Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.09.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Sértilboð á smurþjónustu til 30. september hjá Bifreiðaverkstæði Kópavogs, viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. Engin vandamál – bara lausnir 15% afsláttur af olíu, síum, rúðuþurrkum, perum og fleiru.* Sértilboð á olíum, olíu- síum, loftsíum, frjókorna- síum, bensínsíum, hráolíusíum, þurrku- blöðum, þurrkugúmmíi, perum, rúðuvökva, frostlegi, Adblue og þjónustu.* SMURT OG SPARAÐ 10% afsláttur af vinnu við smurningu hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota. *Afsláttur af vörum gildir eingöngu með þjónustu á staðnum. B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 Opið 11-16 HÁGÆÐA LEÐURTÖSKUR Skoðið netverslun laxdal.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Sjúkratryggingar Íslands hafa ein- hliða sagt upp samningi við Reykjalund, um starfsendurhæf- ingu sem þar er sinnt. Gefin er sú skýring að starfsemi þessi sé ekki heilbrigðisþjónusta heldur fremur félagslegt úrræði og því sé ann- arra en SÍ að greiða fyrir hana. Þjónusta þessi, sem allt að 50manns hafa nýtt sér á hverju ári, verður því lögð af um áramót- in. Áherslan nú er því sú að út- skrifa á næstu vikum sjúklinga, sem nú njóta þessarar þjónustu, enda er sumt af því starfsfólki sem henni sinnir nú á förum til annarra verka. „Þetta er sérstakt, því við trúð- um því fyrst að uppsögn samnings- ins byggðist á misskilningi sem auðvelt væri að leysa. Raunin hef- ur verið önnur,“ segir Sveindís Anna Jóhannsdóttir, forstöðu- félagsráðgjafi á Reykjalundi, í samtali við Morgunblaðið. Sam- kvæmt hennar lýsingum eru mála- vextir þeir að við tilfærslu verk- efna innan stjórnarráðs Íslands, við myndun ríkisstjórnar á síðasta ári, hafi málefnaflokkar, t.d. sí- menntunar og vinnumarkaðsmála færst alfarið til félagsmálsmála- ráðuneytis. Starfsemin á Reykja- lundi sé hins vegar heilbrigðis- þjónusta enda þótt hún hafi snertifleti við marga málaflokka, þar eð endurhæfing sjúklinga sé í eðli sínu fjölþætt og flókin. „Starf, þetta litla orð og for- skeyti, hefur komið af stað óskiljanlegri at- burðarás. Að tal- að sé um starfs- endurhæfingu virðist standa í kerfinu,“ segir Svandís Anna. „Slík endurhæf- ing hefur vissulega verið frá upp- hafi þáttur í starfseminni hér, sem nú skiptist í nokkur teymi eða heil- brigðistengd svið. Á hverju þeirra starfar fólk úr mörgum fagstétt- um, s.s. læknar, hjúkrunarfræð- ingar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, heilsuþjálfarar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar og fleiri. Þverfagleg samvinna margra starfsstétta hef- ur reynst árangursrík til styðja við fólk til að ná að nýju heilsu og getu til að komast aftur út í lífið. Sjúkratryggingar Íslands virðast hins vegar telja að starfsendur- hæfing hljóti að vera verkefni VIRK, þó þar starfi einnig ýmsar heilbrigðisstéttir.“ Mikilvægur þáttur heilbrigðisþjónustu Sveindís Anna er formaður fag- deildar félagsráðgjafa í endurhæf- ingu hjá Félagsráðgjafafélagi Ís- lands. Hún segir endurhæfingarstarf vera í stöðugri þróun og vera mjög mikilvægan þátt í allri heilbrigðisþjónustu. Talið er að ef einn af hverjum 25, sem fá starfsendurhæfingu, komist aftur út á vinnumarkaðinn eða til náms, skili þeir opinberu fjármun- ir, sem í starfið er varið, sér til baka. Í þessari starfsemi á Reykjalundi sé þetta hlutfall hins vegar allt að 50%. Á ári hverju komi alls um 1.200 endurhæfing- arsjúklingar á Reykjalund. Fólkið er mjög misjafnlega statt hvað varðar heilsu, líf og líðan. Um 40% telja sig þó ekki geta horfið til fyrri starfa að nýju þannig að þörfin fyrir stuðning til atvinnu- þátttöku er töluverð. Því sé rík ástæða til að reyna frekar að bæta þjónustuna við þennan hóp í stað þess að skerða hana. - Sjúkratryggingar segja upp samningi við Reykjalund - Deilt er um skilgrein- ingar - Strandar í kerfinu - Ábatasöm endurhæfing sem er í stöðugri þróun Sveindís Anna Jóhannsdóttir Þjónustan lögð af um áramót Morgunblaðið/Eggert Reykjalundur Starfsendurhæfingu verður hætt hjá stofnuninni um áramót- in eftir að Sjúkratryggingar sögðu upp samningi um greiðslur fyrir hana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.