Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 24

Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Útsölustaðir: Apótek, heilsubúðir, heilsuhillur stórmarkaðanna og Heimkaup.is EPLAEDIK HEFUR ALDREI SMAKKAST BETUR! AÐEINS EIN TAFLA Á DAG 1000 MG EPLAEDIK Í EINNI TÖFLU 100% HREIN OG NÁTTÚRULEG VARA SYKURLAUST ÁN GELATÍNS OG ALLRA GERVI- LITAR- OG BRAGÐEFNA ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Samgöngustofa hefur hafið vinnu við að skilgreina siglingaleiðir á innsævi við Ísland sem til þessa hefur aðeins verið gert við Reykjanes. Vaxandi umsvif fiskeldisfyrirtækja og aukin umferð skemmtiferðaskipa úti fyrir Vestfjörðum og Austfjörðum skapar þörf fyrir skilgreindar siglingaleiðir, að því er fram kemur í svari Sam- göngustofu við fyrirspurn Morgun- blaðsins. „Siglingar aukast ár frá ári og sér- staklega hefur umferð skemmti- ferðaskipa við landið aukist undan- farin ár. Önnur starfsemi, s.s. fiskeldi, hefur einnig vaxið hratt í fjörðum landsins. Viðbúið er að ýmis starfsemi þrengi að siglingum og geti haft áhrif á siglingaöryggi. […] Skoðuð eru drög að strandsvæðis- skipulagi Austfjarða og Vestfjarða til að leggja mat á hvar helst þurfi að skilgreina siglingaleiðir,“ segir í svarinu. Með því að skilgreina siglinga- leiðir skapast öruggar leiðir til sigl- inga án hindrana sem dregur úr hættu þegar mikil umferð er á um- ræddu svæði. Leiðirnar eru merktar á sjókort og verður stýrt með sjó- merkjum, eftir þörfum. Rétt að byrja Vinnan er í startholunum og segir í svarinu að starfshópurinn, sem hef- ur með málið að gera, hafi aðeins hist einu sinni. Til stendur að skýra enn betur hlutverk og ábyrgð hans. „Starfshópurinn vinnur að skil- greiningu út frá þekkingu og reynslu sérfræðinga auk þess sem stuðst verður við gögn erlendis frá. Í vinnunni hafa tekið þátt sérfræð- ingar Landhelgisgæslu Íslands, Skipstjórnarskólans, Félags skip- stjórnarmanna, Skipulagsstofnunar og Samgöngustofu.“ Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjóför Rekstrarumsvif fiskeldis hafa stóraukist í íslenskum fjörðum. Aukin umferð vegna þess gerir skilgreindar siglingaleiðir nauðsynlegar. Aukin skipaumferð krefst siglingaleiða - Ætlað að auka öryggi sjófarenda Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Eltak hefur átt í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Ohaus um hönnun nýrrar vogar sem verður frumsýnd hér á landi á sjávarút- vegssýningunni í Laugardalshöll í næstu viku. Jón- as Á. Ágústsson framkvæmda- stjóri Eltaks full- yrðir að vogin sé hlaðin nýjungum. Eltak valdi nokkur fisk- og kjötvinnslufyrir- tæki hér á landi til að taka þátt í prófunum á vog- inni sem stóðu í heilt ár. Vogin nefnist Ohaus De- fender 6000-XW. Hún er hönnuð fyrir notkun í erf- iðu umhverfi í kjöt- og fisk- vinnslum, og hentar einstaklega vel í sjávarútvegi, að sögn Jónasar. „Samkvæmt þessum IP-mælikvarða – sem er alþjóðlegur mælikvarði fyrir vatnsheldni vatnsvarinna tækja, það er að segja hve vel þau verja rafmagnsbúnað fyrir vatni – er vogin algjörlega vatnsvarin. Hún er með IP-69 en hér áður fyrr voru tækin með IP-67 og IP-68. Vogin er öll smíðuð úr ryðfríu stáli í hæsta gæðaflokki, 316 ,“ útskýrir hann. Hann segir jafnframt hönnun vogarpallsins sjálfs vera nýjung. „Það er ekki hefðbundin stálkápa yfir voginni heldur er hægt að þrífa hana alla – jafnvel þar sem kraft- neminn er – án þess að lyfta nokkru. Við vorum ekki alveg sann- færðir með okkar 30 ára reynslu, eða mína 40 ára reynslu, um hvort þetta væri í lagi, en þetta stenst allt vegna þess að nemarnir í dag eru allir með vörn gegn vatni og þolir því rafbúnaðurinn þetta.“ Samskiptin við vogina eru snerti- laus að sögn Jónasar, sem útskýrir að tækið geti fylgt fyrirmælum sem gefin eru með handahreyfingum. „Þú þarft bara að lyfta upp hend- inni og þá núllstillir hún sig sjálf.“ Þá eru innbyggðar tengingarleið- ir fyrir meðal annars þráðlaust net, Bluetooth og usb. „Þannig er hægt að eiga samskipti við vogina á ýms- an máta sem gerir notandanum kleift að gera sinn eigin hugbúnað sem les upplýsingarnar úr tækinu. Það er andstætt flestum framleið- endum sem eru með læstan hug- búnað.“ Kynna vog með mestu vatnsheldni sem til er - Hönnuð í samstarfi við Eltak - Prófanir á Íslandi Ljósmynd/Eltak Vatnsheldni Vogin var heilt ár í prófunum hjá fleiri fyrirtækjum hér á landi og á grundvelli reynslu notenda var reynt að fullkomna tækið. Jónas Á. Ágústsson Samstarf » Eltak hefur í 30 ár sérhæft sig í sölu og þjónustu á vogum og öðrum búnaði til vigtunar, skömmtunar, vörufrágangs og pökkunar, gæðaeftirlits og skynjunar. » Fyrirtækið hefur í átta ár haft umboð fyrir Ohaus á Ís- landi og á þeim tíma selt mikið magn af vogum. » Ohaus er með höfuðstöðvar í New Jersey í Bandaríkjunum. Afurðaverð á markaði 14. september,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 494,85 Þorskur, slægður 482,74 Ýsa, óslægð 364,01 Ýsa, slægð 344,23 Ufsi, óslægður 226,22 Ufsi, slægður 249,23 Gullkarfi 277,66 Blálanga, óslægð 277,00 Blálanga, slægð 264,31 Langa, óslægð 347,35 Langa, slægð 372,95 Keila, óslægð 115,69 Keila, slægð 200,87 Steinbítur, óslægður 118,91 Steinbítur, slægður 351,54 Skötuselur, slægður 546,47 Grálúða, slægð 10,43 Skarkoli, slægður 471,34 Þykkvalúra, slægð 452,55 Langlúra, óslægð 261,65 Langlúra, slægð 267,59 Sandkoli, óslægður 97,89 Sandkoli, slægður 32,00 Skrápflúra, óslægð 13,92 Skrápflúra, slægð 12,68 Gellur 1.209,88 Hlýri, óslægður 214,00 Hlýri, slægður 300,57 Kinnfiskur/þorskur 856,00 Lúða, slægð 511,83 Lýsa, óslægð 101,54 Lýsa, slægð 147,06 Skata, slægð 84,19 Stórkjafta, slægð 166,83 Túnfiskur slaegt 323,00 Undirmálsýsa, óslægð 43,12 Undirmálsýsa, slægð 55,00 Undirmálsþorskur, óslægður 210,34 Undirmálsþorskur, slægður 230,99 Urrari 13,19

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.