Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 8
FRÉTTIR
Innlent8
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
STAKSTEINAR
Horfnar fréttir
Örn Arnarson fjölmiðlarýnir
Viðskiptablaðsins vék í gær
að „sögulegum sáttum athafna-
skáldanna Róberts Wessmann
og Halldórs Kristmannsson-
ar“ en báðir hafa þeir tengst
fjölmiðlavafstri,
fyrst saman en
síðar í sundur.
Örn rakti mis-
sættið og sáttina
en sagði svo frá
því að samdæg-
urs og sáttin var
kynnt „hurfu allar
fréttir Mannlífs
þar sem orði var
hallað á Róbert“.
Örn segir frá því
að fréttastofa Rúv.
hafi grennslast
„fyrir um hvarf
fréttanna, en þó
að Reynir vildi
ekki skýra það
með beinum hætti gaf hann til
kynna að ástæðan væru harðir
úrskurðir siðanefndar Blaða-
mannafélagsins yfir sér vegna
þeirra í maí og um síðustu
mánaðamót.
Ásannleiksgildi þess verður
lesandinn að leggja eig-
in dóm, en það blasir við að
umræddir „blaðamenn“ hafa
leiðst út í eitthvað allt annað
en blaðamennsku og sökina á
því bera ekki bara einhverjir
fjármálafakírar í störukeppni.
Vandinn er að það eru ekki
aðeins viðkomandi miðlar sem
óhreinkast af slíku, heldur er
grafið undan öllum fjölmiðlum.
Báðir eru þeir [Reynir Trausta-
son og Kristjón Kormákur]
félagar í Blaðamannafélaginu
eins og ekkert sé og Mannlíf
þiggur Liljuna, fjölmiðlastyrk
ríkisins. Svo eru menn hissa á
veikri stöðu fjölmiðla.“
Getur verið að fréttirnar sem
hurfu hafi haft annan tilgang
en að upplýsa almenning?
Reynir
Traustason
Örn
Arnason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
www.mbl.is/mogginn/leidarar
Hætt við kaup á verksmiðjunni
lViðræðumArion við PCC slitið
lBæjarstjóri Reykjanesbæjar feginn
Arion banki og PCC slitu formlegum
viðræðum um möguleg kaup PCC á
kísilverksmiðjunni í Helguvík í gær.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segist
feginn því að niðurstaða sé loks komin
í málið. Í tilkynningu frá bankanum
sagði að samhliða hafi Arion sagt upp
raforkusamningi við Landsvirkjun
þar sem framleiðsla kísils var for-
senda samningsins.
„Við erum fyrst og fremst fegin að
það sé komin niðurstaða í málið. Að
það sé ekki frekari óvissa eins og er
búið að vera núna um nokkuð langt
skeið. Þetta er niðurstaða sem við
getum alveg unað,“ segir Kjartan
Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar. „Nú höldum við áfram að
byggja upp í Helguvík einhverja aðra
starfsemi.“
Arion banki eignaðist kísilverk-
smiðjuna árið 2018 í kjölfar gjald-
þrots fyrri eiganda, United Silicon
hf. Síðan þá hefur dótturfélag bank-
ans, Stakksberg ehf., unnið endur-
bótaáætlun fyrir verksmiðjuna og
leitað að hæfum kaupendum sem
gætu rekið verksmiðjuna. „Í kjölfar
þessarar niðurstöðumunArion banki
horfa til sölu á þeim innviðum sem
eru til staðar í Helguvík, annað hvort
til flutnings eða með það að mark-
miði að koma þar upp annars konar
starfsemi en kísilframleiðslu,“ sagði í
tilkynningunni frá bankanum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helguvík Kísilverksmiðjan hefur
ekki verið starfrækt frá árinu 2017.
Björg Einarsdóttir
rithöfundur
Andlát
Björg Einarsdóttir
rithöfundur lést á
dvalarheimilinu Grund
28. nóvember sl., 97 ára
að aldri. Hún fæddist
í Hafnarfirði 25. ágúst
1925, dóttir hjónanna
Einars Þorkelssonar,
skrifstofustjóra Alþing-
is og síðar rithöfundar,
og Ólafíu Guðmunds-
dóttur, húsfreyju, sem
einnig vann við umsjón
í þinghúsinu.
Björg ólst upp
í Hafnarfirði til
1929 er hún missti
móður sína. Þá fór hún í fóstur til
hjónanna Sigurjóns Oddssonar,
framkvæmdastjóra við Dráttarbraut
Akureyrar, og konu hans, Maríu
Elísabetar Coghill Jónsdóttur, sem
bjuggu á Akureyri. Þar átti Björg
heima til 1937. Þá fluttu þau til
Reykjavíkur, þar sem hún var síðan
búsett ef frá eru talin árin 2007-2014
þegar hún bjó í Hveragerði.
Björg nam við Kvennaskólann
í Reykjavík og aflaði sér síðan
viðbótarmenntunar. Hún stund-
aði lengstum skrifstofustörf með
hléum, seinast 1976-1978 er hún var
fulltrúi skólastjóra Þroskaþjálfa-
skóla Íslands. Eftir það starfaði hún
sjálfstætt að ritstörfum
og útgáfumálum. Hún
skrifaði m.a. Afmælis-
rit Starfsmannafélags
Reykjavíkur (1976)
og Ljósmæður á Ís-
landi I-II (1984). Hún
stofnaði útgáfufélagið
Bókrúnu ásamt fleiri
konum og gaf það út
ritsafnið Úr ævi og
starfi íslenskra kvenna
I-III sem byggðist á út-
varpserindum Bjargar.
Þá skrifaði hún
Hringinn í Reykjavík –
starfssögu (2002).
Hún starfaði með Rauðsokka-
hreyfingunni, í Kvenréttindafélagi
Íslands og í stjórn Alþjóðasamtaka
kvenréttindafélaga um tíma. Björg
var í hópi þeirra sem stóðu að
kvennafrídeginum 1975 og flutti
ávarp á Lækjartorgi. Þá starfaði
hún mikið með Sjálfstæðisflokknum.
Björg var sæmd fálkaorðunni 1988
fyrir störf að jafnréttismálum og
ritstörf um málefni kvenna.
Björg giftist Haraldi Guðmunds-
syni (f. 1921, d. 2002) rafverktaka
1950. Börn þeirra eru Guðmundur
Ingi, jarðfræðingur (f. 1951), Einar
Hrafnkell, verkfræðingur (f. 1953),
og María, sérkennari (f. 1957).