Morgunblaðið - 20.12.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.12.2022, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 Einstök jólastemning, lifandi tónlist og ljúffengur matur í fallegu umhverfi Jól á Borg Restaurant Pósthússtræti 11, 101 Reykjavík, sími 419 1555, borgrestaurant.is Jólahlaðborð á kvöldin Jólamatseðill í hádeginu Áhugamenn um vindorku dásama vind- myllur til rafmagns- framleiðslu og segja þær hagkvæmar og umhverfisvænar. Sum- ir eru sem næst róm- antískir og nota fag- uryrði um þessi ferlíki. Nefna má grein í Morgunblaðinu 20.10. sl. þar sem notað er orðið „vindlundur“ og þá e.t.v. höfðað til lunda íslenskra birkiskóga. Hugsýnin gæti þá verið ásthöfgir elskendur sitjandi undir tuga metra háum stálturnum í „ljúf- um“ ymi trefjaplastsspaðanna sem þyrlast ofar höfðum þeirra. Lítið er hins vegar rætt um efnin sem í vind- myllunum eru eða umhverfisáhrifin þegar verið er að reisa þær og eftir að þær eru komnar upp. Vindmyllan Vindmylla til rafmagnsfram- leiðslu er í fjórum höfuðhlutum. Of- anjarðar eru: sívalur stálturn; tækjaskýli efst á turninum með gír- kassa, rafal, rofum og ýmsum stýri- búnaði og loks spaðarnir. Fjórði höfuðhlutinn er undirstaðan, sem er neðanjarðar; mikill steinsteypu- hnallur, sem vindmyllan hvílir á og er fest við. Turninn Sé miðað við 2 MW vindmyllu er turninn tíðum 100 til 120 metra hár. Hann er úr 20 til 30 m einingum; kónískum stálrörum (mjókka upp á við). Neðsta einingin er boltuð á steinsteypuhnallinn og hinum bætt ofan á og þær boltaðar saman þar til komið er í rétta hæð. Vídd turnsins er gjarn- an yfir 4 m neðst og um 2 m efst. Hann er næstþyngsti hluti sam- stæðunnar og vegur skv. Freeing Energy (2020) vel yfir 200 tonn. Stálið er endur- vinnsluhæft. Tækjaskýlið Á 2 MW vindmyllu er tækjaskýlið á stærð við bærilega rútu. Það er á snúningsbúnaði og vel traust til þess að þola þunga tækjanna sem í því eru. Skýlið er að mestu úr trefjaplasti og almennt ekki endur- vinnsluhæft. Unnt að komast inn í það til þess að sinna viðhaldi. Til slíks þarf tíðum að nota þyrlu, því að stígar eru gjarnan hvorki inni í turninum né utan á honum. Skýli 2 MW Vestas-vindmyllu vegur með öllu upp undir 70 tonn. Öxull sem gengur út úr enda skýlisins tengist gírkassa sem stýrir snúningshraða rafalsins. Bremsu- búnaður jafnar hraðann auk þess sem spöðunum er stýrt í sama skyni. Í þessum búnaði eru nokkur hundruð lítrar af sértækri smurolíu, sem fylgst er með og skipt um u.þ.b. þriðja hvert ár. Mörg dæmi eru um það að olían leki. Rafallinn er búinn síseglum (permanent magnet). Í þeim eru fá- gæt jarðefni, skaðleg umhverfinu í framleiðslu og endurvinnslu eða eyðingu. Þau eru að mestu unnin í Kína (um 90%), sem er líka ráðandi í námi þeirra úr jörðu. Í rafalnum og öðrum rafbúnaði er kopar (um 1.500 kg) og ál (um 840 kg) – auk stáls. Í búnaðinum í tækjaskýlinu eru líka, skv. Freeing Energy, um 20,5 tonn af steypujárni, rúmt tonn af stáli og um 51 tonn af krómi. Rafbúnaður fellir rafmagnið sem framleitt er að raforkukerfinu sem myllan tengist. Búnaðurinn er í lok- uðu rými og honum þjappað saman sem framast er unnt, sem veldur mikilli hættu á skammhlaupum. Í rýminu er gjarnan gas sem kallast SF6 (Sulphur hexafluoride). Það hefur afar litla rafleiðni en er skv. Norwegian SciTech News (2020) 22.000 til 23.500 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en CO2 og hefur 3.200 ára líftíma. Þetta gas hefur sloppið út í verulegum mæli, t.d. í Þýskalandi, og er orðið vel mælanlegt þar. Spaðarnir Til þess að ná styrk og lágmarks- þyngd eru spaðarnir gerðir úr trefjaplasti: gler- eða kolþráðum sem þaktir eru með epoxíresíni. Á 2 MW Vestas-myllu vega þeir um sjö tonn hver. Epoxíresín eru mikið unnin úr olíutengdum efnum með efnafræðilegum aðferðum. Á 2 MW myllu er snúningsþvermál spaðanna um eða yfir 100 m og hraðinn á spaðaenda getur náð vel yfir 200 km/klst. Til að minnka mótstöðu eru spaðarnir húðaðir að utan. Húðin slitnar af og berst út í umhverfið sem öragnir. Spaðana er almennt ekki unnt að endurvinna. Þeir eru því oftast urðaðir þegar þeir eru orðnir ónothæfir. Undirstaðan Steinsteypuhnallurinn sem vind- myllan er fest við er steyptur á staðnum. Tekin er gryfja allt að 3 m djúp og gjarnan yfir 15 m í þvermál. Jarðrask er því mjög mikið og gjör- tækt. Í gryfjuna er undirstaðan steypt. Í hana fara allt að 1.300 tonn af steinsteypu, sem er kirfilega járnbent til að styrkur sé fullnægj- andi. Frekari spjöll Mikið þarf til þess að koma upp öllu því sem að framan er talið. Til þess þarf þung og mikil tæki svo að ekki duga malarslóðar heldur verð- ur að leggja vegi og púkka plön sem þola það álag sem fylgir stórum krönum, flutningatækjum og vinnu- vélum. Við bætast lagnir í jörðu, gjarnan um langa leið, svo að orkan sem til verður nýtist því rafkerfi sem fyrir er. Allt þetta veldur enn frekari röskun og mikilli hættu á óafturkallanlegum skemmdum á viðkvæmri náttúru, s.s. vatnsbúskap og gróðurfari. Hvað fæst? Reyndar fæst raforka, en hún er ótrygg og veldur vanda í aðlögun að raforkukerfinu vegna þess hve ójöfn hún er. Reynsla annarra þjóða sýnir að til verður tvöfalt kerfi sem veldur mikilli hækkun á verði raforku. Slíkt er tæpast eftirsóknarvert fyrir almenna borgara. Þeir eru reyndar ekki með í ráðum, heldur fá þeir reikninginn og sitja uppi með spjöll- in á náttúrunni, útsýninu og lífs- gæðum sínum. Hvað er vindmylla? Haukur Ágústsson » Til verður tvöfalt kerfi sem veldur mikilli hækkun á verði raforku. Haukur Ágústsson Höfundur er fyrrverandi kennari. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsend- ar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.