Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 10
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Auka þarf gæði í þjónustu við
ferðamenn sem hingað koma.
Þetta segir Gréta María Grét-
arsdóttir, forstjóri Arctic Advent-
ures en fyrirtækið er afar um-
svifamikið í afþreyingarþjónustu
hér á landi. Hún segir að á mörg-
um sviðum ferðaþjónustunnar sé
mikil þekking og fagmennska til
staðar en að helst halli á það svið
sem fyrirtæki hennar starfar á.
Gréta María er gestur Dagmála
og fer yfir ferðasumarið sem nú er
senn að baki. Það fór fram úr
björtustu vonum allra spáaðila en
Seðlabankinn gerir í líkönum sín-
um ráð fyrir því að erlendir ferða-
menn sem hingað koma í ár verði
um 1,7 milljónir. Ekki eru margir
mánuðir síðan sömu reiknilíkön
gerðu ráð fyrir að gestirnir yrðu
aðeins 1,4 milljónir.
Leggja upp úr þekkingu
Hún segir að Arctic Adventures
leggi mikið upp úr því að starfs-
menn fyrirtækisins búi yfir nægi-
legri þekkingu og reynslu til að
tryggja ánægjulega upplifun við-
skiptavina fyrirtækisins.
„Við erum með útlendinga í
vinnu sem vita miklu meira um Ís-
land en ég og þú og allir aðrir því
þetta er þeirra ástríða. Það er
gaman að sjá það og sjá hvernig
við getum tekið þetta leiðandi
hlutverk á markaði til þess að
setja standardinn aðeins hærri.“
Segir hún alltof mikið um að
fyrirtæki kasti til höndunum við
að fá fólk til starfa. Verið sé að
kalla eftir leiðsögumönnum með
mjög skömmum fyrirvara á Fa-
cebook-síðum. Ekki sé þá endilega
spurt um færni eða þekkingu
heldur hvort viðkomandi tali
tungumál sem þörf er á í það
skiptið og hvort viðkomandi geti
farið í ferð sem taki einn eða fleiri
daga.
„Ég spyr hins vegar, er fólkið
búið að læra fyrstu hjálp, er það
með einhver réttindi eða er það
með reynslu af því að fara í þessa
ferð. Því við viljum að þeir sem
koma til landsins fái ákveðin gæði
í þjónustunni eins og í öllum öðr-
um geirum. Ég er ekki að segja að
þetta sé einhverjum að kenna.“
Eins og villta vestrið
Hún segir að ferðaþjónustan
verði að setja ákveðin viðmið þeg-
ar kemur að þessum málum. Í dag
sé ástandið eins og villta vestrið.
„Þjóðgarðarnir hafa stigið
ákveðin skref í þessa átt […]“ seg-
ir hún en bendir á að það þurfi að
setja reglur og að viðurlög þurfi
við brotum.
Gréta María segir merkilegt að
sjá hvað Arctic Adventures komi
vel undan tveimur hörmung-
arárum í ferðaþjónustu 2020 og
2021. Fyrirtækið hafi náð að
bregðast skjótt við í upphafi far-
aldursins og dregið saman seglin.
Þá hafi verið mjög ánægjulegt
hversu margir reynslumiklir
starfsmenn hafi komið aftur til
starfa þegar faraldrinum lauk.
Hún segir fyrirtækið einnig skoða
með mjög gagnrýnum hætti hvar
það leggi í mikla fjárfestingu. Í
fyrra lögðu hluthafar fyrirtækinu
til 500 milljónir króna í formi nýs
hlutafjár, jafnvelt þótt efnahags-
reikningur fyrirtækisins hafi verið
sterkur.
Byggja upp þjónustu í Alaska
Það hafi t.d. verið styrkur í því
þegar Arctic Adventures lagði út í
fjárfestingu í bandarísku ferða-
þjónustufyrirtæki nú í sumar í
samfloti við PT Capital sem m.a.
hefur fjárfest í fjarskiptamark-
aðnum hér á landi. Segir hún
fyrirtækið sjá mikla möguleika í
uppbyggingu í hinu víðfema fylki
Alaska í Bandaríkjunum. Fyrir-
tækið sem fjárfest hafi verið í
hafi fram að þessu fyrst og
fremst sinnt sölumálum en nú sé
hafin uppbygging á beinni veit-
ingu þjónustu í afþreyingu eins
og Arctic Adventures sinnir hér á
landi.
Gréta María segist ekki óttast
þær aðstæður þar sem Ísland
færi úr tísku meðal ferðamanna.
„Það getur vel verið að við
verðum ekki hipp og kúl en við
erum þó áfram að fá gríðarlegan
fjölda af fólki til landsins sem við
viljum þjónusta vel. Og þá snýst
þetta líka um hvernig við ætlum
að hámarka þau gæði sem við
höfum. Hafandi verið aðeins í
sjávarútveginum, ef maður horfir
til baka þar og hvað maður geti
lært af því þar sem maður er
einnig með náttúruauðlind, þá var
ekki mikil verðmætasköpun í því
þegar allir voru að fara í sína
dagróðra og sækja eitthvað. Það
hefur breyst og í dag er vel borg-
að að vera í sjávarútvegi. Og það
viljum við sjá líka í ferðaþjónust-
unni að við förum að búa til meiri
verðmæti og það þýðir væntan-
lega að við munum sjá einhverja
samþjöppun á markaðnum. En
það mun líka þýða að þú munt
geta greitt enn hærri laun og þá
mun það skila sér til baka til
samfélagsins.“
Mikilvægt að auka gæði
þjónustu við ferðamenn
- Forstjóri Arctic Adventures kallar eftir skýrara regluverki sem girði fyrir fúsk
Áskoranir Gréta María Grétarsdóttir er forstjóri Arctic Adventures.
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Þinn dagur, þín áskorun Hlýtt og
notalegt
100% Merino ullarnærföt
fyrir dömur og herra
Stærðir: S–XXL
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi • Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri
Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar,
Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi • Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is
OLYMPIA
Hæstiréttur mun taka fyrir mál
nokkurra erfingja Sigurðar K.
Hjaltested gegn Kópavogsbæ, sem
varðar milljarðakröfur vegna
eignarnáms bæjarins á Vatns-
endajörðinni.
Hinn 25. apríl 2014 var Kópa-
vogsbæ birt stefna af hálfu erfingja
Sigurðar, fyrrverandi ábúanda á
Vatnsenda, þar sem bærinn var
krafinn um að greiða dánarbúi Sig-
urðar tæpa 75 milljarða króna
vegna eignarnáms á landi Vatns-
enda árin 1992, 1998, 2000 og 2007.
Kópavogi gert að greiða
dánarbúinu 989 milljónir
Með dómi Héraðsdóms Reykja-
ness 22. desember 2020 var Kópa-
vogsbær sýknaður af öllum dóm-
kröfum erfingjanna sem tóku til
eignarnáms árin 1992, 1998 og
2000 en vegna eignarnáms Kópa-
vogsbæjar 2007 var bærinn dæmd-
ur til þess að greiða dánarbúi Sig-
urðar 968 milljónir króna.
Landsréttur sneri niðurstöðu
héraðsdóms við eftir að málinu var
áfrýjað, að því er varðar eignarnám
bæjarins árið 2007, en staðfesti nið-
urstöðu héraðsdóms að öðru leyti
og sýknaði Kópavogsbæ þannig af
öllum dómkröfum í málinu.
Morgunblaðið/RAX
Vatnsendahverfi Kópavogur er
krafinn um háar fjárhæðir.
Hæstiréttur
tekur Vatns-
enda fyrir
- Kópavogsbær
krafinn um 75 ma. kr.