Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 ✝ Guðný Krist- leifsdóttir fæddist á Landspít- alanum 13. október 1972. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 25. ágúst 2022. Foreldrar henn- ar eru Bergljót Kristjánsdóttir, f. 19. júní 1938, og Kristleifur Guðni Einarsson, f. 23. maí 1933. Syst- ir Guðnýjar er Þórdís, f. 29. des- ember 1958. Börn Guðnýjar eru: Ásdís Lilja, f. 4. febrúar 1993, faðir hennar er Hafþór Sigurðsson, f. 28. nóvember 1973, Árni Gunn- ar, f. 21. október 1996, og Anna Sólveig, f. 4. ágúst 2001. Faðir þeirra er Guðni Már Þorkelsson, f. 13. janúar 1971. Guðný giftist Guðna Má Þorkels- syni 13. júlí 1998. Þau skildu. Guðný ólst upp í vesturbæ Kópavogs en flutti í Garðabæ árið 1993 og bjó þar síðan. Hún gekk í Kárs- nesskóla, Þinghóls- skóla og Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Hún útskrifaðist sem matartæknir, sjúkraliði og stúd- ent. Guðný vann ýmis störf. M.a. var hún matráður á leikskólan- um Ósi og sjúkraliði á hjarta- skurðlækningadeild Landspít- alans. Útför Guðnýjar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 15. september 2022, og hefst klukk- an 15. Glaðværð og Guðný áttu sam- leið. Litla systir hennar Dísu tengdadóttur okkar Harðar kom með smitandi glaðværð sína í húsið okkar, en Dísa og Daði, miðsonur okkar, höfðu komið sér fyrir í kjallaranum. Við kynntumst Guðnýju fyrst þegar hún var smástelpa og kom oft með stóru systur í Lindar- hvamminn til að heilsa upp á ný- fæddan frænda sinn, hann Kristleif litla Daðason, og vildi líka svo gjarnan fá Kela okkar út í fótbolta þó ekki gengi það nú alltaf eftir. Guðný var sann- arlega á undan sinni samtíð og var á kafi í fótbolta með strák- unum í hverfinu þannig að leið- beinendur komu fram við hana eins og „hina strákana“. Því hún átti í fullu tré við þá. Alltaf gat hláturmildi Guðnýjar smitað til þeirra sem voru nálægir. Seinna giftist Guðný náfrænda mínum, Guðna Má Þorkelssyni, en þau eignuðust tvö mannvænleg börn en fyrir átti Guðný yndislega litla dóttur. Með tímanum varð ég lang- ömmusystir allra barna hennar. Á seinni árum mínum leitaði ég til Guðnýjar með verkefni og fékk hana til að slá inn nokkrar ferðadagbækur mínar sem náðu yfir tvo áratugi. Þar kom vand- virkni Guðnýjar berlega í ljós því þar sem handskrift mín var óljós skrifaði hún einfaldlega „skil ekki næstu setningu“. Svo aldrei slæddust inn ágiskanir eða óljóst orðalag. Þetta var eft- ir að Guðný var orðin einstæð móðir og tók að sér einstaka við- vik fyrir aðra. Þetta varð upphaf að endurnýjaðri vináttu okkar; ég fylgdist með dugnaði hennar og lífi barna í fjarlægð og hversu lífið tók að þrengja að Guðnýju. Veikindi undanfarin ár réðust að líkama hennar, en meðfædd glaðværð sem hún ræktaði ætíð með sér fylgdi henni allt til enda og létti henni erfiða lífsbaráttu. Þó sú barátta hafi tapast að lokum. Minningin um þessa glaðværu og umhyggjusömu sál situr eftir í minningu okkar sem kynntust henni á ólíkum lífsskeiðum hennar. Við Hörður Rafn send- um börnum Guðnýjar, þeim Ás- dísi, Árna Gunnari og Önnu Sól- veigu, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Foreldrar, systir, frændfólk og vinir eiga samúð okkar óskipta. Kristín Þorkelsdóttir. Hvernig kveður maður sína bestu vinkonu eftir áratuga- langa vináttu? Vináttu sem hef- ur gert líf mitt betra og hefur þroskast með okkur. Minning- arnar eru svo margar að erfitt er að gera þeim skil í stuttri grein. Við Guðný kynntumst þegar ég flutti í vesturbæ Kópa- vogs fimm ára gömul. Hún bjó hinum megin við götuna í litlu húsi sem mér fannst vera æv- intýraveröld. Æskuárin ein- kenndust af því að leika okkur úti og uppgötva heiminn. Ung- lingsárin voru okkur góð. Við fórum í ferðalög, á skólaböll, fórum á rúntinn á litla Dai- hatsuinum. Með hverju ári lærðum við meira á okkur sem einstaklinga og vinátta okkar dýpkaði. Okkur fannst við vera að sigra heiminn. Það kom að því að börnin bættust í hópinn. Hún eignaðist gullin sín, þau Ásdísi Lilju, Árna Gunnar og Önnu Sólveigu. Allt einstakling- ar sem erft hafa hæfileika móð- ur sinnar, náð markmiðum sín- um og gert móður sína stolta. Það sem hún elskaði þau heitt. Guðný var ein af þeim sem gera allar samkomur skemmti- legar og var oftar en ekki hrók- ur alls fagnaðar. Hún sagði svo skemmtilega frá og var ein af þeim einstaklingum sem láta öllum líða vel. Það var svo auð- velt að opna sig fyrir henni. Hún studdi og ráðlagði en um- fram allt hlustaði. Var glaðvær, hnyttin og brosmild. Hafði þann hæfileika að láta öllum finnast þeir vera sérstakir í augum hennar. Hafði einlægan áhuga á fólki og heiminum öllum. Guðný var einstaklega list- ræn sem sýndi sig í ljósmynd- um hennar, hekli, prjónavinnu, leirgerð og auga fyrir litum. Hún var samt svo auðmjúk, fannst aldrei neitt sem hún gerði vera nógu gott. Dýr áttu alltaf sinn sess í lífi Guðnýjar, ekki bara hennar eigin dýr heldur öll dýr sem urðu á vegi hennar. Hún hafði einstakt lag á að fá þau til að hænast að sér og vissi hvers þau þörfnuðust. Sýndi þeim ást og umhyggju. Svo var hún djúpvitur, vissi ótrúlega mikið um ótrúlegustu hluti. Hún vissi til dæmis allt um stjörnurnar og reyndi í 44 ár að kenna mér hvar hver þeirra er, en það eina sem situr eftir er Karlsvagninn sem ég stolt bendi öðrum á. Þar er ekki við kennsluhæfileika hennar að sakast, frekar tregðu mína. Það verður erfitt að geta ekki leng- ur hringt í hana eftir svari. Hver á að svara núna þegar mig vantar uppskrift að mat, þarf að vita hvað lagið heitir sem ég er að hugsa um eða hver fyllir inn í minninguna sem ég man bara að hluta? Ég treysti því að hún leiðbeini mér að svarinu. Nú er þessum kafla í vináttu okkar að ljúka. Næsti kafli er að vera til staðar fyrir börnin hennar, foreldra og systur. Seinna hittumst við aftur. Við Helgi vottum aðstandendum hennar okkar innilegustu sam- úð. Guðlaug Edda. Guðný Kristleifsdóttir ✝ Hilmar Örn Kolbeins fædd- ist í Reykjavík 18. október 1976. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 5. september 2022. Foreldrar Hilm- ars Arnar voru þau Páll Hilmar Kol- beins, f. 13. maí 1940, d. 31. janúar 1997, og Helga Sigríður Claes- sen, f. 22. ágúst 1940, d. 5. maí 2010. Systkini Hilmars Arnar eru þau Helga Kristín Kol- beins, f. 8. nóv- ember 1963, eig- inmaður hennar er Arnar Hjaltalín, og Jóhann Emil Kol- beins, f. 21 maí 1970, eiginkona hans er Svandís Að- alheiður Leósdóttir. Útför Hilmars fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 15. september 2022, og hefst at- höfnin klukkan 13. Hilmar bróðir minn er farinn og minningarnar hellast yfir. Fyrstu og síðustu minningarnar um bróður minn eru frá Landspít- alanum við Hringbraut. Ég er sex árum eldri en Hilmar og fór því oft með mömmu á spít- alann þegar Hilmar lá þar sem barn og svo aftur núna þegar hann lá mjög veikur á gjörgæsl- unni. Hilmar Örn fór í leikskólann Múlaborg og svo í Hlíðaskóla, en báðir voru með sérúrræði fyrir fötluð börn og þar fékk hann að vera meðal jafningja. Um 10 ára fór hann í Ölduselsskóla. Hann eignaðist marga vini í skólanum en á unglingsárunum fór að verða erfiðara hjá honum og vinahópur skólafélaganna fór að þynnast. Nokkrir vinir hans héldu þó áfram vinskap við Hilmar og ber að þakka fyrir það. Ekki var mikið um framhaldsskólanám hjá Hilm- ari, fötlunin, sjúkraþjálfun, end- urteknar heimsóknir á sjúkrahús og margt annað hamlaði því. Hilmar lærði samt á bíl og upplifði mikið frelsi með því. Hann hafði mikla ástríðu fyrir því að keyra. Frelsi sem okkur finnst sjálfsagt en varð honum mikill sigur. Það varð Hilmari mikið reið- arslag þegar pabbi féll frá 1997. Pabbi hafði verið duglegur að taka Hilmar með sér, t.d. í veiði- ferðir og þannig reynt að hjálpa honum að upplifa eðlilegt líf. Þetta var Hilmari mikilvægt og ræddi hann oft um þessar ferðir. Mamma og Hilmar reyndu svo að halda eðlilegu lífi, en með tak- mörkuðum tekjum varð það oft erfitt. 2010 lést mamma okkar, en mamma var líka aðalumönnunar- aðili Hilmars. Hún hafði séð um að aðstoða hann við allar athafnir daglegs lífs frá fæðingu en nú þurfti Hilmar á kerfinu að halda til að fá þessa aðstoð. Næstu 12 árin, eða fram að andláti Hilmars, voru mörkuð af stöðugri baráttu við kerfið og við að fá þessa nauð- synlegu aðstoð. Hilmar var mikill matgæðing- ur og það var gaman að búa til mat fyrir hann. Skipti þá litlu hvort um stórsteik eða hamborg- ara væri að ræða. Eftir að við Svandís hófum sambúð þá voru mamma og Hilmar oftast hjá okk- ur á jólum. Eftir fráfall mömmu hefur Hilmar komið til okkar. Það verður því mikil breyting núna á næstu jólum. Uppáhaldsmatur Hilmars var án efa hangikjöts- tartaletturnar sem við höfum haft í forrétt allt frá okkar barnæsku. Hilmar kom oft til okkar í heim- sókn og stundum vildi hann spjalla en stundum bara að fá að vera hjá ástvinum og á stað þar sem enginn var að dæma hann. Hilmar var duglegur að rækta frændgarðinn og reyndi að fylgj- ast með því sem var að gerast hjá frændfólkinu. Oftar en ekki var hann fyrstur að láta okkur vita af fréttum frá ættinni. Hilmar bjó síðustu árin í Bú- staðahverfinu og tókst að búa sér þar heimili. Örfáum dögum áður en hann veiktist fórum við í heim- sókn til hans og kattarins Ljónsa, sem hann hafði fengið sér til að stytta sér stundir. Gleðin, sem skein úr augum Hilmars þegar hann lék við köttinn, var einlæg. Ljónsi er núna hjá okkur og var síðasta ósk hans að við myndum passa fyrir hann köttinn. Ekki átti ég von á öðru en að Ljónsi færi aftur til Hilmars. Megi góður guð geyma þig og minninguna um þig, elsku litli bróðir. Jóhann Kolbeins. Litli bróðir minn hann Hilmar Örn er dáinn aðeins 45 ára. Er hann fæddist var honum vart hug- að líf og glímdi hann við fjölþætta fötlun alla sína ævi. Hann náði þó undraverðum árangri og kom okkur sífellt á óvart er hann var að þroskast. Man ég svo vel er hann tók sín fyrstu skref hjálp- arlaust en enginn átti von á að það myndi nokkurn tímann takast. Hann stundaði nám í almennum barnaskóla og gekk það ekki þrautalaust því ekki ríkti á þeim tíma sá stuðningur og skilningur sem við þekkjum í dag við fatlaða einstaklinga. Foreldrar okkar studdu hann einhuga í uppvextinum og gáfu allt sitt og meira til í stuðningi við hann. Faðir okkar féll frá árið 1997 er Hilmar var um tvítugt og vék móðir okkar ekki frá Hilmari eftir það. Hún féll frá árið 2010 og missti Hilmar þá sína hægri hönd, aðalstuðningsaðila og sinn besta vin. Þegar ég lít til baka þá finnst mér ævi Hilmars hafa verið þyrn- um stráð, með þessa fötlun í vöggugjöf og átti hann síðar í erf- iðleikum með að lifa með henni. Hugur Hilmars bar hann svo oft mikið lengra en líkamleg og fjár- hagsleg geta hans leyfði. Hann var auðvitað eins og við öll með sínar vonir og væntingar um lífið. Horfði á félaga sína og fólk í kringum sig ljúka skólanámi og fara út á vinnumarkaðinn, eignast bíla, hús og annað sem var honum ofviða. Enda hafði hann enga getu til að afla sér tekna og örorkubæt- ur duga eins og við þekkjum öll aðeins fyrir nauðþurftum og engu öðru. Hringdi hann stundum í mig og aðra þegar svo bar undir og bar sig ekki vel. Það voru fjöl- margir er réttu honum hjálpar- hönd fjárhagslega og á annan hátt og vildu allt fyrir hann gera en stundum dugði það ekki til. Eftir að móðir okkar féll frá fékk hann húsnæði og þjónustu frá Reykjavíkurborg. Það var Hilmari afar erfitt, hann féll ekki inn í þann þrönga ramma er sett- ur er af opinberum aðilum um þjónustu við fatlað fólk. Hann neitaði þar að auki að beygja sig til að vera þröngvað inn í ramm- ann. Heilsu hans fór hrakandi um þrítugt. Var hann mikið inni á spítala og hjúkrunarheimilum síð- ustu ár ævi sinnar. Hann vildi aldrei gefast upp þrátt fyrir oft á tíðum að manni fannst óyfirstíg- anlega erfiðleika og hélt alltaf áfram og aldrei var hann í nokk- urri neyslu, hvorki áfengis, vímu- efna né tóbaks. Í lok ágúst fékk Hilmar alvarlega sýkingu og lík- aminn gat ekki meir og sagði stopp. Ég vil minnast þín litli bróðir með þessum örfáu orðum. Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika áttum við góðar stundir saman með mömmu, pabba og Jóa bróður ásamt fjölskyldum okkar. Ég mun geyma þær í hjarta mínu í þeirri fullvissu að þú hafir nú öðlast ró í faðmi foreldra okkar. Þín systir, Helga Kristín. Elsku Hilmar. Það var leiðinlegt hversu fljótt þú varst tekinn frá okkur og það verður erfitt að horfast í augu við það sem hefur gerst. Það sem hjálpar mér verða minningarnar. Hvernig þú náðir alltaf að horfa á björtu hliðarnar á öllu sem þú lentir í og öllum þín- um erfiðleikum. Þú kenndir mér margt í lífinu, t.d. hvernig er best að hjálpa fólki með líkamlegar hamlanir og hvernig má líta fordómalausum augum á alla. Ég ætla að reyna að taka mér þig til fyrirmyndar með þína bjartsýni og hvernig þér tókst að vera jákvæður þrátt fyrir mikla erfiðleika. Þú mættir mótlæti með brosi á vör. Þú komst til okkar og hérna gastu spjallað við okkur fordóma- laust. Ég held að margir hafi bara séð stólinn þinn og þínar hamlanir og þar með ekki hlustað á þig. Þau sáu ekki persónuna Hilmar Örn, þau sáu bara fötlun og hjálpar- tæki. Ég fann hvað þér létti alltaf í lund þegar þú komst til okkar. Þú baðst pabba að passa kött- inn á meðan þú værir á spítalan- um. En við tökum bara skemmti- lega köttinn þinn að okkur, hann Ljónsa og hann verður í mjög góðum höndum hjá okkur. Þín verður sárt saknað, en við sjáumst hinum megin. Páll Þór Kolbeins. Hilmar Örn Kolbeins HINSTA KVEÐJA Hilmar, þú varst besti frændi minn á pabbahlið. Þú varst góður, skemmti- legur og fyndinn. Þegar þú lést varð ég mjög leið og ég fór að gráta. Takk fyrir að vera með mér í svona mörg ár. Guð geymi þig elsku frændi minn. Jóhanna Elísabet Kolbeins. - Fleiri minningargreinar um Hilmar Örn Kolbeins bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi STEINGRÍMUR MATTHÍASSON Flúðaseli 38 lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 11. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Svanhildur Steingrímsdóttir Guðmundur Kr. Gíslason Jenný Steingrímsdóttir Ólafur Snorrason Hrönn Steingrímsdóttir Egill Sandholt Birgir Steingrímsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, STEINUNN JÓNSDÓTTIR, Dalbraut 20, lést á Skjóli þriðjudaginn 6. september. Útförin fer fram frá Grensáskirkju mánudaginn 19. september klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við þeim, sem önnuðust hana síðustu ár hennar, fyrir hlýhug og góða umönnun. Erna Ágústsdóttir Brynjar Sigurðsson Jón Ágústsson Anna Carlsdóttir Steinar Ágústsson Þórhalla Grétarsdóttir Guðrún Ágústsdóttir og ömmubörnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.