Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 42

Morgunblaðið - 15.09.2022, Page 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 ✝ Stein Ingólf Henriksen (Brói) fæddist á Ak- ureyri 10. janúar 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vest- mannaeyjum 5. september 2022. Foreldrar hans voru Árdís Guð- laugsdóttir Henrik- sen, f. 19.3. 1917, d. 27.10. 1985, og Henry Stefán Henriksen, f. 31.7. 1917, d. 19.5. 1982. Brói var næstelstur 12 systkina sem öll syrgja nú bróður sinn. Þau eru Jenný Margrete Dahl Henriksen, Harald Henriksen, Villy Björn Hjörvar Henriksen, Anita Henriksen, Aðalsteinn Bergdal, Henry Henriksen, Matt- hías Henriksen, Hákon Henrik- sen, Arne Júlíus Henriksen, Grét- ar Henriksen og Hjördís Henriksen. Hinn 25.12. 1963 giftist Brói sinni heitelskuðu Mary Kristínu Coiner, f. 5.7. 1943, d. 4.6. 2019. Foreldrar hennar voru Stein- gerður Jóhanns- dóttir, f. 27.7. 1919, d. 21.10. 2005, og Earl Gilliam Coiner, f. 25.2. 1922, d. 11.5. 1976. Synir Mary og Bróa eru: 1) Ágúst Vilhelm, f. 1.10. 1962, kvæntur Örnu Ágústsdóttur, f. 23.1. 1964. Börn Ágústs af fyrra hjónabandi eru a) Sigríður Árdís, f. 7.9. 1983, hún á einn son, b) Jón Kristinn, f. 6.7. 1985, hann á einn son, og c) Tryggvi Stein, f. 30.10. 1989, kvæntur Guðnýju Erlu Guðnadóttur, þau eiga tvö börn. Börn Örnu af fyrra hjónabandi eru a) Emma, f. 31.8. 1989, gift Benoný Þórissyni, þau eiga fjög- ur börn og b) Logi, f. 17.7. 1992, í sambúð með Jóhönnu Svövu Darradóttur, hann á eina dóttur. 2) Engilbert Ómar, f. 3.12. 1965, kvæntur Arndísi Maríu Kjart- ansdóttur, f. 3.7. 1971. Börn þeirra eru a) Breki, f. 10.8. 1998, b) Bríet, f. 19.3. 2002, og c) Berta, f. 3.2. 2006. 3) Óðinn, f. 25.10 1973, kvæntur Steinunni Jón- atansdóttur, f. 20.9. 1973. Synir þeirra eru a) Rúnar Kristinn, f. 27.8. 1996, kvæntur Bailey Ann Holloway, b) Brynjar Ingi, f. 19.11. 1999, í sambúð með Alex- öndru Ósk Gunnarsdóttur Thor- arensen og c) Jónatan Árni, f. 20.3. 2005. Brói lauk prófi í vélstjórn árið 1971 frá Vélskóla Íslands í Vest- mannaeyjum. Hann hóf sinn sjó- mannsferil á Akureyri aðeins 14 ára gamall. Þegar Brói kom í land eftir 53 ára sjómannsferil hafði hann róið á 25 bátum og skipum, þar af á Freyju RE-38 í 23 ár og á Hugin VE-55 í 18 ár. Útför Bróa fer fram frá Landa- kirkju í Vestmannaeyjum í dag, 15. september 2022, klukkan 14. Elsku afi minn. Nú ertu farinn frá okkur allt of snemma, eftir sem betur fer stutt en erfið veik- indi. Síðustu dagar hafa verið svo skrítnir, við bjuggumst við meiri tíma saman hér á jörð enn sá sem öllu ræður hafði aðrar hugmyndir og vildi sameina ykkur ömmu fyrr þar sem þið bæði væruð aft- ur orðin heilbrigð og verkjalaus dansandi um alla eilífð. Nú á ég ekki eftir að fá fleiri símtöl um hvað sé að frétta eða hvort ég geti aðstoðað afa með hitt og þetta. Ég get ekki lengur hringt og minnt þig á tímabókanir eða af- mæli – þú kannski minnir mig á hlutina héðan í frá. Takk fyrir ferðalögin norður á Akureyri, sérstaklega fyrir að koma með mér og Gretari í vor þar sem var spjallað mikið alla ferðina um allt og ekkert ásamt því að hlusta á bækurnar hans Mikaels Torfasonar. Ég viður- kenni að ég varð stundum þreytt í eyrunum en það lagaðist fljótt. Takk fyrir allt elsku afi minn, ég vildi að við hefðum fengið lengri tíma saman en ég veit að núna ertu kominn til ömmu Mary, ömmu Steinu, ömmu Öddu, Bestu og svo margra fleiri sem þér og okkur þótti vænt um. Við sjáumst síðar elsku afi minn, ég mun sakna þín svo mik- ið. Þín hægri hönd, Sirrý Árdís. Elsku afi og langafi okkar. Elsku afi Brói, nú sit ég hér og skrifa þessi orð og trúi því ekki að þú sért búinn að kveðja í síðasta skipti, eftir stutt en erfið veikindi. Það er svo erfitt að lýsa því hversu mikils virði þú varst mér og öllum þeim sem þér þótti vænt um. Það var alltaf svo gott og gam- an að koma í Dverghamarinn og svo Hrauntúnið til ykkar ömmu og svo til þín í Foldahraunið, allt- af var tími fyrir mann, maður var alltaf velkominn og man ég vel þegar ég átti heima hjá ykkur um tíma í Dverghamrinum, hvað það var gott að vera hjá ykkur ömmu, og allar þær stundir sem við tveir vorum að bralla saman í bílum og laga eitthvað. Ekki má nú gleyma jólaskrautsuppsetningunum sem voru alltaf svo miklar pælingar hjá okkur, svo fannst þér nú ekki leiðinlegt þegar við komum með Sigurð Hjálmar og Sædísi Lilju í heimsókn, varst alltaf jafn glaður að fá yndislegu langafabörnin þín og eru þessar stundir ásamt miklu fleirum svo dýrmætar nú. Það var alltaf svo stutt í hlát- urinn og gleðina hjá þér, enda tal- ar Sigurður Hjálmar alltaf um þig sem brandarakallinn. Nú komum við til með að muna eftir þér og ömmu dansandi, brosandi út að eyrum og hlæjandi, höfum ekki trú á öðru en þið amma séuð að hlæja og dansa núna. Þín verður sárt saknað elsku afi Brói. Þinn nafni, Tryggvi Stein og fjölskylda. Stein Ingolf Henriksen, betur þekktur sem Brói, er fallinn frá eftir stutt en snörp veikindi. Brói kom til Vestmannaeyja frá Akureyri sem ungur maður og ætlaði að stunda sjómennsku einn vetur. Ekki sneri hann aftur norður, því á eyjunni hitti hann Merrý, og þá varð ekki aftur snú- ið. Þau byggðu sér fallegt heimili, áttu börn og buru. Hinn 4. júní 2019 féll Merrý frá eftir erfið veikindi. Brói var fagurkeri mikill, allt þurfti að vera rétt, enginn skái eða flái. Þetta minnir mig á að í eitt skipti er Merrý og Brói komu í kaffi til okkar í Hrauntúnið tók Brói eftir því að ein rafmagnsdós- in var eilítið skökk, „munar lík- lega 1-2 millimetrum til eða frá“ sagði hann. Dósin var mæld, rétt skal vera rétt. Svona var Brói. Kæri vinur, takk fyrir allt. Merrý tekur á móti þér með bros á vör. Elsku Villý, Ómar, Óðinn og fjölskyldur. Það líður sem leiftur af skýjum, ljósgeisli af minning- um hlýjum. Kær kveðja, Eygló (Systa) og Smári. Stein Ingólf Henriksen (Brói) HINSTA KVEÐJA Elsku langafi Brói. Takk fyrir að styðja mig í bozia í vor. Takk fyrir að taka mér eins og ég er. Takk fyrir að segja mér sögur síðan í gamla daga. Takk fyrir allt og allt. Ég elska þig afi minn. Við sjáumst seinna. Þinn Gretar Ingi Helgason. ✝ Skarphéðinn Gunnarsson fæddist 1. desem- ber 1964 í Reykja- vík. Hann lést á Landspítalanum 6. september 2022. Foreldrar hans eru Jóhanna Skarphéð- insdóttir, f. 11. febrúar 1941 á Bíldudal, og Gunn- ar Pálmason, f. 26. júní 1944 á Skagaströnd. Bróðir Skarphéðins er Börkur Gunn- ins af fyrra hjónabandi er Jó- hanna María Vignir, f. 21. febrúar 1991. Börn Arndísar af fyrra hjónabandi eru Lilja Huld Ólafsdóttir, f. 1979, Svana Björg Ólafsdóttir, f. 1983, og Íris Telma Ólafsdóttir, f. 1990. Sam- an eiga þau Emblu Rún Skarp- héðinsdóttur, f. 15. ágúst 2001. Skarphéðinn lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og prófi frá Kenn- araháskóla Íslands 1991. Hann kenndi um tíma hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustunni og hjá Heyrnleysingjaskólanum. Hann kenndi við ýmsa grunnskóla í Reykjavík, lengst af við grunn- skóla í Grafarvogi. Útförin fer fram frá Garða- kirkju í dag, 15. september 2022, klukkan 13. arsson, f. 2. janúar 1970. Eftirlifandi eiginkona hans er Arndís Leifsdóttir, f. 2.5. 1961, en þau giftust 17. júní 2006. Móðir hennar var Ingibjörg Ebba Jónsdóttir, f. 14.3. 1941, d. 28.9. 1973, og faðir hennar er Leifur Magnússon, f. 9.10. 1938. Kona hans er Þórunn Edda Sigurjóns- dóttir, f. 1941. Barn Skarphéð- Hvíldu í friði kæri pabbi. Við stelpurnar þínar erum rólegar í þeirri trú að nú sértu loks frjáls ferða þinna, kominn á bak Þrast- ar með Þyt í taumi á þeysispretti í dalnum sem er okkur úr augsýn. Margar góðar minningar um alls konar skemmtilegheit með þér ylja okkur áfram og þær gleymast seint. Allir dásamlegu hjólatúrarnir (annaðhvort með Emblu aftan á eða í eftirdragi), hestatúrarnir (með Jóu hest í taumi eða eftirdragi) og allar lestrarstundirnar okkar fyrir svefninn. Ekki má gleyma þeim lífslexí- um sem við lærðum af því að fylgjast með þér kljást við erfið- ara verkefni en þú áttir skilið, en seiglan, dugnaðurinn og kraftur- inn þinn er nokkuð sem við mun- um reyna að líkja eftir alla ævi. Þú kenndir okkur margt, þá einna helst að dreyma stóra drauma og láta aldrei deigan síga! Með þér upplifðum við margt og mikið en við munum mest sakna þess að heyra hláturinn þinn og actionary-samtalanna. Jóhanna María og Embla. Elsku besti Skarphéðinn, pabbi og afi, það er með sorg í hjarta að við kveðjum þig alltof fljótt, þín verður sárt saknað. Við systurnar munum minnast allra góðu stundanna og samverunnar með þér. Sumarið sem var að líða var fullt af góðum samverustundum með þér, og þökkum við fyrir þær. Stundirnar á golfvellinum, með mömmu, Lilju og Ómari, voru margar og gafstu ekkert eftir þrátt fyrir að taka sveifluna með annarri hendi. Það er lýsandi fyr- ir þig; þú hélst ávallt ótrauður áfram og lést ekkert stoppa þig, sama hvað, óteljandi göngu- túrar, hjólreiðatúrar og öll æv- intýrin sem urðu á vegi þínum. Ævintýri Tinna lýsa þér vel, það er ekkert sem stoppar Tinna af í hinum og þessum að- stæðum og tókst þér það svo sannarlega líka. Á síðustu 10 árum tókst þér að gera ótrúleg- ustu hluti enda hafðir þú sér- stakt dálæti á Tinnabókunum og varst með þær allar uppi á Brúsó. Í síðustu heimsókn upp í sumarbústað, þegar Svana, Ísa- bella og Gabríella komu til þín og við eyddum deginum saman, þá varstu mjög hissa á að stelp- urnar þekktu ekki Tinnabæk- urnar og því þyrfti nú að kippa í lag. Þetta var yndislegur dagur sem við áttum, við skoðuðum gamlar myndir frá því að Embla var lítil og þið voruð að byggja Brúsó. Við fórum í göngutúr um lóðina þar sem þú sýndir okkur öll trén sem þú varst búinn að gróðursetja og öll litlu jólatrén sem þú áttir eftir að færa og setja niður á nýja staði, tré- bekkinn sem er úti á miðri lóð til að staldra við og njóta sveitalofts- ins, gleði þín skein úr augunum, þarna undir þú þér best. Alltaf varstu til í að eyða tíma með afabörnunum þínum, hvort sem það var að tefla skák, mála steina, púsla, horfa á teiknimynd- ir eða láta skreyta þig með blóm- um. Þú varst svo stoltur af Emblu sem var nýfarin að stunda nám í háskólanum og flutt að heiman. Þá voruð þið hjónakornin bara ein eftir í kotinu, en alltaf nóg að gera og ekki leið sú stund að þú hefðir ekki eitthvað fyrir stafni. Þau voru ófá skiptin sem þú komst við hjólandi í Tröllateign- um á leiðinni heim, í kaffibolla og hundaknús. Þú varst í miklu uppáhaldi hjá öllum hundunum sem Svana og Íris eiga og hafa átt í gegnum tíðina, þeir tóku þér ávallt fagnandi, í öllum boðum, af- mælum eða hittingum fórstu í göngutúr með þá, sama hvernig viðraði. Við minnumst með hlýhug allra þeirra ævintýra og ferða sem við systur, makar og börn höfum far- ið í með þér og mömmu undanfar- in ár. Mallorcaferðin þar sem var mikið hlegið og leikið á strönd- inni, Akureyrarferðin sem við fór- um í rétt eftir að Embla útskrif- aðist úr menntaskóla. Bíltúrinn á Hjalteyri þar sem þú veifaðir og veifaðir til okkar á bryggjunni og bentir út á sjó til að sýna okkur hvalina sem höfðu látið sjá sig gleymist seint. Óteljandi minningar munu sitja eftir í minningabankanum hjá okkur og erum við þakklátar fyrir það. Þínar stelpur, Embla, Íris, Svana og Lilja. Mig langar að minnast góðs vinar með fáum orðum. Ég kynnt- ist Skarphéðni í þjónustumiðstöð Sjálfsbjargar í Hátúni fyrir þó nokkrum árum, en við höfum ver- ið þar í ýmiskonar endurhæfingu og líkamsþjálfun. Þarna tókst með okkur vinskapur sem varð bara meiri og betri með árunum. Við vorum þar í gönguhóp, en þar sem við komumst hraðar yfir en flestir gengum við oft langar leiðir tveir saman. Þar fyrir utan mæltum við okkur oft mót og hittumst til að ganga. Höfðum við af þessu ómælda ánægju. Við löbbuðum einu sinni sem oftar í gegnum Klambratúnið í átt að Snorra- braut og þar fylgdi Skarphéðinn mér að húsi einu sem stóð á götu- horni, en þar stóð á öðru horninu Skarphéðinsgata og á hinu horn- inu Gunnarsbraut. Hann benti mér hróðugur á þetta og brosti út að eyrum. Skarphéðinn átti ásamt Arndísi konu sinni sumarbústað þar sem ég skynjaði að honum fannst gott að dvelja og rækta þar blóm og runna. Hann sýndi mér eitt sinn plöntur sem hann var með í upp- eldi við hús foreldra sinna. Svo var allt flutt upp í bústað þegar það var tilbúið og gróðursett þar. Fyrir allmörgum árum hafði Skarphéðinn fengið hjartaáfall og skemmdust þá stöðvar í heilanum sem sjá um lestur og talað mál. Hann var duglegur að þjálfa sig upp aftur í tali, m.a. með þátttöku í viðeigandi námskeiðum. Ég var orðinn nokkuð góður í að giska á hvað hann ætlaði og vildi segja. Þannig gátum við talað saman og gekk það býsna vel hjá okkur. Við fórum einu sinni á útskurð- arnámskeið, en þar stóð Skarp- héðinn sig ekki síður en þeir sem höfðu mátt í báðum höndum. Elj- an var mikil hjá honum, en hann hafði ekki mátt í hægri hendi. Ég mun sakna hans mikið og allra gönguferðanna með honum. Ég votta konu hans, henni Arn- dísi, börnum, foreldrum og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Hvíldu í friði. Lárus Björnsson. Hljótt er inni, úti kyrrð og friður, aðeins regnið drýpur niður, yfir þurran, þyrstan svörð. Nóttin heyrir bænir alls, sem biður við brjóst þín, móðir jörð. Allir hlutu einn og sama dóminn. Alla þyrstir, líkt og blómin, hverja skepnu, hverja sál. Um allar byggðir blikar daggarljóminn, bláma slær á sund og ál. Öllum sorgum sínum hjartað gleymir. Svalinn ljúfi um það streymir, eins og regn um sviðinn svörð. Blómin sofna, börnin litlu dreymir við brjóst þín, móðir jörð. (Davíð Stefánsson) Ég kveð Skarphéðinn með söknuði og votta Arndísi og öllum aðstandendum mína dýpstu sam- úð. Hjördís Bjartmars. Skarphéðinn Gunnarsson - Fleiri minningargreinar um Skarphéðinn Gunn- arsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU L. VILHJÁLMSDÓTTUR HEIÐDAL, síðast til heimilis í Rjúpnasölum 10, sem lést miðvikudaginn 10. ágúst á hjúkrunarheimilinu Mörkinni. Einnig þökkum við starfsfólki Boðaþings og Markarinnar fyrir hlýhug og umhyggju. María Guðrún Waltersdóttir Erla Waltersdóttir Vilhjálmur H. Waltersson Helga E. Jónsdóttir Hildur Waltersdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁSTU KRÖYER. Hilmar Höskuldsson Ástrós Guðlaugsdóttir Erlendur Höskuldsson Sunneva Svavarsdóttir Ásta Rún, Jón Ingi, Svavar og Hrafnhildur Fjóla Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.