Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl BJB þjónustar flesta þætti endurskoðunar á nngjörnu verði og að ki förum við með bílinn nn í endurskoðun, r að kostnaðarlausu. sa au þi é „Tilkoma Esjuferju mun styrkja Reykjavík sem framúrskarandi áfangastað ferðamanna og gera má ráð fyrir fjölþættum, jákvæðum áhrif- um Esjuferju á ferðaþjónustu og ann- að atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í erindi Esjuferða ehf. sem hefur óskað eftir lóðum í landi Mógilsár í Reykjavík fyrir starfsemi kláfferju. Sami hópur viðraði hugmyndir um farþegaferju í Esjuhlíðum fyrst árið 2013. Erindi félagsins var lagt fram í borg- arráði Reykjavíkur í gær og tillaga Dags B. Eggertssonar borgarstjóra um að lagt verði mat á raunhæfni hugmyndanna var samþykkt. Innan borgarinnar verður því kannað hvort vilji sé af hálfu ríkisins til að gera nýj- an leigusamning um landið og hvort skipulagslegar forsendur séu fyrir uppsetningu og rekstri farþegaferju í Esjuhlíðum. „Verði niðurstaða þeirra athug- ana að halda áfram með verkefnið verður auglýst eftir áhugasömum aðilum sem myndu þá ráðast í gerð umhverfismats, hönnunar, fjármögn- unar og reksturs. Endanleg ákvörðun um það ræðst hins vegar af niður- stöðum skipulagsvinnu og þess um- sagnar- og samráðsferlis sem fram færi samhliða,” sagði í bókun fulltrúa meirihlutans. lBorgarráð samþykkir að kanna grundvöll fyrir rekstri ferju Hugmyndir um ferju á Esjuna lagðar fram á ný Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Esjan Hugmyndir lagðar fram á ný um að kláfur ferji fólk á toppinn. Sala jólaálfs SÁÁ hafin og afraksturinn fer að mestu í sálfræðiþjónustu fyrir börn Flogið með fyrsta álfinn í þyrlu SÁÁ hóf í gær sölu á jólaálf- inum. Flogið var með fyrsta álfinn af Esjunni. Þangað sótti Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, hann ásamt Jóni „spaða“ Björnssyni þyrluflug- manni Norðurflugs. Farið var með álfinn á Vog og þar tók Ás- mundur Einar Daðason barna- málaráðherra á móti honum. Góðar móttökur á Vogi Eins og myndin ber með sér er álfurinn vel haldinn eftir að hafa dvalið í góðu yfirliti við graut- arsmakk í Esjunni hjá Grýlu og Leppalúða. Fékk álfurinn góðar móttökur á Vogi en þar söng einnig Skólakór Kársnesskóla. Með sölu álfsins að þessu sinni er m.a. ætlunin að afla fjár fyrir sálfræðiþjónustu barna hjá SÁÁ. Stendur salan yfir fram yfir helgi og verður sölufólk á ferð við fjöl- farna staði um allt land. Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Opinberir verkkaupar eru að fara fram úr sér með því að gera kröfur um að verktakar noti hreinorkuvinnu- vélar í dag, að mati Sigþórs Sigurðs- sonar, formanns Mannvirkis – félags verktaka í SI og framkvæmdastjóri Colas. Hann bendir á að hreinorku- tæknin sé rétt að detta inn á vinnu- vélamarkaði og tækin séu enn mjög dýr. Mannvirki var nýlega með ráð- stefnu þar sem m.a. seljendur vinnuvéla kynntu það sem er í boði af hreinorkuvinnuvélum. Eins töluðu fulltrúar opinberra verkkaupa um þær kröfur sem farið er að gera í op- inberum útboðum um hreinorkutæki. Sigþór telur að þetta sé dæmi um þegar hið opinbera er komið lengra en fyrirtækin og almenningur. Þetta geti litið vel út á blaði en veruleikinn sé ekki alveg í samræmi við þetta. „Tæknin er að verða til en hún er ekki enn orðin aðgengileg fyrir verk- taka,“ segir Sigþór. Hann segir að t.d. Reykjavíkur- borg gefi punkt fyrir hreinorku- tæki í verkefni. Hugmyndin sé góð því punkta- kerfið sé hvata- kerfi sem veiti möguleika á að vera með örlítið hærra verð en verða samt fyrir valinu. Landsvirkjun er einnig með hvatakerfi sem stuðlar að því að nota sem minnsta olíu. Umbun fylgir ef olíueyðsla er minni en áætlað var en refsing verði hún meiri. Sigþór segir að hvatar séu það sem muni keyra orkuskiptin í vinnuvélum áfram en verkkaupar og verktakar þurfi að tala saman áður en lengra er haldið. Hann segir að rafknúnar minni vinnuvélar séu byrjaðar að koma á markað. „Því miður eru þær tvöfalt og jafnvel þrefalt dýrari en hefðbund- in díselknúin tæki. Við hjá Colas föluðumst eftir litlum rafknúnum gangstéttavaltara, þriggja tonna tæki. Hann kostar um fimm milljón- ir í hefðbundinni díselútgáfu en tólf milljónir rafknúinn. Það gefur auga leið að það er mjög þungt fyrir verk- taka að endurnýja tækjaflota sinn, jafnvel bara smátækin, með hrein- orkutækjum á meðan verðið á þeim er svona hátt,“ segir Sigþór. Hann segir að hefja þurfi samtal við stjórnvöld um það hvort hægt sé að fá ívilnanir, að minnsta kosti á meðan orkuskipt- in ganga yfir. Finna þurfi hvata sem virka í stað þess að skella fram ein- hliða punktakerfum. Sigþór segir að fólk þekki vel ívilnanir sem veittar voru vegna innleiðingar rafbíla þar sem sleg- ið var af opinberum gjöldum. „Vilji ríkið keyra hratt í gegn orkuskipti í dýrum vinnuvélum þá verður það að horfast í augu við að það gerist ekki nema með einhvers konar ívilnun eða niðurgreiðslu,“ segir Sigþór. Hann segir að verktakafyrirtæk- in séu flest mjög metnaðarfull hvað varðar umhverfismál. Flest hafi sett losunarmarkmið fyrir árið 2030 og ætli að ná því. Það muni m.a. gerast með innleiðingu raf- og vetnisknúinna véla. Talið er að vetnisknúnar vinnu- vélar komi á markað eftir um tvö ár. Þá eru fyrstu rafknúnu trukkarnir að líta dagsins ljós en talið er að í framtíðinni verði þeir bæði vetnis- og rafknúnir. Þannig hyggjast verktaka- fyrirtækin ná losunarmarkmiðunum. lRafknúnar vinnuvélar eru nú 2-3 sinnum dýrari en díselknúnar vélarlOpinberir verkkaupar eru farnir að gera auknar kröfur um hreinorkuvélarlMikilvægt að hið opinbera fari ekki fram úr sér Hreinorkuvinnuvélar þurfa hvata Guðni Einarsson gudni@mbl.is Morgunblaðið/Hari Vinnuvélar Þær hafa flestar verið knúnar með olíu en nú eru farnar að koma rafknúnar vélar. Þá hillir undir vetnis- og rafknúnar vinnuvélar. Sigþór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.