Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 15.09.2022, Qupperneq 52
Menning MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2022 Arctic Festival hefst í dag og stendur hátíðin yfir til 30. septem- ber með margs konar menningar- viðburðum. Tékkneski lífvísinda- háskólinn í Prag (CZU), í sam- vinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands í Reykjavík (LbHÍ), CICERO í Ósló og Norræna félagið á Íslandi, skipuleggur hátíðina, að því er fram kemur í tilkynningu. Hún er nú haldin í fjórða sinn og fer fram í Reykja- vík og á Akureyri. Arctic-hátíðin skiptist í vísinda- og menningarráðstefnu, kvik- myndahátíð og menningardagskrá með myndlistarsýningum, tón- leikum, gjörningum og fleiru, eins og sjá má á vefsíðu hennar, arktickyfestival.cz. Einnig má kynna sér viðburði á Facebook á slóðinni: facebook.com/arkticky- festival. Kvikmyndahluti hátíðarinnar, Arctic Film Festival, fer fram í Bíó Paradís 16.-18. september. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson setur hátíðina með sýningu á heimildarmyndinni Andlit norð- ursins frá árinu 2011. Myndin fjallar um hann og feril hans og á sunnudag verða sýndar stutt- myndir sjö útskriftarnema við FAMU, tékkneska kvikmynda- skólann. Menningardagskrá hefst á Gauknum í Reykjavík í dag með tónleikum hljómsveitarinnar Gróu og hinnar tékknesku Už jsme doma. Á morgun, föstudag, verður sýningin Tékkland á norðurslóðum / Norðurskautið í Tékklandi opnuð í húsnæði Landbúnaðarháskóla Íslands í Reykjavík. Sýningin Hundurinn með bollu – grænlensk ævintýri og þjóðsögur / mynd- skreytingar eftir Martin Velíšek verður einnig opnuð í versluninni 12 tónum en aðalmenningardag- skrá hátíðarinnar fer fram laug- ardaginn 17. september í Iðnó. Þar verða morgunkvikmynda- sýningar fyrir börn og síðdegis verður opnuð sýningin Norður- pólsleiðangurinn / Myndskreyt- ingar eftir Julius Payer. Síðdegis verður einnig tónleikadagskrá þar sem m.a. koma fram Arnheiður Eiríksdóttir mezzósópran og píanóleikarinn Ahmad Hedar, Svavar Knútur söngvaskáld og píanóleikarinn Paul Lydon. Um kvöldið koma fram pönkrokk- sveitin Gróa og hin norska sveit Skov. Menningardagskráin í Iðnó nær hámarki á kvöldpönkrokk- tónleikum íslensku hljómsveitar- innar Gróu, norsku hljómsveitar- innar Skov og tékknesku sveitar- innar Už jsme doma. Heildardagskrá má finna á fyrr- nefndum vef hátíðarinnar. Vísindi og menning Morgunblaðið/Árni Sæberg Gróa Pönkrokksveitin á tónleikum árið 2018. Hún kemur fram á Arctic Festival sem hefst í dag. - Fjölbreyttir viðburðir á Arctic Festival sem hefst í dag duka.is Dúka Smáralind jaxhandverk Búbblan Ekkert eldstæði er jafn vinsælt og fallegt og Búbblan sem skapar fallega og rómantíska stemmingu að sumri jafnt sem vetri. • Sérsmíðuð úr níðsterku stáli með sérstakri ryðvarnarhúð sem tryggir endingu og fallega áferð. • Létt og meðfærileg á léttum gúmmíhjólum. • Getur staðið á hvaða undirlagi sem er og skilur ekki eftir sig nein ummerki á trépöllum. Tryggðu þér Búbblu fyrir haustið. Pantaðu strax í dag www.jaxhandverk.is Þrjár sendingar uppseldar 2022!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.