Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 24

Morgunblaðið - 02.12.2022, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL24 LÁTTU FAGFÓLK SELJA ÞÍNA EIGN FAGLEG RÁÐGJÖF VIÐ KAUPOG SÖLU HLÍÐASMÁRA 4 KÓPAVOGI - AUSTURVEGI 6 SELFOSSI & ESJUBRAUT 49 AKRANESI - SÍMI 527 1717 - WWW.DOMUSNOVA.IS Hafliði Pétur Gíslason, prófessor við Háskóla Íslands – 70 ára Vísindin efla alla dáð H afliði Pétur Gíslason fæddist árið 1952 á Hringbraut 48 í Reykjavík og ólst þar upp. Afi hans og Pétur föðurbróðir fórust með Goðafossi 1944 þegar skipið var skotið niður og Hafliði var skírður í höfuðið á þeim. „Frá efstu hæðinni á Hringbraut gátum við horft á leikina á Mela- vellinum. Við strákarnir lékum okkur i portinu sem var á milli Ljósvallagötu, Ásvallagötu og Hringbrautar og við hittumst enn- þá æskuvinirnir.“ Hafliði gekk í Ísaksskóla, Melaskóla, Hagaskóla, lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972 og varð dúx þaðan. Hann lauk fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1974. Hann lauk prófi í eðlis- verkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi árið 1977 og doktorsprófi þaðan árið 1983. „Verkfræðin dugði mér skammt, ég vildi fara í meiri fræði og fór því í eðlisfræðina.“ Hafliði fékk nafnbót dósents við háskólann í Linköping árið 1984 og var ráðinn í embætti prófessors í tilraunaeðlisfræði við Háskóla Íslands í ársbyrjun 1987. „Ég var að senda lausnarbréf mitt og er að vinda ofan af öllum mínum skyldum.“ Hafliði hefur rannsakað veil- ur í hálfleiðandi og einangrandi þéttefni allt frá doktorsnámi sínu. Veilur stjórna flestum hagnýtum eiginleikum þéttefnis, til að mynda stýra aðskotafrumeindir rafleiðni hálfleiðara sem er grundvöllur allr- ar tölvutækni, og ljóseiginleikum sem ljóstvistar byggjast á. Í meistaraverkefni sínu við Tækniháskólann í Lundi árið 1977 tókst Hafliða og félögum að mæla blátt ljós frá hálfleiðara. Þetta voru meðal fyrstu mælinga af þessu tagi, en takmark rannsóknanna var að þróa hvíta ljóstvista sem allir þekkja nú. Gallinn var að tvisturinn lýsti aðeins við hitastig nálægt alkuli. Stórstígar framfar- ir í efnistækni og efnisvísindum hafa hins vegar rutt veginn sem eðlisfræðin varðaði fyrir áratugum og eru hvítir ljóstvistar nú meðal orkunýtnustu ljósgjafa sem völ er á. „Með þessu breyttust allir skjáir, litrófið varð miklu meira, en áður höfðu skjáirnir verið grænleitir.“ Í námi og starfi sínu hefur Hafliði beitt ýmsum greiningarað- ferðum til að nálgast hið smásæja umhverfi veilna í lotubundinni grind kristalla. Hafliði stundaði um árabil rannsóknir á ljós- og rafeiginleikum hálfleiðara við eðlisfræðistofu Raunvísindastofn- unar Háskólans, en auk þess starfaði hann löngum erlendis, meðal annars við Lehigh-háskóla í Bandaríkjunum, Jussieu-háskólann í París og Linköping-háskóla, auk háskóla í Tókýó og Beijing. Fyrstu tvo áratugina eftir að Hafliði hóf störf við Háskóla Íslands batnaði aðstaða til rann- sókna í eðlisfræði þéttefnis til mik- illa muna og lagði sú uppbygging grunninn að síðari rannsóknum í örtækni við skólann. „Ég hóf þetta rannsóknateymi og nú er þetta ein af sterkustu stoðum tilraunaeðlisfræðinnar í háskólan- um og fjórir eða fimm prófessorar að vinna í þessum fræðum.“ Hafliði hefur að auki tekið þátt í samstarfi fjölda rannsóknahópa um mælingar við rannsóknastofu í eðlisfræði þéttefnis, ISOLDE, við CERN í Genf. Hafliði gegndi starfi stofustjóra eðlisfræðistofu Raunvísindastofn- unar Háskólans í ein 17 ár, hann var forseti Raunvísindadeildar Háskóla Íslands árin 2012-2016 og var formaður stjórnar Raun- vísindastofnunar Háskólans VísindamaðurinnHafliði er prófessor í tilraunaeðlisfræði við HÍ. Formaður RannísHafliði lengst til hægri ásamt öðrum stjórnarmönnum í Rannsóknarráði Íslands og framkvæmdastjóra þess árið 2002. CERNHafliði í evrópsku rannsóknastofnuninni í háorkueðlisfræði. Til hamingju með daginn Stjörnuspá Birna Dröfn Birgisdóttir 40 ÁRA Birna ólst upp á Akranesi og í Hlíðarbæ í Hvalfirði en býr í Ólafsvík. Hún er hjúkrunarfræðingur og neyðarflutningamaður á Heil- brigðisstofnun Vesturlands. Áhuga- málin eru ferðalög og fjölskyldan. FJÖLSKYLDAMaki Birnu er Sæbjörn Elvan Vigfússon, f. 1979, sölumaður hjá Fiskmarkaði Íslands. Dóttir þeirra er Kamilla Elvan, f. 2021. Sonur Birnu er Hrannar Birgir, f. 2006, og stjúpdætur hennar og börn Sæbjörns eru Aníta Elvan, f. 2001, og Bríet Elvan, f. 2006. Foreldr- ar Birnu: Harpa Hrönn Davíðsdóttir, f. 1961, búsett á Akranesi, og Birgir Skúlason, f. 1961, d. 2016. Nýr borgari Ólafsvík Kamilla Elvan Sæbjörns- dóttir fæddist 9. desember 2021 kl. 18.25 á Akranesi. Hún vó 3.624 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Birna Dröfn Birgisdóttir og Sæbjörn Elvan Vigfússon. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Reyndu að sýna fólki þolinmæði á næstu vikum. Ekki spila rassinn úr buxunum í dag. Þú berð sigur úr býtum í keppni sem þú tekur þátt í. 20. apríl - 20. maí B Naut Nú er kominn tími til þess að brjóta gamalt mál til mergjar. Reyndu að finna frið, líklega þarftu að fara meira út í náttúruna til að slaka á. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Kapp er best með forsjá og það er langur vegur frá því að þú þurfir að eignast alla skapaða hluti. Þér finnst best að taka daginn snemma. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Eitt og annað veldur þér sérstakri kátínu þessa dagana. Þú vefur makanum um fingur þér. Ekki misnota vald þitt. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Einhver í fortíð þinni hefur enn mik- il áhrif á þig. Þig klæjar í fingurgómana eftir að komast á fleiri námskeið í nýja áhugamálinu þínu. 23. ágúst - 22. september F Meyja Þótt þú eigir bágt með að skilja hugmyndir vinar þíns er engin ástæða til þess að leggja vináttuna á ís. Kapp er best með forsjá. 23. september - 22. október G Vog Segðu hefðbundnum viðhorfum stríð á hendur, nú er þörf fyrir ferskar hugmyndir. Vinur reynir að fiska upp úr þér upplýsingar. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Láttu ekki tilfinningarnar villa þér sýn í ágreiningi þínum við aðra. Hlustaðu á það sem innsæi þitt segir þér. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Að reyna að kasta ryki í augu fólks hefnir sín alltaf svo þú skalt láta það ógert. Þér finnst þú hjakka í sama farinu, það getur enginn breytt því nema þú. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Það er nauðsynlegt að eyða tíma með börnum eða að finna barnið í sjálfum sér. Njóttu þess að vera með ættingjum. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Yfirmaður þinn eða yfirboðari er tilbúinn til að ræða ýmis óvissuat- riði. Þú kýst að láta vin njóta velgengni þinnar með þér. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Sjálfstraust þitt er í hæstu hæðum. Þú smitar út frá þér lífsgleði og hamingju. Ekki rétta vissri manneskju litla fingurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.