Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 40

Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 ✝ Helga Þráins- dóttir fæddist á Selfossi 14. júlí 1989. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 6. sept- ember 2022. Foreldrar henn- ar eru Þórdís Lilja Gísladóttir, deild- arforseti deildar heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Há- skóla Íslands, f. 5. mars 1961, og Þráinn Hafsteinsson, íþróttafræðingur og verk- efnastjóri hjá Reykjavík- urborg, f. 6. september 1957. Systir Helgu er Hanna Þrá- stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 2008. Hún stundaði fiðlunám í Tónlistar- skóla Hafnarfjarðar og æfði og keppti um árabil í frjálsíþrótt- um með ÍR. Helga stundaði nám við lýðháskólann í Hill- erød í Danmörku vorið 2009 og lauk námi frá Hússtjórnarskól- anum í Reykjavík 2018. Helga hóf nám í læknisfræði við Há- skóla Íslands haustið 2009 og á námsárunum starfaði hún m.a. tímabundið á sjúkrahúsum í Perú og Úganda. Hún útskrif- aðist með cand. med.-próf í læknisfræði frá Háskóla Ís- lands 2015 og meistaragráðu í læknisfræði 2019. Frá 2015 starfaði hún sem læknir á Landspítalanum. Útför Helgu fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 15. sept- ember 2022, kl. 11. insdóttir, meist- aranemi við New York University, f. 23. september 1997. Eiginmaður Helgu er Guð- mundur Magnús Sigurbjörnsson, meistaranemi í verkfræði, f. 29. apríl 1989. Dóttir þeirra er Iðunn Lilja, f. 21. júlí 2020. Helga ólst upp á Laug- arvatni til þriggja ára aldurs og bjó eitt ár í Svíþjóð með for- eldrum sínum áður en þau sett- ust að í Hafnarfirði. Helga gekk í Öldutúnsskóla og varð Elsku stúlkan okkar, þú hefur fyrirvaralaust verið tekin frá okkur í blóma lífsins. Í hjörtum okkar rík- ir óbærileg sorg yfir að missa þig. Þú og Hanna hafið alla tíð verið ljósið og lífið okkar og bestu systur sem við gátum hugsað okkur. Að hafa ykkur ekki báðar virkar eins og taktleysi. Við fengum að hafa þig, elsku Helga, í 33 ár og þú varst alltaf eins og hugur manns. Við hugsuðum oft þegar þú varst lítil hvílík gæfa það væri að fá að eiga þig. Með aldr- inum bættist bara stöðugt við mannkosti þína. Þú varst alltaf brosandi, hafðir lag á að gera öll verkefni skemmtileg, með einstakt lundarfar og hlý í viðmóti. Aldrei hreyktir þú þér af þínum afrekum þó af nógu væri að taka. Þú stund- aðir allt sem þú tókst þér fyrir hendur af festu til árangurs. Þú elskaðir fagsviðið þitt, læknisfræð- ina, og vinnuna á Landspítalanum. Framhaldsnámið var framundan í Svíþjóð og mikið hlökkuðum við til að fá að fylgjast með þér í því. Við syrgjum það sem ekki verður. En þú skilur eftir hjá okkur von, það er litla stúlkan ykkar Gumma, hún Ið- unn Lilja. Þú varst einstök móðir og unun að fylgjast með þér blómstra í því hlutverki, Iðunn Lilja var þér allt. Við lofum þér, elsku Helga okkar, að gæta hennar eins og sjáaldurs augna okkar. Við munum aðstoða Gumma við að ala hana upp eftir þínum uppeldisað- ferðum sem við þekkjum svo vel og í þínum anda og góðmennsku. Við munum leyfa henni að finna nær- veru þína alla daga í gegnum okkur og halda minningu þinni á lofti með henni. Hvíl þú í friði, fallega, brosmilda og góða stúlkan okkar. Mamma og pabbi. Elsku systir mín, mikið sakna ég þín. Það er erfitt að hugsa sér lífið án þín. Allar mínar minningar eru með þér á einn eða annan hátt, allir mínir draumar og hugmyndir um framtíðina líka. Það verður eilífð- arverkefni að lifa lífinu án þín og finna taktinn í Helgulausri veröld. Þú varst mín stærsta fyrirmynd, besta vinkona, helsti leiðarvísir og ljósið í myrkrinu. Við áttum okkar eigið tungumál, endalaust af bröndurum sem enginn annar skildi, endalausar sögur um ómerkilega hluti sem aðeins við mundum, hefðir, venjur, og stundir sem við áttum bara tvær, á milli okkar órjúfanlegar taugar, styrkt- ar með eilífum kærleik. Nú er ég ráðvillt og tómarúmið nístir inn að beini. En ég veit að þú heldur áfram að vísa mér leið að ofan, stýrir mér á réttar brautir og gefur mér ráð á nýjan hátt. Nú verður þú verndarengillinn minn, þú sem varst engill í lifanda lífi. Allir sem nutu þeirra forréttinda að kynnast þér, jafnvel bara hitta þig á förnum vegi, búa að því það sem eftir er. Fallega brosið þitt og hlýlega nær- veran þín situr fast í minningum svo margra. Minning þín mun lifa áfram, bæði í sögunum sem við segjum og í elsku Iðunni Lilju þinni. Elsku Helga, ég bið þig að vaka yfir okkur er við fetum okkur áfram án þín, þau skref verða þung. Ég lofa að mæta lífinu eins og þú gerðir, með yfirvegun, æðru- leysi og bros á vör. Þín systir, Hanna. Elsku tengdadóttir okkar, Helga Þráinsdóttir, er farin frá okkur, alltof, alltof snemma. Hvað er hægt að segja? Okkur skortir orð. Yndisleg, glæsileg, ung móðir og eiginkona er hrifin á braut án nokkurs fyrirvara og eftir standa dóttir, eiginmaður, foreldr- ar, systir, frænka og aðrir ættingj- ar og vinir sem steinrunnir af sorg og söknuði. Guðmundur Magnús, sonur okkar, kynnti Helgu fyrir okkur sem unnustu sína, hógværa og brosmilda. Síðan eru liðin átta ár. Helga heillaði okkur við fyrstu kynni, eins og flesta ef ekki alla, enda sá Guðmundur Magnús ekki sólina fyrir henni. Fyrir fimm ár- um giftu þau sig við fallega athöfn og fyrir tveimur árum fæddist dóttir þeirra, Iðunn Lilja. Þegar við kynntumst Helgu stundaði hún nám í læknisfræði við HÍ. Helga skilaði öllum sínum verkefnum af stakri vandvirkni og þegar henni fannst sig vanta þekk- ingu í rekstri heimilis tók hún sér frí frá læknastörfunum og settist á skólabekk í Hússtjórnarskólanum til að bæta úr því. Helga var fróðleiksfús og vildi kynnast lífinu frá mörgum hliðum. Tók að sér verkefni á fjarlægum slóðum. Varð okkur ekki um sel þegar hún sagði okkur að hún væri á leið til Úganda í sjálfboðavinnu. Þó að Helga vildi hafa dýr í ákveð- inni fjarlægð lét hún það ekki aftra sér frá því að leggja upp í langa göngu í frumskógum Úganda til að líta górillurnar augum. Helga var mikil fjölskyldumann- eskja og ræktaði frændgarð sinn vel. Helga átti í mjög góðu sam- bandi við foreldra sína, systur og frænku og við nutum þeirrar rækt- arsemi einnig. Helga og Guðmund- ur Magnús gáfu sér tíma til að borða með okkur og systkinum hans einu sinni í viku. Var þá margt skrafað og skeggrætt. Þegar litla dóttir þeirra, Iðunn Lilja, fæddist fyrir tveimur árum lögðu þau enn meiri áherslu á að hittast, vildu leyfa okkur að kynnast og fylgjast með dótturinni og að hún kynntist okkur. Eru þetta ómetanlegar stundir í minningabankann. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með Helgu sem móður. Helga og Guðmundur Magnús stóðu sem eitt í allri umgengni við dóttur sína. Uppeldið var þeim í blóð borið. Þeim fannst eðlilegt að leita sér upplýsinga um uppeldið, bæði til annarra og eða lásu sér til, enda ber Iðunn Lilja alúð þeirra glöggt vitni. Helga var ósérhlífin, samvisku- söm og ráðagóð. Þegar hún bauð okkur tengdaforeldrunum í mat í fyrsta skipti, lét hún það ekki aftra sér þó hún væri óvön matargerð, sankaði að sér matreiðslubókum og skilaði verkefninu með miklum sóma. Helga var hógvær, tranaði sér aldrei fram en stóð ávallt með sjálfri sér. Hún var góður hlust- andi og vissi upp á hár hvenær hún átti að leggja orð í belg. Elsku Guðmundur Magnús og Iðunn Lilja, okkar dýpstu samúð- arkveðjur til ykkar. Missir ykkar er mikill. Megi minningar um góða eiginkonu og góða móður verða ykkur styrkur í sorginni. Foreldrum, systur og frænku sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Helga þú varst geislandi per- sóna, hógvær, hlý og okkur ynd- isleg tengdadóttir. Takk fyrir allt. Minning þín lifir í hjörtum okk- ar. Sigríður Jónsdóttir og Sigurbjörn Guðmundsson (Dista og Bjössi). Það er þyngra en tárum taki að rita þessi orð um elsku Helgu frænku. Bros þitt getur dimmu dagsljósi breitt sagði skáldið og það átti svo sannarlega við um hennar fallega bros. Brosið, hlýja og hógværð einkenndu elsku Helgu. Það var alveg sama hvenær maður hitti hana, brosið var alltaf á sínum stað, sólargeisli sem lýsti upp tilveruna. Frændsystkin hennar Kristján og Herdís minn- ast frænku sinnar með miklum hlýleika því hún var ávallt svo góð við þau. Þegar þau voru yngri hafði hún alltaf allan heimsins tíma til að leika við þau þegar þau hittust. Þegar þau fóru að eldast og leik- stundunum fækkaði sýndi hún þeim alltaf svo mikinn áhuga. Spjallaði við þau og vildi fá að vita hvað þau væru að bralla og hvern- ig lífið og tilveran gengi. Sigríður móðuramma hennar var svo stolt af henni og nutum við ávallt að hlusta á hana segja sögur af systrunum, Helgu og Hönnu, því þær voru henni allt og hún gat svo sannarlega verið stolt af þeim. Það gaf henni mikið að hafa þær systur í sama húsi og eiga daglegar stundir með þeim. Allt sem Helga gerði gerði hún vel, en hún var ekkert að hreykja sér af því. Hún er örugglega sú eina sem saumaði þjóðbúning með læknanáminu til að æfa sauma- skap sem myndi nýtast henni þeg- ar hún saumaði sjúklinga. Þegar Gummi var kynntur til leiks viss- um við að þarna hefði hún líka gert hlutina vel eins og hennar var von og vísa og yndislegri mann sér við hlið gat hún ekki fundið. Þegar litla daman þeirra fæddist, Iðunn Lilja, var svo gaman að horfa á þau sinna henni bæði af alúð og natni. Það sást svo vel hversu samtaka þau voru. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér og hlýhug allra vannstu er fengu að kynnast þér. Þín blessuð minning vakir og býr í vinahjörtum á brautir okkar stráðir þú, yl og geislum björtum. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Það er stórt skarð höggvið í yndislega Frænkuhvamminn eins og hann er kallaður á okkar heim- Helga Þráinsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Elsku besta eiginkona mín, mamma okkar, tengdamamma, amma, dóttir, tengdadóttir og systir, EVA HRUND PÉTURSDÓTTIR, iðjuþjálfi, Hlíðarbraut 13, Blönduósi, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Kári Kárason Sandra Dís Káradóttir Björn Þór Sveinbjörnsson Hilmar Þór Kárason Heba Björg Þórhallsdóttir Pétur Arnar Kárason Rakel Reynisdóttir Karen Sól Káradóttir Ásgeir Þröstur Gústavsson Pétur Guðmundsson Kári Snorrason barnabörn og systkini Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR GUNNLAUGSSON, til heimilis að Einilundi 4c, Akureyri, lést 13. september á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Fjölskyldan vill færa starfsfólki skurðlækningadeildar SAk kærar þakkir fyrir góðvild, umhyggju og sýnda virðingu. Útförin fer fram í kyrrþey að hans ósk. Sólveig Kristjánsdóttir Ómar Einarsson Guðný S. Guðlaugsdóttir Helga Einarsdóttir Jostein Ingulfsen Ester Einarsdóttir Nói Björnsson Kristján Einarsson Ásta Björk Matthíasdóttir barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, EDDA BJÖRNSDÓTTIR, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést sunnudaginn 11. september á Landspítalanum í Fossvogi. Björn Birgir Stefánsson Bente Jensen Inga Stefánsdóttir Sigurður Ragnarsson Jósefína G. Stefánsdóttir Grétar Einarsson Ásdís Stefánsdóttir Hallgrímur Stefánsson Ari Stefánsson Kristín Linda Árnadóttir Árni Stefánsson Margrét Edda Stefánsdóttir og ömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ARNBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Adda, Suðurgötu 96, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 10. september. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 22. september klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameinsdeildar 11-E fyrir kærleiksríka hlýju og umönnun. Ástgeir Þorsteinsson Sigurveig Ástgeirsdóttir Erlingur Örn Bartels Jónsson Lína Dögg Ástgeirsdóttir Barry Lennon Sigurður Ástgeirsson Harpa Kristín Hlöðversdóttir barnabörn Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, móðir, stjúpmóðir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 11. september. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 22. september klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð líknardeildar og HERU. Sérstakar þakkir til Heru líknarheimaþjónustu og starfsfólks líknardeildarinnar fyrir kærleiksríka umönnun og hlýju. Sigurður Ingvi Snorrason Guðmundur Halldórsson Aagot Árnadóttir Ásta Sigurðardóttir Kristján Reynald Hjörleifsson Guðmundur S. Sigurðarson Anna Katrín Þórkelsdóttir Marían Sigurðsson Guðrún Dís Kristjánsdóttir Daníel Sigurðarson Eva Hillerz Hjördís Guðmundsdóttir Þorsteinn Jónsson Þórdís Guðmundsdóttir Sverrir Guðmundsson Guðbjörg Pálsdóttir Kristján Guðmundsson og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FANNEY BJÖRNSDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hólmavík 22. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Dagný Júlíusdóttir Ólafur Björn Halldórsson Elsa Björk Sigurðardóttir ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.