Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 10.09.2022, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2022 Hryllingurinn í Úkraínu heldur áfram. Engin leið er að fá réttar tölur um mannfall en ljóst er að þær eru háar. Úkraínumenn segja yfir fimmtíu þúsund rússneska hermenn hafa fallið. Það kunna að vera ýkjur en mannfallið er mikið í herjum beggja, að ógleymdum þeim sem alls ekki mega gleymast; óbreytt- um borgurum, konum, börnum, gömlu fólki og sjúku. Engu er eirt í slíku stríði þar sem innrásarher- inn lætur sprengjum rigna yfir borgir og er annað hvort sama um líf óbreyttra borgara eða reynir beinlínis að valda sem mestri skelfingu sem óhjákvæmilega fylgir slíkum ósköpum. Stríðið, sem Pútín forseti reyn- ir enn að kalla sérstaka hernaðar- aðgerð, hefur staðið í rúmlega hálft ár, með þeim afleiðingum að stór svæði í austri og suðri Úkra- ínu eru sviðin jörð. Baráttuþrek úkraínska hersins er mun meira en búist var við enda töldu margir að her Pútíns yrði varla nema nokkra daga eða vikur að hertaka landið. Raunar töldu ýmsir, sem ekki var fráleitt að ætla, að Úkra- ínumenn myndu gefast upp bar- áttulítið eða baráttulaust enda virtist við algert ofurefli að etja. Framan af beið úkraínski her- inn mikla ósigra og Rússar náðu næsta auðveldlega stórum hluta lands í austri og suðri. Þeir urðu hins vegar að endurhugsa að- gerðirnar þegar skyndisóknin breyttist í hægfara stríðsátök og í ljós kom að rússneski herinn var veikari en hefði mátt ætla af þeim mikla fjölda hermanna og her- gagna sem safnað hafði verið að landamærum Úkraínu. Lengi vel sagði Pútín að þessi liðssöfnuður þýddi ekki að innrás væri yfirvof- andi, en sú fullyrðing reyndist jafn áreiðanleg og ýmsar aðrar síðan. Þannig hefur Pútín til dæmis haldið því fram að hann muni ekki nota gas og olíu sem vopn í átök- unum, þó ekki þeim hern- aðarlegu, við ríki Evrópusam- bandsins. Þetta hefur allan tím- ann verið ósannfærandi stað- hæfing og verður æ fjarstæðu- kenndari eftir því sem „viðgerð- irnar“ á gasleiðslum rússneskra fyrirtækja gerast tímafrekari og umsamdar afhendingar bregðast oftar. Í þessum efnum geta ríki ESB auðvitað engum um kennt nema eigin skammsýni og barnaskap, því þau áttu aldrei að treysta á orkuna frá Rússlandi, en það ger- ir hlut Pútíns ekki betri. Annað sem hann hefur nýlega haldið fram er að kornið, sem samið var um að leyfa Úkraínu að flytja út til að reyna að forða fæðuskorti í fátækari ríkjum, rati í raun á diska ríkra Evrópubúa. Fylgst er með þessum kornflutn- ingum og ekkert bendir til að Pútín hafi rétt fyrir sér um þetta, enda fjarstæðukennt. En nú telur hann að það henti sér að nota yfirvof- andi fæðuskort sem vopn og um leið að með slíku tali, spunnu saman við vel valin orð um sviksama nýlendu- herra, megi etja íbú- um Afríku gegn Vesturlöndum. Fróðlegt verður að sjá hvað verð- ur úr þegar Pútín ræðir þetta við Erdogan, forseta Tyrklands, sem hann segir að standi til, en Er- dogan átti stóran þátt í að hægt var að opna fyrir kornútflutning- inn. Það jákvæða við aukna hörku Pútíns gagnvart orkuútflutningi til ríkja Evrópusambandsins og gagnvart útflutningi Úkraínu á korni er að hvort tveggja er vís- bending um að hann óttist þró- unina á vígvellinum. Hann full- yrðir að vísu að hann hafi engu tapað þar, en það virðist ekki rétt því að fregnir hafa borist af sókn Úkraínumanna, einkum í austri en einnig ákveðnum ávinningi í suðri. Slíkum fregnum verður að taka með fyrirvara því að báðir aðilar hafa hag af að því að fegra sinn hlut. Enn fremur þarf að hafa þann fyrirvara á að þó að úkraínska hernum hafi tekist, með miklu harðfylgi og öflugum stuðningi í formi hergagna frá Vesturlöndum, einkum Banda- ríkjunum, að ýta rússneska hern- um nær landamærunum á ákveðnum stöðum, þá er ekki á vísan að róa um varanleika þeirra landvinninga. Pútín kann að eiga nokkra ása í erminni og er þá ekki átt við kaup hans á hergögnum frá Norður-Kóreu eða drónum frá Íran, sem þó kunna að koma að gagni. Hann hefur til dæmis ekki enn farið út í allsherjarherkvaðn- ingu í Rússlandi en með slíkri að- gerð gæti hann fjölgað verulega í hernum sem er nokkuð sem Úkraínumenn geta ekki leikið eftir. Ekki er ljóst hvaða afleið- ingar þetta hefði fyrir stöðu hans innanlands en hætt er við að hún sé nægilega sterk til að þetta gæti gengið upp. Þá er ekki hægt að útiloka, þótt enginn vilji hugsa þá hugsun til enda, að hann grípi til gereyðingarvopna, eða í það minnsta hóti grímulaust beitingu þeirra, telji hann sig kominn í þá stöðu að hann geti ekki snúið stríðinu sér í vil með hefð- bundnum aðferðum. Engin leið er að fullyrða um hvernig stríðið þróast og það er sem fyrr að mestu í höndum Pút- íns. Hann er sá sem hóf stríðs- reksturinn og getur um leið stöðvað hann. En hann kann að vera kominn í þá stöðu að áhætt- an af því að hætta sé meiri en sú að halda áfram, jafnvel þó það þýði að grípa þurfi til aðferða sem hann hefur látið vera hingað til. Þess vegna fer því fjarri, því miður, að Úkraínumenn geti talið sigur vísan, eins og stundum er fullyrt, nú þegar rússneski her- inn hefur þurft að gefa nokkuð eftir. Í hryllingnum glittir í ánægjulega þróun, en varasamt er að ofmeta árangurinn eða vanmeta Rússa} Hvert stefnir í stríðinu? SVIÐSLJÓS Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Þ að er mikil dýpt í þessum lýsingum sem ég held að séu einstakar fyrir þetta tímabil og við fáum þarna mikið þversnið á árið 1770 í þjóð- félaginu,“ segir Hrefna Róberts- dóttir þjóðskjalavörður um skjöl Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 sem nú hafa verið gefin út í heild. Útgáfu sjötta bindis þessarar útgáfu verður fagnað með ráðstefnu fimmtudaginn 15. september í Þjóð- skjalasafni Íslands. Landsnefndin fyrri var þriggja manna sendinefnd sem dönsk stjórnvöld sendu til Íslands til þess að skoða allar hliðar á íslensku sam- félagi og dvaldi hér í eitt og hálft ár, 1770-1771. Út úr þeirri vinnu kom gríðar- stórt skjalasafn, um 4.000 síður, sem nú er komið á prent í sex bindum. Í fyrstu fjórum bindunum er að finna bréf og greinargerðir Íslendinga sem landsnefndin óskaði eftir en í síðustu tveimur bindunum eru vinnugögn og niðurstöður nefnd- arinnar og varpa þau ljósi á hvað þessari nefnd fannst um Ísland. „Verkefni nefndarinnar var í rauninni að skoða allar hliðar á þjóð- lífinu, það var stjórnkerfið, heil- brigðismál, fiskveiðar, ræktun, handverk, skólahald og í rauninni allt sem nöfnum tjáir að nefna í því hvernig reka á samfélag,“ segir Hrefna. Þjóðfélag í kreppu „Á þessum árum var gríðarleg efnahagskreppa. Það hafði fjárkláði mikill gengið yfir sem gerði það að verkum að það hrundi stór hluti af bústofni á stórum hluta landsins. Þar af leiðandi var mikill fjárskortur í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Það var verið að leita leiða til þess að reisa það við. Tillögur um aukna út- gerð, betri landbúnaðarhætti, þúfna- sléttun og annað. Þannig að það má segja að þetta hafi verið þjóðfélag í kreppu þarna um 1770.“ Í framhaldinu komu fram ýms- ar tillögur um hvernig mætti bæta íslenskt samfélag, t.d. í tengslum við landbúnað, vinnulöggjöfina, leigu- kjör og einokunarverslunina. Nefnd- in lagði margt til en ekki allt fór í framkvæmd. Þá segir Hrefna einnig að stéttaskiptingin í samfélaginu sjá- ist vel í skjalasafninu. „Þarna eru bréf frá öllu landinu og ýmsum þjóðfélagshópum, lögmönnum, sýslumönnum …“ Engir bréfritar- anna séu þó konur. Einnig sé áhugavert að skoða tungumálið sem notað var á þessum tíma. „Það er mikið orðfæri sem er öðruvísi en á 19. öld þegar það varð meiri mál- hreinsun. Eins skrifa margir Ís- lendingar á dönsku, þá sérstaklega embættismennirnir, og þá sjáum við hvers konar dönsku þeir skrifa.“ Fimmtán árum síðar var stofn- uð önnur landsnefnd og í kjölfar vinnu hennar urðu meiri breytingar á íslensku samfélagi, einokunar- verslun var til dæmis aflétt og kaupstaðir stofnaðir. Starfsmenn Þjóðskjalasafnsins vinna nú við að mynda skjalasafn Landsnefnd- arinnar síðari, sem telur um 5.000 síður. Skjöl Landsnefndarinnar eru sameiginlegur arfur Ís- lands og Danmerkur. Danska ríkisskjalasafnið afhenti Íslend- ingum þau árið 1928. Verkefnið er unnið í sam- starfi við Sögufélagið og Danska ríkisskjalasafnið og eru allir formálar, greinar og skýringar bæði á ís- lensku og dönsku. Þversnið þjóðfélags á fjögur þúsund síðum Hrefna Róbertsdóttir þjóð- skjalavörður segir að sér hafi komið á óvart hve mikið er af lýsingum á daglegu lífi á seinni hluta 18. aldar í skjöl- um landsnefndarinnar. „Það er það sem gerir þetta safn einstakt. Það er eiginlega stærsta safn bréfa frá al- mennum bændum og hjá- leigumönnum þar sem þeir eru að lýsa aðstæðum sínum. Þeir eru að kvarta yfir lands- drottnum sínum, hárri leigu, búfjárfelli og öllu mögulegu.“ Í skjalasafninu sé að finna upplýsingar sem varpi ljósi á hvernig þjóðfélagið var á þessum tíma. Allt frá því hvernig kjör og samgöngur voru til þess hvernig matar- æði fólks var og hvaða aðgang menn höfðu að tóbaki. Kvartanir almennings DAGLEGT LÍF Á 18. ÖLD Hrefna Róbertsdóttir Skjöl Embættisbækur Landsnefndarinnar fyrri og hin sex binda útgáfa á skjölum nefndarinnar. Í bakgrunni er bréf bænda í Sandvíkurhreppi. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ F yrir stuttu gaf matvælaráðuneytið út samræmda áætlun í landgræðslu og skógrækt, ásamt aðgerðaáætlun til næstu fimm ára. Þar með er mörkuð stefna um hvernig við vilj- um sjá landgræðslu og skógrækt þróast næstu ár og tilgreint hvernig við ætlum að hrinda þeim fyrirætlunum í framkvæmd. Markvissar aðgerð- ir sem þessar eru forsenda þess að við getum náð markmiðum okkar í loftslagsmálum. Vinna þarf að því að ná 55% samdrætti fyrir árið 2030 og svo að hinu stóra verkefni, að þjóðfélagið verði kolefnishlutlaust árið 2040. Án mikils ár- angurs í þeim hluta sem heyrir undir landnotkun mun það ekki nást. Við höfum ekki tíma til þess að bíða þangað til að allri óvissu um hver losunin er, hefur verið eytt með rannsóknum. Við vitum nóg nú þegar. Við vitum að rofið land og framræst vot- lendi losar kolefni og skógrækt bindur kolefni. Blómleg vistkerfi bæta lífsgæði Þá eru þessar aðgerðir ekki eingöngu loftslagsaðgerðir heldur eru þær í sjálfu sér mikilvægar og góðar. Í rúm hundrað ár hefur Landgræðslan stundað sína mikilvægu starfsemi, sem fyrst um sinn snerist um nauðvörn en hin síðari ár um sókn. Þó er enn mikið verk fyrir höndum, enda er allt of stór hluti landsins illa gróinn en ætti að geta verið grösugar heiðar. Blómlegri vistkerfi styðja einfald- lega við bætt lífsgæði þjóðarinnar ásamt því að blómlegri vistkerfi gefa meiri afurðir af sér, fyrir þá sem nýta þau. Þær aðgerðir sem unnið verður að munu skila hundr- uðum þúsunda tonna samdrætti í losun og auk- inni bindingu. Gert er ráð fyrir blöndu af land- græðslu, skógrækt og endurheimt votlendis. Orð eru til alls fyrst en það þarf einnig að huga að þeim hvötum sem eru til staðar fyrir landeig- endur til að ráðast í verkefni. Ég sé fyrir mér að nauðsynlegt verði að beita búvörusamningunum til þess að skapa rétta hvata. Enda er það allra hagur að ráðist sé í sem fjölbreyttust land- bótaverkefni. Eðlilegt er að ríkið búi þannig um hnútana að þeir sem ráðist í slík verkefni upp- skeri laun erfiðis síns. Bændur þurfa að uppskera fyrir árangur Þessir hvatar eru ekki til staðar í þeim bú- vörusamningum sem gerðir voru 2016. Engir hvatar eru til staðar fyrir bónda að t.d. end- urheimta votlendi eða stunda markvissa beitarstýringu. Þessu verður að breyta, því að öðrum kosti er ætlast til þess að bændur gefi vinnu sína. Það er hvorki sanngjarnt né vænlegt til árangurs. Til þess að við náum árangri verða nauðsynleg umskipti að vera réttlát. Þannig verður að aðlaga kerfið þannig að það umbuni þeim sem ná ár- angri í loftslagsmálum. Næstu ár eru afgerandi. Samræmd áætlun í land- græðslu og skógrækt er stórt skref í rétt átt. En fleiri skref, m.a. grænkun búvörusamninga með áherslu á ár- angurstengingu þurfa að fylgja á næstu árum. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Land og líf Höfundur er matvælaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.