Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 4
FRÉTTIR
Innlent4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Tokyo línan
Fáanlegt í svörtu, hnotu og eik
Áuppboði BruunRasmussen í
Kaupmannahöfn nú í vikunni var
íslenskt hópflugsbréf frá árinu 1933
slegið á 80 þúsund danskar krónur.
Við það bætist 25% söluþóknun til
uppboðshaldara sem þýðir að loka-
verðið var um 100 þúsund danskar
krónur eða um tværmilljónir
íslenskar.
„Bréf tengd leiðangri
Balbos eru þekkt meðal frí-
merkjasafnara. Þau eru fágæt og
eftirsótt, til dæmis meðal Ítala.
Verðið sem gefið var fyrir bréfin
á uppboðinu í Kaupmannahöfn er
afar hátt en fylgir eðlilega eftir-
spurninni. Ég hef þó aldrei heyrt
um bréf tengd þessari sögufrægu
flugferð seljast fyrir viðlíka upp-
hæð og nú gerðist í Kaupmanna-
höfn. Þetta er algjört met,“ sagði
Gísli Geir Harðarson, formaður
Landssambands íslenskra
frímerkjasafnara, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sagan á bak við bréf þessi og
frímerki er sú að ítalski hershöfð-
inginn Italo Balbo, þá flugmála-
ráðherra þjóðar sinnar, kommeð
flugsveit til Íslands snemma
sumars 1933. Í sveitinni voru
24 flugvélar í leiðangri yfir
Atlantshafið. Flugmennirnir
bjuggu á Hótel Borg þann tíma
sem þeir dvöldu á Íslandi, en
héldu svo áfram vestur um
haf með alls 298 bréf. Slík eru
í dýru gildi höfð meðal frí-
merkjasafnara og eftirsótt um
allan heim.
Talið er að 10-15 af þessum
bréfum ef ekki fleiri séu í söfnum
a Íslandi. Þá eru tíu bréf í eigu
Íslendingsins Andrésar Fjeldsted
sem býr í Þýskalandi, en hann
lagði mikla vinnu í að eignast bréf
þessi. Segir hann að takmarkið
hafi náðst en halda hafi þurft
athyglunni vakandi og fylgjast vel
með mörkuðum og uppboðum í
mörg ár. sbs@mbl.is
lFlugferðin yfirAtlantshafið 1933
Balbo-bréf fyrir
metfé á uppboði
SögulegtMerkt Reykjavík og frí-
merkin eru rækilega stimpluð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon.
Umræður Bjarni Benediktsson var gestur Kompanís, viðskiptaklúbbsMorgunblaðsins ogmbl.is, í gærmorgun.
Sambærilegt og 2007
lFjármálaráðherra ræddi efnahagsmál á fundiKompanís
Bjarni Benediktsson fjármála- og
efnahagsráðherra sagði í gærmorg-
un á fjölsóttum morgunverðar-
fundi Kompanís, viðskiptaklúbbs
Morgunblaðsins og mbl.is, að árið
2022 væri miklu sterkara en stjórn-
völd hefðu séð fyrir.
Hann sagði að tekjurnar væru
mun meiri og hagvöxturinn sömu-
leiðis. Þá sagði hann að slátturinn
í hagkerfinu væri sambærilegur
og árið 2007. Allar vélar væru á
yfirsnúningi sem birtist á ýmsan
hátt. „30% fleiri stjórnendur telja
að skortur sé á starfsfólki en að
meðaltali, sem segir að það vantar
fólk í vinnu,“ sagði Bjarni.
Þá sagði hann að samkvæmt
nýjum tölum fyrir þriðja fjórðung
ársins væri hagvöxtur 7% miðað
við sama tíma í fyrra. Það væri
langt umfram það sem gert hefði
verið ráð fyrir. „2022 er ár mikilla
umsvifa. Það birtist okkur í verð-
bólgutölum og mikilli eftirspurn í
hagkerfinu. Það er skortur á íbúð-
um og einkaneysla er mikil.“
Spurður að því hvað hafi farið
öðruvísi á árinu en gert hafi verið
ráð fyrir segir Bjarni að ferðamenn
séu til að mynda fleiri. „Kaup-
máttur bandarískra ferðamanna er
mjög sterkur og þeir eru að koma
í meira mæli en við höfum séð í
spálíkönum. Ferðaþjónustan gekk
frábærlega frá vorinu og fólk er
aðeins byrjað að ganga á sparnað
sem safnast hefur upp.“
Þá sagði Bjarni vel hægt að finna
mjúka lendingu fyrir hagkerfið. Þar
skipti niðurstaða kjaraviðræðna
miklu máli og ekki væri ástæða til
að fara út í skattahækkanir. Frekar
þyrfti að halda aftur af ríkisútgjöld-
um.
Áhyggjur af fjármögnun
Bjarni lýsti á fundinum áhyggjum
af fjármögnunarkjörum innlenda
bankakerfisins, bæði í erlendri
mynt en einnig kjörum á innan-
landsmarkaði.
„Í mínum huga eru kjör íslenska
bankakerfisins fáránlega slæm
á erlendum mörkuðum, sem er
áhyggjuefni fyrir þá sem treysta á
þá til að lána í erlendri mynt. Kjörin
eru ekki í neinu samræmi við styrk
fyrirtækjanna. Þau endurspegla
mögulega þennan litla markað sem
við erum á og við verðum dálítið
jaðarsett þegar þrengir að á alþjóð-
legum fjármálamörkuðum.“
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
„Það var heilmikil aukning hjá okk-
ur á milli ára, bæði í innlendri og
erlendri netverslun,“ segir Hrólfur
Andri Tómasson framkvæmdastjóri
Dropp um fjölda sendinga í kringum
stóru netsöludagana þrjá í nóvem-
ber.
Íslendingar hafa svo sannarlega
tileinkað sér þá hefð að kaupa dug-
lega inn á degi einhleypra, svörtum
föstudegi og netmánudegi. Rætt er
um að jólaverslun hafi að einhverju
leyti færst yfir á þessa daga og þess
sér merki á fjölda heimsendinga.
Póstboxin nýtast vel
„Ef við horfum á nóvember í heild
sinni er fjöldi sendinga svona rúm-
lega tvöfalt meiri en í fyrra,“ segir
Hrólfur en Dropp sendir heim fyr-
ir ríflega 300 verslanir hér á landi
auk erlendra netverslana á borð við
Boozt. „Netverslunin jókst mikið í
Covid og hefur haldið áfram að vaxa,
en þó ekki með sama hraða,“ segir
Hrólfur.
Þórhildur Ólöf Helgadóttir for-
stjóri Póstsins segir að póstbox
fyrirtækisins hafi nýst mjög vel
til að sinna fjölmörgum sending-
um í kringum þessa annasömu
afhendingardaga. Tæplega 40% af
sendingum í liðnum mánuði voru
afhent í póstboxum sem nú er víða
að finna. „Innlent og erlent pakka-
magn hjá Póstinum í nóvember var
í kringum 15% minna en árið áður.
Topparnir í tengslum við stærstu
verslunardagana eru þó hærri í ár
en í fyrra,“ segir Þórhildur.
Færri sendingar að utan
Hannes Alfreð Hannesson, for-
stöðumaður hjá TVG Express, segir
að innlend netverslun hafi aukist í
ár en á móti hafi sendingum frá er-
lendum netverslunum fækkað. „Við
erum að sjá alveg 50% aukningu í
sendingum milli ára. Þetta er sam-
bland af nýjum viðskiptavinum og
því að innlend netverslun hefur tekið
kröftuglega við sér.“
Jólaverslunin færist fram
Hann segir ljóst að jólaverslunin
hafi færst yfir á þessa stóru net-
söludaga. „Við sjáum hvernig þessi
tilhneiging er orðin. Fólk kaupir föt,
snyrtivörur og raftæki svo dæmi séu
tekin. Allt í allt er þetta 50% vöxtur
og þar af er 75% aukning í innlendri
netverslun. Þetta eru skemmtilegar
tölur.“
lMiklar annir hafa verið hjá dreifingar-
fyrirtækjum á stórum netsöludögum
Allt að tvöfalt
fleiri sendingar
ená síðasta ári
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Netverslun Það var nóg að gera í
vöruhúsum íslenskra netverslana
á stórum söludögum í nóvember.