Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 10

Morgunblaðið - 20.12.2022, Side 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Opið 20. des 11-18, 21.-23. des 11-20, aðfangadagur 10-13. * Undirföt * Náttföt * Náttkjólar jólagjafir Glæsilegar Þú pantar og sækir vöruna í verslun, fallega innpakkaða og tilbúna undir jólatréð. Vefverslun selena.is * Sloppar * Gjafabréf 63% sáu úrslitaleikinn lYfir 150 þúsund manns fylgdust með Um 63 prósent landsmanna horfðu á úrslitaleik heimsmeist- aramótsins á milli Argentínu og Frakklands í Katar á sunnu- daginn en þetta staðfestir Einar Logi Vignisson, aulýsingastjóri Ríkisútvarpsins, í samtali við Morgunblaðið. RÚV styðst við mengi tólf til 80 ára Íslendinga í útreikningum sínum. Það eru 255 þúsund manns og því að minnsta kosti 160 þús- und manns sem kveiktu á leiknum í gær. Einar telur töluna vera í kringum 200 þúsund ef reiknað er með yngri áhorfendum. Til samanburðar horfði svipaður fjöldi á Eurovision-söngvakeppn- ina, karlalandsliðið í handbolta í byrjun árs og leiki kvennalands- liðsins í fótbolta í sumar. Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Sigur Meirihluti Íslendinga fylgdist með Messi bera sigur úr býtum. Mæðginin Kristín Sigfúsdóttir og Sig- fús Helgi Kristinsson hafa sett saman matreiðslubókina Hvað er í matinn, mamma? og selja hana nú fyrir jólin til styrktar Píeta-samtökunum. „Þetta var búið að veltast um í koll- inum á okkur í svolítinn tíma. Svo fyrir tveimur árum ákváðum við að láta verða af þessu og settum okkur það markmið að skrifa tvær upp- skriftir á viku hvort það árið,“ segir Kristín. Uppskiftirnar sem þau hafa sett saman eru af ýmsu tagi og við allra hæfi og með hverri þeirra fylgir stuttur og skemmtilegur texti. Kristín starfar sem matráður hjá Landsvirkjun, í Búrfellsvirkjun, og hefur gert síðastliðin 12 ár. Hún segir soninn einnig áhugasaman um mat- reiðslu og geri mikið af því að leika sér í eldhúsinu. „Við erum miklir matar- áhugamenn, bæði tvö.“ Unnu saman yfir hafið Kristín játar að eldhúsið hafi verið mikil miðja á heimilinu. „Sérstaklega á árum áður þegar börnin bjuggu enn heima.“ Þá heyrðist gjarnan sagt „Hvað er í matinn, mamma?”. Því lá beint við að bókin fengi þann titil enda er þetta setning sem ekki er ólíklegt að fleiri kannist við af sínum heimilum. Sigfús býr í Bandaríkjunum þar sem hann er prófessor í tauga- og talmeinafræði. Samvinnan fór því fram yfir hafið. Þau sendu uppskriftir og myndir á milli sín en Sigfús sá að mestu um uppsetningu bókarinnar. „Þegar þetta fór að nálgast úgáfu þá langaði okkur að gera meira úr þessu og styrkja eitthvað góðgerðarmálefni. Píeta-samtökin urðu þar fyrir valinu.“ Samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. „Við höfum þurft að nýta þessi sam- tök sjálf. Það hurfu tveir nákomnir mjög snögglega, faðir barnanna minna og bróðir konu Sigfúsar. Okk- ur fannst þessi samtök vera að gera rosalega góða hluti.“ Það rennur því hluti af andvirði hverrar seldrar bók- ar til samtakanna. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa en Sigfús er væntanlegur til landsins með fyrstu kassana af bók- inni nú í upphafi vikunnar. Áhugasamir geta haft samband við þau mæðgin, til dæmis á Facebook, enda selja þau bókina beint frá býli. „Ef bókin selst upp þá geri ég ráð fyrir að við látum prenta meira og höldum áfram.“ lMæðgin gefa út matreiðslubók og styrkja Píeta Skrifuðu tvær upp- skriftir á viku í eitt ár Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Matgæðingar Sigfús og Kristín, móðir hans, gefa út matreiðslubók saman fyrir jólin og styrkja um leið Píeta-samtökin sem hafa reynst þeim vel. Mishermt var í frétt í Morgunblað- inu sl. laugardag að Hvalur 8 hafi verið smíðaður árið 1962. Hið rétta er að hvalbáturinn var smíðaður í Tönsberg í Noregi árið 1948 en keyptur til landsins 1962. Hann er því 74 ára en ekki sextugur eins og stóð í fréttinni. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Smíðaður 1948

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.