Morgunblaðið - 02.12.2022, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022
✝
Jóhannes Guð-
mundsson
fæddist 18. desem-
ber 1931 á Sauð-
árkróki. Hann lést
á Heilbrigðis-
stofnun Vestur-
lands Hvamms-
tanga 19. nóvem-
ber 2022.
Foreldrar Jó-
hannesar voru El-
ín Hermannsdóttir
frá Hofsósi, f. 1903, d. 1982,
og Guðmundur Jóhannesson
frá Móbergi í Langadal, f.
1904, d. 1981.
Nokkura mánaða gömlum
var Jóhannesi komið í fóstur
hjá Hólmfríði Helgadóttir, f.
1886, d. 1966, og Einari Jó-
hannssyni, f. 1877, d. 1981,
bónda og bókbindara í Mýr-
arkoti í Höfðahreppi.
Albróðir Jóhannesar var
Jón Helgi, f. 1935, d. 2016.
Auk þess eignaðist Jóhann-
es sex hálfsystkin sammæðra
og 15 hálfsystkin samfeðra.
Jóhannes giftist 31.12. 1955
Sigrúnu Jóneyju Björns-
dóttur, f. 18.6. 1933, d. 10.5.
2021. Foreldrar hennar voru
Sigríður Jónsdóttir, f. 1892,
d. 1972, og Björn Jósefsson, f.
1896, d. 1971, frá Hrapps-
stöðum í Víðidal.
Börn Sigrúnar og Jóhann-
esar eru: 1) Óskar Sveinbjörn,
f. 1954. Maki Rósa Stefáns-
dóttir, f. 1953. Börn þeirra
eru: a) Elsa R., f. 1976. Eigin-
maður Birgir Jónsson, f.
1970. b) Eva Sigrún, f. 1981.
Sambýlismaður Einar Krist-
jánsson, f. 1980. c) Stefán
Örn, f. 1987. Sambýliskona
Erna Arnardóttir, f. 1989. 2)
Elísabet, f. 1955. Maki Sigfús
Þráinsson, f. 1954. Sonur
þeirra er Sigfús, f. 1976. 3)
Jóhannes Rúnar, f. 1960.
Sambýliskona Guðrún Mar-
grét Birkisdóttir, f. 1967.
Börn Jóhannesar
og Sigríðar Nönnu
Egilsdóttur, f.
1966, eru: a) Sig-
rún Ósk, f. 1990.
Sambýlismaður
Þórir Bergsson, f.
1988. b) Egill
Árni, f. 1994. 4)
Baldvin Þór, f.
1960. Sambýlis-
kona Sigríður Sig-
mundsdóttir, f.
1959. Börn þeirra eru: a)
Daníel Örn, f. 1992. Sambýlis-
kona Brynja Rúnarsdóttir, f.
1994. b) Marta Sif, f. 1998. c)
Sonur Baldvins og Sigur-
bjargar I. Magnúsdóttur, f.
1960, er Elías Ásgeir, f. 1982.
Maki Elíasar er Karen
Erlingsdóttir, f. 1980.
5) Berglind, f. 1971. Synir
Berglindar og Rögnvaldar S.
Hilmarssonar, f. 1963, eru: a)
Hilmar Snorri, f. 1993. Sam-
býliskona Írena Birta Gísla-
dóttir, f. 1998. b) Jóhannes, f.
1996. Sambýliskona Mómey
Ruth Ketmanee Torfadóttir, f.
1998. c) Sindri Snær, f. 2000.
d) Dóttir Berglindar og Þor-
bergs Friðrikssonar, f. 1973,
er Andrea Líf, f. 2009.
Langafabörnin eru 15 tals-
ins.
Skólanám Jóhannesar var
lítið, aðallega heima- og fjar-
kennsla. Um fermingu yfirgaf
hann heimahagana og fór suð-
ur. Hann sinnti ýmsum störf-
um sem ungur maður en
lengst af starfaði hann við sitt
eigið fyrirtæki á sviði inn-
flutnings og innrömmunar.
Hann undi sér best úti í
náttúrunni þar sem hann
sinnti einnig sínum helstu
áhugamálum og þá aðallega
ljósmyndun.
Útför Jóhannesar fer fram
frá Víðidalstungukirkju í Víði-
dal í dag, 2. desember 2022,
klukkan 13.
Það er endir á öllu. Faðir
minn sem lærbrotnaði í byrjun
október sl. hafði beðið eftir
mati á heilsu sinni til að komast
inn á heilbrigðisstofnun þar
sem ég taldi víst að hann myndi
dvelja til margra ára. Við höfð-
um rætt það að hann yrði ef-
laust að minnsta kosti 100 ára,
sem hann dró þó í efa, en
margir í hans föðurætt náðu
háum aldri. Óhappið dró hins
vegar dilk á eftir sér.
Vegir liggja til allra átta,
koma víða við í leik og starfi, í
blíðu og stríðu.
Leið foreldra hans lá ekki
saman en pabbi átti einn al-
bróður og fjölmörg hálfsystkini
í báðar ættir. Nokkurra mán-
aða gamall var pabbi settur í
fóstur til Einars Jóhannssonar
og Hólmfríðar Helgadóttur í
Mýrarkoti á Höfðaströnd í
Skagafirði þar sem hann undi
hag sínum vel og minntist þar
góðra tíma og hélt hann alltaf
sambandi við þau. Það markaði
þó pabba alla tíð að vera ekki í
sambandi við blóðfjölskyldu
sína. Í minni æsku var þó sam-
band við Dísu hálfsystur hans
frá Sjólyst í Grindavík. Seinna
náði pabbi sambandi við móður
sína á Hofsósi ættaða úr Fljót-
unum og var það honum skilj-
anlega mikilvægt.
Sem unglingur fór hann að
vinna fyrir sér með hinum
ýmsu störfum til sveita. Pabbi
gerðist líka ráðsmaður á nokkr-
um góðum kúabúum á yngri ár-
um, meðal annars Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð, Viðey, Blika-
stöðum og Laugarvatni. Síðar
reyndi hann fyrir sér stuttlega
sem bóndi á Álftanesi á Mýrum
og síðan á Syðstu-Grund undir
Eyjafjöllum. Hann starfaði
einnig sem bílstjóri og við bíla-
réttingar um tíma. Hans að-
alstarfsferill var við innrömm-
un og innflutning á
rammalistum hjá Rammavali
sem hann stofnaði og rak í ára-
tugi. Hann þótti vandvirkur og
handlaginn.
Pabbi kom víða við í áhuga-
málum og þar mætti helst
nefna skotveiði, útskurð, mynd-
list, ættfræðigrúsk, harmon-
ikkuleik og hina ýmsu útivist,
m.a. stundaði hann skauta og
skíði ásamt okkur systkinunum.
Lengi var hann einnig með
skrautfiska en fyrst og síðast
var það hinn mikli ljósmyndaá-
hugi sem fylgdi honum alla tíð.
Minnist ég margra ferða með
honum þar sem við fórum ým-
ist á myndlistarsýningar eða í
ljósmyndatúra þar sem við
höfðum báðir okkar hugmyndir
um myndefni og myndatöku.
Pabbi hafði líka gaman af
mönnum og málefnum og var
óhræddur við að segja sínar
skoðanir, sem gat fallið misvel,
var næmur á hlutina og tilfinn-
ingaríkur, ásamt því að fara oft
sínar eigin leiðir.
Eftir að mamma lést í maí í
fyrra fór að halla undan fæti
hjá pabba og hann fór að láta á
sjá, sérstaklega síðustu mán-
uðina. Eftir óhappið var ljóst í
hvað stefndi.
Fyrir hönd fjölskyldunnar vil
ég þakka kærlega starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Vestur-
lands á Akranesi og á
Hvammstanga fyrir frábæra
umönnun.
Þá vil ég þakka sérstaklega
Halldóri, Hjalta, Systu og
Kristjáni fyrir ykkar hjálp og
góðmennsku.
Elsku pabbi, hinsta kveðja til
þín frá okkur fjölskyldunni.
Óskar.
Jóhannes
Guðmundsson
✝
Finnbogi Geir
Guðmundsson
fæddist á Hvoli í
Innri-Njarðvík 4.
október 1937.
Hann lést 16. nóv-
ember 2022 á
hjúkrunarheim-
ilinu Sæborg á
Skagaströnd.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Alfreð Finn-
bogason frá Tjarnarkoti, Innri-
Njarðvík, f. 8.11. 1912, d. 19.4.
1987, og Guðlaug Ingveldur
Bergþórsdóttir frá Suðurgarði
í Vestmannaeyjum f. 18.11.
1908, d. 4.4. 1985. Systkini
Finnboga: Óskírður drengur, f.
22.11. 1933, d. 27.3. 1934, Stef-
anía f. 28.10. 1934, d. 1.8. 2018,
Vestmannaeyjum og síðar skip-
stjórnarréttindum á 30 tonna
bát.
Finnbogi stundaði snemma
vinnu bæði á sjó og landi. Hann
starfaði aðallega við sjó-
mennsku og fiskvinnslu m.a. á
Austfjörðum og í Vestmanna-
eyjum. Hann starfaði svo í
mörg ár sem háseti á milli-
landaskipum /farskipum hjá
Víkurskipum og sigldi þá víða
um lönd. Árið 1990 hóf hann
eigin rekstur með smábát og
stundaði þá útgerð í nokkur ár.
Eftir það starfaði hann víða um
landið við fiskvinnslu og önnur
tilfallandi verkamannastörf.
Hann bjó lengi vel í Kópavogi
en fluttist síðar út á land og
bjó m.a. í Búðardal og á Ak-
ureyri. Frá því snemma árs
2021 dvaldist hann á hjúkrun-
arheimilinu Sæborg á Skaga-
strönd.
Útför hans fer fram í dag, 2.
desember 2022, í Hólaneskirkju
á Skagaströnd og hefst athöfn-
in klukkan 14.
Guðbjörg Edda, f.
20.1. 1936, d. 24.5.
2019, Laufey Ósk,
f. 10.9. 1940, d.
30.10. 2019, Jón
Björgvin, f. 16.12.
1941, d. 27.4. 1942,
og Jón Már, f. 16.8.
1943, d. 5.8. 2022.
Finnbogi ólst
upp á Hvoli í Innri-
Njarðvík en fór
ungur á sumrin til
Vestmannaeyja og dvaldist þar
hjá móðurfjölskyldu. Eftir
barnaskóla stundaði hann nám
í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni. Var svo hjá KÁ á Sel-
fossi, stundaði nám í pípulögn-
um á Selfossi og lauk sveins-
prófi 1963-1964. Hann lauk
síðar vélstjórnarnámskeiði í
Nú hefur hann Bogi, elskulegi
föðurbróðir minn, kvatt okkur.
Minningarnar sem koma upp um
Boga eru hvort tveggja, hjúpaðar
mikilum hressleika og kátínu, en
einnig mikilli rósemd og yfirveg-
un.
Elsku Bogi minn!
Það gat oft verið glatt á hjalla
þegar þú greipst í gítarinn þegar
ég og bróðir minn vorum í pössun
hjá þér í kringum 1990.
Sem barn var svo gaman að
upplifa hvað þú áttir oft auðvelt
með að vera þessi gleðigjafi í af-
mælum, veislum eða jafnvel á
ferðalögum en þau voru nokkur
ferðalögin um landið sem þú
komst með okkur fjölskyldunni
minni í. Einnig fylgdi þér alltaf
ákveðin gleði og hressleiki þér
þegar þú kíktir í heimsókn í sveit-
ina mína í Dölunum.
Húmorinn og hláturinn á þess-
um góðu stundum er heldur bet-
ur eftirminnilegur!
Svo þegar við horfðum á fót-
boltann saman en þú varst harð-
ur stuðningsmaður ÍBV og Man-
chester United. Þá gat innlifunin
verið mikill og heitt varð í hamsi
en svo hlegið að öllu saman eftir
á!
Á rólegri stundum gastu spilað
ólsen ólsen við okkur krakkana
tímunum saman, teflt við okkur
eða farið með okkur í langar
sundferðir, líkt og tíminn væri
ekki til. Þá var ekkert verið að
flýta sér. Stundum gerðirðu þér
ferð úr Kópavoginum inn í Hafn-
arfjörðinn til að fara með mig og
bróður minn í laugina!
Um árabil bjóstu í Fífuhvamm-
inum í Kópavogi, á efri hæðinni í
tvíbýlishúsi og Stella frænka,
systir þín, bjó á neðri hæðinni.
Þvílíkt sem það gat verið gaman
að heimsækja bæði Stellu og
Boga í einni ferð! Bæði svo hjarta-
hlýjar og indælar manneskjur!
Já þær eru svo margar minn-
ingarnar að þær verða ekki allar
taldar upp hér. En að lokum verð
ég að minnast á Guð. Guðsmaður
varstu mikill eins og margra sjó-
manna var siður. Ég veit að trúin
og bænirnar voru þér hvort
tveggja í senn, lífsfylling og hald-
reipi þegar gaf á bátinn.
Því er mér svo hlýtt í hjartanu
að vita að þegar þú kvaddir á hinu
indæla dvalarheimili Sæborg á
Skagaströnd, að þá var prestur
hjá þér að fara með Guðs orð. Já
hann elskulegi Guð okkar er svo
sannarlega alltaf nálægur Guðs-
mönnum og öllum hinum líka!
Takk fyrir allt elsku Bogi
frændi.
Finnbogi Þorkell
Jónsson
Þá er hann Bogi frændi búinn
að kveðja okkur eftir baráttu við
illvígan sjúkdóm.
Það rifjast upp margar
skemmtilegar minningar um góð-
an frænda og þá ekki síst þegar
hann var í essinu sínu á árum áð-
ur.
Bogi kom t.d. með okkur fjöl-
skyldunni í eftirminnileg ferðalög
um landið á árunum 1986-1989 en
upp úr standa þó ótal heimsóknir
til Boga í Fífuhvamminn í Kópa-
vogi um og upp úr 1990, þar sem
maður gat dvalið heilu helgarnar.
Þá var gjarnan gripið í gítarinn,
spilaður ólsen, tefldar óteljandi
skákir, horft á fótbolta og hvað við
gátum hlegið endalaust. Óteljandi
voru svo allar sundferðirnar, jafn-
vel tvisvar á dag. Þannig var
ávallt gaman hjá okkur frændum,
þetta voru skemmtilegir tímar og
eftirminnilegar samverustundir
sem urðu mjög margar í gegnum
árin – enda gat maður oft kíkt til
Boga með engum fyrirvara. Hann
kom líka oft sjálfur við hjá okkur í
Hafnarfirðinum og stoppaði þá
stundum lengi. Við héldum svo
alltaf reglulegu og góðu sambandi
eftir því sem árin liðu, hringd-
umst oft á, hittumst öðru hverju
og fórum jafnvel líka í styttri
ferðalög saman um landið. Í nokk-
ur skipti heimsótti ég líka Boga
þar sem hann bjó úti á landi
hverju sinni. Í gegnum árin héld-
ust því ávallt sterk og traust
bönd.
Bogi var umfram allt drengur
góður og þótt lífið hafi stundum
ekki verið sléttur sjór hafði Bogi
húmor sem hann taldi sjálfur afar
mikilvægt. Hann hafði gaman af
því að gantast og sprella, var
þannig barngóður og gat gefið af
sér heilmikið. Oft hélt hann uppi
fjöri með spili og söng, t.d. í af-
mælum eða á jólunum sem hann
varði stundum með okkur. Þess á
milli tók hann það oft rólega, lagði
kapal eða leit í blöðin.
Síðustu árin fór að halla undan
fæti, heilsunni hrakaði og nú síð-
ast þegar ég heimsótti hann tví-
vegis í sumar var nokkuð ljóst í
hvað stefndi.
Það er því með söknuði sem ég
kveð Boga. Minningarnar um
góðan frænda og óteljandi
skemmtilegar samverustundir
munu ávallt lifa.
Hvíldu í friði Bogi frændi minn.
Hann situr við gluggann gamall maður
gengið dagur hefur tímans til
Um hug hans flæðir fljót af orðum
sem finna ekki skáldið sitt
Í hrauninu svipir hins liðna líða
látnir vinir stoppa um stund
Og augu hans virðast vakna til lífsins
þegar vofurnar hverfa á hans fund
Um Herdísarvíkina vængstýfður situr
völdum rúinn einn og sér
Í Herdísarvík heyrist vængjaþytur
vængjaþytur þegar skyggja fer
(Bubbi Morthens)
Karvel Aðalsteinn
Jónsson.
Finnbogi Geir
Guðmundsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
ELLERT KÁRASON,
Austurbyggð 17,
Akureyri,
lést miðvikudaginn 16. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Ásta L. Pálsdóttir
Baldur Ellertsson
Páll Á. Ellertsson
Hallur Á. Ellertsson
Kári Ellertsson Aldís B. Arnardóttir
Ólöf Ellertsdóttir Þorvaldur Örlygsson
og afabörnin öll
BJÖRG EINARSDÓTTIR
rithöfundur,
er látin. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 20. desember
klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir.
Guðmundur Ingi Haraldsson Bjarnfríður Guðmundsdóttir
Einar Hrafnkell Haraldsson Guðrún Sigurjónsdóttir
María Haraldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BENEDIKT ANDRÉSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Seltjörn
laugardaginn 26. nóvember.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 7. desember klukkan 13.
Fjölskyldan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til
starfsfólks hjúkrunarheimilisins Seltjarnar.
Guðrún Benediksdóttir Halldór Jónsson
Árni Hjaltason
Auður Benediktsdóttir Guðni Karl Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
STEINAR BALDURSSON,
Áshlíð 14, Akureyri,
lést í faðmi fjölskyldunnar laugardaginn
19. nóvember.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Heiðbjört Svala
Unnur Björk
Ásdís Matthildur David Heath
afa- og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
GUÐNÝ MAREN HJÁLMARSDÓTTIR,
Klapparbraut 10, Suðurnesjabæ,
lést fimmtudaginn 24. nóvember
á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut. Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey að einlægri
ósk hennar. Sérstakar þakkir fær starfsfólk gjörgæsludeildar
fyrir einstaka umönnun og umvefjandi hlýju.
Burkni Dómaldsson
Elva Björk Gunnarsdóttir
Silja Rut Ragnarsdóttir Bjarni Andrés Arason
Brynjar Freyr Burknason Árný Jensen
Freyja Ösp Burknadóttir Elmar Diego
Burkni Dagur Burknason Kristín Arna Hjaltadóttir
barnabörn og langömmubarn