Morgunblaðið - 20.12.2022, Síða 19

Morgunblaðið - 20.12.2022, Síða 19
fróð og hnyttin í tilsvörum. Þeg- ar við hittumst var ekki skortur á umræðuefnum heldur þvert á móti og er mér minnisstætt þeg- ar við bjuggum á tímabili í sama húsi að ef við hittumst í stiganum stóðum við þar heillengi og spjölluðum þar til báðar voru að verða of seinar þangað sem ferð- inni var heitið. Í gegnum tíðina voru samskipti okkar mest í gegnum síma þó við hittumst af og til en hin síðari ár fórum við á tímabili reglulega á kaffihús og djasstónleika á laugardögum og eins í stiganum forðum daga teygðist úr samtölunum þannig að yfirleitt þurftum við að flýta okkur af kaffihúsinu til að koma ekki of seint á tónleikana. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa haft Björgu sem þátttak- anda í mínu lífi og ég sendi af- komendum hennar mínar inni- legustu samúðaróskir. Auður Ólína Svav- arsdóttir. Í dag kveðjum við Björgu Ein- arsdóttur, fyrrverandi formann Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík. Björg sat í stjórn Hvatar árin 1975-1981, þar af sem meðstjórnandi árin 1975- 1977 og 1981-1982, ritari 1977- 1978, formaður 1979-1981 og loks sem heiðursfélagi frá árinu 1997. Björg sat enn fremur í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og sat í fyrstu stjórn Sambands eldri sjálfstæðismanna, ásamt því að gegna fleiri trúnaðarstörfum innan flokksins í gegnum árin. Björg var ötul baráttukona í þágu kvenfrelsis og tók hún virk- an þátt í ýmsum hreyfingum og störfum því tengdum. Björg þótti duglegur formaður, metn- aðargjörn og atorkusöm og það þótti skemmtilegt að vera í kringum hana. Hún hafði lag á því að fá konur til liðs við flokks- starfið með sér. Sjálfstæðiskonum er efst í huga þakklæti fyrir framlag Bjargar í þágu Sjálfstæðis- flokksins og ekki síst til kven- frelsismála. Hún er ein þeirra kvenna sem rutt hafa brautina fyrir okkur hinar sem á eftir komu. Ástvinum Bjargar sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning Bjargar Einarsdóttur. Andrea Sigurðardóttir, formaður Hvatar, Nanna Kristín Tryggvadóttir, formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna. Í dag kveð ég kæra vinkonu, Björgu Einarsdóttur, merka konu og brautryðjanda. Ég kynntist Björgu fljótlega eftir að ég hóf þátttöku mína í stjórnmálum. Hún tók að sér að vera trúnaðarmaður minn og leiðbeinandi um refilstigu stjórn- málanna. Það var ótal margt sem ung kona þurfti að læra og til- einka sér. Ekki síst voru próf- kjörin krefjandi áskorun. Björg átti sjálf merkan ævi- feril. Hún var rithöfundur og kom víða við í störfum sínum, m.a. fyrir Kvenréttindafélag Ís- lands. Hún var eindreginn tals- maður kvenréttinda og mjög virk í þeirri baráttu. Við vorum svo heppin að hún kaus að starfa inn- an vébanda Sjálfstæðisflokksins og gegndi þar ótal trúnaðarstörf- um. Hún var mikill Sjálfstæðis- maður og naut virðingar og hafði áhrif bæði innan flokks en líka út fyrir flokkslínur. Björg var óþreytandi í starfi sínu við að styðja við baráttu kvenna í Sjálfstæðisflokknum og var stuðningur hennar ómetan- legur á því sviði. Um leið og ég kveð þessa mætu konu vil ég þakka henni fyrir einstaka vináttu og stuðn- ing. Fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Minningin lifir. Sólveig Pétursdóttir. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 ✝ Dísa Her- mannsdóttir fæddist á Mikla- hóli, Viðvíkursveit í Skagafirði, 21. júní 1932. Hún lést á líknardeild Land- spítalans 6. desem- ber 2022. Hún hét fullu nafni Heiðrún Dísa Hermannsdóttir en notaði ekki nafnið Heiðrún og því þekktu hana allir sem Dísu. Foreldrar Dísu voru Her- mann Sveinsson, f. 30.11. 1893, d. 8.1. 1968, og Jónína Guð- björg Jónsdóttir, f. 16.4. 1897, d. 16.5. 1972. Sonur Dísu er Jóngeir Hjörvar Hlinason, f. 30.8. 1955, faðir hans var Hlini Jónsson, f. 5.1. 1932, d. 14.6. 1958. Eig- inkona Soffía Melsteð, f. 27.3. 1960. Synir Jóngeirs og Soffíu eru: a) Hlini Melsteð Jóngeirs- son, f. 18.8. 1980, hann á þrjú börn, Selmu Rán, f. 26.2. 2001, Magnús Ara, f. 23.12. 2004, og Kormák, f. 6.1. 2009. b) Þór Melsteð Jóngeirsson, f. 29.4. 1982. c) Freyr Melsteð Jón- geirsson, f. 3.4. 1995. Dóttir Dísu er Heiðrún Hlín Guðlaugsdóttir, f. 5.8.1960, fað- ir hennar var Guðlaugur sá um búskap að miklu leyti ásamt börnum sínum. Skólaganga Dísu var ekki löng, hún lauk fullnaðarprófi frá barnaskólanum sem var í samkomuhúsinu á Læk í Við- víkursveit. Það hefur ekki ver- ið auðvelt fyrir ung börn að ganga um fimm km í skólann í öllum veðrum. Veturinn 1950-1951 var hún í Kvennaskólanum á Blönduósi. Fyrir skólavist sinni þar hafði hún unnið sér sjálf. Dísa vann ýmis störf á ævinni, meðal ann- ars starfaði hún í Varmahlíð við þjónustustörf og við Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur starfaði hún hjá Pósti og síma frá 1968, fyrst sem bréfberi og síðar við flokk- un bréfpósts, þar til hún lét af störfum vegna aldurs 1999. Þá hafði hún starfað hjá Pósti og síma í rúm 30 ár. Dísa var mikil handavinnu- kona og þar bjó hún að því sem hún lærði í Kvennaskólanum á Blönduósi. Hún hafði gaman af því að ferðast og fór í allmörg ferðalög til sólarlanda með vin- um og ættingjum. Útför Dísu fer fram frá Langholtskirkju í Reykjavík í dag, 20. desember 2022, klukk- an 13. Bjarnason, f. 2.12. 1940, d. 18.2. 1988. Eiginmaður Hann- es Siggason, f. 24.9. 1958. Synir Heiðrúnar og Hannesar eru: a) Guðlaugur Siggi, f. 8.6. 1988. Sam- býliskona Josabeth Melendres Albar- ando, f. 12.11. 1986. Þau eiga einn son, Hannes Þór, f. 18.9. 2018. b) Hermann Kári, f. 9.1. 2000. Systkini Dísu eru: Anna Sölvadóttir, f. 6.8. 1923, d. 17.7. 2000. Sigríður Sölvadóttir, f. 31.12. 1924, d. 23.12. 1925. Sig- ríður Sölvína Sölvadóttir, f. 1.1. 1926, d. 26.10. 2015. Sig- urlaug Anna Hermannsdóttir, f. 3.6. 1929. Jón Hermannsson, f. 27.4. 1931, d. 16.1. 1947. Sig- rún Hermannsdóttir, f. 19.4. 1935. Hallfríður Kristbjörg Hermannsdóttir, f. 14.9. 1936, d. 19.7. 2017. Björn Pálmi Hermannsson, f. 16.7. 1938, d. 22.9. 2019. Dísa ólst upp ásamt systkin- um sínum hjá foreldrum sínum Hermanni og Jónínu á Mikla- hóli í Viðvíkursveit, Skagafirði. Hermann var smiður og vann mikið utan heimilis en Jónína Látin er tengdamóðir mín Dísa Hermannsdóttir, fyrrver- andi starfsmaður Pósts og síma. Með henni er gengin ein af þessum manneskjum sem ég hef borið gæfu til að vera sam- ferða um áratugi og get flokkað sem velgerðarmanneskju mína. Hún Dísa var ákaflega vel gerð manneskja – dugleg og fylgin sér. Alltaf var hún tilbúin til að rétta fram hjálparhönd. Dísa hafði létta lund og lét fátt koma sér úr jafnvægi þó svo að á móti blési. Hún hafði orðið fyrir þeim harmi þegar hún var 26 ára gömul að unnusti hennar og barnsfaðir féll frá. Þá var sonur þeirra þriggja ára. Tveimur árum síðar eignaðist hún Heiðrúnu Hlín sem síðar varð eiginkona mín. Þessi tvö börn voru sólargeislar hennar alla tíð. Æðrulaus var hún og henni var tamt að segja „ég er ekki hissa á því“ þegar henni voru sögð tíðindi. Hún kvartaði aldr- ei. Hún hafði gaman af lífinu – sá alltaf spaugilegu hliðina – hafði létta lund. Það var árið 1985 sem ég kynntist Dísu þegar við Heið- rún vorum að rugla saman reyt- um okkar. Þá var Dísa 53 ára og vann vaktavinnu. Ég skynj- aði fljótt að ég var að kynnast fjölskyldu þar sem mikil sam- staða og frændrækni ríkti. Þannig ræktaði Dísa vel sam- band sitt við systkini sín. Það var henni mikið áfall þegar „litli“ bróðir hennar Björn Her- mannsson féll frá árið 2019 en hann var sex árum yngri. Milli þeirra var einstakt samband. Það vakti athygli mína hve sjálfstæð Dísa var – hún hugs- aði sjálf um allt viðhald í sinni íbúð – málaði og gerði við – með sinni aðferð. Þegar ég kynntist Dísu bjó hún í notalegri íbúð við Gnoð- arvog. Þangað hafði hún flutt árið 1972 vestan af Grímsstaða- holti þar sem hún hafði búið frá árinu 1966 þegar hún flutti á mölina ásamt börnum og öldr- uðum foreldrum úr sveitinni í Skagafirði. Árið 1999 fór Dísa á eftirlaun, þá 67 ára gömul. Í Gnoðarvoginum bjó hún til árs- ins 2005 þegar hún minnkaði við sig og fluttist í lyftublokk við Þangbakka. Þar undi hún sér vel og naut eftirlaunaár- anna. Naut sín vel í einveru, hlustaði mikið á útvarp, fylgdist með sjónvarpsdagskránni og las. Sérstakt yndi hafði hún af því að horfa á íþróttaviðburði – sérstaklega þegar landsliðið var að keppa í handbolta. Fyrir u.þ.b. fimm árum fór heilsa Dísu að gefa eftir og færni til ýmissa verka að verða minni. Áfram hélt hún þó sinni reisn og stolti og vildi vera sjálfstæð. Í Þangbakkanum bjó Dísa þar til yfir lauk – hún lést á líkn- ardeild Landspítalans í Kópa- vogi 6. desember sl. af völdum krabbameins sem nýlega hafði uppgötvast. Fyrir liðnar samverustundir er mér þakklæti efst í huga. Ég þakka fyrir allar ánægjustund- irnar á ferðalögum bæði innan- lands og erlendis. Ég þakka fyrir pössunina á drengjunum mínum. Ég þakka fyrir þegar við Heiðrún fengum að búa hjá þér um eins árs skeið þegar við vorum að skipta um húsnæði. Ég þakka fyrir öll störf þín á heimili mínu en þar var ekki slegið slöku við – aldrei hætt fyrr en allar óhreinar flíkur höfðu verið þvegnar og allur þvottur straujaður. Vertu kært kvödd kæra tengdamamma – hafðu þökk fyrir samfylgdina. Hannes Siggason. Þegar kemur að kveðjustund renna í gegnum hugann ótal dýrmætar minningar sem gott er að eiga og ylja sér við. Dísa frænka var einstök manneskja sem alltaf var gott að vera sam- vistum við. Hún var hetja á svo margan máta, kvartaði aldrei yfir aðstæðum sínum og harðri lífsbaráttu, var alltaf glöð, já- kvæð og umhyggjusöm. Hún fæddist á bjartasta tíma ársins, þegar sólin skín allan sólarhringinn í Viðvíkursveit- inni. Kannski er það ástæða þess að hún var sjálf sólargeisli í lífi svo margra. Í blóma lífsins, ástfangin og með framtíðina mótaða, missir hún unnusta sinn, Hlina Jónsson. Með hon- um átti hún soninn Jóngeir 1955. Fimm árum seinna eign- ast hún dótturina Heiðrúnu Guðlaugsdóttur. Það að standa einstæð tveggja barna móðir hefur sennilega átt mestan þátt í því að hún ílengdist heima. Þegar Jónína amma og Her- mann brugðu búi 1966 og flutt- ust frá Miklahóli til Reykjavík- ur fylgdi hún þeim og hélt með þeim heimili til æviloka þeirra. Þau keyptu í sameiningu húsið Urðarhól á Grímsstaðaholtinu. Þá var sá staður svolítil sveit í borg, með torfbæinn hans Edda í Dagsbrún við hliðina og Land- leiðabraggana uppi á holtinu. Það þurfti að hafa fyrir lífinu þá eins og nú og Dísa réð sig í póstburð hjá Pósti og síma. Það varð hennar vinnustaður öll starfsárin í Reykjavík. Póst- burður var ekkert léttaverk. Á hverjum degi og í öllum veðrum rogaðist hún með níðþungar pósttöskurnar um háskóla- hverfið og stórt svæði vestur af því. Ég sé hana fyrir mér, þessa smávöxnu fíngerðu konu, með hátt í jafnþyngd sína á öxl- unum. Hún kveið alltaf mest fyrir töskunum sem fylltust af bókatíðindum fyrir jólin. Þá fjölgaði líka töskunum og hún þurfti að geyma hluta þeirra heima og fara fleiri ferðir út. Það var ekkert verið að slaka á. Og það voru fleiri verk sem þurfti að vinna. Hún var snill- ingur á saumavél og tók að sér sauma í hjáverkum. Henni tókst með þessu að koma börn- unum sínum til mennta og fjár- magna kaup á íbúð í Gnoðar- voginum, eftir að Reykjavíkurborg innleysti Grímsstaðaholtið fyrir bygg- ingu stúdentagarða. Andvirði Urðarhóls var ekki hátt og þá bættist við að taka lán fyrir kaupunum. En þetta var bara ein af þessum brekkum sem hún gekk með bros á vör. Í gegnum árin hefur heimili hennar verið athvarf fyrir marga ættingjana, til skemmri eða lengri tíma. Ég var ein þeirra sem gistu oft og síðustu fjögur árin á þriggja mánaða fresti. það brást ekki að hún hringdi i mig þegar nálgaðist tímann til að vita hvort ég væri ekki örugglega væntanleg. Þessar stundir okkar saman teygðust oftar en ekki inn í nóttina, við upprifjanir og frá- sagnir. Það var oft mikið hlegið. Svo kom covid og skemmdi þetta fyrir okkur, en oftast kíkti ég samt aðeins við. Fyrir nokkrum árum fórum við tvær saman til Tenerife. Það var dásamleg ferð og batt okkur enn þéttar saman. Henni var aldrei fullþökkuð sú aðstoð sem hún veitti foreldrum mín- um í veikindum mömmu en ég veit að það gerði hún með gleði. Nú eru þessi tímamót raun- veruleiki og því verður ekki breytt. Fjölskyldu Dísu votta ég samúð mína. Jónína Hjaltadóttir. Dísa Hermannsdóttir Vinkona mín og fyrrverandi sam- starfskona er fallin frá langt um aldur fram. Málfríður var skrifstofustjóri á ónæmis- fræðideild, sem er í litlu notalegu húsi á Landspítalalóðinni, og var eins konar „mamma“ okkar sem allir virtu. Hún taldi ekki eftir sér aukasporin ef eitthvað stóð til í fé- lagslífinu, hvort sem var að versla eitthvað eða útbúa heitt súkkulaði heima handa liðinu áður en mætt var í vinnu. Þetta átti líka við um fjölskyldu hennar, því betri mömmu er ekki hægt að hugsa sér, þannig talaði hún um börnin sín og barnabörn. Málfríður var einstaklega hlý og góð manneskja og sá alltaf björtu hliðarnar á hlutum og þeg- ar hún var orðin veik talaði hún um að hún þyrfti ekki að kvarta, aðrir hefðu það miklu verra. Mann grunaði samt ekki hve stutt var í endalokin og er skrýtið að hugsa til þess að það er rúmt ár síðan við borðuðum saman þrjár fyrrver- andi samstarfskonur, og Þóra er líka fallin frá. Ég þakka Málfríði samfylgdina og votta fjölskyldu hennar mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Elísabet. Í dag kveðjum við elskulega æskuvinkonu mína Mollý eftir snarpa baráttu við illvígt krabba- mein.Við kynntumst litlar stelpur í Hlíðaskóla og tókst með okkur innileg vinátta sem varað hefur alla tíð síðan. Við Mollý gátum aldrei hvor án annarrar verið í langan tíma og þegar við vorum unglingar komum við okkur upp þeirri reglu að skiptast á að hringja í hina ef við urðum ósátt- ar, eins og vill gerast hjá vinkon- um á þessum aldri. Það var því alltaf á hreinu hvor myndi hringja og hreinsa loftið. Líf okkar hefur verið samofið alla tíð. Mollý varð fyrir þeirri erfiðu reynslu að missa pabba sinn þegar hún var 14 ára gömul. Hann lést rúmlega fertug- ur eftir erfið veikindi og varð mamma hennar því ekkja innan við fertugt með fjögur börn, það voru erfiðir tímar en við áttum samt góð unglingsár í Hlíðunum, stunduðum Tónabæ eins og ung- lingar gerðu á þeim tíma og áttum góða vini. Við giftum okkur báðar snemma og fórum að búa. Hún kynntist honum Braga sínum 1974 og fljótlega tókust þau á við for- eldrahlutverkið þegar Baldur Geir fæddist 1976 og Hulda Guð- rún 1978. Svanhildur Anna fædd- ist 1981 og við Zophanías eignuð- umst það sama sumar okkar fyrsta barn, Svövu, og nokkru seinna bættist Eva í hópinn hjá okkur. Samgangur okkar hefur verið mikill í gegnum árin. Við hjálpuðum hvert öðru við barna- pössun, húsbyggingar og flutn- inga, stórveislur, svo sem skírn, fermingar og útskriftarveislur og aðra viðburði í fjölskyldum okkar. Mollý var alltaf fyrst til að bjóða aðstoð, sama hvað var. Dugnaður þeirra hjóna var einstakur, eftir að hafa byggt fyrstu íbúðina í Fífuseli byggðu þau sér raðhús í Logafold og síðan einbýlishús í Vættaborgum í Grafarvogi. Á þessum árum byggðu þau sér líka sumarbústað í Eilífsdal þar sem við áttum góðar stundir saman. Í gegnum árin höfum við gert mjög margt skemmtilegt saman, sem nú geymist sem dýrmætar Málfríður Ásgeirsdóttir ✝ Málfríður Ás- geirsdóttir, Mollý, fæddist 11. ágúst 1955. Hún lést 27. nóvember 2022. Útför Mollýjar fór fram 15. desem- ber 2022. minningar. Við höf- um ferðast bæði inn- anlands og utan, sér- staklega seinni árin þegar börnin voru komin á legg. Við deildum einlægum áhuga okkar á Ítalíu og fórum þangað oft saman og víða um heimsálfurnar. Mollý og Bragi voru einstaklega sam- stiga í lífinu og hjónaband þeirra var mjög kærleiksríkt. Þau voru miklar fyrirmyndir fyrir börn sín og barnabörn. Mollý var dugleg- asta manneskja sem ég hef kynnst. Hún var ósérhlífin og greiðvikin og vildi gera allt fyrir alla. Það lýsir henni vel að þegar hún greindist með krabbamein þá sagði hún við mig: af hverju ekki ég frekar en einhver annar, æðru- leysið var algjört. Hún Mollý mín var sannkölluð ættmóðir í sinni fjölskyldu. Hún studdi við bakið á börnum sínum og hvatti þau áfram og var í sér- staklega góðu sambandi við þau öll. Barnabörnin elskaði hún ótak- markað og þau hana og átti hún í miklu og nánu sambandi við þau. Elsku Bragi, Baldur Geir, Hulda Guðrún, Svanhildur Anna, tengdabörn, barnabörn og aðrir ástvinir. Megi minningin um ynd- islega konu gefa ykkur styrk og kraft til að takast á við lífið án Mollýjar okkar. Elsku Mollý mín, þar til við hittumst næst, þín vinkona alltaf. Guðrún (Gunna). Fallin er nú frá kona sem mark- aði djúp og gæfurík spor í líf okkar allra sem urðum þeirrar gæfu að- njótandi að fá að fylgja henni eftir á lífsins göngu. Málfríður var sannarlegur máttarstólpi innan ónæmisfræðideildar Landspítal- ans þar sem náðargáfa hennar, sem laut að einlægum náunga- kærleika auk ótrúlegrar næmni á litróf mannlífsins, umvafði okkur öll. Næmt innsæi hennar var því undirrituðum ómetanlegur stuðn- ingur í þeim margvíslegu og oft á tíðum erfiðu verkefnum sem á veg okkar farsæla samstarfs urðu um árabil. Það var sama hvað dundi á, alltaf gat ég reitt mig á hennar ráðleggingar og úrræði, sem stundum voru færð fram af móð- urlegri umhyggju og festu. Ráð- heldni var henni í blóð borin og naut rekstur deildarinnar þess í ríkum mæli, skipti þá litlu hvort um væri að ræða minniháttar kaup á kaffi eða stórinnkaup frá erlendum birgjum. Einlægur áhugi hennar á verkefnum dags- ins auk umhyggju um velferð okk- ar smitaði auðveldlega út frá sér og var án efa lykillinn að góðum starfsanda deildarinnar. Henni var sérstaklega annt um nemend- ur okkar og var fljót að ávinna sér traust þeirra og virðingu. En það var velferð og hamingja fjölskyld- unnar sem var hjarta hennar næst og augljós sú ást og stolt sem hún bar til þeirra allra. Tilhlökkun hennar og eftirvænting til ham- ingjuríkra ótakmarkaðra sam- verustunda við þau þegar kom að starfslokum var því eðlilega mikil og gat ég ekki annað en hrifist með þó að kvíði fylgdi tilhugsun- inni um það tómarúm sem hún óneitanlega skildi eftir í hjarta okkar þegar að starfslokum kom. Því miður var þessi síðasti kafli á hennar glæsilega lífsferli alltof stuttur þar sem hetjuleg barátta hennar til lífs tók skyndilegan enda. Missir Braga, barna og allra barnabarnanna er því mikill og megi góðar vættir styrkja þau og vernda í sorg þeirra. Guð blessi minningu hennar. Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir ónæm- isfræðideildar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.