Morgunblaðið - 15.09.2022, Side 47
Stjarnan
Ég held því miður að Stjarnan
verði í vandræðum i vetur. Leik-
mannahópurinn er þunnskipaður og
margir ungir og óreyndir leikmenn
innan liðsins og ekki miklir mögu-
leikar fyrir Hrannar Guðmundsson
þjálfara að hrófla við liðinu.
Vissulega hafa Stjörnukonur
góða reynslumikla leikmenn og
þegar þær hitta á góðan dag verður
erfitt að eiga við þær en það má af-
ar lítið út af bregða. Lena Margrét
Valdimarsdóttir sýndi góða takta
inn á milli í fyrra og vonandi fyrir
Stjörnuna að hún sýni meiri stöð-
ugleika og bæti aðeins í. Vörn og
markvarsla verður að vera að-
alsmerki Stjörnunnar i vetur, ætli
þær sér eitthvað annað en að sigla
um miðja deild. Darija Zecevic átti
gott tímabil i fyrra og vonandi fyrir
Stjörnuna að hún muni halda upp-
teknum hætti í vetur.
Haukar
Haukar hafa misst sterka leik-
menn frá síðasta tímabili. Þær hafa
í staðinn fengið til sín tvo erlenda
leikmenn sem virðast við fyrstu sýn
ekki fylla þau skörð sem skilin hafa
verið eftir. Það er spurning hvort
Ragnar Hermannsson hyggst gefa
fleiri yngri leikmönnum stærra
hlutverk en það mun mæða mikið á
Elínu Klöru Þorkelsdóttur eins og
á síðasta tímabili og vonandi fyrir
Hauka að fleiri leikmenn muni
bæta sig.
Kannski þurfa Haukar að
minnsta kosti þetta ár til þess að
skóla ungu leikmennina sína til og
gera þær tilbúnar i alvörubaráttu.
KA/Þór
KA/Þór missir, eins og fleiri lið,
afar sterka leikmenn, heila fjóra
leikmenn úr byrjunarliði. Það er
félaginu til hróss hversu margir
leikmenn spila erlendis á næsta
tímabili. Tímabilið gæti orðið erfitt
en önnur lið þurfa þrátt fyrir það
alltaf að passa sig á liði sem hefur
Rut Jónsdóttur innanborðs.
Lykilleikmenn eins og Unnur
Ómarsdóttir, Matea Lonac og
Hulda Bryndís Tryggvadóttir
þurfa að mæta sterkar til leiks og
draga vagninn en það verður gam-
an að fylgjast með hvernig þeim
tekst að fylla í skörð þeirra leik-
manna sem eru farnir. Það verður
mikilvægt fyrir liðið að búa til
gryfju fyrir norðan og vera dug-
legt að safna stigum á heimavelli.
HK
HK hefur verið i áskrift að sjö-
unda sætinu undanfarin ár og ef
spáin fyrir tímabilið rætist þá enda
þær þar enn og aftur. HK missir
einn af sínum bestu leikmönnum,
Jóhönnu Margréti Sigurðardóttur,
auk annarra góðra leikmanna og fá
lítið í staðinn. Mikið álag verður á
Valgerði Ýr Þorsteinsdóttur og í
leikjum þar sem hún á ekki sinn
besta dag verður HK í vandræð-
um.
Einn mest spennandi leikmaður
deildarinnar, hægri hornamaðurinn
og varnarjaxlinn Tinna Sól Björg-
vinsdóttir lenti í erfiðum meiðslum
á síðasta tímabili. Verði hún leik-
fær á tímabilinu yrði það afar mik-
ilvægt fyrir liðið, varnar- og sókn-
arlega. Jákvæðu fréttirnar fyrir
HK er að þær eiga flotta unga leik-
menn en þær þurfa að þroskast
hratt og mæta ískaldar og óhrædd-
ar til leiks, ætli HK-liðið að halda
sér uppi.
Selfoss
Það er margt í Selfossliðið
spunnið og ég held að þær geti
strítt mörgum liðum í deildinni. Í
sínum röðum hafa þær einn efni-
legasta leikmann deildarinnar,
Tinnu Sigurrós Traustadóttur. Það
verður mjög spennandi að fylgjast
með henni í vetur. Roberta Stropus
er einnig hörkuskytta og virðist
falla vel inn liðið. Þær eiga svo
fleiri flotta leikmenn og ég bind
t.d. miklar vonir við að Katla María
Magnúsdóttir nái að sýna hvað í
henni býr.
Selfossliðið mun sakna Huldu
Dísar Þrastardóttur mikið og vont
að missa hana stuttu fyrir mót.
Hún sýndi það hjá Val að hún er
hörkuvarnarmaður og mikill bar-
áttujaxl. Það er spurning hvernig
Selfossliðinu gengur að fylla í það
hlutverk sem henni var ætlað fyrir
tímabilið.
Morgunblaðið/Óttar
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022
Meistaradeild karla
Kielce – Nantes.................................... 40:33
- Haukur Þrastarson skoraði tvö mörk
fyrir Kielce.
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði ekki
skot í marki Nantes.
Kiel – Elverum..................................... 36:26
- Orri Freyr Þorkelsson skoraði eitt mark
fyrir Elverum.
Noregur
Haslum – Bækkelaget......................... 28:34
- Örn Vésteinsson skoraði eitt mark fyrir
Haslum.
Volda – Kristiansand .......................... 24:36
- Rakel Sara Elvarsdóttir skoraði fjögur
mörk fyrir Volda, Katrín Tinna Jensdóttir
eitt en Dana Björg Guðmundsdóttir skor-
aði ekki. Halldór Stefán Haraldsson þjálfar
liðið.
Larvik – Storhamar ............................ 29:29
- Axel Stefánsson þjálfar kvennalið Stor-
hamar.
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Rapp – Kolstad..................................... 18:39
- Sigvaldi Björn Guðjónsson og Janus
Daði Smárason skoruðu ekki fyrir Kold-
stad.
Danmörk
Lemvig – Tvis Holstebro .................... 22:24
- Daníel Freyr Ágústsson varði ekki skot í
marki Lemvig.
- Halldór Jóhann Sigfússon er aðstoðar-
þjálfari Holstebro.
Odense – Ringköbing.......................... 36:23
- Lovísa Thompson skoraði ekki fyrir
Ringköbing. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði ekki skot í marki liðsins.
Ajax – Skanderborg............................ 28:22
- Steinunn Hansdóttir skoraði eitt mark
fyrir Skanderborg.
%$.62)0-#
Þriggja ára sonur minn er
byrjaður að mæta á fótbolta-
æfingar. Hann verður reyndar
fjögurra ára í desember en hann
er búinn að mæta á fjórar æfing-
ar núna og skora nokkur mörk.
Mjög ánægður með sjálfan sig.
Það eru tvær konur að þjálfa
flokkinn hans, þær Margrét Lára
Viðarsdóttir og Hlíf Hauksdóttir.
Báðar eiga þær ágætlega marga
meistaraflokksleiki á milli sín.
Margrét Lára er svo auðvitað
markahæsta landsliðskona Ís-
lands frá upphafi.
Alvöruþjálfarar og mér
finnst persónulega frábær þróun
að sjá tvær konur hjálpa syni
mínum að stíga sín fyrstu skref á
fótboltavellinum. Þetta mun
klárlega móta hann á mjög já-
kvæðan hátt sem ég er mjög
þakklátur fyrir.
Hvort hann verður næsti
Lionel Messi eða Cristiano Ron-
aldo þarf svo bara að koma í ljós
en eins og hjá þriggja ára börn-
um er einbeitingin ekkert alltaf
fyrir hendi. Ég hef hins vegar
skemmt mér konunglega á þess-
um fyrstu æfingum hans, bæði
yfir afrekum hans inni á vellinum
sem og þegar hann er búinn að
vefja sig pikkfastan í marknetið.
Að æfa íþróttir í dag kostar
mikla peninga og þó að frí-
stundastyrkurinn eigi að hjálpa
foreldrum að brúa bilið er hann
klárlega ekki nóg, enda hækka
íþróttafélögin bara æfingagjöldin
í takt við frístundastyrkinn.
Það er sorglegt að hugsa til
þess að öll börn fái ekki sömu
tækifæri til þess að æfa íþróttir,
mögulega vegna bágrar fjár-
hagsstöðu foreldranna.
Það er umhugsunarvert því
hver veit nema við séum að
missa af næsta Messi eða Ron-
aldo, einfaldlega vegna þess að
það hafa ekki allir efni á því að
senda börnin sín í þær fjömörgu
íþróttir sem standa til boða í
dag.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Fjórir nýliðar eru í æfingahópi ís-
lenska kvennalandsliðsins í hand-
knattleik sem kemur saman til æf-
inga hér á landi dagana 26.
september til 1. október. Æfing-
arnar eru liður í undirbúningi liðs-
ins fyrir forkeppni HM 2024 en Ís-
land leikur gegn Ísrael 5. og 6.
nóvember. Leikirnir fara báðir
fram á Íslandi. Ethel Gyða Bjarna-
sen, Elín Klara Þorkelsdóttir, Lilja
Ágústsdóttir og Tinna Sigurrós
Traustadóttir fá allar tækifæri en
hópinn í heild sinni má sjá á mbl.is/
sport/handbolti.
Ljósmynd/IHF
Skot Lilja Ágústsdóttir fór mikinn
með U18-ára landsliðinu í sumar.
Fjórir nýliðar
í landsliðinu
Knattspyrnukonan Sif Atladóttir
hefur framlengt samning sinn við
Selfoss en samningurinn gildir út
keppnistímabilið 2024.
Varnarmaðurinn gekk til liðs við
Selfoss fyrir yfirstandandi keppn-
istímabil eftir farsælan atvinnu-
mannsferil með Saarbrücken í
Þýskalandi og Kristianstad í Sví-
þjóð. Sif á að baki 90 A-landsleiki
fyrir Ísland en hún fór á sitt fjórða
stórmót í sumar þegar íslenska
kvennalandsliðið tók þátt í loka-
keppni Evrópumótsins sem fram
fór á Englandi.
Framlengdi
á Selfossi
Ljósmynd/Selfoss
2 Sif Atladóttir skrifaði undir
tveggja ára samning á Selfossi.
Keppni í úrvalsdeild kvenna í hand-
knattleik, Olísdeildinni, hefst í
kvöld í TM-höllinni í Garðabæ. Þar
tekur Stjarnan á móti Íslands-
meisturum Fram í upphafsleik
deildarinnar en hinir þrír leikirnir í
fyrstu umferðinni fara fram annað
kvöld og á laugardaginn.
Leikirnir í fyrstu umferðunum
eru þessir:
1. umferð:
15.9. Stjarnan – Fram
16.9. Valur – Haukar
17.9. ÍBV – KA/Þór
17.9. HK – Selfoss
2. umferð:
24.9. Fram – HK
24.9. ÍBV – Stjarnan
24.9. Selfoss – Valur
25.9. KA/Þór – Haukar
3. umferð:
5.10. Valur – Fram
8.10. HK – ÍBV
8.10. Haukar – Selfoss
8.10. Stjarnan – KA/Þór
Liðin átta leika þrefalda umferð,
21 leik á lið. Þau lið sem enda í
sætum þrjú til sex leika í fyrstu
umferð úrslitakeppninnar og sig-
urvegararnir mæta tveimur efstu
liðunum í undanúrslitum. Neðsta
liðið fellur og það næstneðsta fer í
umspil með liðunum í öðru til
fjórða sæti úr 1. deild.
Fyrsti leikurinn í Garðabæ
ÍSLANDSMÓT KVENNA Í HANDBOLTA HEFST Í KVÖLD
ÞÓR/KA – ÍBV 3:3
0:1 Kristín Erna Sigurlásdóttir 15.
1:1 Sjálfsmark 16.
1:2 Madison Wolfbauer 47.
2:2 Sandra María Jessen 67.
2:3 Kristín Erna Sigurlásdóttir 69.
3:3 Sandra María Jessen 85.
MM
Sandra María Jessen (Þór/KA)
M
Harpa Jóhannsdóttir (Þór/KA)
Iðunn Rán Gunnarsdóttir (Þór/KA)
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Haley Marie Thomas (ÍBV)
Madison Wolfbauer (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
Dómari: Guðmundur Friðberts. – 9.
Áhorfendur: 267.
Sandra María Jessen reyndist hetja
Þórs/KA þegar liðið tók á móti ÍBV
í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í
15. umferð deildarinnar á SaltPay-
vellinum á Akureyri í gær. Leikn-
um lauk með 3:3-jafntefli en Sandra
María, sem skoraði tvívegis í leikn-
um, skoraði jöfnunarmark Akur-
eyringa með skalla á 85. mínútu.
Úrslitin gera lítið fyrir bæði lið
en á meðan ÍBV siglir lygnan sjó í
fimmta sæti deildarinnar er Þór/
KA í áttunda og þriðja neðsta sæt-
inu með 14 stig, tveimur stigum
meira en Afturelding.
Akureyringar eiga eftir að mæta
Keflavík úti, Stjörnunni heima og
loks KR heima í lokaumferðunum
þremur. Afturelding á talsvert erf-
iðara leikjaplan fram undan en liðið
á eftir að mæta Breiðabliki úti, Val
heima og loks ÍBV úti.
_ Sandra María hefur skorað
átta mörk í 15 leikjum í sumar og er
í 2.-4. sæti yfir markahæstu leik-
menn deildarinnar.
Sandra María bjarg-
aði Akureyringum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Tvenna Sandra María Jessen fagnar
öðru marki sínu gegn Eyjakonum.