framkallast og staldrar við í
borgarrýminu um skeið áður en
hún leysist upp og hverfur á ný.
Önnur vídd Anna Hallin við gerð verks á
sýningunni í Höggmyndagarðinum.
Komur og brott-
farir Önnu Hallin
Aðalsteinn Ing-
ólfsson sýningar-
stjóri verður með
leiðsögn um sýn-
inguna Andlit úr
skýjum – manna-
myndir Jóhann-
esar S. Kjarvals á
Kjarvalsstöðum
á morgun,
sunnudag, kl. 14.
Í lok leiðsagnar-
innar afhjúpar hann nýfundið mál-
verk Kjarvals sem talið er vera af
Láru miðli.
Andlitsmyndir Kjarvals hafa
skipað veglegan sess á yfirlitssýn-
ingum á verkum listamannsins og
samsýningum af ýmsu tagi en til
þessa hefur sjónum ekki verið beint
að þessum myndum sérstaklega.
Segir frá manna-
myndum Kjarvals
Aðalsteinn
Ingólfsson
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
empire moviefreak.com
“ALADDIN FOR ADULTS” “A DIFFERENT KIND OF BLOCKBUSTER”
“A GLORIOUS ONE-OF-A-KIND CREATION”
EKKI MISSA AF ÞESSARI Í BÍÓ