Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 16

Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 VINNINGASKRÁ 35 8318 14800 25448 35411 47833 58496 68911 45 8494 15002 25462 36311 47925 58694 69787 230 8570 15266 25487 36603 47953 58825 70304 242 8693 15284 25765 37090 48326 59313 71084 293 8990 16027 26098 37173 48590 59434 71424 502 9062 16083 26131 37337 48737 59675 71473 771 9105 16135 26175 37656 49538 59895 71769 816 9180 16366 26344 38127 49609 59921 72063 1479 9220 16373 26738 38244 50231 60100 72709 1552 9324 16688 27079 38485 50393 60190 72714 1605 9411 16858 27134 39053 50842 60425 72747 1773 9963 16886 27433 39214 51001 60604 73132 2146 10388 16920 27562 39931 51045 60983 73190 2869 10460 17006 27613 40233 51760 61040 73199 2917 10811 17021 28131 40400 52392 61100 73308 3114 10869 17388 28291 41258 52702 61604 74192 3325 11346 17568 28737 41259 53302 61608 74284 3343 11414 18172 29020 41488 53628 61718 74525 3455 11577 18294 29234 41615 53682 62594 74689 3572 11726 18383 29871 41765 53855 63268 74779 3782 12229 18473 29903 42012 53939 63821 74834 3987 12525 18510 30014 42119 53956 64034 74930 4016 12628 18647 30210 42158 54134 64128 75047 4033 12645 18757 30432 42301 54146 64277 75451 4112 12687 19813 30592 42640 54233 64316 75797 4886 12766 20426 30953 43816 54480 64629 75906 4949 12960 20786 31021 44228 55130 64673 75973 5012 13036 20930 31517 44707 55378 64685 76243 5172 13056 20951 32177 45093 55437 65131 76349 6463 13197 21074 32841 45356 55842 65471 76351 6595 13231 21665 32894 46151 55893 65570 76463 6848 13288 22379 33141 46395 56046 65968 76476 6875 13478 22441 33166 46399 56194 66101 76946 6942 13578 22773 33432 46426 56266 66171 77410 7045 13678 23255 33942 47314 56387 66252 77776 7165 13801 23621 34504 47598 56558 66852 77822 7728 14136 24067 34550 47631 57834 67751 77851 7777 14459 24238 35030 47635 57850 67886 78437 7798 14488 24585 35323 47722 57986 67954 79400 8083 14726 24791 35338 47756 58372 68784 79561 534 8982 17701 30704 37709 48451 60284 72128 738 9735 18424 31718 38226 49071 60418 72396 1363 10453 19475 31883 38227 49085 61001 73125 2224 11033 19690 33511 38548 49385 62114 74386 2616 11034 20030 34055 42433 49849 63585 74691 5090 11321 21083 35210 42811 50041 65668 75499 5210 11464 22631 35258 43675 51441 67552 76310 5762 12791 23579 35460 43774 52989 67964 77616 6647 13462 24912 35484 46036 53516 68080 79306 7014 13893 26356 36040 46559 56460 68308 7146 14524 28171 36124 46840 56819 69402 7291 16720 28750 36231 47628 58518 71150 8462 17514 30289 36364 47774 59366 71192 Næsti útdráttur fer fram 8. desember 2022 Heimasíða: www.das.is Vinn ingu r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) Vinn ingu r Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinn ingu r Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 3707 14752 44950 51733 60199 Vinn ingu r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2068 27854 34319 42189 57447 72398 6197 33008 38433 44114 57990 73412 13882 33404 38827 45730 58103 74537 15229 33730 39664 51873 66541 74616 Aða l v i nn ingu r Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 4 0 0 9 8 31. útdráttur 1. desember 2022 VANDAÐIR STÓLAR fyrir ráðstefnu- og fundarsali Mikið úrval af húsgögnum og innréttingum fyrir hótel, mötuneyti, veitingastaði, ráðstefnur, fundi o.fl. Komdu og kynntu þér úrvalið. Við sérpöntum eftir þínum óskum! Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími: 580 3900 | fastus.is Þeir sem fengu vand- aða eðlisfræðikennslu á skólagöngu sinni kann- ast eflaust við sérstöðu orkuhugtaksins. Orka er ólíkindafyrirbæri, sem umvefur okkur í margs kyns myndum, en er samt að mestu ósýnileg. Frá upphafi siðmenningar hefur hagnýting hennar verið mannkyninu stór áskor- un. Lausnarorðið nú er „orkuskipti“, göfugt markmið í bar- áttunni við loftslagsvá og veðurfars- breytingar. Mikilvægt er þó að gefa því gaum að það snýst ekki um að skipta „vondri orku“ út fyrir „góða orku“. Stóra áskorunin er tvíþætt: Í fyrsta lagi að reyna að hverfa frá orkugjöfum eins og olíu og kolum og nýta í staðinn endurnýjanlega orku- gjafa eins og fallvötn, jarðhita, vind og sól. Í öðru lagi þarf að hægja á ferð kerfisins, minnka umsvif og draga þannig úr orkuþörf að því marki sem skynsamleg hagstjórn leyfir. Siðmenning og hin hagnýta heimspeki Í greinaskrifum árið 1927, Raflýs- íng sveitanna, lét Halldór Laxness í ljós þá skoðun að Íslendingar þyrftu að temja sér „hagnýta heimspeki“ í viðleitni sinni að nýta orku á leið sinni til siðmenningar: „Maðurinn er ekki urðarköttur… Hann er skapaður í guðs mynd og á að hafa rafljós og raf- hitun og stóran spegil svo að hann geti nógu oft virt fyrir sér hvernig mynd guðs lítur út.“ Höfum hugfast að á þeim tíma lét umheimurinn sig lítið varða okkar „Ægi girta eyland yst á Ránarslóðum“ eins og Matthías Joch- umsson orðaði það. Um miðja 20. öld voru aldraðir Ís- lendingar spurðir hvaða framfarir hefðu breytt mestu í lífi þeirra. Virkj- un lækja og raflýsing var svarið. Samt voru bílar og talsími komin til sög- unnar. Beislun orku þótti skýr vís- bending um þróun siðmenningar framan af 20. öld án tillits til uppruna orkunnar eða áhrifa á umhverfið. Nú, tæpri öld síðar, telst það vísbending um siðmenningu og hagnýta heim- speki að viðurkenna og bregðast við vandamálum sem fylgja orkuöflun á tímum hnattvæðingar. Manneskjan er vissu- lega ekki urðarköttur er sættir sig við myrkur og kulda, eins og Nób- elsskáldið vildi sagt hafa. En hún er engu bættari sem stafrænt viðundur í leit að sífellt meiri lífsþægindum í baðlónum og heitum pottum, böðuð LED- ljósum og samfélags- miðlatísti í „græna hringrásarhagkerfinu“ sínu. Græn orkuskipti: Skjótur ávinningur eða útópísk vongleði? Hér var ekki ætlunin að gera lítið úr hugmyndinni um „grænt hringrás- arhagkerfi“, en „hvaða klisja er það?“, svo notuð séu orð úr kveðskap Emm- sjé Gauta. Græn iðnbylting, grænt plan og grænt hringrásarhagkerfi mega ekki verða tilgerðarlegir frasar og uppskafning. Samkvæmt upplýsingavefnum orkuskipti.is gæti ávinningur af orku- skiptum orðið 1.400 milljarðar þegar líður á þessa öld – guð láti gott á vita. En því miður er það útópísk vongleði að halda að fullkomin græn orkuskipti séu handan við hornið. Aukin tækni og þróun aðferða vekja að vísu bjart- sýni, til dæmis við beislun vindorku. En henni munu samt fylgja ann- markar svo sem hljóð- og sjónmengun og óæskileg áhrif á plöntu- og dýralíf, auk þess sem vindorkuvæðing er frek á land og efnislegar auðlindir. Veð- urfar á Íslandi er óstöðugt sem skap- ar óvissu í framleiðslugetu vindmylla; engin framleiðsla er í logni og hverf- andi lítil ef vindhraði fer yfir 25 m/sek. Heppileg landssvæði fyrir vind- orkugarða er vart að finna hér auk þess sem stofn- og rekstrarkostnaður er mun meiri en annarra endurnýj- anlegra orkugjafa. Hlut sólarorku í orkuskiptum á Ís- landi má afskrifa með þeim einföldu rökum að lega landsins býður ekki upp á slíkt og eru þá ótalin vandamál sem fylgja beislun slíkrar orku annars staðar í heiminum. Fallvötn og jarð- hiti eru þær grænu orkuuppsprettur sem Íslendingar reiða sig mest á. En eins og ítrekað hefur komið fram þá er vandinn við að beisla orku fallvatna umtalsverður og á morgunfundi Sam- orku 17. nóvember síðastliðinn lýstu sérfræðingar áhyggjum af því að jarð- hitaauðlindir okkar myndu engan veginn þola þann ágang sem vænta mætti í náinni framtíð. Það er því lítt minni hugsanadoði að telja að knýja megi öll hjól samfélags- ins áfram á orku frá endurnýj- anlegum orkugjöfum frekar en með jarðefnaeldsneyti. Bið verður á að Bo- eing-737 hefji sig til flugs á orku einni saman, sem fengin er frá endurnýj- anlegri orkuauðlind. Hæglæti og fyrirhyggja Kristján Kristjánsson, stjórnandi Sprengisands, hitti líklega naglann á höfuðið þegar hann spurði hvort svar- ið við loftslagsvandanum væri ekki einfaldlega að draga úr vexti og minnka umsvif; vissulega væri það ögrun við hagvöxt, eðli hins alltum- lykjandi, hnattræna kapítalisma. En hvað sem öðru líður þá er það ekkert annað en glórulaust ábyrgðarleysi að setja jafnaðarmerki milli hagvaxtar og gegndarlauss túrisma, þenslu, þéttingar byggðar og fjölgunar íbúa. Ísland mætti e.t.v. hafa í heiðri sið- menningu og hagnýta heimspeki á borð við þá sem asíska smáríkið Bút- an er þekkt fyrir, temja sér hæglæti og fyrirhyggju til að girða fyrir óheppileg áhrif „massatúrisma“, of- þenslu og offjölgunar. Í Bútan eru sjálfbærni og umhverfisvæn ferða- þjónusta höfð að leiðarljósi og það að standa vörð um þjóðmenningarleg gildi og viðunandi rými fyrir íbúa landsins (High Value – Low Volume Policy). Orka og hagnýt heimspeki Meyvant Þórólfsson »…taka til eftir- breytni smáríkið Bútan með hæglæti, fyrirhyggju og sjálf- bærni að leiðarljósi gegn áhrifum „massa- túrisma“, ofþenslu og offjölgunar. Meyvant Þórólfsson Höfundur er háskólakennari á eftirlaunum. meyvantth@gmail.com Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.