Morgunblaðið - 15.09.2022, Síða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
✝
Helga Þráins-
dóttir fæddist
á Selfossi 14. júlí
1989. Hún lést á
gjörgæsludeild
Landspítalans í
Fossvogi 6. sept-
ember 2022.
Foreldrar henn-
ar eru Þórdís Lilja
Gísladóttir, deild-
arforseti deildar
heilsueflingar,
íþrótta og tómstunda við Há-
skóla Íslands, f. 5. mars 1961,
og Þráinn Hafsteinsson,
íþróttafræðingur og verk-
efnastjóri hjá Reykjavík-
urborg, f. 6. september 1957.
Systir Helgu er Hanna Þrá-
stúdent frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð 2008. Hún
stundaði fiðlunám í Tónlistar-
skóla Hafnarfjarðar og æfði og
keppti um árabil í frjálsíþrótt-
um með ÍR. Helga stundaði
nám við lýðháskólann í Hill-
erød í Danmörku vorið 2009 og
lauk námi frá Hússtjórnarskól-
anum í Reykjavík 2018. Helga
hóf nám í læknisfræði við Há-
skóla Íslands haustið 2009 og á
námsárunum starfaði hún m.a.
tímabundið á sjúkrahúsum í
Perú og Úganda. Hún útskrif-
aðist með cand. med.-próf í
læknisfræði frá Háskóla Ís-
lands 2015 og meistaragráðu í
læknisfræði 2019. Frá 2015
starfaði hún sem læknir á
Landspítalanum.
Útför Helgu fer fram frá Há-
teigskirkju í dag, 15. sept-
ember 2022, kl. 11.
insdóttir, meist-
aranemi við New
York University, f.
23. september
1997.
Eiginmaður
Helgu er Guð-
mundur Magnús
Sigurbjörnsson,
meistaranemi í
verkfræði, f. 29.
apríl 1989. Dóttir
þeirra er Iðunn
Lilja, f. 21. júlí 2020.
Helga ólst upp á Laug-
arvatni til þriggja ára aldurs
og bjó eitt ár í Svíþjóð með for-
eldrum sínum áður en þau sett-
ust að í Hafnarfirði. Helga
gekk í Öldutúnsskóla og varð
Elsku stúlkan okkar, þú hefur
fyrirvaralaust verið tekin frá okkur
í blóma lífsins. Í hjörtum okkar rík-
ir óbærileg sorg yfir að missa þig.
Þú og Hanna hafið alla tíð verið
ljósið og lífið okkar og bestu systur
sem við gátum hugsað okkur. Að
hafa ykkur ekki báðar virkar eins
og taktleysi.
Við fengum að hafa þig, elsku
Helga, í 33 ár og þú varst alltaf eins
og hugur manns. Við hugsuðum oft
þegar þú varst lítil hvílík gæfa það
væri að fá að eiga þig. Með aldr-
inum bættist bara stöðugt við
mannkosti þína. Þú varst alltaf
brosandi, hafðir lag á að gera öll
verkefni skemmtileg, með einstakt
lundarfar og hlý í viðmóti. Aldrei
hreyktir þú þér af þínum afrekum
þó af nógu væri að taka. Þú stund-
aðir allt sem þú tókst þér fyrir
hendur af festu til árangurs. Þú
elskaðir fagsviðið þitt, læknisfræð-
ina, og vinnuna á Landspítalanum.
Framhaldsnámið var framundan í
Svíþjóð og mikið hlökkuðum við til
að fá að fylgjast með þér í því. Við
syrgjum það sem ekki verður. En
þú skilur eftir hjá okkur von, það er
litla stúlkan ykkar Gumma, hún Ið-
unn Lilja. Þú varst einstök móðir
og unun að fylgjast með þér
blómstra í því hlutverki, Iðunn
Lilja var þér allt. Við lofum þér,
elsku Helga okkar, að gæta hennar
eins og sjáaldurs augna okkar. Við
munum aðstoða Gumma við að ala
hana upp eftir þínum uppeldisað-
ferðum sem við þekkjum svo vel og
í þínum anda og góðmennsku. Við
munum leyfa henni að finna nær-
veru þína alla daga í gegnum okkur
og halda minningu þinni á lofti með
henni.
Hvíl þú í friði, fallega, brosmilda
og góða stúlkan okkar.
Mamma og pabbi.
Elsku systir mín, mikið sakna ég
þín. Það er erfitt að hugsa sér lífið
án þín. Allar mínar minningar eru
með þér á einn eða annan hátt, allir
mínir draumar og hugmyndir um
framtíðina líka. Það verður eilífð-
arverkefni að lifa lífinu án þín og
finna taktinn í Helgulausri veröld.
Þú varst mín stærsta fyrirmynd,
besta vinkona, helsti leiðarvísir og
ljósið í myrkrinu. Við áttum okkar
eigið tungumál, endalaust af
bröndurum sem enginn annar
skildi, endalausar sögur um
ómerkilega hluti sem aðeins við
mundum, hefðir, venjur, og stundir
sem við áttum bara tvær, á milli
okkar órjúfanlegar taugar, styrkt-
ar með eilífum kærleik. Nú er ég
ráðvillt og tómarúmið nístir inn að
beini. En ég veit að þú heldur
áfram að vísa mér leið að ofan,
stýrir mér á réttar brautir og gefur
mér ráð á nýjan hátt. Nú verður þú
verndarengillinn minn, þú sem
varst engill í lifanda lífi. Allir sem
nutu þeirra forréttinda að kynnast
þér, jafnvel bara hitta þig á förnum
vegi, búa að því það sem eftir er.
Fallega brosið þitt og hlýlega nær-
veran þín situr fast í minningum
svo margra. Minning þín mun lifa
áfram, bæði í sögunum sem við
segjum og í elsku Iðunni Lilju
þinni. Elsku Helga, ég bið þig að
vaka yfir okkur er við fetum okkur
áfram án þín, þau skref verða
þung. Ég lofa að mæta lífinu eins
og þú gerðir, með yfirvegun, æðru-
leysi og bros á vör.
Þín systir,
Hanna.
Elsku tengdadóttir okkar,
Helga Þráinsdóttir, er farin frá
okkur, alltof, alltof snemma.
Hvað er hægt að segja? Okkur
skortir orð. Yndisleg, glæsileg, ung
móðir og eiginkona er hrifin á
braut án nokkurs fyrirvara og eftir
standa dóttir, eiginmaður, foreldr-
ar, systir, frænka og aðrir ættingj-
ar og vinir sem steinrunnir af sorg
og söknuði.
Guðmundur Magnús, sonur
okkar, kynnti Helgu fyrir okkur
sem unnustu sína, hógværa og
brosmilda. Síðan eru liðin átta ár.
Helga heillaði okkur við fyrstu
kynni, eins og flesta ef ekki alla,
enda sá Guðmundur Magnús ekki
sólina fyrir henni. Fyrir fimm ár-
um giftu þau sig við fallega athöfn
og fyrir tveimur árum fæddist
dóttir þeirra, Iðunn Lilja.
Þegar við kynntumst Helgu
stundaði hún nám í læknisfræði við
HÍ. Helga skilaði öllum sínum
verkefnum af stakri vandvirkni og
þegar henni fannst sig vanta þekk-
ingu í rekstri heimilis tók hún sér
frí frá læknastörfunum og settist á
skólabekk í Hússtjórnarskólanum
til að bæta úr því.
Helga var fróðleiksfús og vildi
kynnast lífinu frá mörgum hliðum.
Tók að sér verkefni á fjarlægum
slóðum. Varð okkur ekki um sel
þegar hún sagði okkur að hún væri
á leið til Úganda í sjálfboðavinnu.
Þó að Helga vildi hafa dýr í ákveð-
inni fjarlægð lét hún það ekki aftra
sér frá því að leggja upp í langa
göngu í frumskógum Úganda til að
líta górillurnar augum.
Helga var mikil fjölskyldumann-
eskja og ræktaði frændgarð sinn
vel. Helga átti í mjög góðu sam-
bandi við foreldra sína, systur og
frænku og við nutum þeirrar rækt-
arsemi einnig. Helga og Guðmund-
ur Magnús gáfu sér tíma til að
borða með okkur og systkinum
hans einu sinni í viku. Var þá margt
skrafað og skeggrætt. Þegar litla
dóttir þeirra, Iðunn Lilja, fæddist
fyrir tveimur árum lögðu þau enn
meiri áherslu á að hittast, vildu
leyfa okkur að kynnast og fylgjast
með dótturinni og að hún kynntist
okkur. Eru þetta ómetanlegar
stundir í minningabankann.
Það var aðdáunarvert að fylgj-
ast með Helgu sem móður. Helga
og Guðmundur Magnús stóðu sem
eitt í allri umgengni við dóttur sína.
Uppeldið var þeim í blóð borið.
Þeim fannst eðlilegt að leita sér
upplýsinga um uppeldið, bæði til
annarra og eða lásu sér til, enda
ber Iðunn Lilja alúð þeirra glöggt
vitni.
Helga var ósérhlífin, samvisku-
söm og ráðagóð. Þegar hún bauð
okkur tengdaforeldrunum í mat í
fyrsta skipti, lét hún það ekki aftra
sér þó hún væri óvön matargerð,
sankaði að sér matreiðslubókum
og skilaði verkefninu með miklum
sóma.
Helga var hógvær, tranaði sér
aldrei fram en stóð ávallt með
sjálfri sér. Hún var góður hlust-
andi og vissi upp á hár hvenær hún
átti að leggja orð í belg.
Elsku Guðmundur Magnús og
Iðunn Lilja, okkar dýpstu samúð-
arkveðjur til ykkar. Missir ykkar
er mikill. Megi minningar um góða
eiginkonu og góða móður verða
ykkur styrkur í sorginni.
Foreldrum, systur og frænku
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Helga þú varst geislandi per-
sóna, hógvær, hlý og okkur ynd-
isleg tengdadóttir. Takk fyrir allt.
Minning þín lifir í hjörtum okk-
ar.
Sigríður Jónsdóttir og
Sigurbjörn Guðmundsson
(Dista og Bjössi).
Það er þyngra en tárum taki að
rita þessi orð um elsku Helgu
frænku. Bros þitt getur dimmu
dagsljósi breitt sagði skáldið og
það átti svo sannarlega við um
hennar fallega bros. Brosið, hlýja
og hógværð einkenndu elsku
Helgu. Það var alveg sama hvenær
maður hitti hana, brosið var alltaf á
sínum stað, sólargeisli sem lýsti
upp tilveruna. Frændsystkin
hennar Kristján og Herdís minn-
ast frænku sinnar með miklum
hlýleika því hún var ávallt svo góð
við þau. Þegar þau voru yngri hafði
hún alltaf allan heimsins tíma til að
leika við þau þegar þau hittust.
Þegar þau fóru að eldast og leik-
stundunum fækkaði sýndi hún
þeim alltaf svo mikinn áhuga.
Spjallaði við þau og vildi fá að vita
hvað þau væru að bralla og hvern-
ig lífið og tilveran gengi.
Sigríður móðuramma hennar
var svo stolt af henni og nutum við
ávallt að hlusta á hana segja sögur
af systrunum, Helgu og Hönnu,
því þær voru henni allt og hún gat
svo sannarlega verið stolt af þeim.
Það gaf henni mikið að hafa þær
systur í sama húsi og eiga daglegar
stundir með þeim.
Allt sem Helga gerði gerði hún
vel, en hún var ekkert að hreykja
sér af því. Hún er örugglega sú
eina sem saumaði þjóðbúning með
læknanáminu til að æfa sauma-
skap sem myndi nýtast henni þeg-
ar hún saumaði sjúklinga. Þegar
Gummi var kynntur til leiks viss-
um við að þarna hefði hún líka gert
hlutina vel eins og hennar var von
og vísa og yndislegri mann sér við
hlið gat hún ekki fundið. Þegar litla
daman þeirra fæddist, Iðunn Lilja,
var svo gaman að horfa á þau sinna
henni bæði af alúð og natni. Það
sást svo vel hversu samtaka þau
voru.
Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta
sinni hér
og hlýhug allra vannstu er fengu að
kynnast þér.
Þín blessuð minning vakir og býr
í vinahjörtum
á brautir okkar stráðir þú, yl og
geislum björtum.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Það er stórt skarð höggvið í
yndislega Frænkuhvamminn eins
og hann er kallaður á okkar heim-
Helga Þráinsdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sálm. 16.11
biblian.is
Kunnan gerðir þú
mér veg lífsins,
gleðignótt er fyrir
augliti þínu, yndi í
hægri hendi þinni
að eilífu.
Elsku besta eiginkona mín, mamma okkar,
tengdamamma, amma, dóttir, tengdadóttir
og systir,
EVA HRUND PÉTURSDÓTTIR,
iðjuþjálfi,
Hlíðarbraut 13, Blönduósi,
er látin.
Útförin verður auglýst síðar.
Kári Kárason
Sandra Dís Káradóttir Björn Þór Sveinbjörnsson
Hilmar Þór Kárason Heba Björg Þórhallsdóttir
Pétur Arnar Kárason Rakel Reynisdóttir
Karen Sól Káradóttir Ásgeir Þröstur Gústavsson
Pétur Guðmundsson
Kári Snorrason
barnabörn og systkini
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
EINAR GUNNLAUGSSON,
til heimilis að Einilundi 4c,
Akureyri,
lést 13. september á Sjúkrahúsinu á
Akureyri. Fjölskyldan vill færa starfsfólki
skurðlækningadeildar SAk kærar þakkir fyrir góðvild, umhyggju
og sýnda virðingu. Útförin fer fram í kyrrþey að hans ósk.
Sólveig Kristjánsdóttir
Ómar Einarsson Guðný S. Guðlaugsdóttir
Helga Einarsdóttir Jostein Ingulfsen
Ester Einarsdóttir Nói Björnsson
Kristján Einarsson Ásta Björk Matthíasdóttir
barnabörn og langafabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
EDDA BJÖRNSDÓTTIR,
Hraunbæ 103, Reykjavík,
lést sunnudaginn 11. september á
Landspítalanum í Fossvogi.
Björn Birgir Stefánsson Bente Jensen
Inga Stefánsdóttir Sigurður Ragnarsson
Jósefína G. Stefánsdóttir Grétar Einarsson
Ásdís Stefánsdóttir
Hallgrímur Stefánsson
Ari Stefánsson Kristín Linda Árnadóttir
Árni Stefánsson
Margrét Edda Stefánsdóttir
og ömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
ARNBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
Adda,
Suðurgötu 96, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 10. september. Útför fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 22. september klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir. Sérstakar þakkir til starfsfólks
krabbameinsdeildar 11-E fyrir kærleiksríka hlýju og umönnun.
Ástgeir Þorsteinsson
Sigurveig Ástgeirsdóttir Erlingur Örn Bartels Jónsson
Lína Dögg Ástgeirsdóttir Barry Lennon
Sigurður Ástgeirsson Harpa Kristín Hlöðversdóttir
barnabörn
Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, móðir,
stjúpmóðir, tengdamóðir, systir, mágkona
og amma,
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn
11. september. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 22. september klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á minningarsjóð líknardeildar og HERU.
Sérstakar þakkir til Heru líknarheimaþjónustu og starfsfólks
líknardeildarinnar fyrir kærleiksríka umönnun og hlýju.
Sigurður Ingvi Snorrason
Guðmundur Halldórsson Aagot Árnadóttir
Ásta Sigurðardóttir Kristján Reynald Hjörleifsson
Guðmundur S. Sigurðarson Anna Katrín Þórkelsdóttir
Marían Sigurðsson Guðrún Dís Kristjánsdóttir
Daníel Sigurðarson Eva Hillerz
Hjördís Guðmundsdóttir Þorsteinn Jónsson
Þórdís Guðmundsdóttir
Sverrir Guðmundsson Guðbjörg Pálsdóttir
Kristján Guðmundsson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
FANNEY BJÖRNSDÓTTIR,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Hólmavík 22. ágúst. Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Dagný Júlíusdóttir
Ólafur Björn Halldórsson Elsa Björk Sigurðardóttir
ömmubörn og langömmubörn