Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.12.2022, Blaðsíða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 HVAÐ ER Í MATINN? FÖSTUDAGA Ungnautalund Í trufflusveppa marineringu Ungnautafillet Í black garlic marineringu tilboð alla vikuna Grensásvegur 48, 108 Reykjavík | Sunnukriki 2, 270 Mosfellsbær Á MORGUN LAUGARDAG -20% -20% Haldari 8.990 kr. Nærbuxur 4.850 kr. Fantasie Lucia Fáðu þér nýtt sett til að koma þér í jólaskapið Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.10-14 Skoða „Þetta eru skemmtilegar og magnaðar sögur af fólki héðan úr Flóanum, bændum og búaliði og þjóðþekktum mönnum. Ég tíni svona rósir meðfram veginum og skreyti bókina með sögum af atburðum sem áttu sér stað í æsku minni og fram á þessa daga,“ segir Guðni Ágústsson, fv. þingmaður og ráðherra Framsóknarflokksins, um nýja bók sína, Guðni: Flói bernsku minnar, sem skrásett er af Guðjóni Ragnari Jónassyni menntaskóla- kennara í félagi við Guðna. Sagan nær yfir 70 ár og margar skrautlegar persónur eru kallaðar til leiks. „Ég sýni fram á að Flóa- menn eru miklu skemmtilegri en af er látið,“ segir Guðni og að allt tal um bragðdaufa Flóamenn eigi sér ekki neina stoð í raunveruleikanum. Olli brottför herliðsins „Þetta er ástaróður til hinnar gömlu íslensku sveitar og ég hugsa að þegar menn lesa þessa bók hringinn í kringum landið þá þekki þeir karakterana úr sinni sveit, því víða var stórbrotið fólk og þetta er kynslóðin sem gekk nú ekki í skóla, var jafnvel bara í farskóla eða barnaskóla, en var sjálfmenntuð og auðvitað ein duglegasta kynslóð Íslandssögunnar.“ Guðni minnist á skákmeistarann Bobby Fischer. „Ég geri hann að sveitunga mínum, en hann liggur í Laugardælakirkjugarðinum og er mikill áhrifavaldur á íslenskt sam- félag. Ég færi að því rök að hann sé valdur að því að herinn fór og að Bandaríkjamenn neituðu okkur um lánalínur og stuðning í bankahrun- inu. Ég tel að það hafi verið þung örlög fyrir Bandaríkjamenn að litla Ísland skyldi frelsa þennan um- komulausa og frægasta skákmann allra tíma.“ Guðni minnist draums Bjarna í Túni sem varaði hann við pólitík- inni í upphafi ráðherraferilsins og hann talar um Kristin í Halakoti Helgason, sem var leikari af guðs náð og komst á hvíta tjaldið í gegn- um Pétur Gunnarsson í myndinni Punktur, punktur, komma, strik. Sláturfélagið og Bandaríkin „Svo er það Siggi á Neistastöðum sem var Þingeyingur og gjörólíkur okkur Flóamönnum, óskaplega fjörugur og kátur og skemmtilegur. Kommúnisti alveg fram í fingur- góma og þegar hann keypti sér rússann þá kallaði hann á kommana í sveitinni, sem voru nokkrir, til kaffiboðs. Þar tók hann hvert dekkið af rússanum á fætur öðru og hleypti vindinum úr svo þeir gætu nú andað að sér almennilegu rússnesku lofti. Svo sigldi hann um heimsins höf og komst inn í Banda- ríkin, þrátt fyrir að þeir vildu alls ekki alþýðubandalagsmenn þangað inn, því þeir töldu þá hættulega. En hann sagði þeim að í bandalaginu væru bara kjaftforir ungir drengir sem engu hefðu áorkað, en sjálfur hefði hann verið í hreyfingu sem alltaf hefði stutt Bandaríkin og það væri SS-sveitin Sláturfélag Suðurlands. Og þá hleyptu þeir honum inn.“ Guðni minnist æskustöðvanna á Brúnastöðum, en þar ól móðir hans 16 börn á 21 ári. Öll fæddust þau í hjónarúminu, en amma Guðna tók á móti þeim öllum. Gamli bærinn var aðeins 70 fm en það voru 15-16 manns í heimili þar til nýtt hús var byggt og börnin sváfu tvö í hverju rúmi. Hann segir að miðað við kröf- urnar í dag væri það undur að þau hefðu öll komist til manns. „Ég minnist móður minnar, sem var mjög hógvær kona, þessarar mögnuðu dugnaðarkonu sem var stundum kölluð huldukonan á Brúnastöðum. Hún var ekkert fyrir sviðsljósið. En pabbi var alþingis- maður í 20 ár og héraðshöfðingi þannig að það kvað að honum. Svo var mjög gestkvæmt á Brúnastöð- um, pabbi var oddviti sveitarinnar og mamma tók á móti gestum af miklum skörungsskap.“ lFjölbreytilegt persónugallerí að finna í Flóanum Önduðu að sér rúss- nesku lofti í kaffiboði Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sagnabrunnur Guðni er mikill sögumaður og horfir til baka á stórbrotið mannlífið í Flóanummeð hlýju, söknuði og miklum húmor. Morgunblaðið/Þorkell Klébergsskóli Þar verður samrekið skóla- og almenningsbókasafn. Nýtt bókasafn lAlmennings- og skólabókasafn verður sett upp í Klébergsskóla á Kjalarnesi Menningar-, íþrótta- og tómstunda- ráð Reykjavíkurborgar samþykkti samhljóða 28. nóvember að sett verði á fót samrekið almennings- og skólabókasafn í Klébergsskóla á Kjalarnesi. Einnig að bókakostur bókabílsins Höfðingja verði lagður til safnsins og að Borgarbókasafnið og Klébergsskóli geri með sér samkomulag um bókasafnsþjónustu fyrir almenning og Klébergsskóla á Kjalarnesi. Um verði að ræða til- raunaverkefni til eins árs þar sem fyrirkomulagið verði metið og síðan tekin ákvörðun um framhaldið. Fulltrúar Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar lögðu fram bókun þar sem m.a. kemur fram að Borgar- bókasafnið reki sjö útibú í hverf- um borgarinnar. Auk þess hafi það haldið úti rekstri bókabílsins og Sögubílsins um árabil. Rekstri bókabílsins sem m.a. hefur þjónað íbúum á Kjalarnesi undanfarin ár verður hætt um áramótin. Glæsi- legt bókasafn var opnað á þessu ári í menningarmiðstöðinni Úlfarsárdal. Lagt er til að sett verði á fót samrek- ið skóla- og almenningsbókasafn á Kjalarnesi sem þjóni bæði Klébergs- skóla, leikskólanum Bergi og íbúum hverfisins. gudni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.