Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
DELSON 3.0
15.995 kr./ St. 41-47,5
MEÐ MJÚKU INNLEGGI OG TEYGJUREIMUM
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
HERRA GÖTUSKÓR
SKECHERS
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
50% afsláttur
af öllum útsöluvörum
í fullum gangiÚtsalan
* Undirföt * Sundföt
Náttföt * Náttkjólar * Sloppar
Vefverslun
selena.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsstofnun hefur komist að
þeirri niðurstöðu að fyrirhuguð
dýpkun Grynnslanna fyrir utan
Hornafjarðarós sé ekki háð mati á
umhverfisáhrifum. Samið var við
Björgun ehf. að vinna verkið fyrir
tæpar 126 milljónir króna. Hið nýja
sanddæluskip félagsins, Álfsnes,
mun annast dýpkunina.
Fyrirhuguð framkvæmd felst í
dýpkun siglingaleiðar um Grynnsl-
in við Hornafjarðarós og hins vegar
efnislosun í sjó. Áætlað efnismagn
er 300.000 rúmmetrar og verður
130 þúund rúmmetrum dælt af
hafsbotni í fyrsta áfanga. Mikilvægt
var talið að ljúka verkinu fyrir síld-
ar- og loðnuvertíðir á komandi
vetri.
Í greinargerð Sveitarfélagsins
Hornafjarðar segir að Grynnslin
séu sandrif sem takmarki djúpristu
skipa sem sigla yfir þau en meðal-
dýpt á þeim sé talin 7-7,5 metrar.
Skip sem sigla um svæðið risti mest
6,8-7,4 metra.
Núverandi aðstæður við Grynnsl-
in hafi þannig áhrif á skipulagn-
ingu veiða og vinnslu á Hornafirði
og áhrif á þróunarmöguleika út-
gerðar á Hornafirði.
Reglulega verði tafir á siglingum
um Ósinn og Grynnslin yfir vetrar-
mánuðina vegna ölduhæðar en upp-
sjávarskipin, sem rista mest á sigl-
ingu sinni yfir Grynnslin, geti ekki
siglt ef ölduhæð fer yfir 3-4 metra.
Taka skipin oft niður á siglingu
sinni yfir Grynnslin og eiga það
einnig til að stöðvast í þeim
miðjum. Tilgangur framkvæmdar-
innar sé því að dýpka siglingarás
um Grynnslin niður í 11 metra dýpi
svo skip geti siglt í flestum veðrum.
Dýpkun á þessu svæði sé ekki
ákjósanleg frá nóvember fram í
apríl vegna „háöldu“. Efnislos-
unarsvæðið sé 150 x 150 metrar að
stærð og staðsett 5 km suðaustan af
Hvanney.
Botndýralíf fábrotið
Í greinargerð Sveitarfélagsins
Hornafjarðar kemur fram að úttekt
hafi verið gerð árið 2022 á botn-
dýralífi í grennd við fyrirhugað los-
unarsvæði á vegum Náttúrustofu
Suðausturlands. Niðurstöðurnar
hafi sýnt að botnsetið sé fínkorn-
óttur sandur og botndýralíf á sýna-
tökustaðnum sé tiltölulega fábrotið.
Ekki sé þar mikil tegundaauðgi en
öldurótið, með tilheyrandi setflutn-
ingum á svæðinu, sé talið valda því
að botndýr eigi erfitt uppdráttar á
svæðinu. Engar fágætar tegundir
fundust í sýnum.
Morgunblaðið/sisi
Álfsnesið Hið nýja sanddæluskip Björgunar mun dýpka Grynnslin við Höfn.
Grynnslin ekki
í umhverfismat
- Álfsnesið dýpkar við Hornafjörð
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég lít á þetta sem mjög jákvætt
skref í þá átt að íslenskir háskólar
vinni meira saman. Það er mikilvægt
gagnvart þeirri mjög öflugu sam-
keppni sem við munum mæta frá
skólum um allan heim á næstu 5-10
árum í stafrænni miðlun náms,“ segir
Eyjólfur Guðmundsson, rektor Há-
skólans á Akureyri.
Morgunblaðið greindi frá því í gær
að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
ráðherra háskóla-, iðnaðar- og ný-
sköpunar, hefði sett á fót tveggja
milljarða sjóð sem á að stuðla að
auknu samstarfi íslenskra háskóla.
Sjóðurinn er fjármagnaður á fjár-
lögum og verður allt að einum millj-
arði úthlutað þegar á þessu ári og
sambærilegri upphæð á hinu næsta.
Eyjólfur segir að íslenskir háskólar
verði að vera samkeppnishæfir og
sjóðurinn muni hjálpa þar til. Hann
getur þess að HA eigi þegar í góðu
samstarfi við Háskólann í Reykjavík,
Háskóla Íslands og háskóla í Skot-
landi. „Þessi sjóður er viðurkenning á
að þetta er góð leið til að fara. Ég
horfi til þess að þetta sé fyrsta skrefið
í að átt að öflugra samstarfi og öfl-
ugra háskólastarfi,“ segir rektor.
Hann segir enn fremur að þegar sé
farið að ræða það innan HA hvaða
verkefni eig að setja á oddinn og óska
eftir fjármagni vegna. Sjóðurinn opni
á nýja möguleika en einnig sé grund-
völlur til að ræða aftur eldri hug-
myndir sem ekki hafi verið unnt að
framkvæma. „Það er kærkomin til-
breyting að ræða umgjörð náms í
landslagi þar sem er ekki þrýstingur
á niðurskurð.“
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rekt-
or Háskólans á Bifröst, kveðst fagna
áformum um þennan nýja samstarfs-
sjóð og hrósar ráðherra í hástert.
„Þetta er enn eitt dæmið um að hún
er hugrakkasti ráðherra lýðveld-
issögunnar. Hún býður öllum upp á
að vera gerendur frekar en þolendur.
Það fær fólk til að hugsa stórt, hugsa
um það hvernig háskólamenntun á
Íslandi getur orðið betri.“
Margrét segir ennfremur að á Bif-
röst séu þegar nokkur samstarfs-
verkefni í gangi. Nefnir hún til að
mynda íslenskukennslu á netinu fyrir
alla og samstarf við Landbúnaðar-
háskólann á Hvanneyri. „Þekking
verður til í samstarfi og jákvæðu um-
hverfi og nú förum við að skoða fleiri
tækifæri. Við höfum svo margt að
vinna.“
Jákvætt skref í harðri
samkeppni um nemendur
- Nýr sjóður muni auka samkeppnishæfni háskólanna
Eyjólfur
Guðmundsson
Margrét Jónsdóttir
Njarðvík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Háskóli Búast má við að meira líf færist í háskólastarf á næstu árum vegna breytinga sem nú er stefnt að.
Hvar er næsta
verkstæði?
FINNA.is