Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 1
GÓÐAR MINNINGAR
FRÁÆSKUNNI Í
BREIÐHOLTINU
ÁGÚSTAÝR FIMMTUG 24
NÝMATREIÐSLUBÓK
SENDU UPPSKRIFTIR YFIR HAFIÐ 10
SKÁLDSAGAN
LUNGU LITRÍK
ÆTTARSAGA
PEDRO G. GARCIA 28
• Stofnað 1913 • 298. tölublað • 110. árgangur •
ÞR IÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
jolamjolk.is
Gluggagægir
kemur í kvöld
dagar til jóla
4
Strandaglópar frelsinu fegnir eftir flugstöðvardvölina
Ríflega þúsundmanns urðu innlyksa á
Keflavíkurflugvelli í gær. Öllum flugferðum var
aflýst vegna illviðris og fannfergis. Þar að auki
var Reykjanesbrautinni lokað svo farþegar
komust hvorki lönd né strönd.
Á tíunda tímanum í gærkvöldi var
Reykjanesbrautin opnuð á ný, frá Keflavík til
Reykjavíkur. Þegar fyrstu rúturnar gátu farið
að ferja farþega til borgarinnar brutust út
fagnaðarlæti í flugstöðinni. Átján rútur þurfti
til þess að flytja fólkið. Rúmri klukkustund
síðar var brautinni lokað á nýjan leik vegna
veðurs. Endurmeta átti stöðuna aðmorgni, en
Icelandair hefur nú þegar aflýst öllum flugferð-
um sínum til Evrópulanda árdegis í dag.» 2
Morgunblaðið/Eggert
Takaný
ogdýr lán
lVilja ekki svara
spurningum
Ljósleiðarinn,
dótturfélag
Orkuveitu
Reykjavíkur
(OR), hyggst
sækja um 4-5
milljarða króna
fjármögnun
með háum
vaxtakostnaði,
samkvæmt
heimildum
Morgunblaðsins. Fjármagnskostn-
aðurinn yrði þá umtalsvert hærri
en félaga sem einnig hyggja á upp-
byggingu fjarskiptaneta hér á landi.
Ljósleiðarinn nýtir fjármagnið til
að kaupa grunnnet Sýnar og einnig
til að fá aukið fé inn í almennan
rekstur félagsins. Erling Freyr
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Ljósleiðarans, hefur ekki svarað
ítrekuðum símhringingum og
tölvupóstum blaðsins. Borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir
meirihluta borgarstjórnar fyrir að
vilja ekki ræða málið. » 2 og 12
Erling Freyr
Guðmundsson
Ræða Katrín Jakobsdóttir ávarpar
blaðamenn fyrir fundinn í gær.
Má ekki vanmeta
aðstoð Íslands
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu,
nefndi þátttöku Íslands í verkefni sem
snýst um að þjálfa fólk til að leita að
og eyða jarðsprengjum í Úkraínu í
gær, þegar hann ávarpaði fund Sam-
eiginlegu viðbragðssveitarinnar JEF
(Joint Expiditionary Force). Ríkin
sem JEF samanstendur af eru Norð-
urlönd, Eystrasaltsríkin, Bretland og
Holland.
Fundurinn fór fram í Riga í Lett-
landi og sótti Katrín Jakobsdóttir,
forsætisráðherra Íslands, fundinn.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Katrín fundinn hafa gengið vel og að
leiðtogar ríkja í Norður-Evrópu hafi
rætt leiðir til að aðstoða Úkraínu enn
frekar.
Katrín ítrekar að ekki megi van-
meta þau áhrif sem Ísland getur haft
með sinni aðstoð og bendir á að stórt
landsvæði í Úkraínu sé þakið jarð-
sprengjum. Þjálfunin hefst í janúar
og fer fram í Litháen en sprengju-
sérfræðingar Landhelgisgæslunnar
taka þátt í þjálfuninni. » 4
„Þetta er fólkið sem er að berjast við
að koma undir sig fótunum ogmá síst
við auknum útgjöldum og þjónustu-
skerðingum. Tvöfaldar hækkanir á
barnafjölskyldur og viðkvæma hópa
sem minnstar hafa tekjurnar og eru
kannski á leigumarkaði. Þetta er eig-
inlega tíu prósenta hækkun á þremur
mánuðum. Hvað gerist í júní?,“ spyr
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG,
sem furðar sig á því að borgaryfirvöld
í Reykjavík ætli að hækka leikskóla-
gjöld um áramótin. Leikskólagjöld
hækka um 4,9% og fæðisgjöld um
annað eins. Leikskólagjöld í borginni
voru hækkuð um 4,5% í byrjun sept-
ember og því er um tvöfalt högg að
ræða fyrir fjölskyldufólk í borginni.
„Til að snúa við neikvæðri stöðu borg-
arsjóðs ætla þau í meirihlutanum að
seilast í vasa barnafjölskyldna,“ segir
Líf ennfremur.
Bensínlítrinn hækkar
Miklar hækkanir á opinberum
gjöldum skella á landsmönnum um
komandi áramót. Svokallaðir krónu-
töluskattar hækka um 7,7% að þessu
sinni. Þetta þýðir til að mynda að hið
umdeilda útvarpsgjald er skriðið yfir
20 þúsund krónur á hvern skattgreið-
anda og hver rauðvínsflaska og hver
bjórdós mun kosta umtalsvert meira
eftir áramót en nú er og þótti sjálfsagt
flestum nóg um fyrir. Krónutöluskatt-
ar ríkisstjórnarinnar leggjast einnig
þungt á þá sem kjósa að ferðast um
með einkabíl. Eldsneytisgjöldin hækka
um 7,7% og samkvæmt útreikningum
Félags íslenskra bifreiðaeigenda fyrir
Morgunblaðið mun hækkun á hvern
bensínlítra nema 8,56 krónum og 7,63
krónum á hvern dísillítra.
lBorgarfulltrúi gagnrýnir að leikskólagjöld séu hækkuð í
annað sinn á þremurmánuðumlGjöld hækka um áramót
Höggá fjölskyldufólk
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Hækkanir á áfengi» 6