Morgunblaðið - 20.12.2022, Síða 12
FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
Sími 555 2992 / 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu ogMelabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustaðmínum sem ég hafði ekki getað áður.“
20. desember 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 141.35
Sterlingspund 172.07
Kanadadalur 103.47
Dönsk króna 20.18
Norsk króna 14.318
Sænsk króna 13.627
Svissn. franki 151.94
Japanskt jen 1.0314
SDR 187.9
Evra 150.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.5191
STUTT
félagsins. Áður hafði borgarráð sam-
þykkt erindi frá stjórnOR sem fól í sér
breytingar á skilmálumá lánasamningi
OR ogEvrópska fjárfestingarbankans
að fjárhæð 70milljónir evra, eða um 10
milljarðar króna, til að hægt væri að
auka skuldir innan samstæðunnar, þ.e.
meðal OR og dótturfélaga, enn frekar.
Spurningum ekki svarað
Þrátt fyrir opinberar tilkynningar
um leiguna áNATO-strengnumog fyr-
irhugaða uppbyggingu fjarskiptaneta
út um allt land ríkir mikil leynd yfir
öðrumáætlunumLjósleiðarans. Það á
sérstaklega við umþá liði sem snúa að
fjármögnun félagsins, en einnig þætti
sem snúa að því hvort fyrirhuguð
starfsemi félagsins á landsbyggðinni
sé í samræmi við nýlega samþykkta
eigendastefnu OR. Það sem liggur þó
fyrir er aðmeirihluti stjórnarORhefur
sem fyrr segir óskað eftir og fengið
samþykktar skilmálabreytingar á
lánum til að rýmka til fyrir aukinni
skuldsetningu innan samstæðunnar.
Erling Freyr hefur sem fyrr seg-
ir ekki svarað símhringingum eða
skilaboðum og þá hefur Brynhildur
Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla
Íslands og fráfarandi stjórnarformað-
ur OR, neitað að tjá sig um efnislega
þætti málsins. Hún vill til dæmis ekki
svara því hvort stjórn OR hafi gert
fyrirvara við áætlanir Ljósleiðarans,
hvort stjórnORhafi látið framkvæma
áhættumat á áhrifumþess ef lán Ljós-
leiðarans verða gjaldfelld eða hvort
fyrirhuguð starfsemi sé í samræmi við
eigendastefnu OR.
Ljósleiðarinn, dótturfélag Orkuveitu
Reykjavíkur (OR), stefnir nú að frekari
skuldsetningu, en félagið skuldar nú
þegar rúma 14 milljarða króna. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hyggst félagið sækja um 4-5 milljarða
króna fjármögnun með háum vaxta-
kostnaði. Heimildir blaðsins herma
að vextir af láni félagsins séu hátt í
níu prósent. Til samanburðarmáætla
að fjármagnskostnaðurMílu, sem ný-
lega komst í eigu franska fjárfestingar-
sjóðsins Ardian, sé um tvö prósent.
Ljósleiðarinn mun, gangi áætlanir
forsvarsmanna félagsins eftir, verða
helsti samkeppnisaðiliMílu og annarra
félaga í uppbyggingu fjarskiptaneta
hér á landi.
Erling Freyr Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ljósleiðarans, hefur
ekki svarað ítrekuðum símhringing-
um og tölvupóstum þar sem spurt er
um fyrirhugaða fjármögnun félagsins.
Mikil umsvif fram undan
Ljósleiðarinn mun að öllu óbreyttu
staðfesta kaup á grunnneti Sýnar í
dag. Kaupverðið er um þrír milljarð-
ar króna. Í lok júní var tilkynnt að
Ljósleiðarinn og utanríkisráðuneytið
hefðu samið um afnot Ljósleiðarans
af tveimur af átta ljósleiðaraþráðum
í ljósleiðarastreng Atlantshafsbanda-
lagsins (svonefndum NATO-streng),
sem liggur hringinn í kringum Ísland
og til Vestfjarða. Samhliða því var
tilkynnt að stjórn Ljósleiðarans hefði
falið framkvæmdastjóra félagsins að
hefja undirbúning að aukningu hluta-
fjár félagsins til að „styrkja efnahag
og fjármagnsskipan félagsins og gera
því kleift að nýta þau tækifæri til
fjárfestinga sem nú bjóðast við upp-
byggingu landshrings” eins og það var
orðað í tilkynningu frá félaginu.
Erling Freyr Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ljósleiðarans, þvertók
fyrir það í skriflegu svari til Viðskipta-
Moggans 6. desember sl. að Ljósleiðar-
inn hefði tryggt sér fjármagn með
lánalínu í formi yfirdráttar og sagði
þá að fjármögnun Ljósleiðarans fyrir
fyrirhugaðar fjárfestingar á næstunni
kæmi ýmist úr rekstri félagsins eða
lántöku til lengri tíma. Ekki hefur
náðst í Erling Frey síðan.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er nýrri fjármögnun ætlað
að standa straum af kaupunum á
grunnneti Sýnar og styðja betur við
almennan rekstur Ljósleiðarans til
skemmri tíma.
Heimila aukna skuldsetningu
Ljósleiðarinn er sem fyrr segir
dótturfélag OR. Stjórn OR veitti frá-
farandi forstjóra OR, Bjarna Bjarna-
syni, umboð til að staðfesta ákvörðun
stjórnar Ljósleiðarans umað ganga til
samninga við Sýn umkaup á stofnneti
lOpinbert félag tekur lán til að kaupa innviði af einkafyrirtæki fyrir þrjá milljarða
lSpurningum um fjármögnun og stefnu hefur enn ekki verið svarað
Takaný lánáháumvöxtum
STEFNU REYKJAVÍKURBORGAR LIGGUR EKKI FYRIR
Óvíst hvort hlutafé verði aukið
Fyrirhuguð hlutafjáraukning
Ljósleiðarans fer ekki fram nema
með samþykki Reykjavíkurborgar,
sem er stærsti eigandi OR. Áætlað
er að sækja um 15 milljarða króna
með hlutafjárútboði en þó er gert
ráð fyrir því að eignarhlutur Orku-
veitunnar verði um 60 prósent að
loknu útboði. Ljósleiðarinn yrði,
gangi þessar áætlanir eftir, þannig
einkavæddur að hluta án þess þó
að nokkurt fjármagn skili sér í
borgarsjóð, sem stendur höllum
fæti eins og ítrekað hefur komið
fram á undanförnum misserum.
Með auknu hlutafé stendur til
að greiða niður óhagstæð lán og
hefja uppbyggingu fjarskiptaneta
á landsbyggðinni í samkeppni við
einkaaðila. Sérstakur rýnihópur
innan borgarstjórnar um fyrirhug-
aða hlutafjáraukningu hefur verið
skipaður en óvíst er hvenær hann
lýkur störfum. Hópurinn hefur
haldið þrjá fundi og mun ekki
hittast fyrr en á nýju ári. Því liggur
enn sem komið er ekki fyrir hvort
hlutafjáraukning, eins og hún
hefur verið kynnt, verður heimiluð
af borgarstjórn eða ekki.
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr@mbl.is
Opinber fyrirtæki Forsvarsmenn Ljósleiðarans, Orkuveitunnar og Reykjavíkurborgar vilja lítið gefa upp um það
hvernig fjármögnun eða öðrum rekstrarþáttum Ljósleiðarans verður háttað við kaupin á grunnneti Sýnar.
Stefnir Hlöllabátum
fyrir héraðsdóm
l Smart ráðgjöf ehf., félag í eigu Snorra
Marteinssonar, hefur stefnt Hlöllabátum
fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Fyrirtaka
í málinu var þann 15. desember. Snorri
staðfesti við Morgunblaðið að deilan
sneri að fjárkröfu en vildi að öðru leyti
ekki tjá sig ummálið.
Snorri er fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Hamborgarafabrikkunnar, og var
hluthafi í fyrirtækinu um skeið. Auk
þess hefur hann meðal annars komið
að rekstri Keiluhallarinnar í Egilshöll og
Skemmtigarðsins í Smáralind.
Hlöllabátar ehf. eru nú í eigu Óla Vals
Steindórssonar. Félagið var í sameigin-
legri eigu hans og Sigmars Vilhjálms-
sonar þangað til í janúar á þessu
ári þegar því var skipt upp. Fram að
skiptunum hélt félagið utan um rekstur
samnefndra skyndibitastaða og voru
vörumerkin Barion Mosó, Minigarðurinn
og Bryggjan Brugghús undir sama hatti.
Minigarðurinn og Bryggjan Brugghús
féllu í skaut Sigmars við skiptin, en
hann seldi síðarnefnda veitingahúsið frá
sér í sumar til að einbeita sér að rekstri
Minigarðsins. Minigarðurinn, sem nú er
í eigu Sigmars og Vilhelms Einarssonar,
er 1.900 fermetra afþreyingarmiðstöð
þar sem einna helst er boðið upp á
minigolf og fjölbreyttar veitingar.
Að sama skapi er ókyrrð í kringum
Minigarðinn, en Rafmagnsverkstæði
Jens og Róberts ehf. hafði stefnt rekstr-
arfélagi Minigarðsins, Munnbitanum
ehf. og átti fyrirtaka í málinu að vera
í síðustu viku. Samkvæmt lögmanni
Rafmagnsverkstæðisins er búið að
leysa það mál utan dómstóla.
Fyrirtæki Snorri Marteinsson var
áður framkvæmdastjóri Fabrikkunnar.