Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
15. september 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 137.69
Sterlingspund 161.42
Kanadadalur 106.14
Dönsk króna 18.839
Norsk króna 14.012
Sænsk króna 13.204
Svissn. franki 144.9
Japanskt jen 0.9696
SDR 180.02
Evra 140.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.2847
þjónustu í hæsta gæðaflokki, eins
og þeir orða það.
Aðspurður segir Sigurður að
mikil uppsveifla sé hjá fyrirtækinu
núna eftir að hafa verið starfandi
frá árinu 2014. Starfsmannafjöld-
inn hafi meira en tvöfaldast á
þessu ári. „Við erum sautján núna
en vorum sex í janúar sl.“
Hann segir fyrirtækið reka rúm-
lega tvö þúsund hleðslustöðvar.
„Við höfum náð að vaxa með þess-
ari þróun í rafvæðingunni. Það
skildi okkur enginn í fyrstu en við
erum núna að uppskera eftir allt
erfiðið.
Mikilvægt fyrir markaðinn
Verkefni sem þetta er gríðar-
lega mikilvægt fyrir rafbílamark-
aðinn, sér í lagi til þess að viður-
kenna rafmagn sem valkost.
Skráningartölur nýrra bifreiða
sýna glöggt að sífellt fleiri kjósa
að nýta rafmagn. En rafbíll er
ekki einungis fyrir einstaklinga.
Hann er einnig fyrir fyrirtæki og
viðskiptavini hjá bílaleigum, not-
endur sem alla jafna hafa ekki að-
gang að heimahleðslu. Öflugir inn-
viðir með góðu aðgengi eru því
mikilvægt framlag fyrir þennan
nýja notendahóp sem við sjáum
vaxa hratt,“ segir Sigurður.
Frosti segir spurður um valið á
Ísorku sem samstarfsaðila að fé-
lagið hafi staðið frammi fyrir því
að vinna verkefnið allt innanhúss
eða fara þá leið að vinna með sam-
starfsaðila. „Við hefðum þurft að
byggja upp talsverða þekkingu
innanhúss og fjárfesta í innviðum
sem mögulegur samstarfsaðili
væri nú þegar búinn að gera. Við
höfum átt gott samstarf við Ísorku
fram til þessa og nú tökum við
stærra skref með þeim inn í fram-
tíðina.“
Þær staðsetningar sem fyrstar
verða rafvæddar eru Olís-stöðv-
arnar á Akranesi, Kirkjubæjar-
klaustri og Vík í Mýrdal að sögn
Frosta.
Þétta net á Suðurlandi
Mikilvægt er að hans sögn að
þétta netið á Suðurlandi enda er
þar mikil umferð ferðamanna, ís-
lenskra og erlendra.
Sigurður segir að öflug stöð
verði sett upp í Borgarnesi sem
tengt geti Snæfellsnesið betur.
Spurður um tæknilega hlið upp-
setninganna segir Sigurður að all-
ar stöðvar verði að lágmarki 150
Kw að stærð. „Nýjustu rafbílar
taka 100-200 Kw hleðslu. Mikið af
búnaðinum sem við setjum upp
verður svo uppfæranlegt upp í 400
og jafnvel 600 Kw. Það mun nýtast
vel þegar bílarnir sjálfir verða
færir um að móttaka slíkt afl.
Einnig gefur meira afl inn á stöðv-
arnar möguleika á fleiri og hraðari
tenglum á hverja stöð.“
Áfram í samfloti
Í samhengi við framvindu orku-
skiptanna segir Frosti að hefð-
bundið jarðefnaeldsneyti og raf-
magn komi til með að vera í
samfloti í þónokkurn tíma til við-
bótar. „Nýorkubifreiðar eru að
ryðja sér hratt til rúms og eru nú
meirihluti seldra fólksbifreiða. Það
er aftur á móti ljóst að umbreyt-
ingin mun taka nokkra áratugi og
það er erfitt fyrir ýmsa að skipta
yfir í hreina rafmagnsbíla, a.m.k.
eins og tæknin stendur í dag. Það
er því ljóst að viðskiptavinir okkar
munu þurfa aðgengi að bæði jarð-
efnaeldsneyti og rafmagni næstu
árin. Því er ákjósanlegt að bjóða
upp á báða kosti á staðsetningum
okkar.“
Spurður um krónur og aura í
samningnum segir Frosti að fjár-
festingin hlaupi á hundruðum
milljóna króna.
20 nýjar hraðhleðslustöðvar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Orkuskipti Sigurður Ástgeirsson og Frosti Ólafsson.
- Olís og Ísorka í samstarf - Ljúka verkinu á tveimur árum - 6-8 fyrir áramót - Hleypur á hundr-
uðum m. kr. - Mikið af búnaðinum uppfæranlegt upp í 400 og jafnvel 600 Kw - Skref inn í framtíðina
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Verslunar- og þjónustufyrirtækið
Olís og hleðslufyrirtækið Ísorka
hafa undirritað samstarfssamning
um uppbyggingu á neti hrað-
hleðslustöðva sem staðsettar verða
á þjónustu- og sjálfsafgreiðslu-
stöðvum Olís um allt land. Stefnt
er að uppbyggingu 20 staðsetninga
innan tveggja ára þar sem rafbíla-
eigendur geta hlaðið bifreiðar sín-
ar með fyrsta flokks búnaði.
Frosti Ólafsson framkvæmda-
stjóri Olís og Sigurður Ástgeirsson
framkvæmdastjóri Ísorku segja í
samtali við Morgunblaðið að hafist
verði handa við fyrstu staðsetning-
arnar á komandi mánuðum. Stefnt
sé að því að 6-8 nýjar staðsetn-
ingar verði komnar í notkun fyrir
áramót.
„Það er kjarnamarkmið hjá okk-
ur að fjölga vinum við veginn –
bæði viðskiptavinum og samstarfs-
aðilum – og þetta er stórt skref í
átt að því marki. Sú uppbygging
sem er fram undan er því mikið
fagnaðarefni fyrir bæði okkur og
rafbílaeigendur,“ segir Frosti.
Sækja breiðari þjónustu
Stærstur hluti stöðvanna verður
staðsettur við þjónustustöðvar Olís
þannig að viðskiptavinum gefist
tækifæri til að sækja sér breiðari
þjónustu meðan á hleðslu stendur.
Olís hefur þjónustað bifreiðaeig-
endur í hartnær öld og er með
þjónustustöðvar fyrir fólk á ferð-
inni um land allt. Lausnir Ísorku
verða sífellt útbreiddari. Með því
að sameina krafta sína vonast þeir
Frosti og Sigurður til þess að
fyrirtæki þeirra geti veitt vaxandi
hópi rafbílaeigenda fjölbreytta
Eignir íslenskra lífeyrissjóða jukust
um 236,7 milljarða króna í júlímán-
uði og snerist þá við þróun þriggja
fyrri mánaða þar sem eignir þeirra
rýrnuðu samanlagt um 269 millj-
arða. Mest munaði um að hlutabréfa-
eign sjóðanna erlendis jókst um 157
milljarða milli mánaða. Hafa erlend-
ar eignir sjóðanna aldrei verið meiri
en nú í júlí í krónum talið eða 2.229,7
milljarðar króna. Þá jukust innlend-
ar eignir um 78 milljarða en hafa
ekki náð sama styrk og frá því í mars
og apríl þegar þær voru um 30 millj-
örðum hærri en nú. Ný útlán lífeyr-
issjóðanna til sjóðfélaga námu 2,9
milljörðum í júlí og hækkuðu um 1,9
milljarða frá fyrri mánuði. Það sem
af er ári hafa sjóðirnir veitt ný útlán,
að teknu tilliti til upp- og umfram-
greiðslna, sem nemur 23,3 milljörð-
um króna. Í júlí héldu óverðtryggð
útlán áfram að sækja í sig veðrið og
námu 5,6 milljörðum en verðtryggð
lán voru greidd upp um 2,7 milljarða
umfram nýtekin. Það sem af er ári
hafa ný óverðtryggð útlán, umfram
upp- og umframgreiðslur, numið
41,9 milljörðum króna en verð-
tryggðu útlánin dregist saman um
18,6 milljarða króna.
Morgunblaðið/Eggert
Sjóðir Lífeyrissjóður verslunar-
manna er stærsti lífeyrissjóður
launþega á almenna markaðnum.
Eignir sjóðanna
jukust aftur í júlí
- Lán til sjóð-
félaga halda
áfram að aukast