Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
Innlent6
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Áhrif samdráttar í ferðaþjónustu
vegna kórónuveirufaraldursins hafa
komið misilla niður á atvinnutekjum
eftir svæðum, samkvæmt samantekt
Byggðastofnunar. Þótt samdráttur
atvinnutekna í greininni hafi víðast
hvar verið yfir 30% lækkaði hlutdeild
einkennandi greina ferðaþjónustu í
atvinnutekjum í Skaftafellssýslum
úr 36,1% árið 2019 í 23,5% 2021 og
í Reykjanesbæ úr 33,1% í 22,2%. Á
öðrum svæðum sem hafa verið háð
ferðaþjónustu dróst hlutdeild at-
vinnugreinarinnar í atvinnutekjum
einnig verulega saman árið 2020 og
batnaði lítið eða minnkaði áfram árið
2021.
Heildaratvinnutekjur á árinu 2021
námu 1.462 milljörðum króna sem var
um 70 milljörðum meira en á árinu
2020. Aukningin nemur 5%. Ef litið
er á lengra tímabil, eða frá 2012, sést
að núvirtar atvinnutekjur hafa aukist
um 490 milljarða, eða 50%.
Byggðastofnun brýtur tölur Hag-
stofunnar um atvinnutekjur niður á
svæði. Á árinu 2021 jukust heildarat-
vinnutekjur á öllum svæðum en árið
áður höfðu þær dregist saman vegna
faraldursins. Mest aukning heildarat-
vinnutekna á síðasta ári, miðað við
árið á undan, var í Fjarðabyggð, 9,9%,
en minnst í Eyjafirði utan Akureyrar,
1,2% og í Hafnarfirði, 1,8%.
Auknar tekjur í heildina
Reiknað á íbúa voru atvinnutekjur
hæstar í Fjarðabyggð á árinu 2021,
eða 5,1 milljón kr. á mann. Næst-
hæstar eru tekjurnar í Garðabæ,
4,8 milljónir á mann. Eins og sést á
meðfylgjandi grafi voru atvinnutekjur
undir 3,3 milljörðum á hvern íbúa í
Húnavatnssýslum, þar sem tekjurnar
voru lægstar, Rangárvallasýslu, upp-
sveitum Árnessýslu og Flóahreppi og
Borgarfirði og Dölum. Allt eru þetta
atvinnusvæði þar sem þekkt er að
landbúnaður er mikilvægur.
Skipt á landshluta voru atvinnu-
tekjur á íbúa hæstar á Austurlandi,
eða um 4,4 milljónir, og Vestfjörðum,
4,2 milljónir.
Stærsta grein mæld í atvinnutekj-
um árið 2021 var opinber stjórnsýsla,
fræðslustarfsemi, heilbrigðis- og
félagsþjónusta með 460 milljarða
króna, eða 31,5% allra atvinnutekna.
Næst kemur heild- og smásöluverslun
ásamt viðgerðum á vélknúnum öku-
tækjum með 154 milljarða eða 10,6%.
Á tíu ára tímabili, frá 2012 til 2021,
jukust heildaratvinnutekjur í flestum
atvinnugreinum um 40 til 70%. Mest
hlutfallsleg aukning varð í tiltölulega
nýrri grein, fiskeldi, tekjur jukust úr
0,8 milljörðum í 4,5 milljarða og er
aukningin 463%. Einnig varð mjög
mikil aukning í byggingastarfsemi,
eða 141%. Hins vegar hafa atvinnu-
tekjur í fiskveiðum dregist saman um
30% á þessu tíu ára tímabili.
lAtvinnutekjur á íbúa lægstar í Húnavatnssýslum árið 2021
Íbúar Fjarðabyggðar
eru með 5,1 milljón
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Atvinnutekjur á íbúa eftir svæðum
Milljónir kr. á íbúa árið 2021
Fjarðabyggð
Garðabær
Seltjarnarnes
Snæfellsnes
Kópavogur
Vestmannaeyjar
Vestfirðir
Hafnarfjörður
Eyjafjörður án Akureyrar
Mosfellsbær og Kjós
Grindavík
Austurland án Fjarðabyggðar
Reykjavík
Akranes og Hvalfjörður
Skagafjörður
Akureyri
Skaftafellssýslur
Þingeyjarsýslur
Árborg
Hveragerði og Ölfus
Suðurnesjabær og Vogar
Reykjanesbær
Borgarbyggð og Dalir
Uppsveitir og Flóahreppur
Rangárvallasýsla
Húnavatnssýslur
5,1
4,8
4,7
4,3
4,3
4,3
4,2
4,1
4,1
4,1
4,0
3,9
3,9
3,9
3,9
3,8
3,8
3,6
3,5
3,5
3,3
3,3
3,2
3,1
3,1
3,0
2021, m.kr.
2020 til
samanburðar
Heimild:
Byggðastofnun
Jólamóðir, ný íslensk jóla- og ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna, frumsýnd í Sambíóunum í Kringlunni í gær
Hurðaskellir
og Skjóða í
Grýluhelli
Ný íslensk fjölskyldu- og ævintýramynd,
Jólamóðir, var frumsýnd í Sambíóunum í
Kringlunni í gær. Eins og við var að búast
mættu Grýla og Leppalúði á frumsýninguna,
ásamt jólasveinunum þrettán og nokkrum
tröllabörnum. Gleðin var ríkjandi í hjarta og
huga bíógesta.
Jólamóðir er tekin upp í Grýluhelli og
segir frá sögu þessarar jólafjölskyldu sem
landsmenn hafa alist upp við gegnum aldirn-
ar. Í aðalhlutverki eru systkinin Hurðaskell-
ir og Skjóða en í myndinni koma fyrir hátt í
70 aðrir íbúar Grýluhellis.
Leikstjóri myndarinnar er Jakob Hákon-
arson og handrit skrifaði Anna Bergljót
Thorarensen, sem einnig leikur í myndinni.
Aðrir helstu leikarar eru Andrea Ösp Karls-
dóttir, Gríma Kristjánsdóttir, Huld Óskars-
dóttir, Sigsteinn Sigurbergsson og Stefán
Benedikt Vilhelmsson.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon