Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Haustar að Trén við Laufásveg eru aðeins farin að skarta haustlitunum, enda er farið að húma fljótt að kvöldi og kólna í veðri. Það er þó enn færi til þess að rölta um og hjóla áður en laufin falla. Árni Sæberg Á almanakinu er komið haust, með óvenjustórum vanda- málum á heimsvísu til skemmri og lengri tíma litið. Öll eru þau manngerð, tilkomin á löngum tíma vegna bú- skaparhátta mannsins, tegundar sem kallar sig vitiborna (Homo sapiens), en hefur vald- ið þeirri stöðu sem nú blasir við. Í heilan mannsaldur hefur legið fyrir, stutt af mælingum og fjölþættum rannsóknum, að sívax- andi losun gróðurhúsalofts af mannavöldum stefnir umhverfi jarð- ar í voða. Í ljósi þessa sameinuðust stjórnir flestra ríkja heims um Par- ísarsamkomulagið 2015 með heit- strengingum um gagnaðgerðir. Við þær hafa síðan verið bundnar vonir, en þær hafa enn sem komið er skilað litlu sem engu í reynd. Afleiðingar stigvaxandi hlýnunar lofthjúpsins hafa á liðnu sumri víða birst í 40-50 gráðu hita, staðbundinni úrkomu í áður óþekktum mæli, eins og m.a. blasir við í Pakistan, og skógar- eldum víða á norðurhveli jarðar. Úkraínustríðið olía á eld Árásarstríð Rússa gegn Úkraínu hefur nú staðið í hálft ár og enginn sér fyrir endann á þeim átökum. Hætta hefur verið yfirvofandi á stór- felldu kjarnorkuslysi vegna átaka um kjarnorkuverið í Saporitsja, en fyrir milligöngu alþjóðastofnunar hefur dregið úr henni í bili. Gagnsókn Úkra- ínuhers á síðustu vik- um með stuðningi af vopnasendingum vest- an að bendir til að langt sé í land að línur skýr- ist eða að einhvers kon- ar samkomulag náist milli stríðandi fylkinga. Afleiðinga þessa stað- bundna stríðs gætir um allan heim, í röskun á framboði á hveiti í mörgum þróun- arríkjum og alveg sér- staklega í stórfelldum erfiðleikum í orkubúskap í Vestur-Evrópu eftir að lokast hefur að mestu fyrir gassölu þangað frá Rússlandi. Staðan er sér- staklega viðkvæm í Þýskalandi þar sem víðtækar ráðstafanir vegna verðhækkana á jarðgasi hafa knúið stjórnvöld til róttækra ákvarðana um orkuverð og takmarkanir á orku- framboði. Líklegt er að samdráttur og lokun á gasi um Nord Stream- leiðsluna frá Rússlandi eigi eftir að seinka umskiptum í þágu vistvænna orkugjafa og leiða af sér miklar verðhækkanir á orku og afleiddum afurðum. Útvíkkun NATÓ til austurs Spenna í samskiptum milli Rúss- lands og Vesturveldanna eftir fall Sovétríkjanna 1991 hefur farið stig- vaxandi og tengist ekki síst útfærslu NATÓ-aðildar á fyrrverandi ríki Varsjárbandalagsins sem lagt var niður 1991. Stækkun NATÓ í aust- urátt gerðist í fimm skrefum á tíma- bilinu 1999-2020. Fyrstu fyrrverandi austantjaldsríki til að ganga í NATÓ 1999 voru Pólland, Tékkland og Ungverjaland. Árið 2004 bættist við stór hópur landa: Eystrasaltsríkin þrjú, Rúmenía og Búlgaría svo og Slóvakía og Slóvenía. Síðar fylgdu í kjölfarið Albanía og Króatía (2009), Montenegró (2017)og Norður- Makedónía (2020). Senn bætast nú við Svíþjóð og Finnland sem þegar hafa samþykkt aðild og aðeins formsatriði eftir í innkomu þeirra, sem beint verður rakin til innrás- arinnar í Úkraínu. Er þar um að ræða þungt högg gagnvart Rúss- landiog Pútín, sem allt frá örygg- isráðstefnunni í München á árinu 2007 hefur lýst stækkun NATÓ í austurátt sem broti á loforði Vest- urveldanna við Mikael Gorbatsjoff sem forseta Sovétríkjanna 1990. Ný- lega hafa verið rifjuð upp orð banda- ríska sagnfræðingsins og sendiherr- ans George F. Kennans í New York Times 1997, sem þá sagði „að stækk- un NATÓ væru alvarlegustu mistök í stefnu Bandaríkjanna eftir lok kalda stríðsins“. Þau myndu kynda undir þjóðrembu og hernaðarhyggju af hálfu Rússa. (DieZeit, 4. mars 2022.) Gífurlegur straumur flóttamanna Straumur flóttamanna frá Úkra- ínu er nú sá mesti í Evrópu frá lok- um seinni heimsstyrjaldar, talinn í milljónum, mikill meirihluti konur og börn. Evrópusambandið hefur opnað fyrir móttöku þeirra og dvöl í þrjú ár án þess að sótt sé formlega um hæli. Stærsti hópurinn hefur eðlilega staldrað við í Póllandi, margir í von um að geta snúið aftur til heimalandsins. Þar hefur almennt verið tekið vel á móti þeim og reynt að koma börnum í skóla svo skiptir hundruðum þúsunda. Þótt tungu- málin séu skyld eru þau af mismun- andi slavneskum stofnum og skiljast ekki án kunnáttu og reynslu. Eykur það í fyrstu á erfiðleika í skólastarfi. Siðir og saga þjóðanna eru líka með ólíkum hætti, fjandskapur og blóði drifnar væringjar miklar fyrr á tíð, m.a. á síðustu öld þegar vesturhluti Úkraínu heyrði undir Pólland, þar á meðal borgin Lviv. Pólverjar eru nú mjög einsleitur hópur andstætt því sem gerðist fyrr á tíð og stjórnvöld þar þekkt fyrir annað en frjálslynda stefnu í samskiptum við aðra, m.a. innan Evrópusambandsins. Dragist Úkraínustríðið á langinn getur því slegið í bakseglin í samskiptum við flóttamennina. Kína, Bandaríkin og Taívan Önnur púðurtunna á alþjóðavísu minnti á sig nýlega þegar Nancy Pe- losi forseti Bandaríkjaþings heim- sótti Taívan 2. ágúst síðastliðinn í fylgd með fimm þingmönnum demó- krata. Þar hitti hún forseta Taívans og tók við æðsta heiðursmerki úr hans höndum. Með þessu braut hún ekki aðeins gegn eindregnum mót- mælum stjórnvalda í Peking heldur einnig aðvörunum frá Joe Biden for- seta Bandaríkjanna sem tjáði sig þegar fyrst fréttist af fyrirhuguðu ferðalagi hennar. Í grein í Wash- ington Post tengdi Pelosi heimsókn sína til Taívans við stríð Rússa gegn Úkraínu. Í aldarfjórðung eftir heim- sókn Newts Gingrich, þá þing- forseta, til Taívans (1997) hafði eng- inn hliðstæður atburður átt sér stað. Það sýnir best hversu alvarlegt skref þingforsetinn tók, að Antony Blinken utanríkisráðherra Banda- ríkjanna sá sig tilknúinn að gefa út sérstaka yfirlýsingu vegna ferðar hennar, þar sem hann sagði: „Við viljum ekki einhliða breytingar frá status quo af beggja hálfu. Við styðj- um ekki sjálfstæði Taívans.“ Mót- mæli Kínastjórnar vegna heimsókn- arinnar og heræfingar í grennd Taívans á undan og eftir minna hins vegar á þá púðurtunnu sem hvenær sem er getur sprungið í þessum heimshluta. Komandi vetur afdrifaríkur Þau alvarlegu mál sem hér hefur verið staldrað við verða áfram í brennidepli heimsmála á næstunni. Þau varða alla heimsbyggðina og ekki síst uppvaxandi kynslóð. Varð- veisla heimsfriðar og lífvænlegt um- hverfi eru lykilatriði sem snerta Ís- lendinga eins og aðrar þjóðir. Höldum því vöku okkar og leggj- umst með á árar. Hjörleifur Guttormsson » Afleiðingar stigvax- andi hlýnunar loft- hjúpsins hafa á liðnu sumri víða birst í 40-50 gráðu hita og staðbund- inni úrkomu í áður óþekktum mæli. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Skuggalegar horfur um veröld víða

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.