Morgunblaðið - 20.12.2022, Page 21

Morgunblaðið - 20.12.2022, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 ✝ Jón Árnason fæddist í Reykjavík 12. maí 1954. Hann lést á heimili sínu 7. des- ember 2022. Foreldrar Jóns voru Árni Árnason Hafstað, starfs- maður á tæknideild Landssíma Íslands, f. 2. febrúar 1915, d. 20. nóvember 1994, og Arngunnur S. Ársælsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 13. október 1919, d. 6. júní 2012. Synir þeirra auk Jóns eru: Kolbeinn jarðeðlisfræðingur, f. 24. júlí 1950, Árni grunnskóla- kennari, f. 23. desember 1951, Ársæll Þorvaldur bókbindari, f. 30. mars 1953, og Finnur fram- kvæmdastjóri, f. 27. maí 1958. Jón kvæntist Halldóru Magn- úsdóttur, forritara, f. 9. ágúst 1954, d. 1. nóvember 2020. Son- ur þeirra er Grímur stærðfræð- ingur, f. 23. nóvember 1977. Kona Gríms er Svana Björk Hjartardóttir, og eiga þau Gunnlaug Magnús. Jón og Hall- dóra skildu. Seinni kona Jóns er Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, textíllistakona, f. 29. september 1958. Börn þeirra eru: Ragnheiður tónmeistari, f. 18. mars 1986; Árni myndlistarmaður, f. 20. febrúar 1989. Sambýliskona hans er Sigurrós G. Björnsdóttir; Finn- bogi, BS í sálfræði, f. 19. desember 1994. Sambýliskona hans er Sigurbjörg Ósk Klörudóttir. Jón og Íris Ólöf skildu. Um tíma bjó Jón með Rögnu Ólafsdóttur sálfræðingi, f. 27. febrúar 1954. Börn hennar eru Vigdís Hrefna Pálsdóttir, f. 5. október 1977, Solveig Pálsdóttir, f. 15. janúar 1985, og Páll Zop- hanías Pálsson, f. 26. júlí 1986. Jón lauk B.Ed.-prófi frá Kenn- araskóla Íslands og innanhúss- arkitektúr frá Myndlista- og handíðaskólanum í Ósló og vann hann við það fag í nokkur ár. Lengst af vann Jón sem deild- arstjóri hönnunardeildar Stöðv- ar 2. Jón verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 20. desem- ber 2022, og hefst athöfnin kl. 15. Elsku faðir minn, Jón Árnason, lést á heimili sínu miðvikudaginn 7. desember 2022. Við sátum saman á Kaffi Mokka á sunnudeginum fyrir og virtist hann vera brattur fyrir ut- an að vera svolítið óglatt. Daginn eftir spjölluðum við í símann og áfram talaði hann eins og hann væri í góðu stuði fyrir utan maga- vandamál. Á þriðjudeginum svar- aði hann ekki í símann. Alla mína tíð vildi pabbi ekki kvarta eða láta hafa fyrir sér, sem kom oft því miður til baka í andlit- ið á honum. Hann var gjafmildur, góðhjartaður, kurteis og fyndinn maður. Ég mun sakna hans mikið. Einhvern veginn er þetta allt ennþá óraunverulegt. Pabbi var búinn að vera einstaklega glað- vær og bjart yfir honum síðustu mánuði, stoltur af fréttum sem tengdust framþróun mála hjá systkinum mínum og mér. Um daginn, eftir að hann kvaddi, leið mér eins og ég þyrfti nú að taka eitt af nokkrum símtölum vikunn- ar og skipuleggja kaffihitting eða skákkeppni eins og okkur þótti gaman upp á síðkastið. Svo var erfitt að átta sig á að maður sem var eins seigur og pabbi hefði gef- ið sig. Að lokum var það svo raun- in. Minning mín um pabba verður af manninum sem leiddi mig út um allar trissur, grínaðist, kenndi, knúsaði og bjargaði mér frá myrkfælninni með róandi rödd sinni og sögum. Hann átti þátt í að kenna mér að elska tónlist af öllu tagi, allt frá reggae til enskra folk-músíkanta eins og The Albion Dance Band. Að sjálfsögðu þarf einnig að minn- ast óbrigðullar ástar hans á rokk- urum eins og Frank Zappa og John Lennon. Óteljandi klukku- stundum eyddum við saman í stof- unni á Bergstaðastræti að hlusta á plötur þar sem hann sagði mér sögur frá flytjendunum og þeim tónlistarstefnum sem hann hafði kynnt sér. Sterk minning situr í mér þar sem eftir hver einustu áramót fór- um við um miðbæinn og fundum afganga og sprek eftir sprenging- ar, kökur, rakettur, froska og hvað sem er – sem við nýttum svo í hættulegasta bálköst í Reykja- víkurborg, í bakgarðinum hjá pabba og Rögnu. Frasinn „allegógó – dúút dúút“ sem var nýttur við alls kyns tilefni lýsir svo vel súrrealíska bull-grín- istanum sem hann pabbi var. Hann gat búið til listaverk úr engu og var einstaklega góður hönnuður að mínu mati. Húmor- inn hjá honum var aldrei langt í burtu, eins og þegar hann ætlaði að ræna kjörbúð með íslenskri gúrku. Pabbi kenndi mér margt og á stóran þátt í því að búa til mann- inn sem ég er í dag. Harmurinn er mikill sem fylgir því að missa hann og tapa voninni um endur- heimt mannsins sem hann var fyr- ir veikindin. Á sama tíma mun ég sakna hans og vera þakklátur ævilangt. Þakklátur fyrir gleðina og hamingjuna sem hann veitti mér á lífsleiðinni. Þakklátur fyrir þá fjölskyldu og tengingar sem myndast hafa í kringum hann. Þakklátur fyrir Rögnu og börnin hennar, yndislegu plast-systkini mín. Þakklátur fyrir alla brand- arana, fróðleikinn og listina. Þakklátur fyrir tónlistina. Þakk- látur fyrir ástina. Þakklátur fyrir vin minn. Hvíl í friði elsku besti pabbi minn. Minning um góðan mann lifir. Finnbogi Jónsson. Ég vakna með stútur í hárinu, beinustu leið út í fjöru og við hrúgum saman stórum steinum. Kjallarabollur, kókómjólk og við keyrum þrjú frammí út á Stöð 2. Kók og prinspóló á meðan ég snýst í stóru stólunum og færi til merkingarnar á veðurfréttakort- inu. Svo kíki ég á milli fingranna á bannaða mynd í sjónvarpinu á meðan þú þværð varlega á mér hárið. Góða nótt gamli JólaJeppi. Þinn Árni. Þegar móðir mín tilkynnti mér að hún ætti kærasta sem héti Jón dró ég þá ályktun samstundis af nafninu að um væri að ræða hinn venjulegasta mann en andstæðan varð raunin. Maðurinn sagði hún að líktist George Clooney; hann var fagureygur og með blíða nær- veru en ekkert líkur George Cloo- ney. Með Jóni fylgdu þrjú börn, þau Ragnheiður, Árni og Finn- bogi, sem var þá bara lítill dreng- ur en við hin það sem mætti kalla táningar. Á heimilinu okkar í den á Bergstaðastræti var slett á dönsku í djóki og stundum tók hann Jón upp á að tala á vissu bullmáli í fíflagangi. Barnaskar- inn sem fann sig i nýjum hlutverk- um var nefndur plastikbror og plastiksystir af Jóni og okkur börnunum samdi vel. Ég myndi lýsa honum Jóni Árnasyni sem miklum fagurkera með smekk fyrir sérstæðum lita- samsetningum, sem einhvern veginn alltaf virkuðu. Með komu Jóns á æskuheimili okkar fylgdu einnig hinir áhugaverðustu gripir. Þar ber að nefna forláta teknó- kubb sem var hans uppáhaldsstof- ustáss og settur í samband á rétt- um andartökum til að sprella smá í fólki eða ef boðið var leiðinlegt. Til að hýsa allan þennan barna- skara varð að sýna vissa útsjón- arsemi og fann Jón þá lausn að smíða tveggja metra háar bóka- hillur sem voru einnig veggir og bjó þar með til tvö ný rými sem urðu hvort að sínu herberginu. Framhliðar bókahillanna málaði hann því næst kóngabláar og fyllti þær svo af bókum sem náðu upp í rjáfur og var engin leið að nálgast efstu hillurnar nema með stiga. Fyrir framan stigann setti hann svo tvö hásæti sem hann hafði eitt sinn hannað fyrir fegurðarsam- keppni sem vöktu undrun gesta. Þeir stólar þykja mér lýsandi fyr- ir hversu klár hönnuður hann var; einfaldir en margbrotnir. Eitt sinn tók Jón upp á því að draga mig með á kóræfingu, í bíla- kór undir stjórn Magnúsar Páls- sonar. Ég söng hljóð Mercedes Benz en ég man ekki hvaða bíl hann Jón söng því þegar fjöl- skyldumeðlimir spurðu sagði hann alltaf nýja og nýja bíltegund; Lada Sport, Skoda, Lamborghini, Volkswagen … svo gerði hann bílahljóð og hló. Húmorinn hans Jóns var ekki af þessum heimi stundum og stundum alveg absúrd, sem gerði brandarann betri, finnst mér. Eldamennska hins vegar var ekki hans sterka hlið, en hann var þekktur á Bergstaðastræti 9 fyrir að elda afar framúrstefnulega rétti fyrir okkur unglingana við misjafnar undirtektir. Einn réttur þó kom öllum að óvörum og varð að uppáhaldi sumra heimamanna en það var ofnbakaður haus af blómkáli, í einhverju óræðu soði með osti bræddum yfir. Í fyrsta skipti sem rétturinn kom á borðið tókum við unglingarnir andköf, en þau breyttust brátt í kjams. Hann kom stöðugt á óvart hann Jón Árnason með húmor og hugrakkri tilraunamennsku. Ég er afar þakklát fyrir að hafa átt jafn blíðan, fyndinn, fróðan og furðulegan stjúpföður og hann Jón var. Ég vil votta þeim Grími, Ragnheiði, Árna og Finnboga samúð mína, minningin um góðan mann lifir og hann lifir í ykkur. Ykkar plastsystir, Solveig Pálsdóttir. Við Jón kynntumst þegar við unnum saman á Stöð 2 fyrir um þremur áratugum. Þetta var á frumkvöðlaárunum og við vorum hluti af kreatífu gengi sem vann að því að búa til sjónvarp sem átti engan sinn líka. Hann var ráðinn upphaflega sem leikmyndahönnuður og sýndi strax óvanalega hæfileika og ótrú- legt listrænt næmi fyrir sjónræn- um lausnum, allt frá hönnun vinnurýma til smáhluta í leik- myndum. Hér var á ferðinni ein- stakt hæfileikabúnt og áður en varði var hann orðinn yfirmaður okkar allra. Þarna mynduðust tengsl og vinátta sem hefur hald- ist æ síðan. Við sátum öll saman við hring- borð á árshátíð sem haldin var á Hótel Örk í Hveragerði. Þá var ákveðið að við myndum hittast einu sinni í mánuði það sem eftir væri ævinnar. Sex fjölskyldur, öll með börn á svipuðum aldrei, öll í svipuðu basli, uppeldi, húsnæði og svo framvegis. Við héldum mat- arboð þar sem hver reyndi að toppa annan í matargerð, stund- um drukkið ósleitilega, stundum ekki, en alltaf gaman og alltaf gott að borða. Við skipulögðum útileg- ur á sumrin þar sem allur skarinn mætti eina helgi einhvers staðar í góðu veðri. Þetta voru góðir tímar. Eitt verkefni sem við unnum á stöðvarárunum er sérlega minnis- stætt. Ekki vegna þess að það væri svo brilljant hönnun í gangi, sem auðvitað var; jarðlitir, grjót og möl í fréttaleikmynd var ekki alveg það sem áhorfendur sjón- varps voru vanir, þá var allt í ís- köldu bláu gleri og stáli en við vor- um ekki þar. Nei, það voru mannlegri þættir sem ég man frekar eftir enda eru vinátta og mannleg tengsl eilífari en góð hönnun. Við þurftum að ná í litríka og formfagra möl og grjót til að setja í glerskápa í bakgrunnum í fréttasettinu. Ég mundi eftir kringlóttu grjóti á Djúpalónss- andi, litrík möl í Drápuhlíðarfjalli og hörpuskeljarsalli í Stykkis- hólmi svo við ákváðum að taka túr um nesið og safna grjóti og möl í settið. Strákarnir okkar, Andri og Árni, jafnaldra, fengu að fara með svo úr varð skemmtileg helgarferð um Snæfellsnes. Sannkallaður gæðatími með pöbbum og sonum. Við fórum á Djúpalónssand til að stela kringlóttu grjóti. Jón hafði tekið með gamlan bakpoka, ekki til þess að fylla af möl, til- gangurinn var annar. Faðir hans hafði dáið nokkru áður og Jón vildi setja yfir gröf hans sæbarinn stein. Og steininn fundum við í fjörunni. Þetta var sem betur fer ekki einn af þessum frægu stein- um fyrir kraftakarla á vertíð að reyna sig við, Amlóði, Hálfsterkur og Fullsterkur, en sá sem við fundum var ýkjulaust einhvers staðar nær Fullsterk en Hálfsterk í minningunni. Við veltum stein- inum upp eftir fjörunni þar til við komum að nokkuð stórri þúfu. Við komum steininum með saman- lögðu átaki upp á þúfuna og Jón lagðist niður með bakpokann á öxlunum og ég gat velt steininum inn í pokann og stutt Jón til að standa upp. Hann gekk upp fjör- una sirka eins kílómetra leið upp á bílastæðið. Þetta fannst mér fal- legt. Einu sinni sátum við uppteknir í vinnunni hvor á móti öðrum. Jón lítur upp, horfir á mig og spyr: „Warum sind die bananen kugel- formet?“ Þetta var Jón og ég sakna hans. Björgvin Ólafsson. Jón Árnason ✝ Árni Steinar Hermannsson fæddist á Vöglum á Þelamörk 12. október 1934. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Hlíð á Akureyri 9. des- ember 2022. Foreldrar hans voru Hermann Valgeirsson, f. 16. október 1912, d. 15. apríl 1990, og Þuríður Pét- ursdóttir, f. 4. janúar 1912, d. 2. júní 1983. Systkini: 1) Pétur Gauti, f. 1933, d. 2006; 2) Sólveig, f. 1935; 3) Þóra, f. 1937, d. 2011; 4) Kristján, f. 1939; 5) Steindór, f. 1942, d. 2022; 6) Dagur, f. Önnu og Einars Ásgeirssonar er Daði Freyr; 4) Stefán, f. 1962, maki Ragnheiður Stein- sen, f. 1963; 5) Þuríður Sólveig, f. 1964, maki Hermann Karls- son, f. 1967. Dætur: Berghildur Þóra, Hulda Björg og Birta Rós; 6) Sigríður Guðný, f. 1968, maki Jakob Valgeir, f. 1963. Börn: Guðni Valgeir og Hildur Vala. Árni Steinar ólst upp í Myrk- árdal í Hörgárdal. Hann var einn vetur í Héraðsskólanum á Laugum í Reykjadal, í smíða- deild. Árni Steinar hóf búskap á Ytri-Bægisá árið 1958 og bjó hann þar til ársins 2000 þegar hann flutti til Akureyrar. Á búskaparárum sínum á Ytri-Bægisá vann hann auk bú- starfanna ýmis störf fyrir bændur og sveitarfélagið, má þar nefna byggingarvinnu og ýmis nefndarstörf. Útför Árna Steinars fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 20. desember 2022, klukkan 13. 1945, d. 2005; 7) Anna, f. 1948; 8) hálfbróðir Hreinn Heiðar, f. 1937, d. 1999. Árni Steinar kvæntist 5. sept- ember 1959 Rós- línu Berghildi Jó- hannesdóttur, f. 27. desember 1934, frá Neðri-Vind- heimum. Börn þeirra eru: 1) Hermann, f. 1957; 2) Jóhannes, f. 1958, maki Eva Bryndís Magn- úsdóttir, f. 1956. Synir: Árni Rúnar og Andri Már; 3) Anna Ragna, f. 1959, maki Stefán Stefánsson, f. 1963. Synir: Vikt- or Logi og Stefán Árni. Sonur Mikið lán er að eiga góða og samheldna stórfjölskyldu sem stendur saman í blíðu sem stríðu. Árni Steinar, fyrrverandi bóndi á Ytri-Bægisá, föðurbróðir okkar, var næstelstur níu systkina frá Myrkárdal og afar styrk stoð fjöl- skyldueiningarinnar. Það vekur margar minningar er slíkar stoðir falla því Bægisár- fjölskyldan hefur verið snar þátt- ur í lífi okkar Lönguhlíðarsystk- ina. Bræðurnir Árni og Kristján bjuggu samtíða í þrjátíu ár með fjölskyldum sínum hvor sínum megin Hörgár og oft var rennt „ufrum“ í kaffi eða til þess að leysa eitthvert verkefni. Ekkert viðvik var svo stórt að ekki væri hægt að biðja um aðstoð og ófá handtökin sem fjölskyldurnar réttu hvor annarri. Við vorum svo lánsöm að þrjú barna hans unnu hjá foreldr- um okkar um lengri eða skemmri tíma og aðstoðuðu við búverkin og reyndu líka að hemja okkur systk- inin. Skemmtilegar voru sögurnar frá því hann var mjólkurbílstjóri fyrir 1970 þegar vegir voru ekki greiðfærir en hann var lánsamur og góður bílstjóri. Einhverra hluta vegna eru bílar hans minnisstæð- ir, s.s. bláhvíti rússajeppinn og svo vörubíllinn sem gegndi mörgum hlutverkum; alls konar flutningur og fjárbíll á haustin. Þvílík gleði þegar hann leyfði, sem var alloft, okkur krakkaskömmunum að „standa upp’á“ og fylgja fénu á sláturhús, þótt það kostaði hann aukakrók og umstang. Hefðir og siðir eru sterkir og á aðfangadag var fastur liður að Árni kæmi með kort og pakka um þrjúleytið, jólamessa á Bægisá og við öll í kaffi. Samvera á gamlárs- kvöld þar sem horft var á Sirkus Billy Smart og áramótaskaupið, fyrstu árin í Lönguhlíð, því ekki náðust sjónvarpssendingar á Bægisá, en síðar þar því þau fengu litasjónvarp á undan okkur og það var nú heldur betur skemmtilegt að sjá skaupið í lit! Árni og Róslín eignuðust sex börn og oft hefur vinnudagur þeirra verið langur. Mikill var gestagangur ættingja og vina og öllum tekið svo afar vel. Bægisá er kirkjujörð og því bættust við störf er sneru að athöfnum og umsjón kirkjugarðsins auk þess sem Árni sinnti ýmsum nefndarstörfum. Hann var afar handlaginn og bæði smíðaði og gerði við vélar því mik- ið verksvit hafði hann og áhuga. Eftir að hann flutti í bæinn komu hæfileikar hann svo glögglega í ljós er hann gerði listavel upp dráttarvélar og húsgögn. Það var nærandi á alla vegu að heimsækja Árna og Róslín í Mela- teiginn; Árni við borðsendann með kaffi í glasi, klórar sér í höfð- inu, hlær og segir sögur og það er þetta brosblik í augunum, Róslín búin að dekka borð með skúffu- köku, kleinum, rasptertu og öðru góðgæti áður en gesturinn nær að tylla sér á stólinn. Andrúmsloftið þykkt af væntumþykju og gleði þegar rifjaðar eru upp sögur úr sveitinni og minningar af gengnu fólki og sagðar nýjustu fréttir af stórfjölskyldunni. Börnunum gleymdi hann ekki að sinna og var frábær afi og frændi, gaf sér alltaf tíma til að spjalla og glettast við þau. Við sendum Róslín og afkom- endum Árna innilegar samúðar- kveðjur. Systkinin frá Lönguhlíð þakka kærum frænda fyrir samfylgdina sem var okkur dýr- mæt. María Björk Kristjánsdóttir. Árni Steinar Hermannsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MÁLFRÍÐUR ANDREA SIGURÐARDÓTTIR, áður til heimilis í Miðtúni 82, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugar- stöðum mánudaginn 5. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir hlýju og umönnun. Sigurður Harðarson Sigríður Guðjónsdóttir Hörður Harðarson Anna Harðardóttir Eiður Jónsson Selma Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri JÓN RUNÓLFUR KARLSSON, Hallbjarnarstöðum 1, Skriðdal, varð bráðkvaddur 9. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jórunn Anna Einarsdóttir Anna Kristbjörg Jónsdóttir Hrafnhildur Heiða Jónsdóttir Jón Runólfur Jónsson Sigurður Rúnar Ingþórsson Eyjólfur Skúlason Eyrún Heiða Skúladóttir Jódís Skúladóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.