Morgunblaðið - 20.12.2022, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL24
Kletthálsi 11 - Sími 511 0000 - bilalind.is
Verð 6.69
TOYOTA LAND CRUISER 150 GX
Gjafaaskja frá Ferðaeyjunni
„Gisting og konfekt“ fylgir með
0.000
06/2014
Ek. 209 þ.km
Sjálfskipting
6 gírar
Dísel
Gullbrúðkaup
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl A
HrúturGömul deilumál gætu skotið upp
kollinum í dag.Gleymdu öllum áhyggjum.
Einhver semþú hefur ekki heyrt í lengi hefur
samband.
20. apríl - 20. maí B
NautÞér finnst þú kominn í ógöngur gagn-
vart vini. Líttu á björtu hliðarnar og brostu,
heimurinn er ekki að farast.
21. maí - 20. júní C
TvíburarÞú hefur þörf fyrir að gera eitthvað
til að bæta heilsu þína í dag.Ef þú vinnur á
réttumhraða kemstu í gegnumalla skafla
semá vegi þínumverða.
21. júní - 22. júlí D
KrabbiÁður en þú tekur verkefni að þér
skaltu ganga úr skugga um til hvers er raun-
verulegaætlast af þér.Reyndu að gera sem
mest úr kvöldinu.Vaktu samt ekki of lengi.
23. júlí - 22. ágúst E
LjónÞú stendur alltaf við orð þín og það vita
þeir semnæst þér standa.Ekkert og enginn
er fullkominn, sættu þig við það.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Óvæntar uppákomur á vinnustað
koma þér úr jafnvægi. Taktu skref aftur á
bak og skoðaðu hlutina þegar hugurinn
hefur róast. Þig langar til að ferðast meira.
23. september - 22. október G
Vog Það að heimsækja lækni er ekki til í
þinni orðabók en stundum kemur upp sú
staða að það er ekki hægt að fresta því.
Láttu ljós þitt skína ef þú getur.
23. október - 21. nóvember H
SporðdrekiAð elska og vera elskaður
er það semmáli skiptir í lífinu. Mundu
að eplið fellur sjaldan langt frá eikinni.
Einhver tekur hlut sem þú átt traustataki.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Þú ert tilbúinn til þess að
styrkja samband þitt við vini og kunningja.
Það kveður við nýjan tón í ástarsam-
bandinu. Gefðu tóninn í uppeldi nýja
gæludýrsins.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Þér vefst tunga um tönn í dag.
Það er líka allt í lagi, þú hefur ekki svör við
öllu. Ekki binda trúss þitt við fólk sem þú
þekkir ekki nógu vel.
20. janúar - 18. febrúar K
Vatnsberi Nú er rétti tíminn fyrir þig til
þess að söðla alveg um. Ungt fólk þarfnast
stuðnings í formi hugmynda, fjármagns
eða einhvers sem hlustar.
19. febrúar - 20.mars L
Fiskar Talaðu við unglinginn í rólegheitum
og teldu upp að tíu áður en þú ferð að
prédika. Eitthvað fer úrskeiðis í öllum
hamaganginum. Þú getur lagað það hægt
og rólega.
Ágústa Ýr Þorbergsdóttir umdæmisstjóri – 50 ára
Vinnur að grænni framtíð
Á
gústa Ýr Þorbergsdóttir
er fædd 20. desember
1972 í Reykjavík og ólst
þar upp.
„Ég er Breiðhylting-
ur í húð og ár og flutti á fjórða ári
í Breiðholtið þar sem foreldrar
mínir höfðu byggt sér hús. Ég á mjög
góðar minningar frá æskuárunum í
Breiðholtinu en hverfið var umvafið
náttúru og það voru bæði hestar og
kindur á beit í nágrenninu þar sem
ÍR-svæðið er nú. Það var mjög gaman
að alast upp í hverfi sem var fullt
af börnum. Ég minnist þess að við
vorum úti öllum stundum, að leika
okkur í læknum sem var á leið okkar
í skólann, klifra í trjám og stillönsum
nýbygginga sem var nóg af.“
Skólagönguna byrjaði Ágústa í
Ísaksskóla. „Ég undi mér þó ekki
fyrr en ég fór í frábæra hverfis-
skólann Ölduselsskóla en ég á enn
marga góða vini á frá þessum árum.
Leiðin lá síðan í Verzló en flestir úr
stórum frændgarði höfðu farið í MR
og langaði mig að prófa eitthvað
annað. Ég sá ekki eftir því enda átti
ég frábær fjögur ár í Verzló. Eins og
pabbi hef ég alltaf haft mikla ævin-
týraþrá og elska að ferðast. Að loknu
stúdentsprófi lá leiðin til München í
Þýskalandi þar sem ég lærði þýsku
ásamt því að passa börn.“
Þegar heim var komið lærði Ágústa
stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
og tók þar þátt í félagsstarfi félags
stjórnmálafræðinema, m.a. í verk-
efninu Ungt fólk – takið afstöðu, til
að hvetja ungt fólk að nýta kosninga-
réttinn. „Hluta námsins varði ég sem
skiptinemi við Kaupmannahafnarhá-
skóla sem var ómetanleg reynsla.“
Að námi loknu vann Ágústa í nokk-
ur ár í neytendamálum hjá Neytenda-
samtökunum og stýrði neytendadeild
ASÍ. Haustið 2002 fór hún í starfs-
nám hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel
og í framhaldi af því í mastersnám
í þjóðarétti í Brussel kampus Kent
háskóla í Bretlandi.
Ágústa ílengdist í Brussel í rúm
níu ár og starfaði hjá EFTA-skrifstof-
unni, lengst af hjá Uppbyggingarsjóði
EFTA sem umdæmisstjóri fyrir
Spán, Portúgal, Grikkland, Kýpur,
Möltu og Rúmeníu. „Ég starfaði náið
með Fjárfestingabanka Evrópu við
rekstur eins sjóðsins í okkar umsjá og
var hluti af teyminu sem byggði upp
Uppbyggingasjóð EFTA í núverandi
mynd. Brussel-árin voru ómetanleg,
ég sinnti skemmtilegu og lærdóms-
ríku starfi, ferðaðist út um allan heim
og vinahópurinn stækkaði talsvert.
Við hlæjum oft af því að út hafi ég far-
ið með tvær ferðatöskur og kom heim
með 40 feta gám, mann og barn!“
Eftir heimkomu í lok árs 2011
stofnaði Ágústa Navigó ráðgjöf og
sinnti ráðgjöf til fyrirtækja aðal-
lega í orkugeiranum, með áherslu
á uppbyggingu jarðvarmaverkefna
fyrir utan Ísland. Hún lauk einnig
diplóma-námi í verkefnastjórnun frá
Haskólanum í Reykjavík.
„Á Navigo-árunum veitti ég
aðallega ráðgjöf í orku- og loftslags-
málum tengdum stefnu og löggjöf
ESB sem og ráðgjöf um alþjóðlega
kolefnismarkaði. Einnig veitti ég
ráðgjöf í fjármögnun verkefna, allt
frá orkuverkefnum til nýsköpunar-
verkefna sem tengdust styrkjum
og lánum frá alþjóðastofnunum og
bönkum. Til gamans má nefna að ég
vann með frábæru teymi Carbfix að
því að landa stærsta einstökum styrk
sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið
en það var styrkur sem Carbfix fékk
fyrir Coda-verkefnið frá Nýsköpunar-
sjóði Evrópu.“
Í mars á þessu ári gekk Ágústa
til liðs við ástralska fyrirtækið
Fortescue Future Industries, þar sem
hún er umdæmisstjóri fyrir Ísland.
„Ég vinn einnig náið með kollegum
mínum að verkefnaþróun grænna
vetnisverkefna í Evrópu. Það má því
segja að ég sé komin í draumastarfið
að vinna með alþjóðlegu teymi að
grænni framtíð. Yngri dóttir mín
komst svo skemmtilega að orði um
daginn þegar hún sagði: „Mamma,
draumar þínir hafa ræst, þú ert að
vinna að því að gera heiminn betri.“
Engin smá ábyrgð það að standa und-
ir væntingum!
Ég hef alltaf brunnið fyrir nýsköp-
un og hef verið svo heppin að geta
nýtt þekkingu mína í þágu nýsköp-
unarfyrirtækja, bæði hérlendis og
erlendis, mörg tækifæri nýsköp-
unarfyrirtækja liggja í Evrópulög-
gjöfinni. Í miðju Covid byrjaði ég að
vinna að hugmynd með Sigurjóni
Magnússyni að nýsköpunarsjóði sem
fjármagnar sprotafyrirtæki á fyrstu
stigum. Hugmyndin er þróuð út frá
hugmyndafræði viðskiptaengla (e.
business angels). Við fengum við til
liðs við okkur hóp norskra viðskipta-
engla sem ég hafði lengi starfað
með og fljótlega gekk Ragnheiður
Magnúsdóttir til liðs við okkur og er
hún stjórnarformaður félagsins.
Við stofnuðum fjárfestingarfélagið
Nordic Ignite fyrr á þessu ári, höfum
lokið tveimur engla fjárfestingalotum
og stefnum á fyrstu fjárfestingu fljót-
lega. Einnig erum við að undirbúa
næstu fjárfestingarlotu sem verður
stærri en þær sem við höfum lokið,
en sú fjárfesting mun gefa okkur
tækifæri á að fjárfesta í allt að 10-15
fyrirtækjum. Markmiðið er að skrá
FjölskyldanÁgústa, Silvía Ása, Parker og Eva Sofia í Maine sumarið 2022.
Afmælisbarnið
Ágústa er einn
stofnenda fjár-
festingarfélagsins
Nordic Ignite.
Í dag, 20. desember, eiga
Sif Knudsen sjúkraliði
og Stefán Ásgrímsson
blaðamaður 50 ára brúð-
kaupsafmæli.
Þau hittust fyrst 1.
desember 1972 og voru
gefin saman í Háskóla-
kapellunni þann 20. sama
mánaðar af sr. Hannesi
Guðmundssyni.
Börn þeirra eru Guð-
mundur Elías og Sigur-
laug. Barnabörnin eru 6.