Morgunblaðið - 20.12.2022, Page 25

Morgunblaðið - 20.12.2022, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL 25 Vísnahorn Varð öll sömul snjóug af snjó ÞorsteinnValdimarsson yrkir: Þó að öðrum ói við snjó fæ ég aldrei nóg af snjó – hvorki úti né inni – og einu sinni varð ég öll sömul snjóug af snjó! Sr. Jón Þorláksson á Bægisá kvað: Margur fengimettan kvið, má því nærri geta, yrði fólkið vanið við vind og snjó að eta. Enn yrkir Jón: Æðir fjúk umÝmis búk, ekki er sjúkra veður; klæðir hnjúka hríð ómjúk hvítum dúkimeður. Pétur Stefánsson skrifar á Boðnarmjöð að 16. des. sé árlegur merkisdagur í sínu lífi: Alla daga yrkir brag, eldarmat og étur. 68 er í dag eðalskáldið Pétur. Nú í dag ég kætast kann, kneyfa öl af vana þó árin hellist yfir mann eins og vatn úr krana. Eins og við var að búast fékk Péturmargar kveðjur. Steinn Lund- holm kvað: Látum ekkert á því bera elsku góðu vinir að okkur finnst við alltaf vera yngri en flestir hinir. Ingólfur ÓmarÁrmannsson: Óðarstef þín enn á ný ylja hugamínum. Drjúgur fengur finnstmér í ferskeytlunumþínum. Guðmundur Beck: Innra honum eldur brennur oft sem gleður oss. Út úr honumóður rennur eins og Lagarfoss. Enn skrifar Pétur: „Fór út á plan áðan og lenti í þrekraun við aðmoka bílinn út úr stærðar snjóskafli.“ Hér var engin sorg og sút, sat ég lengi að tafli. Búinn aðmoka bílinn út úr býsna stórum skafli. Aumur af öllu skakinu sem ei skal nánar flíka. Íbúfen bryð við bakinu og bévítans gigtinni líka. „Það birtir“ segirHallmundur Guðmundsson: Ávoru landi trauðla tjóar að tuða þó að hrímimóar, því birtuþrot í þanka róar - þegar ögn að vetri snjóar. „AÐ HLUTA TIL ER ÞETTA VIÐSKIPTA- FERÐ, AÐ HLUTA SKEMMTIFERÐ OG AÐ HLUTA TIL FLÓTTI FRÁ YFIRVÖLDUM.“ „HVAÐA AULI SEM ER GETUR NÁÐ HOLU EFTIR 22 HÖGG.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að muna að vaða ekki inn á skítugum skónum. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VEISTU GRETTIR, SÓL- GLERAUGU GERA MANN SVALAN OG ÉG MEINA EKKI BARA „SVALAN“… MÁ ÉG FÁ LITLA SÓLHLÍF Í DRYKKINN MINN? ÞAU GERA ÞENNAN MANN OFURSVALAN! SPEGILLINN ER Á HINUM VEGGNUM. ÞETTA ER MYND AF MÖMMU ÞINNI ÉG MUN LÍKLEGA FELLA NOKKUR TÁR Í KVÖLD! SÍMAR Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Nordic Ignite á markað til að gefa öll- um tækifæri á að fjárfesta í nýsköp- un. Ég sit í stjórn Nordic Ignite og varastjórn nýsköpunarfyrirtækisins Ýmir technologies.“ Ágústa er í stjórn foreldrafélags Ölduselsskóla og situr fyrir hönd for- eldrafélaganna í Breiðholti í íbúaráði Breiðholts. Einnig er hún í stjórn skíðadeildar ÍR. „Ferðalög hafa alltaf verið stór hluti af lífi mínu og útivist mikilvæg- ur þáttur. Ég elska að vera úti og bestu fríin eru þar sem útivera og samvera fléttast saman, hvort sem er göngur eða skíði. Við maðurinn minn kynntumst á Laugaveginum á fjöllum og deilum við því áhugamáli. Sumrum eyðum við fjölskyldan yfirleitt í heimabæmannsins míns í Maine fylki í Bandaríkjunum og erum svo lánsöm að vera við vatn þar sem við syndum, förum á „paddleboard“ eða kanó. Matur spilar einnig mikilvægan þátt í lífinu og margar af mínum ferðaminningum snúast ummat.“ Fjölskylda Eiginmaður Ágústu er Parker Graves O’Halloran, f. 25.11. 1972, sérfræðingur hjá Íslandsstofu. Þau eru búsett í Breiðholti. Foreldrar Parkers eru hjónin Susan Elisabeth O’Halloran, f. 31.12. 1943, kennari, og Robert O’Halloran, f. 31.10. 1939, rafmagnsverkfræðingur. Þau eru búsett í Hallowell, í Maine-fylki í Bandaríkjunum. Dætur Ágústu og Parkers eru Silvía Ása O’Halloran, f. 11.4. 2011, og Eva Sofia O’Halloran, f. 18.2. 2013. Systkini Ágústu eru Birna Björk Þorbergsdóttir, f. 1.1. 1968, sjúkra- þjálfi, búsett í Reykjavík, og Halldór Benjamín Þorbergsson, f. 5.4. 1979, framkvæmdastjóri, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Ágústu eru hjónin Þorbergur Halldórsson, f. 13.2. 1941, fyrrverandi innkaupastjóri, og Ingibjörg Bergmann, f.16.3. 1945, fyrrverandi gjaldkeri. Þau eru búsett í Reykjavík. Ágústa Ýr Þorbergsdóttir Þorbergur Halldórsson skipstjóri í Reykjavík Sigríður Jensdóttir húsfreyja í Reykjavík Halldór Benjamín Þorbergsson sjómaður í Reykjavík Guðrún Soffía Þorláksdóttir húsfreyja í Reykjavík Þorbergur Halldórsson fv. innkaupastjóri í Reykjavík Þorlákur Jón Jónsson bóndi og organisti í Saurbæ Sæunn Kristmundsdóttir húsfreyja í Saurbæ á Vatnsnesi Andreas Sigurd Jacob Bergmann gjaldkeri í Reykjavík Guðmunda Bergmann húsfreyja í Reykjavík Jón Guðmundur Bergmann aðalféhirðir í Reykjavík Ágústa Jónasdóttir Bergmann húsfreyja í Reykjavík Jónas Þóroddsson blikksmíðameistari í Reykjavík Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Ætt Ágústu Ýrar Þorbergsdóttur Ingibjörg Bergmann fv. gjaldkeri í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.