Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Virka daga 10-17
Laugardaga 11-15
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022
Baldur Þór Þorvaldsson verk-
fræðingur telur, eins og
margir fleiri, að Elliðaárnar séu
og hafi lengi verið ein helsta
prýði Reykjavíkur. Löngum hafi
bæjarbúar tíðkað á góðviðris-
dögum að fara
þangað í skemmti-
ferðir. Þar hafi
borgarstjóri
löngum „opnað“
árnar og síðustu
árin „Reykvíkingur
ársins“ einnig kall-
aður til. Frægar
myndir eru til frá
veiðiskap forðum, og þar kom
Kristján X. til veiða, og gekk vel
við sögufrægan Sjávarfossinn,
enda þá kóngur Íslands með
öðru.
- - -
Rekur Baldur að borgin hafi
sýnt umhverfinu þarna ríku-
legan metnað en er óhress yfir
afturför í þeim efnum: „Þar til nú
hefur verið gengið mjög snyrti-
lega frá með hlöðnu hraungrýti
sem fellur vel að árbökkum og
einnig að brúnum, gömlum og
nýjum, sem þarna eru.
- - -
Í sumar hafa þar svo staðið yfir
framkvæmdir vegna göngu-
og hjólastíga. Þá bregður svo við
að þar er allt haft með öðru svip-
móti en fyrrum. Til stuðnings við
kanta stíganna hefur verið hrúg-
að upp stórgrýti. Það er allt í
æpandi ósamræmi við umhverfi
og fyrri frágang.
- - -
Hvað kemur til að svona er
staðið að verki? Eru þeir
sem hafa lagt þennan frágang
upp ekki skilningsbetri á hvað
fer vel á þessum stað með tilliti
til umhverfisins, bæði fyrri mann-
virkja og árbakkanna, eða eru
einhverjir verktakar látnir brölta
þarna um eftirlitslaust með stór-
virkar vinnuvélar án eftirlits frá
þeim sem stjórna framkvæmdinni
hjá borginni?“
Baldur Þór
Þorvaldsson
Heggur sá sem …
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Eldsneyti hér heima hefur ekki
lækkað í samræmi við það sem er að
gerast í öðrum löndum, við sjáum
ekki sömu þróun hér,“ segir Run-
ólfur Ólafsson framkvæmdastjóri
FÍB. Jarðefnaeldsneyti á bíla hefur
þó lækkað frá því að það var í hæst-
um hæðum í sumar og fór í um 350
kr/l. FÍB fylgist stöðugt með verð-
þróun á eldsneyti í nágrannalönd-
unum, einkum á Norðurlöndum.
Runólfur segir að víðast hvar sé eins
konar verðlagsrammi settur um
mikilvægar neytendavörur. „Verðið
t.d. í Danmörku tekur mið af heims-
markaðsverði. Eldsneytisverðið
hækkaði þar svipað og hér en nú eru
þeir komnir töluvert undir okkur í
verði. Við fylgdum uppsveiflunni og
vorum jafnvel aðeins á eftir en nú
hefur verðið sigið hægar hjá okkur,“
segir Runólfur.
Eftir hádegi í gær var hæsta verð
á einum bensínlítra 326,20 krónur
hjá N1. Lítri af díselolíu kostaði þar
328,90 kr. og gilti það um allt land.
Á höfuðborgarsvæðinu var bens-
ínið ódýrast hjá Orkunni eða 299,60
kr. lítrinn og 308,70 kr. lítri af dísel-
olíu, samkvæmt gsmbensin.is.
Lægsta eldsneytisverð er töluvert
hærra úti á landi en á höfuðborgar-
svæðinu. Þannig
er lægsta verð á
bensíni á suðvest-
urhorninu 310,90
kr/l hjá Orkunni í
Njarðvík og
316,10 fyrir lítra
af dísil á sömu
stöð.
Á Suðurlandi
var bensínið
ódýrast hjá
Orkunni í Hveragerði og á Selfossi
321,90 kr/l og dísel á 325,10 kr/l hjá
Orkunni í Vík. Á Austurlandi var
bensínið ódýrast hjá Orkunni á
Egilsstöðum, Eskifirði og Nes-
kaupstað 322,90 kr/l og dísel hjá
Orkunni á Egilsstöðum 325,60 kr/l.
Á Norðurlandi var bensínið ódýrast
hjá Orkunni við Mýrarveg á Akur-
eyri 299,60 kr/l og dísel á sömu stöð
kostaði 308,70 kr/l. Á Vestfjörðum
var ódýrasta eldsneytið hjá Orkunni
á Ísafirði þar sem bensín kostaði
321,00 kr/l og dísel 323,70 kr/l. Á
Vesturlandi var ódýrast að fylla á
bensíntankinn hjá Orkunni í Baulu,
Borgarnesi og Stykkishólmi fyrir
311,90 kr/l og dísel hjá Orkunni í
Baulu og Stykkishólmi 316,70 kr/l.
gudni@mbl.is
Það gengur hægt
að lækka eldsneytið
- Er nú ódýrara í Danmörku en hér
Runólfur
Ólafsson
Hinn árlegi ferðaþjónustudagur fór
fram í gær í Norðurljósum í Hörpu.
Samtök ferðaþjónustunnar stóðu
fyrir deginum en á fundinum var
fjallað um ferðaþjónustu með tilliti
til verðmætasköpunar og stöðunnar
í hagkerfinu. Þá var einnig fjallað
um áhrif greinarinnar á samfélagið
og hvað þurfi til að tryggja jákvæða
uppbyggingu til framtíðar.
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra og Ásgeir Jóns-
son seðlabankastjóri tóku þátt í deg-
inum og rýndu í stöðu og samspil
ferðaþjónustunnar við aðra þætti
efnahagslífsins. „Ísland er aldrei
land sem getur keppt í veðri,“ sagði
Ásgeir á fundinum og bætti við að
það besta við dýran bjór og enga sól
væri að sleppa við versta hluta
ferðaþjónustunnar sem að hans mati
finnst á sólarströndum. Hann sagði
að þeir sem kæmu til landsins væru
tilbúnir að eyða peningum fyrir
gæði. Við pallborðsumræðunnar
sagði Bjarni að uppfæra þyrfti ís-
lenska vinnumarkaðsmódelið í sam-
ræmi við breytingar hagkerfisins og
nauðsynlegt að taka meira tillit til
þarfa atvinnulífsins. Nefndi hann
sem dæmi að laun væru greidd í
dagvinnu og yfirvinnu, sem að hans
mati hentaði ekki grein þar sem fólk
þyrfti að vera á vaktinni allan sólar-
hringinn og fyrir fyrirtæki sem réðu
til sín námsmenn.
Ferðaþjónustudeginum fagnað í gær
- Bjarni Benediktsson og Ásgeir Jónsson ræddu ferðaþjónustu og hagkerfið
Pallborð Bjarni Benediktsson og
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.