Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Í Keflavík má finna stjórnstöð Atl- antshafsbandalagsins á Keflavík- urflugvelli (CRC Keflavík) en þang- að hafa líklega fáir komið. Í gær var fjölmiðlum boðið að skoða þar aðstæður og taka mynd- ir. Það er aðeins í einstaka tilfellum sem fólki er boðið þangað inn og að öllu jöfnu eru myndatökur þar bannaðar. Farsímar eru þar til að mynda bannaðir án undantekninga. „Það er mjög sjaldgæft að við gerum þetta en við þurfum þá að grípa til viðeigandi ráðstafana. Meðal annars að sjá til þess að það sé slökkt á NATÓ-kerfum á með- an,“ segir Marvin Ingólfsson, að- stoðarframkvæmdarstjóri varnar- málasviðs Landhelgisgæslunnar. Frá stjórnstöðinni fylgist Land- helgisgæslan með flugumferð á svæðinu í kringum Ísland. Auk þess vinnur hún náið með öðrum stjórn- stöðvum innan bandalagsins. Að sögn Marvins hefur Landhelgis- gæslan tilkynningaskyldu til þeirra og miðlar upplýsingum. Varnarmál á Íslandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Innsýn í stjórnstöð NATÓ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er djörf ákvörðun hjá dóms- málaráðherra. Sveitarstjórnarfólk um allt land hefur kallað eftir því að stjórnvöld fari með verkefni og störf út fyrir höfuðborgarsvæðið. Þetta hlýtur einnig að vera ákveðin viður- kenning á styrk og þekkingu sýslu- mannsembættisins hér,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, um þá ákvörðun Jóns Gunnarssonar dóms- málaráðherra að sýslumaður Ís- lands verði með aðsetur á Húsa- vík. Hjálmar segist ánægður með að öll vötn renni nú til Húsavíkur. Þar sé mikil upp- bygging í at- vinnulífinu og fólk vilji búa á staðnum en það vanti húsnæði. Vonast hann til að það standi til bóta því verið sé að skipu- leggja ný íbúðahverfi. Ekki stór skrifstofa Dómsmálaráðherra hefur sagt í viðtali við Morgunblaðið að ekki sé ætlunin að aðalskrifstofa sýslu- manns verði fjölmennasta skrifstof- an. Ætlunin sé að dreifa störfum um landið og efla öll starfssvæði sýslu- manna í dag. Í frumvarpsdrögunum er gert ráð fyrir að þjónusta verði veitt á að minnsta kosti 25 stöðum og meira verði horft til stafrænna lausna en áður þannig að fólk á ekki að þurfa að ferðast langar leiðir til að að ná sér í þjónustu á sýsluskrif- stofu. Þar sem landið verður eitt lög- sagnarumdæmi getur fólk náð í þjónustuna á hvaða sýsluskrifstofu sem er en er ekki bundið við heima- skrifstofuna. Jafnframt er ætlunin að færa fleiri verkefni út í skrifstofurnar og sér- hæfa þær. Hjálmar Bogi segir að ýmislegt sé óljóst í frumvarpinu, eins og það var kynnt í sumar, um það hvert fólk eigi að sækja þjónustu og hann segist bíða spenntur eftir nán- ari útfærslu á því. Aðalskrifstofa sýslumannsins á Norðurlandi eystra er á Húsavík og þar er Svavar Pálsson sýslumaður búsettur. Í frumvarpsdrögunum er miðað við að öll embætti sýslumanna verði lögð niður 1. janúar 2024 og sýslumaður Íslands taki þá við. Þó er heimilt að auglýsa starf sýslumanns fyrr og skipa í embættið. Þá er einn- ig heimilt að flytja einhvern fráfar- andi sýslumann í embætti sýslu- manns Íslands. Djörf ákvörðun hjá ráðherra - Forseti sveitarstjórnar Norðurþings ánægður með að sýslumaður Íslands hafi aðsetur á Húsavík - Viðurkenning á styrk og þekkingu embættisins þar - Fólk getur sótt þjónustu hvar sem er á landinu Hjálmar Bogi Hafliðason Í kynningarskyni er þessa dagana efnt til margvíslegra viðburða í til- efni af alþjóðadegi sjálfsvígsfor- varna sem er í dag, 10. september. Boðskapur dagsins er að stuðla að forvörnum sjálfsvíga og minnast þeirra sem látist hafa í sjálfsvígum. Málþing um forvarnir var sl. mið- vikudag þar sem fjallað var um geð- heilsu og fleira slíkt með tilliti til sjálfsvíga. Þá voru ný húsakynni Píeta-samtakanna opnuð á fimmtu- dag en þau eru við Amtmannsstíg í Reykjavík. Efnt var til athafnar í til- efni opnunar og meðal viðstaddra var Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra. Í dag, laugardag, kynnir Geðhjálp sig og sitt starf í Kringlunni í Reykjavík. Í kvöld verða svo minn- ingarstundir í Akraneskirkju og Glerárkirkju á Akureyri, sem hefj- ast kl. 20. Dagskráin á Akureyri er samstarf Grófarinnar geðræktar, Píeta-samtakanna, Sorgarmið- stöðvar og þjóðkirkjunnar. Sr. Sindri Geir Óskarsson leiðir stund- ina nyrðra. Sjálfsvígsforvarnir nú í brennidepli - Píeta í nýtt hús - Minningarstundir Morgunblaðið/Eggert Samvera Willum Þór Þórsson ráðherra, Eliza Reid forsetafrú og mæðginin Björgvin Franz Gíslason og Edda Björgvinsdóttir við opnun húss Píeta. ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS TRYGGÐU ÞÉR GISTINGU Í TÍMA! SKÍÐAFRÍ TIL ÍTALÍU DINNA OG HELGI TAKA VEL Á MÓTI YKKUR Í ÍTÖLSKU ÖLPUNUM VERÐ FRÁ139.900 KR Á MANN M.V 2 FULLORÐNA OG 1 BARN 21. - 28. JANÚAR 2023 NÁNAR Á UU.IS INNIFALIÐ ER FLUG, GISTING, FLUTNINGUR Á SKÍÐABÚNAÐI OG ÍSLENSK FARARSTJÓRN ERTU MEÐ HÓP? SENDU OKKUR FYRIRSPURN Á HOPAR@UU.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.