Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 13
FRÉTTIR
Erlent 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
Árlegar starfsmannakannanireru úreltar!
Í dag er það, HR Monitorrauntíma starfsánægjumælingar
Aldrei eins
gaman
að taka inn
VÍTAMÍN
D3000 munnúða vítamín
Sniðgengur
meltingarveginn
Fer beint í
blóðrásina
Náttúrulegt
piparmyntubragð
Þegar sólarljósið
fer minnkandi
Vel fór á með Joe Biden Banda-
ríkjaforseta og Emmanuel
Macron forseta Frakklands er
hinn síðarnefndi kom til Wash-
ington í opinbera heimsókn.
Sagði Biden að Bandaríkin
gætu ekki óskað eftir betri
bandamanni en Frakklandi, og
minntist þess að ríkin tvö hefðu
verið bandamenn frá dögum
frelsisstríðsins.
„Frakkland er okkar elsti
bandamaður, óbilandi félagi
okkar fyrir málstað frelsisins,“
sagði Biden. Macron tók í sama
streng og sagði að ríkin tvö hefðu
staðið hlið við hlið í gegnum
mörg stríð, og að nú væri aftur
þörf á að þau stæðu saman í ljósi
innrásar Rússa í Úkraínu. „Við
þurfum að verða vopnabræður
enn á ný,“ sagði Macron, en
heimsókn hans er ætlað að bæta
samskipti ríkjanna, sem hafa
stirðnað nokkuð síðustu ár, m.a.
vegna viðskiptadeilna Banda-
ríkjanna og Evrópusambandsins.
Opinber heimsókn Frakklandsforseta til Bandaríkjanna
AFP/Saul Loeb
Verði „vopna-
bræður“ á ný
hermenn Rússa á svæðinu nú úr vara-
liði Rússahers.
Frakkar styðja dómstólinn
Frakkar lýstu í gær yfir stuðningi
sínum við hugmyndir Evrópusam-
bandsins, sem Ursula von der Leyen,
forseti framkvæmdastjórnar ESB,
kynnti í fyrradag um að setja á fót
sérstakan dómstól, sem gæti rann-
sakað hvort innrás Rússa í Úkraínu
hefði verið lögleg.
Dmitrí Peskov, talsmaður Rúss-
landsforseta, sagði hins vegar í gær
að Rússar myndu ekki viðurkenna
lögmæti neins dómstóls sem settur
yrði á fót til að sækja Rússa til saka.
„Þegar kemur að tilraunum til að
stofna einhvers konar dómstóla,
þeir hafa ekki neitt lögmæti, verða
ekki samþykktir af okkur og verða
fordæmdir af okkur,“ sagði Peskov.
Fleiri bréfasprengjur á Spáni
Spænska lögreglan tilkynnti í gær
að hún væri að rannsaka a.m.k. fimm
tilvik, þar sem bréfasprengjur voru
sendar á skotmörk sem tengjast
Úkraínustríðinu, degi eftir að ein
slík særði öryggisvörð í úkraínska
sendiráðinu.
Eitt skotmarkið var skrifstofa
Pedros Sanchez, forsætisráðherra
Spánar, en sprengjan uppgötvaðist
áður en skaði hlaust af henni. Þá voru
einnig sendar sprengjur á bandaríska
sendiráðið, varnarmálaráðuneytið og
á herstöð sem framleiðir sprengju-
vörpur sem Spánverjar hafa sent til
Úkraínu.
Úkraínuher lýsti því yfir í gær, að þess
sæust teikn að Rússar væru farnir
að draga til baka hluta herliðs síns á
eystri bakka Dnípró-fljótsins gegnt
Kerson-borg. Kom fram að Rússar
hefðu á móti aukið stórskotahríð
sína á borgina en rafmagnslaust var
í Kerson í gær eftir árásir þeirra.
Rússar hafa þegar skipað óbreytt-
um borgurum að yfirgefa byggðir sem
eru innan 15 kílómetra frá árbakkan-
um. Sagði í tilkynningu Úkraínuhers
að nú þegar væru færri hermenn í
bænum Olesjkí, sem er hinum megin
við fljótið frá Kerson-borg, en brú-
in á milli var eyðilögð þegar Rússar
hörfuðu frá borginni. Þá væru flestir
Merki um frekara brotthvarf Rússa
lÚkraínuher segir Rússa einkum tefla fram varaliði í Kerson-héraðilRússar ætla ekki að viðurkenna
neinn dómstól sem rannsakar meinta glæpi þeirralFimm bréfasprengjuárásir til rannsóknar á Spáni
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
AFP/Yevhen Titov
Stórskotahríð Hábyssa af gerðinni 2S3 Akatsíja sést hér skjóta á víglínu
Rússa í austurhluta Úkraínu, þar sem harðir bardagar geisa enn.
KÍNA
Mögulega slakað á
sóttvarnaraðgerðum
Sun Chunlan,
2. varaforsætis-
ráðherra Kína,
sagði í gær að
ómíkron-af-
brigði kórónu-
veirunnar væri
að veikjast á
sama tíma og
fleiri Kínverjar
fengju bólu-
setningu. Gaf Sun til kynna að
þessi nýja staða kynni að kalla á
nýja stöðu í sóttvarnaraðgerðum
Kínverja.
Sun minntist ekki beint á nú-
verandi stefnu kínverskra stjórn-
valda, sem kölluð er „núll-Covid“,
þar sem reynt er að koma í veg
fyrir öll tilfelli, en sú afstaða er
sögð hafa verið kveikjan að mót-
mælum gegn kínverska kommún-
istaflokknum um síðustu helgi.
Yfirvöld í höfuðborginni Peking
tilkynntu í gær að þau myndu
slaka á skimunarreglum en að
íbúar þyrftu áfram að framvísa
neikvæðu prófi sem væri ekki
eldra en tveggja sólarhringa til að
sækja kaffihús og veitingastaði.
Sun Chunlan
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is