Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 14

Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 14 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pistill Verðuraðmetaeinstaka tilboð K atrín svaraði því að henni þætti ekki rétt að fjármálaráðherra legðist yfir kaupendalistann og legði eitthvert mat á hann, enda hefði það ekki verið gert. Vissu- lega væri þó „óheppilegt“ að fjölskyldutengsl væru til staðar milli Bjarna og einhvers á kaupendalistanum. Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, var á meðal kaupenda.“ Sjáið til. Í greinargerð frumvarpsins um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármála- fyrirtækjum segir: „Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að það sé ráðherra sem tekur ákvörðun um samþykki eða höfnun tilboða fyrir hönd ríkisins eins og eðlilegt má teljast. Nauðsynlegt er að við mat á tilboðum og ákvörðun um töku tilboða hafi þessir aðilar að leiðarljósi þær forsendur og þau skilyrði sem lögð voru til grundvallar við sölumeðferð skv. 2. gr. og koma fram í auglýsingu eða boði til væntanlegra kaupenda um tilboðsgerð. Ráðherra skal sömuleiðis undirrita samninga fyrir hönd ríkisins um sölu eignarhluta“ (https://www.althingi.is/ altext/141/s/0151.html). Það er mjög skýrt, það á að leggja mat á tilboðin. Á þessu er þó undantekning, þegar um almennt útboð er að ræða: „Ýmsar leiðir koma til greina við sölu á eignarhlutum í fjármálafyrirtækjum, t.d. almennt útboð verðbréfa, skráning bréfa fjármálafyrirtækis á skipulegum verð- bréfamarkaði eða tilboðssala. Sala hluta með útboði eða skráning bréfa í kauphöll er ferli sem er frábrugðið hefðbundinni tilboðssölu. Sem dæmi er ekki um mat á einstaka tilboðum eða eiginlegar samningaviðræður við einstaka kaupendur að ræða þegar almennt útboð eða skráning bréfa fer fram.“ Ekki mat á einstaka tilboðum þegar al- mennt útboð fer fram. Annars þarf að meta einstaka tilboð. Það er nákvæmlega ekkert flókið við þetta og öll gögn málsins fyrir söluna sögðu að þessi tilboðsleið væri lokað söluferli. Það væri ekki almennt útboð. Þetta var svo einnig staðfest af Bankasýslunni á opnum fundi eftir útboðið. Þegar einstaka boð er metið þá ætti að vera augljóst að nafn föður fjármálaráðherra hefði komið upp. Þá er augljóst að ráðherra hefði metið það sem svo að hann væri vanhæfur til þess að taka ákvörðun um að taka eða hafna tilboði föður síns eða ákveða um skerðingar eða verð í útboðinu yfirleitt. Það er með ólíkindum hversu mikið er hægt að þvæl- ast með þessa einföldu staðreynd og hversu mikið allir rembast eins og rjúpan við staurinn að verja fjármála- ráðherra í þessu máli. En það er auðvitað augljóst að þau eru að verja eigin stóla og völd á sama tíma. Þannig taka þau persónulega hagsmuni fram yfir almannahags- muni og það er skilgreiningin á spillingu. Þetta er ekki boðlegt. Björn Leví Gunnarsson Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is félagsfólki KÍ hjá ríkinu. Yfirvinnu- greiðslur í maí vógu hlutfallslega mest, 22,5%, í reglulegum heildar- launum félagsmanna KÍ hjá ríkinu, sem eru flestir framhaldsskóla- kennarar,“ segir þar einnig. Lægstu grunnlaunin er að finna meðal launamanna í stéttarfélög- um Starfsgreinasambandsins á almennum markaði, 442 þúsund á mánuði. Grunnlaun launafólks í Landssambandi ísl. verslunar- manna voru að jafnaði 673 þúsund kr. á mánuði og regluleg heildarlaun þeirra 743 þúsund en heildarlaun iðn- og tæknifólks í iðnaðarmannafélögum á almenna markaðinum eru nokkru hærri eða 805 þúsund kr. á mánuði og vega yfirvinnugreiðslur þeirra þungt en þær voru 128 þúsund kr. að jafnaði í maímánuði. Kjaratölfræðinefnd fer ítarlega yfir þróun launa á umliðnum árum og þróun efnahagsmála. Fram kemur að á síðustu tveimur kjara- samningstímabilum, 2015-2018 og 2019-2022, var hagvöxtur á hvern íbúa langtum meiri á Íslandi en í samanburðarlöndum í OECD eða 12,6%. Danmörk er næst í röðinni með 7,9% hagvöxt. „Almennt verð- lag hækkaði um 17,6% frá mars 2019 til júní 2022. Á sama tímabili hækkaði vísitala grunntímakaups um 24,2% til 34,5%, eftir mörk- uðum. Hækkun vísitölu reglulegs tímakaups var á bilinu 25,3% til 40%,“ segir í skýrslunni. Á tímabil- inu jókst kaupmáttur grunntíma- kaups á bilinu 5,6% til 14,4% eftir mörkuðum. Bendir nefndin á að líklegt sé að aukin verðbólga á síðari hluta ársins og hækkun vaxtagjalda muni rýra kaupmátt ráðstöfunartekna heimila og draga úr einkaneyslu. Kaupmáttur reglulegs tímakaups á vinnumarkaðinum er nú á svipuð- um slóðum og í byrjun árs 2021. N ýjar upplýsingar um dreifingu launa á vinnumarkaðinum sýna að hún er töluvert mikil eftir hópum launafólks og mörk- uðum. Munur á hæstu og lægstu launum er til að mynda meiri á almenna markaðnum en á hinum opinbera. Ef launafólki er skipt upp í tíundarflokka má sjá að launafólk á almenna vinnumarkaðinum, sem tilheyrir efstu tíundinni, þ.e.a.s. er með hæstu launin, er með tæplega þrisvar sinnum hærri grunnlaun að meðaltali en þeir sem eru í neðstu tíundinni. Munur á reglulegum launum neðstu og efstu tíundar launafólks er minnstur meðal ríkis- starfsmanna. Þetta má lesa út úr nýútkominni haustskýrslu Kjaratölfræðinefndar sem birtir m.a. greiningu á launa- dreifingu á vinnumarkaðinum, sem byggð er á gögnum úr launarann- sókn Hagstofunnar þar sem horft er til launa í maí. Nefndin skoðar allt í senn grunnlaun, regluleg laun (dagvinna og vaktavinna) og regluleg heildarlaun (tilfallandi yfirvinnulaun meðtalin). „Saman- burður á meðaltali reglulegra heildarlauna fullvinnandi á milli markaða í maí 2022 sýnir að þau voru á bilinu 695 þús. kr. hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur upp í 822 þús. kr. hjá ríki,“ segir m.a. í skýrslunni. Vægi yfirvinnu- greiðslna var mest hjá ríkinu eða 106 þúsund kr. að meðaltali meðal ríkisstarfsmanna, 77 þúsund kr. að meðaltali á almenna markaðinum og 41-42 þúsund í mánuðinum hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Ef litið er á dreifingu launa hjá samtökum launafólks kemur m.a. fram að ef eingöngu er horft á almenna markaðinn voru regluleg heildarlaun að jafnaði lægst hjá launafólki í stéttarfélögum innan Starfsgreinasambandsins eða 638 þúsund kr. á mánuði en hæst hjá félagsmönnum í BHM-félögum, 993 þúsund kr. á mánuði. „Regluleg heildarlaun hjá ríki og sveitarfé- lögum eftir heildarsamtökum voru frá 563 þús. kr. að meðaltali, hjá félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ sem starfa hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur, upp í 943 þús. kr. hjá Nær þrefaldur mun- ur á hæstu og lægstu ASÍ ASÍ-iðnfél. ASÍ-LÍV ASÍ-SGS BHM BSRB ASÍ BHM BSRB KÍ ASÍ BHM BSRB KÍ ASÍ BHM BSRB KÍ 718 805 743 638 993 837 673 878 746 943 572 886 692 763 563 882 623 734 Regluleg heildarlaun fullvinnandi ímaí 2022 Almennur markaður Ríki Reykjavíkurborg Sveitarfélög án Reykjavíkur Grunnlaun Regluleg heildarlaun Heimild: Haustskýrsla kjaratöl- fræðinefndar, nóvember 2022 578 647 673 442 958 576 502 772 546 730 466 710 459 691 466 741 501 686 54 30 32 90 7 172 85 20 96 0 66 166 113 4 60 98 75 8 Launa- aukar 86 128 38 106 28 89 86 86 104 213 40 10 30 68 37 43 47 40 Yfirvinnu- greiðslur SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Leki Pírata Engir þing- menn forðast umræður um efni og innihald mála eins og þingmenn Pírata. Þeir hafa hins vegar öðrum þingmönnum meiri áhuga á umgjörð mála og formi og geta haldið langar ræður og margar um slík atriði. Þetta á við um hvers kyns mál og er vel þekkt enda er það svo að þessi flokk- ur er mesti kerfisflokkur Al- þingis, þvert á það sem hefði mátt ætla af nafni flokksins og kynningu á honum þegar hann hóf störf. Undantekningar á þessum áhuga Pírata á reglum og umgjörð eru þó til og þær koma fram þegar þeim sjálfum verður á. Þannig gáfu þing- menn flokksins ekkert fyrir það þegar siðanefnd þingsins kvað upp þann úrskurð á síðasta kjörtímabili að einn þingmaður Pírata hefði orðið brotlegur við siðareglur þings- ins. Þá hentaði þingmönn- um Pírata ekki að fara eftir siðareglunum og mótmæltu niðurstöðunni og endurtóku jafnvel brotin í mótmælaskyni. Afsökunarbeiðni kom ekki til greina, hvað þá iðrun. Nú hefur það gerst að þing- menn Pírata brutu reglur um trúnað þingnefndar og það meira að segja trúnað innan stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar þingsins, þar sem þingmenn ættu þó enn frekar en annars staðar að gæta sín. Eins og kunnugt er lak á dögunum til fjölmiðla skýrsla ríkisendurskoðanda sem send var þingmönnum þessarar nefndar í trúnaði. Furðu sætti hve hratt hún lak, en nú er komið í ljós að þingmaður Pírata hélt ekki áskilinn trún- að þó að ekki liggi fyrir að það hafi valdið lekanum til fjöl- miðlanna. Grunsemdir um það hljóta þó að vakna við þessar aðstæður. Athygli vekur að það sama gerðist við þennan leka og við brotið á siðareglum þingsins á síðasta kjörtímabili. Þingmenn Pírata neita allri sök og halda því fram að þeim hafi verið heimilt að leka upplýsingun- um. Í svari til Morgunblaðsins sagði Björn Leví Gunnarsson alþingismaður að til að geta unnið vinnuna sína þyrftu þingmenn að geta deilt upplýs- ingum með öllum þingflokkn- um. Til þess væri heimild sem kallaðist „yfirfærsla trúnað- ar“. Björn vísaði til svars frá starfsmönnum þingsins um að gera mætti þingflokki almenna grein fyrir sjónarmiðum á nefndarfundum og sagði að það ætti „augljóslega einnig við gögn sem og munnlegar frásagnir sem gegna nákvæm- lega sama tilgangi í nefndarstörfun- um.“ Öllum sem lesa reglur þingsins og bréfið sem þingmaðurinn vísar til verður ljóst að þetta er fráleit túlkun. Í reglunum segir sérstaklega að aðrir þingmenn en nefndarmennirn- ir hafi „ekki aðgang að upp- lýsingum nefndar“. Forstöðu- maður nefndarsviðs Alþingis staðfestir í svari til Morgun- blaðsins að ákvæðið eigi við, hvort sem um sé að ræða gögn sem einungis séu kynnt á lokuðum fundi eða gögn sem nefndarmönnum sé veitt heimild til að taka með sér af lokuðum fundi, þar á meðal ef sendandi gagna hafi heimilað að gögn séu send nefndar- mönnum með tölvupósti. Allt er þetta augljóst öðrum en þingmönnum Pírata sem telja bersýnilega að reglur þingsins eigi ekki að gilda um þá nema þeim henti það sér- staklega. Allar reglur, einkum reglur um málsmeðferð, svo sem um trúnað, skipta hins vegar sköpum þegar aðrir eiga í hlut og hafa iðulega orðið til þess að Píratar hafa talið að aðrir ættu að sæta ábyrgð og víkja vegna smæstu yfirsjónar. Það var grunsamlegt strax í upphafi þegar lekinn varð á skýrslu Ríkisendurskoðun- ar hvernig þingmenn Pírata brugðust við. Nefndarmaður Pírata, Arndís Anna Kristínar- dóttir Gunnarsdóttir, sagðist ekki vita hver hefði lekið skýrslunni, nefndin væri reið yfir lekanum, en hún sjálf væri „ósköp slök gagnvart þessu“. Þetta er afar sérstakt svar í ljósi þess að það var Arndís Anna sjálf sem „yfirfærði trúnaðinn“ yfir á aðra, þvert á reglur þingsins. Nú kann einhverjum að þykja þessi umræða auka- atriði og aðeins snúast um form en ekki innihald, líkt og Pírata er háttur. Þá verður þó að hafa í huga að stundum skiptir formið máli og það skiptir vissulega máli að þeir sem eiga samskipti við þingið geti treyst því að trúnaðar- upplýsingar, sem veittar eru þingnefndum, haldist innan nefndanna en leki ekki til allra þingmanna eða víðar. Augljóst er að það mun hamla starfi þingnefndanna og gera sam- skipti við þær erfiðari ef ekki má treysta því að trúnaður haldi. Píratar kunna að vera þeirrar skoðunar að siðareglur eða reglur um trúnað eigi ekki að gilda um þá, en sé svo er hætt við að aðrir þingmenn, að ekki sé talað um þá sem eru utan þings, verði að fara afar gætilega í samskiptum við þingmenn Pírata. Sömu reglur verða að gilda um alla}

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.