Morgunblaðið - 02.12.2022, Side 26

Morgunblaðið - 02.12.2022, Side 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2022 Fimmtánda ár fyrirliðans Knattspyrnudeild HK hefur framlengt samning sinn við fyrirliða karlaliðs félagsins, Leif Andra Leifsson, til eins árs. Leifur Andri er 33 ára gamall varnarmaður. Hann hefur leikið með meistaraflokki HK frá 2009 og er leikjahæstur í sögu félags- ins með 365 mótsleiki. Hann er því að hefja sitt 15. meistara- flokkstímabil með HK. Leifur á að baki 246 leiki með HK í þremur efstu deildum Íslandsmótsins og þar af eru 47 í efstu deild. Morgunblaðið/Árni Sæberg HK Leifur Andri Leifsson hefur leikið með HK frá 2009. Haukar áfram í bikarnum Niðurstaðan í kærumálinu vegna leiks Tindastóls og Hauka í bikarkeppni karla í körfuknattleik liggur fyrir. Áfrýjunardómstóll KKÍ úr- skurðaði Haukum 20:0-sigur eftir áfrýjun Tindastóls. Haukar kærðu leikinn þar sem fjórir er- lendir leikmenn Tindastóls voru inni á vellinum í einu. Þar með munu Haukar sækja Njarðvík- inga heim í 16-liða úrslitum og sigurvegarinn í þeim leik mætir Keflavík í átta liða úrslitunum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bikar Hilmar Smári og samherjar í Haukum halda áfram keppni. KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Smárinn: Breiðablik – Stjarnan ............ 18.15 Hlíðarendi: Valur – Keflavík .................. 20.15 1. deild karla: Höfn: Sindri – Skallagrímur................... 19.15 Dalhús: Fjölnir – Ármann....................... 19.15 Flúðir: Hrunamenn – Selfoss ................. 19.15 Akranes: ÍA – Þór Ak .............................. 19.15 HANDKNATTLEIKUR 1. deild karla: Kórinn: HK – Valur U............................. 19.30 Höllin Akureyri: Þór – Selfoss U.......... 19.30 Úlfarsárdalur: Fram U – Fjölnir................ 20 Ásvellir: Haukar U – Víkingur................... 20 KA-heimilið: KA U – Kórdrengir ......... 20.15 1. deild kvenna: Fylkishöll: Fjölnir/Fylkir – Afturelding 18.30 Seltjarnarnes: Grótta – Fram U........... 19.30 Subway-deild karla KR – ÍR...................................................... 88:95 Þór Þ. – Njarðvík .................................... 88:119 Höttur – Grindavík................................... 87:91 Haukar – Tindastóll ............................... 80:75 Staðan: Valur 7 6 1 627:571 12 Breiðablik 7 5 2 705:699 10 Keflavík 7 5 2 651:625 10 Njarðvík 8 5 3 709:639 10 Haukar 8 5 3 701:675 10 Tindastóll 8 4 4 679:643 8 Stjarnan 7 4 3 604:588 8 Grindavík 8 4 4 650:681 8 Höttur 8 3 5 680:684 6 ÍR 8 3 5 646:697 6 KR 8 1 7 732:829 2 Þór Þ. 8 1 7 765:818 2 1. deild karla Álftanes – Hamar .................................... 98:94 Staðan: Álftanes 11 10 1 1018:935 20 Sindri 10 8 2 939:821 16 Hamar 9 6 3 838:785 12 Selfoss 10 6 4 919:803 12 Hrunamenn 9 5 4 869:879 10 Ármann 9 5 4 808:789 10 ÍA 10 4 6 819:913 8 Skallagrímur 10 3 7 890:879 6 Fjölnir 10 2 8 844:900 4 Þór Ak. 10 0 10 736:976 0 HM í Katar E-RIÐILL: Japan – Spánn ............................................ 2:1 Ritsu Doan 48., Ao Tanaka 51. – Álvaro Morata 12. Kosta Ríka – Þýskaland ........................... 2:4 Yeltsin Tejeda 59., Juan Pablo Vargas 70. – Serge Gnabry 10., Kai Havertz 73., 85., Niclas Füllkrug 90. Staðan: Japan 3 2 0 1 4:3 6 Spánn 3 1 1 1 9:3 4 Þýskaland 3 1 1 1 6:5 4 Kosta Ríka 3 1 0 2 3:11 3 Japan og Spánn fara í 16-liða úrslit en Þýska- land og Kosta Ríka eru úr leik. F-RIÐILL: Króatía – Belgía ........................................ 0:0 Kanada –Marokkó .................................... 1:2 Sjálfsmark 41. – Hakim Ziyech 4., Youssef En Nesyri 23. Staðan: Marokkó 3 2 1 0 4:1 7 Króatía 3 1 2 0 4:1 5 Belgía 3 1 1 1 1:2 4 Kanada 3 0 0 3 2:7 0 Marokkó og Króatía fara í 16-liða úrslit en Belgía og Kanada eru úr leik. 16-LIÐAÚRSLIT: 3.12. Holland – Bandaríkin..................... 15.00 3.12. Argentína – Ástralía....................... 19.00 4.12. Frakkland – Pólland....................... 15.00 4.12. England – Senegal .......................... 19.00 5.12. Japan – Króatía............................... 15.00 5.12. G1 – H2 .............................................. 19.00 6.12. Marokkó – Spánn ........................... 15.00 6.12. H1 – G2 .............................................. 19.00 MARKAHÆSTIRÁHM: Cody Gakpo, Hollandi.................................... 3 Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 3 Álvaro Morata, Spáni .................................... 3 Marcus Rashford, Englandi ......................... 3 Enner Valencia, Ekvador .............................. 3 Ritsu Doan, Japan.......................................... 2 Bruno Fernandes, Portúgal.......................... 2 Niclas Füllkrug, Þýskalandi ......................... 2 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 2 Cho Gue-sung, Suður-Kóreu ........................ 2 Kai Havertz, Þýskalandi ............................... 2 Andrej Kramaric, Króatíu............................ 2 Mohammed Kudus, Gana ............................. 2 Lionel Messi, Argentínu................................ 2 Richarlison, Brasilíu ...................................... 2 Bukayo Saka, Englandi ................................. 2 Mehdi Taremi, Íran........................................ 2 Ferran Torres, Spáni ..................................... 2 Salem Al-Dawsari, Sádi-Arabíu .................. 2 LEIKIR Í DAG: 15.00 H Suður-Kórea – Portúgal 15.00 H Gana - Úrúgvæ 19.00 G Kamerún – Brasilía 19.00 G Serbía – Sviss Ótrúlegir sigurvegarar AFP/Gabriel Bouys KróatíaDejan Lovren og LukaModric hafa marga fjöruna sopið og nú eru þeir komnir í sextán liða úrslitin á heimsmeistaramótinu. AFP/Adrian Dennis Japan Eftir endurkomusigra á Þjóðverjum og Spánverjum eru Japanir komnir í 16-liða úrslitin og mæta Króötum ámánudaginn. lJapan ogMarokkó efst í E- og F-riðlumHMlKróatía og Spánn í öðru sæti lBelgar og Þjóðverjar halda heimleiðislVöldu Spánverjar sérmótherja? HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hver hefði getað séð fyrir loka- niðurstöðuna í E- og F-riðlunum á heimsmeistaramótinu í fótbolta í Katar? Japanir unnu F-riðilinn, á undan Spáni og Þýskalandi, og mæta Króötum í sextán liða úrslitum mótsins á mánudaginn. Marokkómenn unnu E-riðilinn, á undan Króatíu og Belgíu, og mæta Spánverjum í sextán liða úrslitum á þriðjudaginn. Tvær af mestu knattspyrnuþjóð- um Evrópu, Þýskaland og Belgía, hafa lokið keppni í Katar og þurftu að pakka niður í ferðatöskurnar þegar riðlakeppninni lauk í gær- kvöld. Þegar dregið var í þessa riðla virt- ust þeir ekki sérstaklega spennandi. Spánn og Þýskaland „áttu“ að eiga greiða leið áfram úr E-riðlinum og Belgía og Króatía úr F-riðlinum. En þannig er alþjóðafótboltinn ekki í dag. Þrátt fyrir eitt stig úr tveimur leikjum voru Þjóðverjar taldir lík- legir til að fara áfram með öruggum sigri á Kosta Ríka. Það reyndist hins vegar torsóttur sigur eftir að Kosta Ríka komst í 2:1 í seinni hálfleik. Varamennirnir Kai Havertz og Niclas Füllkrug lönduðu þýskum sigri, 4:2, með þremur mörkum á lokakaflanum. Karaktersigrar hjá Japönum Þá hefðu Spánverjar þurft að ná stigi af Japönum. Þar með hefðu þeir tekið Þjóðverjana með sér áfram. En eftir yfirburði Spánverja og mark Álvaros Morata í fyrri hálfleik skoruðu Ritsu Doan og Ao Tanaka fyrir Japan á fyrstu sex mínútum síðari hálfleiks. Japanir vörðu forskotið með kjafti og klóm og þeirra niðurstaða er mögnuð – sigrar á Þjóðverjum og Spánverjum eftir að hafa lent undir í báðum leikjum. Japanir verðskulda fyllilega að vera komnir áfram. Þeir hafa sýnt gríðarlegan karakter og mæta nú króatíska stálinu. Japan hefur þrisvar áður komist í 16-liða úrslitin og nú er spurning hvort liðið sé tilbúið til að fara skrefinu lengra. Þýskaland hverfur hins vegar heim eftir riðlakeppnina á öðru heimsmeistaramótinu í röð. Voru Spánverjar að velja sér and- stæðing, nágranna sína í Marokkó, með því að tapa fyrir Japan? Sú kenning fór á kreik í gærkvöld en er frekar ótrúleg. Þeir voru sjálfir í hættu á meðan Kosta Ríka var yfir gegn Þýskalandi en á þeim tíma- punkti var Kosta Ríka fyrir ofan Spán. Auk þess sem „Atlas-ljónin“ frá Norður-Afríku eru augljóslega skeinuhættur andstæðingur fyrir alla. Marokkó nýtti tækifærið Marokkóbúar voru í dauðafæri eftir að hafa fengið fjögur stig gegn Belgum og Króötum. Þeir nýttu tækifærið til hins ítrasta og tryggðu sér sigur í F-riðlinum með því að leggja Kanada að velli, 2:1. Þetta er í annað sinn sem Afríkuþjóðin kemst í 16-liða úrslit en fyrra skiptið var árið 1986. Tveir helstu markaskorar- ar liðsins, Hakim Ziyech og Youssef En-Nesyri, sáu um mörkin en Ziyech, sem leikur með Chelsea, er orðinn þriðji markahæsti leikmaður þjóðar sinnar frá upphafi. Á meðan gerðu Króatía og Belgía markalaust jafntefli sem nægði Króötum til að halda áfram. Romelu Lukaku lék síðari hálfleikinn með Belgum og fór illa með þrjú góð marktækifæri, þar af átti hann eitt stangarskot í leiknum. Ævintýri Marokkó er eitt það magnaðasta í sögu HM. Liðið var ekki talið eiga neina möguleika í riðli með Króatíu og Belgíu, þjóðun- um sem enduðu í öðru og þriðja sæti síðasta heimsmeistaramóts, en stendur uppi sem sigurvegari. Nú glíma Marokkómenn við Spán- verja og fara eflaust óttalausir í þá viðureign eftir frammistöðuna gegn Belgum og Króötum. Síðasti dans Belganna? Á meðan hafa Belgar, sem eru í öðru sæti heimslista FIFA, lokið keppni eftir að hafa aðeins skor- að eitt mark í þremur leikjum í Katar. Brotthvarf þeirra er eitt hið óvæntasta í sögu keppninnar. Þetta átti að vera „síðasti dansinn“ fyrir gullaldarlið Belga, lokatækifærið til að fara alla leið á stórmóti með þennan magnaða mannskap og breiða hóp. Það fór öðruvísi en ætlað var. Kanadamenn fóru stigalausir heim en voru með frískt og sókn- djarft lið sem gæti náð lengra á næsta heimsmeistaramóti á sínum heimavelli. Þeir fengu á sig ódýr mörk og það varð þeim að falli. Síðustu leikirnir í kvöld Í dag og kvöld lýkur riðlakeppn- inni og þar skýrist hver tvö síðustu liðin verða í sextán liða úrslitunum. Brasilía og Portúgal eru þegar örugg áfram úr G- og H-riðlum, en þar bítast annars vegar Sviss, Kamerún og Serbía um að fylgja Brasilíumönnum og hins vegar Gana, Suður-Kórea og Úrúgvæ um að fylgja Portúgölum áfram. Bæði Sviss og Gana eiga möguleika á að vinna riðlana ef Brasilía og Portúgal tapa sínum leikjum. AFP/Fadel Senna Marokkó Afríkuliðið fagnaði sigri í riðlinum eftir að hafa lagt Kanada.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.