Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 8

Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 STAKSTEINAR Allt fyrir opnum tjöldum á Twitter Seint verður sagt um Elon Musk, Tesla-eiganda, Twitter-eiganda og verðandi Marsbúa, verði honum að ósk sinni, að hann forðist sviðsljós- ið. Hann hefur hrært talsvert í notendareglum Twitter eftir að hann tók þar við stjórninni og tekist að halda umræðunni um fyrirtækið gang- andi, hafi það verið ætlunin, sem er að minnsta kosti ekki útilokað. Og nýjasta útspilið, að láta notendur Twitter kjósa um það hvort hann yrði þar framkvæmdastjóri áfram eða ekki, kallaði fram sautján millj- ónir atkvæða, meirihlutann gegn því að hann sæti áfram. Nú stígur hann væntanlega upp úr þessum nýjasta stól sínum, semmun svo sem engu breyta um hver ræður yfir Twitter. En þetta eru þó ekki stóru tíðindin af þessum samfélagsmiðli enda þótt þau veki mesta athygli. Meira máli skipta þær uppljóstranir semMusk hefur staðið fyrir á miðlin- um um fyrri stjórnendur og hvernig þeir beittu honum í pólitískum tilgangi með því að stýra birtingu efnis og ritskoða. Twitter vann með demókrötum við að stýra umræðunni fyrir forsetakosningarnar 2020 og gekk það einkum eftir vegna þess að starfsmenn Twitter voru mjög á bandi demókrata en ekki repúblikana. Engum dettur í hug að Twitter hafi verið einsdæmi í þessu, en eigendur Facebook og annarra slíkra miðla eru ekki líklegir til að opna dyrnar fyrir óháðum blaðamönnum og afhjúpa með því hvernig þessir miðlar starfa. Elon Musk Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar Loðnumælingin engin vonbrigði lForstjóri Síldarvinnslunnar bjartsýnn á vetrarmælingu Hafrannsóknastofnunar „Það eru í raun engin vonbrigði, það hefur ekki oft náðst að mæla loðnu á þessum tíma, en að sama skapi er mikilvægt að vera með stöðu- mat á hvert gangan er komin, til að tímasetja janúarleiðangurinn,“ segir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, um loðnuleið- angur Hafrannsóknastofnunar. Eins og fram kom í Morgunblað- inu síðastliðinn föstudag þótti mæl- ing desemberleiðangurs Hafró ekki marktæk. Ráðgjöf um hámarksafla vegna loðnuvertíðarinnar verður því ekki endurskoðuð á grundvelli leiðangursins. Meðal þess sem aftr- aði yfirferð skipa í leiðangrinum var hafís úti fyrir Vestfjörðum og norðvesturmiðum. Síldarvinnslan hefur hafið loðnu- veiðar og spurður hvort loðnuskip útgerðarinnar muni hægja á veið- um segir Gunnþór: „Það liggur alveg fyrir að við munum haga veiðum og nýtingu með þeim hætti að við eigum aflaheimildir í okkar verðmætustu framleiðslu.“ Spurður hvort enn sé vonast til að janúar/febrúarmæling Hafró leiði til endurskoðunar, segir Gunnþór bjartsýni ríkja með vetrarmæl- ingarnar þar sem fyrirliggjandi ungloðnumælingar hafi verið mjög háar. „Það er ekkert nýtt að loðnan sé brellin og erfitt að ná utan um þetta,“ segir Gunnþór. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Mæling Bjarni Sæmundsson tók þátt í loðnuleiðangrinum. Dularfulla kælismálið reynir á þolinmæðina „Húseigendur hafa enn ekki fundið viðeigandi lausn fyrir okkur,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR. Bjórkælir sem settur var upp í Vínbúð ÁTVR á Eiðistorgi sumarið 2021 hefur ekki enn verið tekinn í notkun. Íbúar á Eiðistorgi kvörtuðu yfir hávaða frá kælibúnaði þegar taka átti kælinn í notkun og í kjölfarið kom í ljós að ekki var leyfi fyrir hendi til að kæla bjór í búðinni. Tilkoma bjórkælisins var hluti af endurbótum og stækkun á Vín- búðinni á Eiðistorgi. Búðin er nú um 400 fermetrar. Kostnaður við endurbæturnar nam 53 milljónum króna. Þar af var kostnaður við bjórkælinn 6,1 milljón. Sigrún segir við Morgunblaðið að ekkert hafi þokast í að finna lausn á málinu. Því þurfa Seltirningar áfram að sætta sig við volgan bjór „Að sjálfsögðu hefur þetta reynt á þolinmæðina. Viðskiptavinir eiga hins vegar hrós skilið fyrir mikla þolinmæði og hafa sýnt málinu skilning. En að sjálfsögðu er þetta alls ekki ásættanlegt,” segir Sigrún. hdm@mbl.is Morgunblaðið/Unnur Karen Vínbúð Seltirningar og nærsveitamenn fá ekki kaldan bjór í bráð. ERU ELDVARNIR Á ÞÍNU HEIMILI Í LAGI? OSEC Slökkvitæki 6L Léttvatn/Froða – 7.595 kr. Eldvarnarteppi 100x100cm – 1.116 kr. FINA Reykskynjari Optískur – 1.116 kr. Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 Reykjavík | Sími 533 2900 | lykillausnir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.