Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 02.12.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 ✝ Katrín Mar- grét Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 21. febrúar 1942. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 18. nóvem- ber 2022. Foreldrar henn- ar voru Gréta Sig- urborg Guðjóns- dóttir verslunar- kona, f. 4.11. 1910 í Reykjavík, d. 22.5. 1993, og Ólafur Haf- steinn Einarsson kennari, f. 1.8. 1908 í Reykjavík, d. 16.10. 1988. Systkini Katrínar Mar- grétar eru Elín G., fv. borg- arfulltrúi, kennari og skóla- stjórnandi, f. 28.11. 1933, d. 2.1. 2015, Edda Sigrún lög- maður, f. 17.4. 1936, d. 13.3. 2017, og Guðjón Eiríkur, fræðslustjóri og sérkennslu- fræðingur, f. 10.4. 1945. Katrín Margrét giftist 12.7. 1963 Matthíasi Matthíassyni skipstjóra, f. 29.4. 1943. Börn Katrínar og Matthías- ar eru: 1) Gréta náms- og starfsráðgjafi, f. 15.4. 1964, gift Gunnari Gunnarssyni tón- listarmanni. 2) Matthías fram- kvæmdastjóri, f. 26.9. 1966, í sam- búð með Helen Neely fjárfesti. 3) Guðríður flug- freyja, f. 24.7. 1971, í sambúð með Sigurði Ein- ari Sigurðssyni flugmanni. Katrín Margrét lætur eftir sig átta barnabörn, þau Birtu, Heiðdísi, Katrínu Sól, Matthías Knút, Ólaf Hauk, Markús Mar, Steinar Kára og Fönn; og þrjú barnabarnabörn, Jón Gunnar, Birki Kára og Katrínu Kríu. Katrín Margrét gekk í Leik- listarskóla Reykjavíkur og lauk prófi þaðan 1963 og stundaði endurmenntun hjá Leiklistarskóla Íslands árið 1978. Hún starfaði lengi hjá RÚV við textavélritun, starfaði í Útvegsbanka Íslands og á Landakoti sem meðferðar- fulltrúi. Jarðarför Katrínar Margrét- ar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 2. desember 2022, kl.15. „Bless ástin mín, farðu varlega og passaðu þig“ voru oft kveðju- orð mömmu. Elsku mömmu okk- ar, sem gaf okkur svo ótal margt. Við munum hana sem einstaklega næma, hjartahlýja og hugmynda- ríka. Hún fann upp á svo mörgu skemmtilegu og það má með sanni segja að hún hafi farið ótroðnar slóðir í mörgu. Fór með okkur í ímyndunarleiki þar sem slegið var í silfurfat með priki og galdraði okkur inn í ævintýri. Enda var mamma leikkona sem hafði ástríðu og áhuga fyrir leik- húsi. Hún sendi okkur með vasa- ljós í skólann þegar það var dimmt og skapaði kósístundir þegar heim var komið. Henni var svo annt um okkur og allt sitt fólk og gerði allt sem í hennar valdi stóð til að vernda okkur öll og gera lífið ævintýri líkast. Mamma skapaði margar hefðir sem okkur eru mjög kærar. Við fengum einnig tækifæri til að ferðast víða með þeim mömmu og pabba og alltaf var til staðar gleði og þrá eftir að skoða og skapa. Þetta var fyrir okkur ómetanlegt veganesti út í lífið. Mamma var frumkvöðull og frumleg í svo mörgu. Hún fór út að hlaupa á áttunda áratugn- um og horft var á hana sem stór- undarlega, hún kallaði það að fá sér frískt loft og láta hjartað pumpa. Hún var mikið náttúru- barn og elskaði ferska loftið og hreifst með, dáðist að og tók eftir hinu smáa; fallegum steinum og sá ævintýrin í skýjunum. Mamma hafði alla tíð áhuga á tísku og að klæða sig fallega. Oftar en ekki fór hún ótroðnar slóðir í því. Allt- af svo töff og smart, með blómin sín í hárinu. Það er lýsandi fyrir mömmu að hún fór í hárgreiðslu tveim dögum áður en hún dó, þá mikið veik, og fór svo í hamingju- búðina á Grund og keypti sér peysu. Heimili hennar og pabba var alla tíð listrænt og fallegt og hafði hún mikið yndi af að búa til fallega stemningu í kringum sig og okkur. Mamma og pabbi voru samstiga hjón sem elskuðu hvort annað. Þau höfðu bæði mikinn áhuga á listum og menningu, þræddu listasöfn og sýningar hérlendis og erlendis og fóru á djasshátíðir og tónleika. Drógu hippahúsið sitt (fellihýsi) á eftir sér og nutu þess að vera saman í Hosíló, litla fallega sumarbú- staðnum sínum við Þingvallavatn. Þau stigu lífsdansinn saman af mikilli fegurð og ást. Barnabörn- in voru mömmu einkar kær og dýrmæt. Hún lagði sig eftir því að leika við þau og skapa hefðir og stemningu fyrir þau. Hún bakaði t.d. alltaf sírópskökur fyrir jólin, las jólasögu og spilaði alltaf sömu jólaplötuna. Mamma greindist með parkin- sons eða pestina eins og hún kaus að kalla sjúkdóminn. Hún var æðrulaus og ótrúlega dugleg að lifa með sjúkdómnum. Hún var heima í pabba fangi fram á vorið 2022. Saman tókust þau á við lífs- ins verkefni og pabbi stóð sig ótrúlega vel í að hugsa um mömmu. Fyrir það erum við þakklát. Mamma dvaldi á Grund síðasta hálfa árið og talaði um að hún væri á „Hilton“; gerði alltaf gott úr öllu og snerti við öllum sem um hana sáu á þessum tíma. Hún var komin aftur í besta Vest- urbæinn sinn og elskaði að kom- ast út og ganga í gegn um „bakkó“ og skoða sínar æskuslóð- ir á Ljósvallagötunni. Við systk- inin viljum þakka starfsfólki Grundar fyrir einstaka umönnun og hlýju. Lífið verður litlausara og fátæklegra án mömmu. Við munum halda minningu hennar á loft með því að halda áfram að skapa ævintýri og lifa fallega. Líf- ið er ævintýri – takk fyrir allt, mamma okkar besta. Við elskum þig. Gréta, Matthías (Matti) og Guðríður (Gurrý). Elsku amma okkar! Amma Dadý! Amma Ó-ó! Það er svo óskaplega sárt að horfa á eftir þér. Tómarúmið sem þú skilur eftir verður aldrei hægt að fylla. Við systurnar erum samt svo óendanlega þakklátar fyrir minn- ingarnar sem við eigum um þig og við munum að eilífu búa að þeirri takmarkalausu ást sem þú barst til okkar. Ástinni sem þú og afi eigið og báruð hvort til annars, til allra í fjölskyldunni og til alls lífsins. Þú varst nefnilega þannig. Þú varst full af ást, gjafmildi og væntumþykju, og við fengum svo sannarlega að njóta hennar. Þú varst frábær amma. Frekar skrítin og dálítið óvenjuleg, en það var líka eins gott því „hver vill eiginlega vera venjulegur?!“ sagðir þú stolt. Auðvitað eru allar ömmur ein- stakar en þú varst eitthvað ann- að! Alltaf svo hlý, svo einlæg og skilningsrík. Þú hafðir svo ósvik- inn áhuga á öllu sem við gerðum, varst okkar helsti aðdáandi og að- al-peppari. Til dæmis áttirðu það til að hjóla borgina þvera til þess að heilsa upp á okkur og verða vitni að misáhugaverðri sumar- vinnu og tilbúin að hrósa okkur fyrir minnsta „afrek“. (Grænmet- inu var áberandi vel raðað í Krón- unni þarna á tímabili.) Stoltust af öllum settirðu dans- myndböndin af okkur á YouTube, og deildir þeim svo á Facebook, sem og ófáum statusum af mis- merkilegum áföngum í lífi okkar barnabarnanna. Við erum svo þakklátar fyrir hvernig þú áttir alltaf tíma fyrir okkur. Þú gafst þér tíma til að sitja með okkur og hlusta. Setja þig inn í allt sem vorum að takast á við, og reyna að skilja. Hjá þér mættum við alltaf öryggi og hlýju. Það verður seint hægt að toppa það hvernig þú árvökul fylgdist með okkur og passaðir áður en við höfðum nokkurt vit sjálfar. Tókst varla af okkur aug- un, en það er einmitt ástæðan fyr- ir því að þú fékkst gælunafnið Amma Ó-ó. Okkur skilst að það sé frekar óalgengt að börn séu látin vera með hjólahjálm innandyra til að forða þeim frá tjóni. En svona varstu líka fyndin og skemmtileg! Full af gleði og ham- ingju og alltaf tilbúin til að leika við okkur í hinum ýmsu ímynd- unarleikjum og lenda með okkur í ævintýrum. Knúsaðir okkur svo, baðst um eina kinn til að kyssa og sagðir svo: „Þetta er best í heimi!“ Þú hafðir ógleymanlega út- geislun, og auga fyrir öllu sem var fallegt. Þú varst alltaf svo smart og mikil skvísa. Í fallegum fötum með blóm í hárinu. Umvaf- in fallegum hlutum og listaverk- um. Heimilið ykkar afa er ekki bara fyllt af ást og væntumþykju, heldur líka bara svo mikilli fegurð og birtu. Við munum sakna þín að eilífu og búa að ástinni sem þú gafst okkur. P.s. Við lofum að kjósa skrítn- asta Eurovision-lagið fyrir þig. Þínar Heiðdís, Birta og Katrín Sól, Grétu- og Gunnarsdætur. Amma lumaði alltaf á góðgæti handa okkur og átti alltaf eitt- hvað gott til í skúffunni sinni og gaf sig ekki fyrr en við vorum búnir að fá okkur og helst taka með okkur eitt prins póló í nesti. Í hanskahólfinu í bílnum voru brjóstsykursmolarnir síðan alltaf á sínum stað. Amma spilaði á gítar og söng alltaf fyrir okkur þegar við kom- um í heimsókn og svo þegar hún hafði ekki heilsu til að spila þá bað hún okkur að lesa fyrir sig upp úr ljóðabókum og hafði mest gaman af ýmsum gömlum gamanvísum úr litlu rauðu ljóðabókinni sinni. Amma gerði besta rækjusalat í heimi og sama hvað mamma reyndi var það aldrei alveg eins og hjá ömmu og afa. Við bjuggum lengi erlendis og hittum ömmu því bara um jól og á sumrin þegar við komum til Ís- lands en amma og afi komu líka í heimsóknir til okkar og eigum við margar góðar minningar tengdar þeim heimsóknum. Eftir að við fluttum heim hittum við ömmu reglulega og búum við að því og þykir vænt um allar fallegu minn- ingarnar um ömmu. Við kíktum oft í heimsókn til ömmu og afa í Hosíló, litla krútt- lega bústaðinn þeirra, enda var bústaðurinn okkar nánast við hliðina á þeim. Eftir veiðiferðir á bátnum komum við alltaf við, sýndum þeim aflann og gáfum afa og ömmu ferska bleikju. Í Hosíló var amma með fallega steinasafn- ið sitt og þótt steinarnir væru nánast óteljandi margir þá átti amma minningar og gat sagt okk- ur skemmtilegar sögur um hvern og einn einasta, hvar hún fann þá, hvernig veðrið og jafnvel himinn- inn var, marga þeirra hafði hún flutt með sér heim frá útlöndum. Amma var einstök kona, hún var svo jákvæð og dugleg að hrósa okkur, alveg sama hversu litlu eða miklu okkur fannst við hafa áorkað. Hún hafði alltaf endalausa trú á okkur, alveg sama hvað við tókum okkur fyrir hendur, og hvatti okkur áfram í því, hún lagði bara upp úr því að okkur liði vel. Amma var bara þannig að manni leið alltaf vel í hennar nálægð; alveg sama hvað gekk á þá var amma alltaf jafn hjartahlý góð og jákvæð við okk- ur strákana og svo var hún alltaf svo flott og töff til fara. Þegar við vorum að koma úr heimsókn til ömmu og afa á Kristnibrautina þá stóð hún alltaf úti í glugga og veifaði okkur þeg- ar við keyrðum niður götuna fram hjá húsinu þeirra afa og eig- um við alltaf eftir að horfa upp í gluggann hennar þegar við keyr- um þennan veg, horfa í gluggann og hugsa fallega til ömmu. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur og kennt í gegnum ævina. Að vera jákvæðir og góðir við allt og alla, finna gleði og hamingju í litlu hlutunum, til dæmis hjartalaga steinum sem við finnum niðri í fjöru, og fylgja hjartanu í einu og öllu. Elsku amma, takk fyrir allt. Þínir ömmustrákar, Matthías (Matti) Knútur, Ólafur (Óli Haukur) og Markús Mar. Elsku hjartans fallega og ynd- islega Dadý frænka, móðursystir okkar, er búin að kveðja þessa jarðvist. Það er óraunverulegt að hún skuli ekki lengur vera á lífi með sitt yndislega bros, hlýju og dásamlegu nærveru. Það eru fáar manneskjur sem búa yfir öllum þeim yndisþokka og fegurð sem hún Dadý bjó yfir. Hún var alltaf svo fögur að hún minnti helst á Hollywood-kvikmyndastjörnu. Dadý var líka alltaf sú flottasta í klæðaburði og bar af alls staðar þar sem hún kom. Svo var hún líka svo rómantísk. Síðustu árin hennar þegar hún þurfti að nota göngugrind vegna parkinsons- veiki gerði hún til dæmis göngu- grindina töff með bleikum blóm- um og skrauti því Dadý varð alltaf að hafa allt fallegt í kring- um sig og þá var göngugrindin engin undantekning. Og heimili hennar var alveg einstaklega fal- legt og listrænt með ótal mál- verkum á öllum veggjum eftir alla helstu listmálara landsins. Þar voru þau hjónin Dadý og Matti samstiga og söfnuðu list til þess að auðga andann og njóta í hversdeginum. En Dadý var ekki bara falleg að utan. Hún var alveg einstak- lega yndisleg manneskja, hlý og nærgætin, skemmtileg og eld- klár. Það var alltaf gaman að koma heim til hennar, því hún fylgdist vel með og þar á meðal í listaheiminum og hún spilaði iðu- lega meðal annars jazztónlist sem var sameiginlegt áhugamál þeirra hjóna. Dadý lét alltaf öllum líða vel í kringum sig og lagði sig fram um það, þannig að eftir var tekið. Dadý frænka hreinlega lýsti upp sitt nánasta umhverfi með sinni dásamlegu nærveru. Mikið sem við munum sakna hennar. Innilegar samúðarkveðjur, elsku Matti, Gréta, Gurrý, Matti yngri, tengdafólk og öll barna- börnin og langömmubörnin stór og smá. Megi Guð vera með ykk- ur. Valgerður, Sigurborg, Haraldur, Brynja Dagmar, Ása Björk og fjölskyldur. Ég minnist Katrínar eða Da- dýjar sem einstaklega litríkrar manneskju. Hún kunni öðrum fremur að punta upp á tilveruna. Allt í kringum hana var smekk- legt og fallegt og hún var bæði skemmtileg og hlý. Henni fylgdi líf og yndi. Og svo var hún svo fal- leg sjálf. Margs er að minnast en þó stendur ein minning upp úr nú þegar þessi kveðjuorð eru skrif- uð. Það var þegar elsku Kári son- ur okkar Þorleifs fæddist og þau Matti færðu okkur lítinn fugl- hnoðra úr kristal að gjöf. Þessi gjöf var svo falleg og táknræn, það skilja allir sem þekktu til Kára, hún segir meira en þúsund orð. Einnig lýsir þessi gjörningur Dadý svo vel. Allt valið af smekk- vísi og fegurð og einstakri ást á vinum sínum. Veikindi og fleira olli því að ég sá ekki Dadý í langan tíma áður en hún lést en heyrði þó af og til í henni. Til dæmis hringdi hún í mig fyrir réttu ári til að sýna mér stuðning þegar ég þurfti á því að halda. Fyrir það vil ég þakka, svo og velvilja og kærleika alla tíð. Samúðarkveðjur til elsku Matta og afkomenda. Guðný Bjarnadóttir. Elsku systir mín, Katrín Mar- grét Ólafsdóttir, er látin eftir erf- iða baráttu við illvíga sjúkdóma. Það er huggun harmi gegn að nú er hún laus við þraut og pínu sem svo sannarlega var mikil síðustu misserin. Dadý, eins og hún var kölluð af sínum nánustu, tók erf- iðleikum og sársauka veikind- anna af ótrúlegri þrautseigju og æðruleysi. Það var öllum ljóst að efst í huga hennar var að aðrir þyrftu ekki að hafa af henni áhyggjur, fyrirhöfn eða mæðu. Hún gerði líka allt til að vera „fín og sæt“ allt til síðustu stundar. Daginn áður en hún kvaddi fór hún í hárgreiðslu og keypti sér nýja peysu í verslun Grundar. „Trúboði mætti lítilli kínverskri stúlku sem rogaðist með strákanga. Þú hefur þunga byrði að bera,“ sagði trúboðinn. „Þetta er engin byrði,“ svaraði hún. „Þetta er hann bróðir minn.“ (Kínversk dæmisaga) Þessi dæmisaga á vel við og lýsir sambandi okkar Dadýjar. Hún studdi mig og varði alla okk- ar daga. Hún kunni best að hugga mig og leiðbeina og gerði það ávallt á uppbyggilegan og styðjandi hátt. Ég man vel eftir fyrstu ástarsorg minni. Ég leitaði til systra minna eftir aðstoð. Þær eldri, Elín og Edda, héldu yfir mér stuttar en hnitmiðaðar ræð- ur og sögðu m.a. að tíminn lækn- aði öll sár og að margir fínir fisk- ar væru í sjónum og að ég myndi fljótlega hitta aðra góða kærustu. Dadý aftur á móti tók mig í fang- ið og leyfði mér að gráta og hugg- aði míg eins og smábarn eins og ég var á þeirri stundu, án nokk- urra ræðuhalda. Dadý hafði oft áhyggjur, hún taldi þær og sagði mér stundum hvað þær væru margar í það og það skiptið. Þær voru oft tvær og stundum fimm. Hún fann til með þeim sem áttu erfitt, nær og fjær, hún vildi að öllum liði vel, að eng- inn væri í vanda eða liði illa. Hún var þeirrar gerðar að líta ekki undan og látast ekki sjá eða heyra. Hún gerði margt til að lið- sinna og hjálpa en alla gat hún ekki stutt, þá hafði hún áhyggjur. „Víðsýnn andi hefur samúð með öllu. Í samúðinni finnst konungdómurinn, í konungdómnum himinninn, og í himn- inum Alvaldið. Sá, sem dvelur með Al- valdinu, líður ekki undir lok; þó að lík- aminn leysist sundur er engin hætta á ferðum.“ (Lao-Tse) Ég sakna Dadýjar mikið en ég vona að arfleifð hennar og lífs- hlaup verði okkur vegvísir til skynsamlegra, jákvæðra og góðra ákvarðana og gleðiríks lífs. Ég votta eftirlifandi eigin- manni og öllum afkomendum og vinum mína dýpstu samúð. Gaukur (litli bróðir), Guðjón E. Ólafsson. Katrín Margrét Ólafsdóttir - Fleiri minningargreinar um Katrínu Margréti Ólafs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, fósturmóðir, amma, langamma og langalangamma, HELGA MAGÐALENA GUÐMUNDSDÓTTIR, Skólastíg 16, Stykkishólmi, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi mánudaginn 14. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fyrir hlýja og góða umönnun á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi og Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug. Skúli G. Ingvarsson Brynja Harðardóttir Páll Kr. Ingvarsson Kolbrún Heiða Jónsdóttir Atli Már Ingvarsson Sesselja Eysteinsdóttir Hrefna Jónsdóttir Gunnar Ólafsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, LEIF KORDTSEN BRYDE, lést á Sólvangi þriðjudaginn 22. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum starfsfólki Sólvangs í Lónakoti góða umönnun. Amalía Stefánsdóttir Stefán Kordtsen Bryde Ásdís Helgadóttir Anna María Bryde Þórður Ingvarsson Unnur Lára Bryde Stefán Hjaltested barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.