Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 15.09.2022, Blaðsíða 46
Í LÚXEMBORG Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Stúlknalandsliðið í hópfimleikum hafnaði í þriðja sæti í undanúrslitum á EM í Lúxemborg í gær- kvöldi og tryggði sér sæti í úrslitum með sannfær- andi hætti. Liðið sýndi stórglæsileg tilþrif á gólfi og fékk 19.000 stig fyrir, sem voru næstflest stig allra fyrir eina grein í gær. Æfingar á dýnu gengu einnig mjög vel, en nokkrar ófullkomnar lendingar urðu til þess að Ísland fékk 15.475 stig. Loks fékk íslenska liðið 14.450 stig fyrir æfingar á trampólíni, sem gengu heilt yfir mjög vel. Ísland var með hæstu einkunn á dýnu og gólfi í fyrri undanúrslitariðli og með sannfærandi forystu á toppnum að honum loknum. Danmörk og Svíþjóð tóku hins vegar fram úr Íslandi í seinni undan- úrslitariðlinum. Undanúrslitakvöldið lofar afar góðu fyrir úrslitin í stúlknaflokki, þar sem stemningin í höllinni í Lúx- emborg var mögnuð og fékk íslenska liðið sérlega mikinn stuðning. Ísland ætlar sér verðlaun á öðru Evrópumótinu í röð og möguleikarnir eru svo sann- arlega fyrir hendi. Blandað lið ungmenna hafnaði í fimmta sæti af sex liðum. Liðið byrjaði á dýnu, en náði sér ekki al- mennilega á strik þar. Íslenska liðið gerði betri hluti á trampólíni og framkvæmdi síðan sínar bestu æfingar á gólfi. Alls fékk Ísland 43.800 stig og var aðeins 0,50 stigum frá Noregi í fjórða sæti. Ísland var með þriðja besta árangur allra á gólfi, fjórða besta á trampólíni en lakasta árangur allra á dýnu. Með betri æfingum á dýnu getur Ísland barist um verð- laun á morgun, en liðið hafnaði í þriðja sæti á síð- asta ári og fékk því bronsverðlaun. Drengjaliðið hafnaði í fimmta og neðsta sæti í sinni keppni, en ljóst var fyrir mót að það yrði við ramman reip að draga fyrir íslensku strákana. Hin liðin hafa verið lengur saman, eru eldri og reyndari. Íslenska liðið virtist stressað í sinni fyrstu æf- ingu, sem var á gólfi, en eftir það óx strákunum ás- megin. Trampólínið gekk ágætlega en bestu tilþrif íslenska liðsins voru í lokaæfingunni á dýnu. Þar gekk nokkuð og hafnaði íslenska liðið fyrir ofan Bretland, en fimmta sætið varð niðurstaðan á gólfi og trampólíni. Ísland fékk samtals 35.350 stig og var sex stigum frá Bretlandi, sem hafnaði í fjórða sæti. Mótið í ár fer í reynslubankann. Stelpurnar með þriðja besta árangurinn 46 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Besta deild kvenna Þór/KA – ÍBV ........................................... 3:3 Staðan: Valur 15 11 3 1 43:7 36 Breiðablik 15 9 3 3 36:8 30 Stjarnan 15 8 4 3 34:15 28 Þróttur R. 15 8 1 6 29:20 25 ÍBV 15 6 5 4 22:24 23 Selfoss 15 6 4 5 16:13 22 Keflavík 15 5 1 9 19:30 16 Þór/KA 15 4 2 9 20:39 14 Afturelding 15 4 0 11 16:41 12 KR 15 2 1 12 14:52 7 4. deild karla Seinni leikur um sæti í 3. deild: Einherji – Ýmir ........................................ 5:2 _ Einherji sigraði 10:3 samanlagt og leikur í 3. deild 2023. Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Rangers – Napoli...................................... 0:3 Staðan: Napoli 2 2 0 0 7:1 6 Ajax 2 1 0 1 5:2 3 Liverpool 2 1 0 1 3:5 3 Rangers 2 0 0 2 0:7 0 E-RIÐILL: AC Milan – Dinamo Zagreb .................... 3:1 Chelsea – Salzburg................................... 1:1 Staðan: AC Milan 2 1 1 0 4:2 4 Dinamo Zagreb 2 1 0 1 2:3 3 Salzburg 2 0 2 0 2:2 2 Chelsea 2 0 1 1 1:2 1 F-RIÐILL: Shakhtar Donetsk – Celtic ...................... 1:1 Real Madrid – RB Leipzig ...................... 2:0 Staðan: Real Madrid 2 2 0 0 5:0 6 Shakhtar Donetsk 2 1 1 0 5:2 4 Celtic 2 0 1 1 1:4 1 RB Leipzig 2 0 0 2 1:6 0 G-RIÐILL: Köbenhavn – Sevilla................................ 0:0 - Ísak B. Jóhannesson lék fyrstu 87 mín- úturnar með Köbenhavn, Hákon Arnar Haraldsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu en Orri Steinn Óskarsson var ónot- aður varamaður. Manchester City – Dortmund................. 2:1 Staðan: Manchester City 2 2 0 0 6:1 6 B. Dortmund 2 1 0 1 4:2 3 København 2 0 1 1 0:3 1 Sevilla 2 0 1 1 0:4 1 H-RIÐILL: Maccabi Haifa – París SG........................ 1:3 Juventus – Benfica ................................... 1:2 Staðan: París SG 2 2 0 0 5:2 6 Benfica 2 2 0 0 4:1 6 Juventus 2 0 0 2 2:4 0 Maccabi Haifa 2 0 0 2 1:5 0 Bandaríkin Sporting Kansas City – DC United........ 3:0 - Guðlaugur Victor Pálsson lék í 86 mín- útur með DC United. CF Montréal – Chicago Fire................... 3:2 - Róbert Orri Þorkelsson var varamaður hjá Montréal og kom ekki við sögu. Houston Dynamo – New England ......... 3:1 - Þorleifur Úlfarsson kom inn á hjá Hou- ston á 73. mínútu. Noregur Bikarkeppnin, undanúrslit: Kolbotn – Brann ...................................... 1:6 - Svava Rós Guðmundsdóttir lék fyrstu 62 mínúturnar með Brann. Stabæk – Rosenborg ............................... 2:1 - Selma Sól Magnúsdóttir lék fyrstu 85 mínúturnar með Rosenborg og lagði upp mark. Svíþjóð Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Mallbacken – Örebro............................... 1:4 - Berglind Rós Ágústsdóttir kom inn á sem varamaður á 72. mínútu hjá Örebro. Team TG – Piteå...................................... 0:3 - Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 73 mínúturn- ar með Piteå. England B-deild: Reading – Sunderland ............................ 0:3 - Jökull Andrésson var ekki í leikmanna- hóp Reading. >;(//24)3;( EM karla 8-liða úrslit: Frakkland – Ítalía ................................ 93:85 Slóvenía – Pólland ................................ 87:90 _ Frakkland og Pólland mætast í undan- úrslitum á morgun en Þýskaland og Spánn eigast við í hinum leiknum. >73G,&:=/D HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Selfoss: Selfoss – Grótta ...................... 19.30 Skógarsel: ÍR – Haukar....................... 19.30 Garðabær: Stjarnan – Fram .................... 20 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Garðabær: Stjarnan – Fram .................... 18 Í KVÖLD! sé spáð sigri í deildinni. Þrátt fyrir að hafa misst sinn besta leikmann síðustu ár, Lovísu Thompson, þá eru margir afar reynslumiklir og sterkir leikmenn í Valsliðinu. Systurnar hafa snúið aftur en einhverjar sögu- sagnir eru um að Ásdís Þóra Ágústsdóttir verði lánuð, vænt- anlega til að tryggja henni mikinn spiltíma fram að áramótum. Það verður gaman að sjá hvort Thea Im- ani Sturludóttir og Sara Helgadóttir ná að fylgja eftir frábæru tímabili en með þær í sama standi verður af- ar erfitt að eiga við Valsliðið. Þórey Anna Ásgeirsdóttir ætti að vera komin í betra form en í fyrra og eins verður gaman að fylgjast með Lilju Ágústsdóttur og hvernig hún kemur aftur inn í deildina eftir að hafa leitt U18-ára liðið á frábæru móti í sumar. Varnarlega hefur Valsliðið verið mjög sterkt og ekki lítur út fyrir að það breytist. Þær eru líka með frábæra hraðaupp- hlaups- og sóknarmenn í sínum röð- um svo markmið þeirra hlýtur að vera að skila nokkrum titlum á Hlíð- arenda. Fram Framliðið hefur misst Hildi Þor- geirsdóttur frá því á síðasta tímabili og spurning hvort Ragnheiður Júl- íusdóttir nær eitthvað að spila á tímabilinu. Að auki er Emma Olsson farin til Þýskalands. Þrír risapóstar sem þær missa en samt sem áður eru margir afar sterkir leikmenn og mikil reynsla og sigurhefð hjá liðinu. Þær reyna að fylla í skörðin með tveimur útlendingum og spurning hvort þær detti í lukkupottinn með það eins og fyrir síðasta tímabil. Það verður afar mikilvægt fyrir Framliðið að Hafdís Renötudóttir og Steinunn Björnsdóttir haldist heilar en einnig mun mæða mikið á leikmönnum eins og Perlu Ruth Al- bertsdóttur, Kristrúnu Steinþórs- dóttur og Ernu Guðlaugu Gunn- arsdóttur. Nái Framliðið að binda vörnina saman verða þær illviðráð- anlegar þar sem þær refsa liðum afar grimmt fyrir öll mistök. ÍBV ÍBV-liðið er afar sterkt og stefn- an í Eyjum hlýtur að vera að ná titlum í hús. Þær hafa afar sterka leikmenn í sínum röðum og fá til að mynda Ástu Björk Júlíusdóttur til baka frá Haukum auk þess sem Birna Berg Haraldsdóttir er að ná fyrri styrk. Sunna Jóhannsdóttir verður svo áfram prímusmótor liðs- ins ásamt Hörpu Valeyju Gylfadótt- ur sem var frábær á síðasta tíma- bili. Heimavöllurinn er sterkur og verður eins og áður erfitt fyrir lið að sækja stig þangað. Sterk vörn og góð markvarsla verður áfram þeirra aðalsmerki en það verður gaman að fylgjast með hvernig þær ná að slípa saman sóknarleikinn sinn. Nái liðið upp stöðugleika i leik sínum og sleppi það við mikil meiðsli eru þær til alls líklegar. Verður erf- itt að eiga við Valsliðið - Tekst Íslandsmeisturum Fram að fylla í skörðin og hafa í fullu tré við Val? HANDBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Sólveig Lára Kjærnested, fyrrver- andi handknattleikskona og þjálfari ÍR í 1. deild kvenna, á von á jafnri og spennandi keppni á Íslandsmóti kvenna í handknattleik í vetur. Keppni í úrvalsdeildinni, Olísdeild- inni, hefst í dag. Val er spáð efsta sæti deild- arinnar í spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna liða í deildinni sem birtist í síðustu viku. Valskonur fögnuðu sigri í bikarkeppninni á síðustu leiktíð en enduðu í öðru sæti deildarinnar, sem og í öðru sæti í úrslitum Íslandsmótsins eftir tap gegn Fram í úrslitaeinvígi. Fram og ÍBV munu veita Vals- konum harða keppni um deild- armeistaratitilinn, enda ætli bæði lið sér að berjast á toppi deild- arinnar í vetur. HK og nýliðar Selfoss eru þau tvö lið sem líklust eru talin til að lenda í erfiðri fallbaráttu og þá gæti KA/Þór einnig sogast í neðri hlutann eftir að hafa misst fjóra byrjunarliðsleikmenn frá síðustu leiktíð. Hér á eftir eru umsagnir Sól- veigar um liðin átta í deildinni og þeim er raðað upp samkvæmt spánni fyrir deildina sem birtist í síðustu viku. Valur Það kemur fáum á óvart að Val Einvígi? Valskonan reynda Hildigunnur Einarsdóttir brýst í gegnum vörn Fram í leik lið- anna um meistarabikarinn á dögunum þar sem Valur hafði betur. Liðin gætu háð enn eitt einvígið um Íslandsmeistara- titilinn í vetur. Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gærkvöldi 16. Íslendingurinn til þess að spila í riðlakeppni Meist- aradeildarinnar þegar hann var í byrjunarliði Köbenhavn sem gerði markalaust jafntefli gegn Sevilla í Danmörku. Ísak Bergmann lék fyrstu 87 mínútur leiksins en liðsfélagi hans hjá Köbenhavn, Hákon Arnar Har- aldsson, kom inn á sem varamaður hjá danska félaginu á 79. mínútu. Ísak Bergmann, sem er 19 ára gamall, varð jafnframt þriðji Ís- lendingurinn til að ná að spila í Meistaradeildinni áður en hann verður tvítugur, á eftir þeim Há- koni Arnari og Arnóri Sigurðssyni. Allir þrír koma frá Akranesi og eru uppaldir hjá ÍA. _ Erling Haaland tryggði Man- chester City 2:1-heimasigur með marki á 85. mínútu gegn Borussia Dortmund. _ Raheem Sterling skoraði mark Chelsea þegar liðið gerði óvænt 1:1- jafntefli á heimavelli gegn Salz- burg. Ísak 16. Íslendingurinn sem spilar í Meistaradeildinni Ljósmynd/@FCKobenhavn 19 Hinn 19 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson fékk tækifæri í byrj- unarliði Köbenhavn þegar liðið gerði jafntefli gegn Sevilla á Parken.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.