Morgunblaðið - 20.12.2022, Síða 26
ÍÞRÓTTIR26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2022
England
B-deild:
Wigan – Sheffield United............................ 1:2
Staðan:
Burnley 23 13 8 2 46:24 47
Sheffield Utd 23 13 5 5 38:20 44
Blackburn 23 13 0 10 27:26 39
Watford 23 10 7 6 30:22 37
Norwich 23 10 5 8 30:25 35
QPR 23 10 4 9 27:27 34
Preston 23 9 7 7 22:22 34
Birmingham 23 8 8 7 26:22 32
Millwall 22 9 5 8 27:26 32
Swansea 23 8 8 7 30:32 32
Reading 23 10 2 11 26:33 32
Sunderland 23 8 7 8 31:26 31
Middlesbrough 23 8 6 9 32:30 30
Coventry 21 8 6 7 24:22 30
Luton 22 7 9 6 24:24 30
WBA 22 7 8 7 29:25 29
Stoke 23 8 5 10 26:30 29
Bristol City 23 7 6 10 31:32 27
Rotherham 23 6 8 9 26:32 26
Cardiff 23 7 5 11 20:28 26
Hull 23 7 5 11 26:40 26
Blackpool 23 6 6 11 25:34 24
Wigan 23 6 6 11 23:34 24
Huddersfield 22 5 4 13 19:29 19
Ítalía
B-deild:
Perugia – Venezia ...................................... 2:1
Kristófer Jónsson var varamaður hjá Venezia
en Bjarki Steinn Bjarkason og Hilmir Rafn
Mikaelsson voru ekki í hópnum. ÓttarMagn-
ús Karlsson verður löglegur með liðinu á ný
um áramótin.
Beitir hættur í
fótboltanum
Beitir Ólafsson, sem hefur varið
mark KR-inga í fótboltanum í
hálft sjötta ár, hefur lagt mark-
mannshanskana á hilluna en KR-
ingar skýrðu frá ákvörðun hans
í gær. Beitir ólst upp hjá HK og
lék lengi vel með Kópavogsliðinu
en kom til KR snemma á tímabil-
inu 2017 eftir að hafa spilað með
Keflavík árið á undan. Hann lék
230 mótsleiki með KR, þar af 121
í efstu deild, en Beitir, sem er 36
ára, lék ekki í deildinni fyrr en
hann var orðinn 31 árs að aldri.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vesturbærinn Beitir Ólafsson hefur
varið mark KR-inga frá 2017.
Þremur höggum
frá 20. sætinu
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er
í 45.-54. sæti af 146 keppendum
að loknum þremur hringjum
af fimm á lokaúrtökumótinu
fyrir Evrópumótaröðina sem nú
stendur yfir á LaManga á Spáni.
Guðrún lék á 74 höggum í gær,
einu höggi yfir pari vallarins, og
er samtals á einu höggi yfir pari.
Tuttugu efstu keppendurnir fá
þátttökurétt á Evrópumótaröð-
inni 2023 og Guðrún er þremur
höggum á eftir þeim sem deila 20.
sætinu.
Ljósmynd/LET
Spánn Guðrún Brá Björgvinsdóttir
leikur fjórða hringinn í dag.
Lionel Scaloni, þjálfari heimsmeist-
araliðs Argentínu, notaði 24
leikmenn í lokakeppni heimsmeist-
aramótsins í Katar, fleiri en nokkur
þjálfari heimsmeistara karla í
fótbolta hefur áður gert.
Hóparnir voru stærri en áður, 26
leikmenn í stað 23 á síðustu mótum,
en eftir sem áður náði Scaloni að
tefla fram öllum 23 útispilurum
sínum í leikjunum sjö á HM í Katar.
Aðeins varamarkverðirnir tveir
komu ekki við sögu.
Sjálfur er Scaloni 44 ára, lék sjö
landsleiki fyrir Argentínu og spilaði
lengst af með Deportivo La Coruña
á Spáni. Hann hefur aldrei þjálfað
félagslið en hafði verið aðstoðar-
þjálfari landsliðsins í eitt ár þegar
hann tók við liðinu í október 2016.
Argentína varð Suður-Ameríku-
meistari 2022 undir hans stjórn, í
fyrsta sinn í 28 ár, og er nú heims-
meistari í fyrsta sinn í 36 ár.
Skoðum betur heimsmeistara-
liðið 2022 og til að byrja með þá
ellefu leikmenn sem Scaloni notaði
mest. Tíu þeirra, allir nema Marcos
Acuña, voru í byrjunarliðinu
þegar Argentína vann Frakkland í
vítaspyrnukeppni eftir jafntefli, 3:3,
í mögnuðum úrslitaleik liðanna á
sunnudaginn.
Þessir spiluðu mest
EmilianoMartínez, 30 ára
markvörður Aston Villa á Englandi.
Hafði aðeins leikið 19 landsleiki
fyrir HM en varði markið í öllum
sjö leikjunum. Var varamarkvörður
Arsenal 2011 til 2020. Valinn besti
markvörður keppninnar.
Nahuel Molina, 24 ára hægri
bakvörður sem kom til Atlético
Madrid á Spáni frá Udinese á Ítalíu
í september. Hafði leikið 20 lands-
leiki fyrir HM en spilaði alla sjö
leikina og skoraði gegn Hollandi.
Cristian Romero, 24 ára mið-
vörður sem kom til Tottenham
á Englandi frá Atalanta á Ítalíu í
ágúst 2021. Hafði leikið 12 landsleiki
fyrir HM en spilaði alla sjö leikina.
Nicolás Otamendi, 34 ára
miðvörður sem kom til Benfica í
Portúgal frá Manchester City árið
2020. Lék alla sjö leikina og spilaði
sinn 100. landsleik fyrir Argentínu
gegn Frakklandi á sunnudaginn.
Nicolás Tagliafico, 30 ára vinstri
bakvörður sem kom til Lyon í
Frakklandi frá Ajax í júlí 2022 eftir
fjögur ár í Hollandi. Lék sex leiki af
sjö og á nú 48 landsleiki að baki.
Rodrigo De Paul, 24 ára miðju-
maður sem kom til Atlético Madrid
á Spáni frá Udinese á Ítalíu í júlí
2021. Lék alla sjö leikina og á nú 51
landsleik að baki.
Enzo Fernández, 21 árs miðju-
maður sem kom til Benfica í Portú-
gal frá River Plate í Argentínu í júní
2022. Hafði aðeins leikið 3 landsleiki
fyrir HM en spilaði alla sjö leikina
og skoraði í 2:0 sigrinum á Mexíkó.
Valinn efnilegasti leikmaður keppn-
innar.
Alexis Mac Allister, 23 ára
miðjumaður sem kom til Brighton
á Englandi frá Argentinos Juniors í
ársbyrjun 2019. Hafði aðeins leikið
átta landsleiki fyrir HM en spilaði
sex leiki og skoraði í 2:0 sigrinum
á Pólverjum og lagði upp mark í
úrslitaleiknum gegn Frakklandi.
Marcos Acuña, 31 árs vinstri
kantmaður eða bakvörður sem kom
til Sevilla á Spáni frá Sporting í
Portúgal árið 2020. Lék sex leiki á
HM og hefur spilað 49 landsleiki.
Julián Álvarez, 22 ára framherji
sem Manchester City keypti af
River Plate í Argentínu í janúar
2022. Hafði leikið 12 landsleiki og
skorað 3 mörk fyrir HM en skoraði
fjögur mörk í sjö leikjum Argent-
ínu í Katar. Skoraði tvö mörk gegn
Króatíu í undanúrslitunum og skor-
aði einnig gegn Póllandi og Ástralíu.
Lionel Messi, 35 ára framherji
og fyrirliði heimsmeistaranna. Kom
til PSG í Frakklandi sumarið 2021
eftir 17 ár með aðalliði Barcelona.
Skoraði 7 mörk í 7 leikjum Argent-
ínu á HM, tvö þeirra í úrslitaleikn-
um, og var valinn besti leikmaður
keppninnar, sá eini í sögunni sem
hefur fengið þann titil tvisvar.
Markahæstur í sögu Argentínu
og líka Suður-Ameríku á HM.
Leikjahæstur allra í lokakeppni HM
frá upphafi. Leikja- og markahæsti
leikmaður Argentínu frá upphafi
með 172 landsleiki og 98 mörk.
Þessir spiluðu talsvert
Lautaro Martínez, 25 ára fram-
herji sem hefur leikið með Inter
Mílanó frá 2018. Lék sex leiki á
HM og hefur skorað 21 mark í 46
landsleikjum.
Ángel Di María, 34 ára kantmað-
ur sem kom til Juventus á Ítalíu í
sumar eftir sjö ár með París SG.
Skoraði mark og krækti í víti í úr-
slitaleiknum og lagði upp eitt mark
fyrr í keppninni. Spilaði fimm leiki
á HM og hefur skorað 28 mörk í 129
landsleikjum.
Leandro Paredes, 28 ára miðju-
maður sem kom til Juventus í
sumar á láni frá París SG. Lék fimm
leiki á HM og hefur skorað fjögur
mörk í 51 landsleik.
LisandroMartínez, 24 ára mið-
vörður sem kom til Manchester
United í sumar frá Ajax. Lék fimm
leiki á HM og hefur spilað 15 lands-
leiki alls.
Gonzalo Montiel, 25 ára hægri
bakvörður sem kom til Sevilla frá
River Plate í Argentínu sumarið
2021. Lék fjóra leiki á HM, hefur
spilað 22 landsleiki alls, og skoraði
úrslitamarkið í vítaspyrnukeppn-
inni í úrslitaleiknum.
Þessir spiluðu lítið
Germán Pezzella, 31 árs mið-
vörður sem kom til Real Betis
á Spáni frá Fiorentina á Ítalíu
sumarið 2021. Lék þrjá leiki á HM
og hefur skorað 2 mörk í 35 lands-
leikjum.
Exequiel Palacios, 24 ára miðju-
Scaloni tefldi fram 24
leikmönnum í Katar
lAllir nema varamarkverðirnir spiluðumeðArgentínu á heimsmeistaramótinu
maður sem kom til Leverkusen í
Þýskalandi frá River Plate í ársbyrj-
un 2020. Lék þrjá leiki á HM og
hefur spilað 23 landsleiki.
Alejandro Gómez, 34 ára sóknar-
maður sem kom til Sevilla á Spáni
frá Atalanta á Ítalíu í janúar 2021.
Lék tvo leiki á HM og hefur skorað
þrjú mörk í 17 landsleikjum.
Paulo Dybala, 29 ára framherji
sem kom til Roma frá Juventus á
Ítalíu í sumar. Lék tvo leiki á HM
og hefur skorað þrjú mörk í 36
landsleikjum.
Juan Foyth, 24 ára varnarmaður
sem kom til Villarreal á Spáni frá
Tottenham í október 2020. Lék
einn leik á HM og hefur spilað 17
landsleiki.
Thiago Almada, 21 árs miðju-
maður sem kom til Atlanta í Banda-
ríkjunum frá Velez í Argentínu í
janúar 2022. Lék einn leik á HM og
hefur spilað þrjá landsleiki.
Guido Rodríguez, 28 ára miðju-
maður sem kom til Real Betis á
Spáni frá América í Mexíkó árið
2020. Lék einn leik á HM og hefur
skoraði eitt mark í 27 landsleikjum.
Ángel Correa, 27 ára sóknarmað-
ur sem hefur leikið með Atlético
Madrid frá 2015. Lék einn leik á
HM og hefur skorað þrjú mörk í 23
landsleikjum.
Komu ekki við sögu
Franco Armani, 36 ára mark-
vörður River Plate í Argentínu frá
2018. Hefur leikið 18 landsleiki.
Gerónimo Rulli, 30 ára mark-
vörður sem kom til Villarreal á
Spáni frá Real Sociedad 2020.
Hefur leikið 4 landsleiki.
HM Í KATAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
AFP/Odd Andersen
Heimsmeistarar Argentínumenn fagna á verðlaunapallinum eftir að Lionel Messi tók við styttunni eftirsóttu.
Knattspyrnukonurnar Erna Guðrún
Steinsen Magnúsdóttir og Selma
Dögg Björgvinsdóttir eru gengnar til
liðs við Víking en þær koma báðar frá
FH og eru báðar að snúa aftur á völlinn
eftir barnsburð.
Karim Benzema tilkynnti í gær að
hann myndi ekki gefa framar kost á
sér í franska landsliðið í knattspyrnu.
Benzema, sem varð 35 ára í gær og var
kjörinn knattspyrnumaður ársins hjá
UEFA 2021-22, meiddist á æfingu rétt
áður en HM hófst í Katar og missti af
keppninni.
Hans Óttar Lindberg er í 18
manna hópi sem Nikolaj Jörgensen,
þjálfari heimsmeistaraliðs Dana í
handknattleik, tilkynnti í gær fyrir
heimsmeistaramótið í næsta mánuði.
Hans Óttar, sem á íslenska foreldra, er
orðinn 41 árs gamall og hefur leikið
með landsliðinu í 20 ár.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir
og Anton Sveinn McKee voru í gær
útnefnd sundfólk ársins 2022 hjá
Sundsambandi Íslands.
Glódís Perla Viggósdóttir og Hákon
Arnar Haraldsson voru útnefnd
knattspyrnufólk ársins 2022 hjá
Knattspyrnusambandi Íslands.
Kristín Þórhallsdóttir og Guðfinnur
Snær Magnússon voru útnefnd kraft-
lyftingafólk ársins 2022 hjá Kraftlyft-
ingasambandi Íslands.
Sébastien Haller, sóknarmaður
þýska knattspyrnuliðsins Borussia
Dortmund, mun hefja æfingar að
nýju í næsta mánuði eftir að önnur
aðgerð hans vegna illkynja æxlis
í eista heppnaðist vel. Hann fór í
fyrri aðgerðina í sumar, rétt eftir að
Dortmund keypti hann af Ajax, þannig
að hann hefur enn ekki leikið fyrir sitt
nýja félag.
Vivianne Miedema frá Hollandi,
ein besta knattspyrnukona heims,
sleit krossband í hné fyrir helgina
þegar hún lék með Arsenal gegn Lyon
í Meistaradeildinni. Miedema, sem
hefur skorað 95 mörk fyrir Holland,
missir þar með af HM á næsta ári.